Fréttablaðið - 18.12.2013, Blaðsíða 64

Fréttablaðið - 18.12.2013, Blaðsíða 64
18. desember 2013 MIÐVIKUDAGUR| SPORT | 44 ÆFINGAHÓPURINN MARKVERÐIR: Aron Rafn Eðvarðsson Guif Björgvin Páll Gústavsson Bergischer AÐRIR LEIKMENN: Arnór Atlason St. Raphael Aron Pálmarsson Kiel Árni Steinn Steinþórsson Haukar Arnór Þór Gunnarsson Bergischer Ásgeir Örn Hallgrímsson PSG Bjarki Már Elísson Eisenach Bjarki Már Gunnarsson Aue Guðjón Valur Sigurðsson Kiel Kári Kristján Kristjánsson Bjerringbro Ólafur Guðmundsson Kristianstad Ólafur Gústafsson Flensburg Ólafur Bjarki Ragnarsson Emsdetten Róbert Gunnarsson PSG Rúnar Kárason Hannover-Burgdorf Snorri Steinn Guðjónsson GOG Stefán Rafn Sigurmannsson RN Löwen Sverre Andreas Jakobsson Grosswallstadt Vignir Svavarsson Minden Þórir Ólafsson Kielce ÚR EM-HÓPNUM: Alexander Petersson RN Löwen Atli Ævar Ingólfsson Nordsjælland Daníel Freyr Andrésson FH Ernir Hrafn Arnarson Emsdetten Guðmundur Árni Ólafsson Mors-Thy Gunnar Steinn Jónsson Nantes Hreiðar Levý Guðmundsson Nötteröy HANDBOLTI Aron Kristjánsson landsliðsþjálfari valdi í gær 21 manns æfingahóp fyrir Evrópu- mótið sem fer fram í Danmörku í janúar. Sjö leikmenn úr uppruna- lega hópnum eru dottnir út og aðeins sextán munu fara til Dan- merkur. Stærstu tíðindin í gær voru auð- vitað þau að stórskyttan Alexander Petersson skyldi ekki gefa kost á sér í hópinn vegna meiðsla. Þetta er annað stórmótið í röð sem Alex- ander mun missa af vegna sömu meiðsla. Fjarvera Alexanders er mikið högg fyrir landsliðið enda hefur hann verið lykilmaður á báðum endum vallarins. „Hann segist ekki þola álagið sem fylgi því að spila á stórmóti miðað við standið á honum í dag,“ segir Aron en kom ekki til greina að taka Alexander með og reyna að nýta hann eins og hann treysti sér til? Annaðhvort með á fullu eða ekki „Við ræddum um þann mögu- leika en hann vildi annaðhvort vera með á fullu eða ekki,“ segir Aron en er hann sáttur við þessa niðurstöðu? „Hann er að glíma við erfið meiðsli sem ógna ferli hans. Þetta er orðið langt ferli hjá honum og spurning hvort hefði ekki mátt gera þetta öðruvísi? Manni hefur stundum fundist hann vera að spila mikið miðað við ástandið á honum. Sérstaklega í fyrra. Þetta er samt alltaf ákvarð- anataka og erfitt að segja hvort hlutirnir hefðu verið öðru vísi ef þetta hefði verið gert á annan hátt. Það sem þó hefur verið gert virð- ist ekki vera að skila tilætluðum árangri enda hefur hann verið að glíma við þessi meiðsli lengi. Hann er að berjast fyrir ferli sínum.“ Það mun því koma í hlut þeirra Rúnars Kárasonar og Ásgeirs Arnar Hallgrímssonar að leysa stöðu vinstri skyttu. Rúnar er til- tölulega nýbyrjaður að spila reglu- lega en Ásgeir Örn spilar nánast ekkert fyrir sitt félag. „Það er ánægjulegt að Rúnar hafi farið til Hannover þar sem hann fær að spila. Hann er að standa sig vel þar. Ásgeir spilaði vel með okkur um daginn en auð- vitað er ókostur að hann er lítið að spila hjá PSG.“ Ásgeir lærði af síðasta móti Það kom í hlut Ásgeirs Arnar að leysa þessa stöðu á HM fyrir um ári og hann réð ekki nógu vel við hlutverkið. Þá var ábyrgðin mikil og hann getur deilt henni núna með Rúnari. „Ég tel að Ásgeir hafi lært mikið af þessu móti síðast. Hann var einn í stöðunni og ætlaði sér of mikið. Nú þarf hann að mæta afslappaðri og skila sínu sem hann getur. Hann og Rúnar eru ólíkir leikmenn og mynda fínt teymi.