Fréttablaðið - 18.12.2013, Blaðsíða 70
18. desember 2013 MIÐVIKUDAGUR| MENNING | 50
„Auðvitað eru það forréttindi að
fá að stíga á svið með börnunum
sínum,“ segir Sigurbjörn Daði Dag-
bjartsson sem heldur jólatónleika
á skemmtistaðnum Bryggjunni í
Grindavík á sunnudaginn. Sigur-
björn mun þar koma fram ásamt
tveimur dætrum sínum og stjúp-
dóttur, auk þess sem bræður hans
og frændur munu mæta á sviðið.
Sannkölluð fjölskylduhátíð.
„Undanfarin ár höfum við farið
á elliheimilið í bænum og báða
leikskólana fyrir jólin og spilað
og sungið. Það hefur fært manni
jólaandann beint í æð. En í ár datt
okkur í hug að stækka við okkur og
ákváðum að halda bara tónleika,“
segir Sigurbjörn Daði en bætir því
við að fjölskyldan ætli samt sem
áður að heimsækja elliheimilið og
leikskólana þetta árið. Dætur hans
eru níu, fimmtán og nítján ára.
Hann segir þær afar góða söngv-
ara.
„Þær syngja allar dásamlega.
Þær radda mikið og gera það ótrú-
lega vel. Ég er meira bara partíspil-
ari, þær eru miklu betri en ég,“
segir hann stoltur. Aðalstarf Sig-
urbjörns er sjómennska en hann
notar tómstundir sínar í gítarspil.
„Ég er í tveimur hljómsveit-
um, Backstabbing Beatles ásamt
bræðrum mínum og frændum, og
Geimförunum, sem munu einmitt
halda ball á milli jóla og nýárs í
Salthúsinu í Grindavík. Það ball
er vel sótt, þetta verður sextánda
skiptið sem við höldum þessa tón-
leika,“ útskýrir Sigurbjörn. Bræð-
ur hans úr Backstabbing Beatles,
þeir Gauti og Einar, munu stíga á
svið á jólatónleikunum og taka lag
sem þeir sömdu fyrir síðustu jól og
var spilað á Rás 2. Sigurbjörn segir
að þrátt fyrir að allir þessir fjöl-
skyldumeðlimir og ættingjar séu í
tónlist hafi ekki verið lögð nein sér-
stök áhersla á það í uppeldinu.
„Mamma og pabbi spila til
dæmis ekki á hljóðfæri. En þau
eru reyndar mikið söngfólk. Þetta
gæti komið út frá því. Ég byrjaði
bara að syngja með plötum þegar
ég var ungur og svo fór maður að
prófa sig áfram á gítarnum. Þetta
er auðvitað bara áhugamál,“ segir
sjómaðurinn Sigurbjörn sem er
einmitt á sjó um þessar mundir og
kemur heim rétt fyrir tónleikana.
„Við erum öll að æfa okkur hvert
í sínu lagi núna og svo fáum við
einhverja tvo daga til æfa okkur
saman þegar ég kem í land,“
útskýrir Sigurbjörn. Tónleikarn-
ir fara fram sunnudaginn 22. des-
ember á skemmtistaðnum Bryggj-
unni í Grindavík klukkan 21.
kjartanatli@frettabladid.is
Öll fj ölskyldan á sviði
Sigurbjörn Daði Dagbjartsson heldur jólatónleika í Grindavík ásamt þremur
dætrum sínum. Hann segir það forréttindi að stíga á svið með dætrunum.
„Við hjónin vinnum mjög vel saman
í öllu sem við gerum saman, sem
er í raun allt,“ segir listakonan
Margrét Þórhildur Jóelsdóttir.
Eiginmaður hennar, listamaður-
inn Stephen Alan Fairbairn, hann-
aði nýja tíu þúsund króna seðilinn
ásamt Kristínu Þorkelsdóttur en
einnig hannar hann allar bókar-
kápur á bókum konu sinnar, sér
um alla uppsetningu og teiknar
allar myndir. Margrét gaf nýverið
út bókina Með hættuna á hælunum
en það er þriðja barnabók henn-
ar. Fyrir hafði hún gefið út barna-
bækurnar Úti í myrkrinu og Nonni-
konni og kúlurnar.
„Þetta er flóknasti seðillinn, sér-
staklega upp á öll öryggisatriði,“
segir Stephen aðspurður um tíu þús-
und króna seðilinn. „Okkur Kristínu
gekk mjög vel að vinna saman þegar
beiðni kom inn frá Seðlabankanum
árið 1980 um að hanna nýja pen-
ingaseðla. Mörg skemmtileg smáat-
riði er að finna í hönnun tíu þúsund
króna seðilsins. Þar má til dæmis
nefna að við ákváðum að búa til heilt
fjall úr nýyrðum. Á framhlið seð-
ilsins, í fjallinu bak við letrið TÍU
ÞÚSUND KRÓNUR, má greina með
stækkunargleri úrval þeirra nýyrða
sem Jónas Hallgrímsson bjó til.“
Hjónin kynntust í myndlistarhá-
skóla í Bretlandi og eru saman með
vinnustofu í Kópavogi. „Við erum
að vinna mikið saman þessa dag-
ana og stefnum á að halda mynd-
listarsýningu á næstunni,“ bætir
Margrét við. - glp
Hannaði bókarkápu konunnar og
alla peningaseðlana síðan 1980
Listrænu hjónin Margrét Jóelsdóttir og Stephen Fairbairn vinna mikið saman.
