Fréttablaðið - 18.12.2013, Qupperneq 41
KYNNING − AUGLÝSING Öryggi 18. DESEMBER 2013 MIÐVIKUDAGUR 7
Þegar valinn er öryggis- og verndar-búnaður fyrir börn er mikilvægt að gefa sér góðan tíma, skoða heimasíður
og kynna sér úrval verslana,“ segir Þóra og
áréttar að búnaðurinn þurfi bæði að henta
barninu og passa í bílinn. „Á sama hátt
skiptir miklu máli að barnið noti búnaðinn
rétt. Bílbelti má ekki vera snúið og það þarf
að falla vel að líkama barnsins,“ segir hún.
Þá megi aldrei setja belti fyrir aftan bak eða
undir handlegg barns.
Flokkar öryggisbúnaðar miðast í dag við
þyngd, að sögn Þóru. Gott sé að láta barnið
nota bílstól eins lengi og hægt er (þangað til
hámarksþyngd er náð). „Mikilvægt er þó að
höfuð barns nái aldrei upp fyrir brún stóls-
ins, en miðað er við eyrun,“ segir hún.
Rétt notkun mikilvæg
„Ef keyptur er öryggisbúnaður sem fest-
ur er í bílinn með bílbelti er nauðsynlegt að
athuga hvort hann passi í viðkomandi bíl,“
segir Þóra og bendir á að hægt sé að fá slík-
ar upplýsingar á heimasíðum framleiðenda
eða í bæklingi sem fylgir búnaðinum. „Ef
nota á sama búnað í fleiri en einn bíl þarf að
gæta þess að hann passi í öllum tilvikum.“
Þegar öryggisbúnaður er festur í bíl er
nauðsynlegt að það sé gert á réttan hátt.
„Þótt barn sé í réttum búnaði getur það slas-
ast alvarlega ef búnaðurinn er ekki rétt fest-
ur. Mikilvægt er að lesa vandlega allar leið-
beiningar sem fylgja bæði bílnum og örygg-
isbúnaðinum. Þá er hægt að biðja sölumenn
verslana um aðstoð við að festa búnaðinn í
bílinn,“ lýsir Þóra.
ISOFIX-festingar
Margir bílar eru með ISOFIX-festingar í aft-
ursæti. Festingarnar eru tengdar grind bíls-
ins. Þóra bendir á að ef keyptur er barnabíl-
stóll með ISOFIX passi hann í alla bíla sem
eru með ISOFIX-festingar.
Hvenær er óhætt að setja barnið í fram-
vísandi barnabílstól?
„Barn á að snúa baki í akstursstefnu eins
lengi og hægt er þar sem höfuð þess er hlut-
fallslega stórt og þungt og hálsliðir þess
ekki fullþroskaðir. Með því að nota bakvís-
andi barnabílstól minnka líkur á alvarleg-
um áverkum á mænu og heila barnsins,“
upplýsir Þóra. Hún segir best að láta barn-
ið snúa aftur til þriggja ára aldurs. Aldrei
megi setja barn undir eins árs í framvísandi
barnabílstól.
Notaður öryggisbúnaður og endingartími
stóla
Hægt er að fá öryggisbúnað leigðan hér á
landi, til að mynda hjá tryggingarfélögum,
að sögn Þóru. Hún segir mikilvægt að at-
huga aldur búnaðar en endingartími flestra
barnabílstóla er 10 ár, frá þeim degi sem þeir
eru teknir í notkun. „Hins vegar er miðað
við að ungbarnabílstólar endist skemur, eða
í fimm ár,“ segir Þóra og tiltekur að ekki sé
mælt með að fleiri en tvö börn noti sama
ungbarnabílstól.
Ef búnaður er fenginn að láni hjá vinum
eða ættingjum er áríðandi að kanna aldur
stólsins og hvort hann hafi orðið fyrir
hnjaski. Hvort hann hafi til dæmis verið í
notkun í bíl í árekstri eða lent í öðru óhappi,
til að mynda fallið úr nokkurri hæð. „Ör-
yggisbúnaður getur verið ónýtur þótt ekk-
ert sjáist á honum og því getur vitneskja um
meðferð stólsins verið mikilvæg,“ segir Þóra.
Öryggisbúnaður skiptir höfuðmáli
Að mörgu er að huga þegar kemur að öryggi barna í umferðinni. Vanda þarf valið á barnabílstólum og ekki síður frágangi þeirra í
bíla og önnur farartæki. Þóra Magnea Magnúsdóttir, fræðslustjóri hjá Samgöngustofu, gefur foreldrum góð ráð.