“ Aron er þegar búinn að velja markvarðapar sitt fyrir mótið og verður því ekki keppt um þær stöður. Björgvin Páll og Aron Rafn munu standa á milli stanganna rétt eins og þeir gerðu á síðasta móti. „Þessir tveir hafa verið að standa sig vel í ár bæði með lands- liðinu og félagsliðum sínum þannig að ég ákvað að taka þá. Þeir vita sína stöðu, að þeir eru að fara á mótið. Hreiðar Levý verður hins vegar klár sem þriðji markvörður og ég mun kalla á hann inn ef þörf krefur.“ Það eru enn mörg spurninga- merki með ástand leikmanna þegar tæpur mánuður er í mót. Vignir Svavarsson er meiddur og Arnór Þór Gunnarsson er að koma til baka eftir meiðsli. Ólafur Bjarki Ragnarsson er að spila mis- mikið og Ólafur Gústafsson enn minna. Svo er Arnór Atlason einn- ig meiddur og Aron Pálmarsson er að komast almennilega í gang eftir meiðsli. „Það verður smá púsluspil að velja sextán manns í lokahópinn. Það eru nokkur spurningamerki. Menn verða því að standa sig í þessum æfingum og æfingaleikj- um fyrir mótið.“ henry@frettabladid.is Ferill Alexanders er í hættu Annað stórmótið í röð þarf Alexander Petersson að draga sig út úr íslenska landsliðshópnum vegna þrálátra axlarmeiðsla. Aron Kristjánsson landsliðsþjálfari segir að leikmaðurinn sé að berjast fyrir ferli sínum enda sé hann litlu betri í dag en hann var fyrir ári. Aron valdi 21 leikmann í æfi ngahóp fyrir EM í janúar. ÞARF HVÍLD Alexander gengur illa að ná sér góðum af axlarmeiðslum sínum og verður því ekki með Íslandi á EM. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM HANDBOLTI Það á ekki af Akureyr- ingnum Arnóri Atlasyni að ganga. Óheppnin hefur elt hann undan- farna mánuði og virðist ekki sjá fyrir endann á því. „Ég var að tala við Arnór í morgun [í gær] og hann er togn- aður á kálfa. Hann er því spurn- ingamerki fyrir EM. Það væri hrikalegt að missa hann líka út,“ sagði Aron Kristjánsson landsliðs- þjálfari. Arnór lenti í því að slíta hásin snemma á síðasta tímabili. Var hann eðlilega lengi að jafna sig af þeim meiðslum. Hann var þá búinn að semja við franska félagið St. Raphael. Er hann kom þangað þá putta- brotnaði hann. Fyrir vikið missti hann nánast af öllu undirbúnings- tímabilinu og hefur spiltími hans verið að aukast eftir því sem liðið hefur á tímabilið. Á mánudagskvöld tognaði hann síðan og á eftir að koma í ljós hversu alvarleg tognunin er. Þarf vart að fjölyrða um hversu mikið áfall það væri fyrir landsliðið að missa Arnór ofan á allt annað. - hbg Arnór er spurningamerki fyrir EM í janúar Óvissa er með þátttöku Arnórs Atlasonar á EM í Danmörku eft ir að hann tognaði á kálfa á mánudag. ÁFALL Arnór er nýfarinn af stað aftur og Ísland má illa við því að missa hann fyrir EM. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM BOX Hnefaleikakappinn Vitali Klitschko hefur lagt boxhansk- ana á hilluna og gefið frá sér heimsmeistaratitil sinn í grein- inni. Í það minnsta í bili. Hinn 42 ára gamli Klitschko hefur ákveðið að einbeita sér alfarið að stjórnmálaferli sínum í heimalandinu en hann vill verða forseti Úkraínu. WBC-hnefaleikasamband- ið segist hafa fullan skilning á ákvörðun Klitschkos. Hann hefur engu að síður fengið „Champion Emeritus“-stöðu hjá sambandinu. Það þýðir að hann má keppa við heimsmeistara aftur um beltið ef honum snýst hugur. Afar fáir hnefaleikakappar hafa fengið þessa stöðu en WBC sagði það aldrei hafa verið spurn- ingu með Klitschko. „Vitali er í stærsta bardaga lífs síns og það utan hringsins. Hann