LISTAMENN Margrét Þórhildur
Jóelsdóttir og Stephen Alan Fairbairn
með verkin tvö. MYND/SANDRA FAIRBAIRN
„Dagbók Berts, fyrsta bókin. Þessi
með bláu kápunni og hauskúpunni.
Þetta varð aldrei jafn gott eftir það.“
Bergur Ebbi Benediktsson, grínisti.
BESTA BÓKIN
Þær syngja
allar dásamlega.
Þær radda mikið
og gera það
ótrúlega vel. Ég
er meira bara
partíspilari, þær
eru miklu betri
en ég.
Sigurbjörn Daði
Dagbjartsson
Jólaundirbúningur Berglindar
Pétursdóttur hefur ekki gengið
stóráfallalaust fyrir sig. „Bíllinn
minn er ónýtur, þannig að við kom-
umst ekki langt að kaupa jólagjaf-
ir eða jólagardínur. Jólagjafirnar
í ár verða eimaðar af kærastanum
mínum, heklaðar af mér, eða skap-
aðar af Kára syni mínum, 3 ára, en
hann hefur þegar sýnt mikla list-
ræna hæfileika, þrátt fyrir að vera
ungur að árum,“ segir Berglind,
sem er textahöfundur, dansari og
GIF-drottning.
Berglind fór á Jólagesti Björg-
vins um síðustu helgi, en hún hafði
hlakkað mikið til tónleikanna.
„Bíllinn gaf upp öndina á bílastæð-
inu á Jólagestunum, ég held hann
hafi verið leiður að fá ekki að koma
með inn, hann er þar ennþá,“ segir
Berglind. „Ég óska hér með eftir bíl
í jólagjöf.“
En Berglind er ekki af baki dott-
in. „Það er mikil jólastemning í
vinnunni hjá mér. Við erum nýbú-
in að halda jólapartí með Bahama-
þema þar sem ég gæddi mér á jóla-
legum ananas og vann sparibauk
í jólagjafaleik,“ segir Berglind og
segist þrátt fyrir allt vera mikið
jólabarn. „Ég fór til mömmu og
pabba að baka smákökur því þau
eiga sprautulakkað eldhús en eld-
húsið mitt er í smærri kantinum.
Ég skildi samt kökurnar eftir hjá
þeim því að ég er algjör óhemja
þegar kemur að smákökum og
þarf að halda mér í formi út af ferli
mínum sem dansari,“ segir Berg-
lind.
- ósk
Óskar eft ir nýjum bíl í jólagjöf
Berglind Pétursdóttir gefur frumlegar jólagjafi r í ár, eimaðar eða heklaðar.
ÚR BAHAMA-JÓLAPARTÍI Berglind
gæddi sér á jólalegum ananas og vann
sparibauk í jólagjafaleik.
MYND/ÚR EINKASAFNI
ÁSAMT DÆTRUM SÍNUM „Þær syngja allar dásamlega,“ segir Sigurbjörn Daði um
dæturnar.
SÖNGELSK FJÖLSKYLDA Foreldrar Sigurbjarnar eru mikið
söngfólk að hans sögn. Fjölskyldan er mikið í tónlist.
,
hægindastóll
með skemli
Jólatilboð kr. 175.840
Fullt verð kr. 219.800
Til í rauðu, svörtu
og hvítu leðri.
V
A
X
T
A
LA
U
SA
R
AFBORGANIR
Í
1
2
M
Á
N
*
Aðeins
15.331
kr. á mán.
AFSLÁTTUR
20%
LEVANTO hægindastóll
með skemli
Jólatilboð kr. 119.840
Fullt verð kr. 149.800
Til í svörtu, gráu,
brúnu, hvítu
og rauðu leðri.
V
A
X
T
A
LA
U
SA
R
AFBORGANIR
Í
1
2
M
Á
N
*
Aðeins
10.501
kr. á mán.
AFSLÁTTUR
20%
MAINE hægindastóll
með skemli
Jólatilboð kr. 155.840
Fullt verð kr. 194.800
Til í svörtu og
rauðu leðri.
V
A
X
T
A
LA
U
SA
R
AFBORGANIR
Í
1
2
M
Á
N
*
Aðeins
13.606
kr. á mán.
AFSLÁTTUR
20%
ÞÍN STUND
ÞINN STAÐUR