Fréttablaðið - 18.12.2013, Side 54
18. desember 2013 MIÐVIKUDAGUR| MENNING | 34
MIÐVIKUDAGUR
18. DESEMBER
HVAÐ?
HVENÆR?
HVAR?
Tónleikar
12.00 Kammerkórinn Schola cantorum
heldur síðustu hádegistónleika sína á
aðventunni með jólatónleikum.
20.00 Ólafur Arnalds heldur tónleika í
Kaldalónssal Hörpu í kvöld. Hann kemur
fram ásamt svokölluðu trói sínu.
20.00 Sigríður Thorlacius heldur útgáfu-
tónleika í Fríkirkjunni í Reykjavík.
20.00 Tónleikaröðin Eitthvað fallegt
heldur til Akureyrar. Tónleikarnir fara
fram í Akureyrarkirkju.
20.30 Hljómsveitin Brother Grass
heldur tónleika á veitingastaðnum Café
Flóra í Laugardal.
21.00 Borgardætur halda jólatónleika
sína á Café Rosenberg.
21.30 Trúbadorinn hr. Halli heldur tón-
leika á Ob-La-Dí-Ob-La-Da, Frakkastíg 8.
Leiklist
19.30 Leikverkið Þingkonurnar verður
forsýnt í Þjóðleikhúsinu í kvöld.
20.00 Nóttin var sú ágæt ein verður
sýnd í Tjarnarbíói.
20.00 Leiksýningin Jeppi á fjalli verður
sýnd á Nýja sviðinu í Borgarleikhúsinu.
Sýningar
20.00 Breska sýningin STOMP er
komin til Íslands. Sýnt verður í Eld-
borgarsal Hörpu í kvöld.
Upplýsingar um viðburði sendist á
hvar@frettabladid.is
Kári Tulinius stendur fyrir ljóða-
kvöldi á Stofunni í kvöld. Ljóða-
kvöldið hefur alþjóðlegt yfirbragð,
því þar lesa upp ljóðskáld frá Finn-
landi, Kanada, Líbanon og Íslandi.
„Ljóð eru alltaf fréttir af innra lífi
fólks og það er gaman að fá fréttir
úr innra lífi fólks alls staðar að úr
heiminum,“ segir Kári.
„Ég er að hugsa um að flytja
sjálfur nýtt ljóð sem ég hef verið
í mánuð að semja. Upphaflega
fjallaði það um valdhafa og hvernig
þeir fara með vald sitt, en ljóð taka
breytingum á meðan maður semur
þau og ég þori ekki að fara með það
um hvað það á eftir að fjalla á mið-
vikudaginn.“
Tvö af útlensku skáldunum hafa
búið í Reykjavík heillengi. „Þau
eru eiginlega orðin Reykvíkingar.
Það eru þau Angela Rawlings, sem
hefur unnið til fjölda verðlauna
fyrir ljóðlist í heimalandi sínu
Kanada, og síðan Mazeen Marouf,
sem hefur komið sér inn að hjarta
íslenskra ljóðaunnenda með nýj-
ustu bókinni sinni, Ekkert nema
strokleður, sem Dimma gaf út.
Svo kemur fram finnsk skáldkona
sem heitir Vilja-Tuulia Huotarinen.
Hún kemur fram með þýðandanum
sínum, Mörtu Guðrúnu Jóhannes-
dóttur.“ Þær Marta og Vilja kynnt-
ust á alþjóðlegri ljóðahátíð Nýhils
árið 2007 og Marta hefur þýtt ljóð-
in hennar síðan yfir á íslensku.
„Auk okkar fjögurra verður Krist-
ín Svava Tómasdóttir með okkur,
sem ég held að ætli að flytja ný
ljóð. Þetta verður svona rólegheita-
kvöld á myrkasta tíma ársins. Þá
er alltaf ágætt að hittast og hlusta
á ljóð.“ -ue
Ljóð eru fréttir
af innra lífi fólks
Ljóðskáld frá Finnlandi, Kanada, Líbanon og Íslandi
lesa upp ljóð sín á sérstöku ljóðakvöldi á Stofunni.
MYRKUR TÍMI
Kári Tulinius og
Vilja bjóða upp
á rólegheita-
kvöld.
FRÉTTABLAÐIÐ/DANÍEL
„Það verður öllu tjaldað til í Eld-
borgarsalnum í mars,“ segir
tónleikahaldarinn Guðbjartur
Finnbjörnsson. Meistaraverk
hljómsveitarinnar Pink Floyd,
The Wall, verður 35 ára á næsta
ári og af því tilefni ætla Dúndur-
fréttir að flytja verkið í heild sinni
í Eldborgarsal Hörpu þann 12. og
13. mars.
