Fréttablaðið - 18.12.2013, Side 40
KYNNING − AUGLÝSINGÖryggi barna MIÐVIKUDAGUR 18. DESEMBER 20136
Hver ber ábyrgð á skólabörnum
á skólatíma; í skólanum sjálfum,
á skólalóð og utan skólalóðar
þegar barn þarf á milli skóla og
sundstaða eða íþróttahúss?
Reykjavíkurborg ber ábyrgð á
slysum/tjónum skólabarna sem
eiga sér stað í húsnæði grunn-
skólans og á það jafnt við hús-
næði sem borgin á sjálf eða hefur
á leigu undir starfsemi grunn-
skólans. Þá ber Reykjavíkurborg
ábyrgð á slysum/tjónum skóla-
barna sem eiga sér stað innan
skólalóðar á skólatíma sem utan
hennar, ef um er að ræða starf-
semi sem fram fer á vegum skól-
ans, hvort heldur sem krafist er
skyldumætingar nemenda eður
ei. Skilyrði bótaábyrgðar Reykja-
víkurborgar er að slys/tjón nem-
enda megi sannanlega rekja til
lélegs aðbúnaðar eða viðhalds
skólahúsnæðis eða skorts á eftir-
liti af hálfu starfsmanna Reykja-
víkurborgar, það er skólastjórn-
enda, kennara og skólaliða. Rétt
er þó að taka fram í þessu sam-
bandi að Reykjavíkurborg ber
ekki ábyrgð á slysum/tjónum
sem rakin verða til saknæmrar
háttsemi skólabarnanna sjálfra.
Því eldri sem grunnskólanemi
er, þeim mun ríkari kröfur verða
gerðar til háttsemi hans.
Má samkvæmt lögum skilja
yngra grunnskólabarn eftir eitt
á skólalóð, í leiktækjum skólans
eða á svelli og í snjóleikjum þegar
það neitar að skila sér inn úr frí-
mínútum, og má láta það vera
óáreitt úti sem samsvarar heilli
kennslustund þegar það á að vera
í tíma?
Lagaákvæði taka ekki berum
orðum á aðstæðum sem þessum.
Hins vegar er ljóst að almennt
hlýtur að eiga við að ekkert barn á
að vera skilið eitt eftir í einhverj-
um þeim aðstæðum sem nefndar
eru hér að framan þegar það á að
vera í kennslustund.
Hvernig er öryggi barna tryggt
gagnvart slysahættu á skólatíma?
Reykjavíkurborg leitast við að
tryggja öryggi barna í skipulögðu
starfi á vegum skóla eftir fremsta
megni, meðal annars með því að
búa þeim góðan aðbúnað í öllu
skólastarfi og fela starfsmönn-
um að hafa eftirlit með börnum
í starfsemi sem fram fer á vegum
skólans.
Njóta börn tryggingaverndar
þegar kemur að líkamstjóni eða
tannskaða á skólatíma og sem
rakin eru til vanbúnaðar skóla-
húsnæðis, leiktækja, lóðar eða gá-
leysis starfsmanna skólans?
Í fyrsta lagi eru í gildi reglur
um slysatryggingar barna í skipu-
lögðu starfi á vegum Reykjavík-
urborgar, sem samþykktar voru
á fundi borgarráðs 10. júlí 2008.
Bætur greiðast vegna slyss sem
barn verður fyrir ef það leiðir til
andláts eða varanlegrar læknis-
fræðilegrar örorku.
Í öðru lagi eru í gildi regl-
ur um endurgreiðslu kostnaðar
vegna slysa og tjóna er börn verða
fyrir í skipulögðu starfi á vegum
Reykjavíkurborgar, sem sam-
þykktar voru á fundi borgarráðs
13. mars 2008. Algengustu slysin
sem grunnskólabörn verða fyrir
og Reykjavíkurborg bætir sam-
kvæmt reglum þessum eru tann-
brot. Tannviðgerðir á börnum til-
komnar vegna slysa og tjóna eru
endurgreiddar foreldrum/for-
ráðamönnum að hluta af Trygg-
ingastofnun ríkisins. Þá greiða
fjölskyldutryggingar vátrygging-
arfélaga almennt einnig hluta af
tannviðgerðum barna. Það sem
eftir stendur greiðir Reykjavík-
urborg, þó ekki hærri fjárhæð en
kr. 100.000 vegna einstaks slyss.
Í þriðja lagi hefur Reykjavík-
urborg svonefnda frjálsa ábyrgð-
artryggingu atvinnurekenda, en
samkvæmt skilmálum trygging-
arinnar tekur hún til bótaábyrgð-
ar sem fellur á vátryggingartaka
(Reykjavíkurborg) eða borgar-
starfsmenn (skólastjórnendur,
kennara, skólaliða og fleiri) valdi
þeir þriðja aðila, til dæmis barni,
tjóni með saknæmum og ólög-
mætum hætti.
Hver ber ábyrgð
á skólabörnum?
Börn eru stóran hluta dagsins á ábyrgð annarra en foreldra sinna. Slysin gera
ekki boð á undan sér og víst að margar hættur geta leynst á vegi barna á
skólatíma. Hér er greint frá ábyrgðarhlutverki skólayfirvalda gagnvart öryggi
skólabarna í grunnskólum Reykjavíkur.
Reykjavíkurborg ber ekki ábyrgð á slysum eða tjóni sem rakin verða til saknæmrar háttsemi skólabarnanna sjálfra og því eldri sem
grunnskólanemi er, þeim mun ríkari kröfur eru gerðar til háttsemi hans. MYND/VILHELM
*P
re
nt
m
ið
la
kö
nn
un
C
ap
ac
en
t o
kt
ób
er
–d
es
em
be
r 2
01
2
–
hö
fu
ðb
or
ga
rs
væ
ði
2
5-
54
á
ra
Innskot í Fréttablaðið skilar árangri!
MEST LESNA
DAGBLAÐ Á ÍSLANDI*
Fréttablaðið er mest lesna dagblaðið með glæsilegt forskot
á keppinautana. Meðallestur Fréttablaðsins í aldurshópnum
25-54 ára er 73% á höfuðborgarsvæðinu.*
Við bendum auglýsendum á að notfæra sér forskotið þegar
þeir velja dreifingarleið fyrir fjölpóst sinn. Við dreifum sex
daga vikunnar til heimila á stærsta markaðssvæði landsins.
Hafðu fjölpóstinn þinn inni í Fréttablaðinu.
Það er áhrifarík leið til að koma skilaboðum um vöru eða
þjónustu beint inn á heimilin.
Kannaðu dreifileiðir og verð í síma 512 5448
eða í tölvupóstfangi fjolpostur@frettabladid.is
HAFÐU FJÖLPÓSTINN ÞINN
Í FRÉTTABLAÐINU
Skilyrði
bótaábyrgðar
Reykjavíkurborgar er að
slys/tjón nemenda megi
sannanlega rekja til
lélegs aðbúnaðar eða
viðhalds skólahúsnæðis
eða skorts á eftirliti.