er að sýna heiminum hvernig hjarta meistarans er með því að leiða sitt heimafólk í slag á götum Úkraínu. Þar er barist fyrir mannréttindum og friði,“ segir í yfirlýsingu frá WBC. - hbg Pólitík í stað hnefaleika NÝR SLAGUR Klitschko mun berjast með fólkinu í Kænugarði. NORDICPHOTOS/GETTY FÓTBOLTI Ítalski harðjaxlinn Gennaro Gattuso gæti verið í vondum málum en hann er nú grunaður um að hafa tekið þátt í að hagræða úrslitum knatt- spyrnuleikja. Rannsóknin snýst um leiki í ítölsku úrvalsdeildinni fyrir þremur árum. Fjórir aðrir hafa verið handteknir í tengslum við málið. Þar á meðal er Christian Brocchi, leikmaður Lazio. Saksóknari heldur því fram að þeir hafi haft áhrif á úrslit leikja undir lok tímabilsins 2010-11. Hinn 35 ára gamli Gattuso hefur lagt skóna á hilluna og var rekinn sem þjálfari Palermo eftir aðeins sex leiki. Hann vann tvo Ítalíumeistara- titla og einnig vann hann Meist- aradeildina tvisvar á þrettán ára ferli með AC Milan. - hbg Gattuso sagður hafa svindlað GATTUSO Lætur dómarann hér heyra það. NORDICPHOTOS/GETTY FÓTBOLTI André Villas-Boas var á mánudaginn rekinn sem knattspyrnustjóri Tottenham en hann stýrði liðinu í 80 leikjum í öllum keppnum síðan hann tók við sumarið 2012. Það er athyglisvert að sjá hvar Gylfi okkar Sigurðsson stendur þegar heildarárangur leik- manna undir stjórn Villas-Boas er skoðaður nánar. Gylfi tók alls þátt í 68 leikjum undir stjórn Villas-Boas og þrátt fyrir að Gylfi hafi ekki verið með í lokaleiknum voru það aðeins Kyle Walker (71 leikur) og Jan Vertonghen (70 leikir) sem spiluðu fleiri leiki fyrir Tottenham í stjóratíð Villas-Boas. Gylfi kom inn á sem varamaður í 33 þessara leikja og var sá leikmaður sem Villas-Boas skipti langoftast inn á. Lewis Holtby var næstur með 19 leiki sem varamaður. Gylfi var tekinn af velli í 21 leik en Villas-Boas kallaði aðeins Moussa Dembélé (27) og Aaron Lennon (26) oftar af velli. Gylfi er í 4. sæti yfir flest mörk (11 mörk) í stjóratíð André Villas-Boas en það voru bara þeir Gareth Bale (26), Jermain Defoe (24) og Clint Dempsey (12) sem skoruðu fleiri mörk þá tæpu 18 mánuði sem Villas-Boas sat í stjór- astólnum á White Hart Lane. Gylfi er í 2. til 3. sæti í stoðsendingum (9) ásamt Aaron Lennon. Gareth Bale lagði upp flest eða fimmtán. Fjórtán leikmenn spiluðu meira en 30 leiki fyrir Villas-Boas og Gylfi var sá eini þeirra sem fékk ekki spjald. - óój Bara tveir spiluðu fl eiri leiki fyrir Villas-Boas en Gylfi 11 MÖRK Í 68 LEIKJUM Gylfi var áberandi í stjórnartíð Villas-Boas. NORDICPHOTOS/GETTY HANDBOLTI Leikstjórnandi Nantes, Gunnar Steinn Jónsson, hefur verið verðlaunaður fyrir frábæra frammistöðu í sigurleiknum gegn PSG á dögunum. Gunnar Steinn Jónsson skoraði sjö mörk úr jafnmörgum tilraunum í góðum sigri Nantes á stórstjörnuliði PSG í frönsku úrvalsdeildinni í handbolta. HK-ingurinn, sem er uppalinn hjá Fjölni, var valinn í lið umferðarinnar í Frakklandi fyrir frammistöðu sína. Gunnar Steinn er í hlutverki leikstjórnanda og er eini fulltrúi síns liðs í liðinu. PSG á engan fulltrúa en Alexander Lynggaard og Miroslav Jurka, liðsfélagar Arnórs Atlasonar hjá St. Raphael, eru í liðinu. Viðurkenningin er vonandi smá sárabót fyrir Gunnar Stein sem var einn af sjö leikmönnum sem féllu úr íslenska landsliðshópnum sem skorinn var niður í 21 leikmenn í dag. - ktd Gunnar valinn í lið umferðarinnar SPORT
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.