„Ásamt Dúndurfréttum kemur
fram 35 manna sinfóníuhljóm-
sveit og kór. Einnig stefnum við á
að hafa eitt flottasta ljósasjóv sem
sést hefur í Eldborginni,“ útskýrir
Guðbjartur.
Dúndurfréttir spiluðu á þrenn-
um tónleikum sem seldist upp á
í Eldborg fyrr á árinu, þar sem
sveitin lék annað meistaraverk
Pink Floyd, Dark Side of the Moon.
Gera má ráð fyrir mikilli stemn-
ingu á tónleikunum enda fag-
maður í hverri stöðu í herbúðum
Dúndurfrétta. Miðasala hefst í dag
klukkan 12.00 á midi.is. - glp
Pink Floyd í Eldborg
Dúndurfréttir fl ytja meistaraverkið The Wall í Hörpu.
HEIÐURSTÓNLEIKAR Dúndurfréttir leika meistaraverk Pink Floyd, The Wall, í mars.
MYND/GASSI OG ÓLÖF ERLA EINARSDÓTTIR „Jólafílingurinn kemur yfir
mann á fyrstu æfingunni fyrir
tónleikana á hverju ári,“ segir
Andrea Gylfadóttir, ein þriggja
söngkvenna í Borgardætrum, en
sveitin er tvítug á þessu ári. „Við
byrjuðum sumardaginn fyrsta
1993, þannig að við erum rúm-
lega tvítugar.“ Sveitin er nú mikið
tengd við jólin, hjá mörgum er
ferð á tónleika Borgardætra part-
ur af jólaundirbúningnum.
„Ég myndi giska á að helming-
ur gesta okkar væri fastagestir
sem koma ár eftir. Við þekkjum
andlit í hópnum,“ segir Andr-
ea en þessi hefð skapar ákveðið
vandamál fyrir sveitina.
„Á hverju ári flytjum við ný
lög. En það þýðir að við þurfum
að sleppa öðrum eldri lögum.
Undantekningarlaust kemur
fólk til okkar sem vildi heyra
eitthvað af þeim lögum sem við
tókum ekki. En þetta er nauðsyn-
legt, ef við slepptum ekki eldri
lögum yrðu tónleikarnir örugg-
lega fimm klukkutímar að lengd,“
segir Andrea glettin. Sveitin varð
svona nátengd jólunum árið 2000
þegar Jólaplata Borgardætra
kom út.
„Síðustu þrettán ár höfum við
verið með jólatónleika. Það er
mikill undirbúningur að baki
svona tónleikum. Svona þríradda
söng þarf að æfa vel ef hann á að
hljóma fallega.“
Andrea segir að það hafi staðið
til að gefa eitthvað út vegna tíma-
mótanna en ekki gengið eftir.
„Við vorum öll mjög upptekin í
ár. Við gerum vonandi eitthvað á
næsta ári.“
Borgardætur eiga eftir að
halda þrenna tónleika fram að
jólum á Café Rosenberg og upp-
selt er á þá alla. Með sveitinni
leika Þorpsbúarnir: Eyþór Gunn-
arsson á píanó, Birgir Bragason á
kontrabassa og Magnús Trygva-
son Eliassen á trommur. Tón-
leikar sveitarinnar hefjast klukk-
an 21 í kvöld.
kjartanatli@frettabladid.is
Uppselt á tónleika
tvítugra Borgardætra
Borgardætur hafa verið að síðan árið 1993. Andrea Gylfadóttir segir þær farnar
að þekkja ákveðin andlit í salnum, sem sjáist aft ur ár eft ir ár.
13 JÓL Borgardætur gáfu út Jólaplötuna árið 2000 og eru nú stór hluti af jólaupplifun margra.
Ef við slepptum ekki
eldri lögum yrðu tónleik-
arnir örugglega fimm
klukkutímar að lengd.
Andrea Gylfadóttir
- örugg bifreiðaskoðun um allt land
Þú gætir eignast
nýjan Spark ef þú drífur
bílinn í skoðun!
Þeir sem koma með bílinn í skoðun fyrir lok dags þ. 22. des.
eiga möguleika að eignast stórglæsilegan Chevrolet Spark
sem verður dreginn út þ. 23. des. 2013.
Aðal iv inn ngur er s lp u kn unýr Chevr lo et Spark árg. 20 14
HAPPDRÆTTI
GÓÐ ÞJÓNUSTA
OG HAGSTÆÐKJÖR Á SKOÐUNUM