Þóra Magnea Magnúsdóttir, fræðslustjóri hjá Samgöngustofu, segir höfuðmáli skipta að velja rétta öryggis-
búnaðinn og nota hann á réttan máta. MYND/VALLI
ÖRYGGISPÚÐAR ERU VARASAMIR
Öryggispúðar í bílum eru mikill öryggisbúnaður en þessir púðar
eru hættulegir ungum börnum. Hættan felst í högginu sem barnið
verður fyrir þegar púðinn þenst út og lendir á höfði og efri hluta líkam-
ans. Höggið getur leitt til alvarlegra áverka eða jafnvel dauða. Samkvæmt
lögum mega börn undir 150 cm hæð ekki sitja í framsæti bifreiðar ef
öryggispúði er fyrir framan sætið. Þetta á einnig við þótt barnið sitji í
öryggisbúnaði. Flestir eru með þetta á hreinu.
Annað hvert ár framkvæmir Samgöngustofa, með Slysavarnafélaginu
Landsbjörg, könnun á öryggisbúnaði barna. Þá stöndum við úti fyrir
framan valda leikskóla og skoðum aðbúnað barna í bílum þegar þau
koma á leikskólann. Því miður fáum við í hvert sinn, sem við framkvæm-
um þessa könnun, tilfelli þar sem börn sitja fyrir framan öryggispúða. Í
einu tilfelli sátu tvö börn í framsætinu, í einu öryggisbelti fyrir framan
öryggispúða. Ástæður sem gefnar eru upp eru oftar en ekki þær að það
sé svo stutt að fara eða þetta sé „hinn bíllinn“, sem viðkomandi er yfirleitt
ekki á. Þess má geta að flest slys verða nálægt upphafsstað og þeir sem
eru að aka börnum sínum á leikskóla eru yfirleitt að fara stutta leið því
allflestir búa nálægt leikskólanum.
Högg frá loftpúða getur leitt til alvarlegra áverka eða jafnvel dauða. Myndin er
sviðsett. MYND/ EINAR MAGNÚS MAGNÚSSON
Flest börn nota þrjár tegundir af ör-
yggisbúnaði um ævina áður en þau
nota bílbelti án búnaðar.
Ungbarnabílstóll
Fyrsti stóllinn er oft nefndur ungbarna-
bílstóll en mismunandi er hversu lengi
börn nota þann stól. Flestir ungbarnabíl-
stólar duga barninu þar til það hefur náð
13 kg þyngd. Þó er einnig hægt að kaupa
stóla sem ná frá fæðingu og upp í 18 kg
þyngd en slíka stóla er ekki hægt að nota
sem burðarstóla heldur eru þeir hafð-
ir fastir í bílnum. Hægt er að kaupa ung-
barnabílstól með sökkli (e. base). Sökk-
ullinn er festur í bílinn með bílbelti eða
með ISOFIX-festingum. Stólnum er síðan
smellt í sökkulinn.
Barnabílstóll
Þegar barnið hefur vaxið upp úr ung-
barnabílstólnum þarf það stól sem ætl-
aður er börnum upp í 18 eða 25 kg en þeir
stólar eru festir í bílinn með bílbelti eða
með ISOFIX-festingum. Barnið er fest í
stólinn með fimm punkta belti.
Bílpúði með baki
Þegar barnið hefur náð 18 eða 25 kg er
óhætt að setja það á bílpúða með baki.
Ekki er mælt með notkun bílpúða án baks
því bakið veitir betri vörn. Á bakinu eru
lykkjur eða hök til þess að þræða bílbeltið
í þannig að það falli rétt að líkama barns-
ins. Því miður verða starfsmenn Sam-
göngustofu varir við það í könnunum
sínum að börnum er leyft of snemma að
vera einungis í öryggisbelti en barn á að
nota sérhæfðan öryggisbúnað sem hæfir
því þar til það hefur náð 150 cm sem er oft
ekki fyrr en um 10-12 ára aldur.
Þrjár tegundir öryggisbúnaðar
Þegar barnið hefur náð 18 eða 25 kg er óhætt að setja það á
bílpúða með baki.
Barn á að snúa
baki í aksturs-
stefnu eins lengi
og hægt er þar
sem höfuð þess
er hlutfallslega
stórt og þungt
og hálsliðir þess
ekki fullþrosk-
aðir.
Samgöngustofa varar við að keyptur sé
búnaður af ókunnugum þar sem erfitt
getur reynst að fá áreiðanlegar upp-
lýsingar um búnaðinn. Gott er að hafa
í huga að ef upprunaleiðbeiningar
stólsins eru týndar má yfirleitt finna
þær á netinu.