Fréttablaðið - 20.02.2014, Side 18
20. febrúar 2014 FIMMTUDAGUR| FRÉTTIR VIÐSKIPTI | 18
www.netto.is
| Mjódd · Salavegur · Hverafold · Akureyri · Höfn ·
Grindavík · Reykjanesbær · Borgarnes · Egilsstaðir · Selfoss · Grandi | Kræsingar & kostakjör
2F
YR
IR
1
KIRKLAND
HRÍSMJÓLK
Framboð á útgefnu hlutafé í Kaup-
höll Íslands gæti aukist um 68 millj-
arða króna á árinu ef nýskráning-
ar þeirra sjö félaga sem stefna að
skráningu ganga í gegn. Heildar-
virði félaganna yrði um tvö hundruð
milljarðar króna og nýskráningarn-
ar myndu auka virði skráðra félaga
á íslenskum hlutabréfamarkaði um
35-40 prósent.
Þ et t a kom
fram í erindi
Hrafns Steinars-
sonar hagfræð-
ings hjá grein-
ingardeild Arion
banka, á morgun-
fundi bankans í
gær. Þar kynnti
Hrafn nýja grein-
ingu bankans á eftirspurn og fram-
boði fjárfestingarkosta í hagkerfinu
og hann gerði nýskráningarnar að
sérstöku umfjöllunarefni.
„Við gerum ráð fyrir þessum sjö
félögum og að þau komi inn með
þessa 68 milljarða þar sem stærstu
seljendurnir yrðu Arion banki og
Framtakssjóður Íslands (FÍ). En það
er ákveðin óvissa því tilhneigingin
síðustu ár hefur verið að skrán-
ingar dragist yfir á næsta ár en ég
er bjartsýnn á framhaldið,“ segir
Hrafn.
Hann bendir einnig á að FÍ og
eignarhaldsfélagið Klakki eru
stærstu eigendur í N1 og VÍS,
félögum sem voru skráð á markað á
síðasta ári, en þeir eru að hans mati
ekki líklegir kjölfestueigendur til
langs tíma. Hrafn áætlar að þeir
selji sína hluti á næstu misserum
fyrir um tólf milljarða króna.
„En það er óljóst hvort það
hlutafé komi á markað í ár.“
Viðskipti á hlutabréfamarkaði
Hlutabréfamarkaðurinn gæti
stækkað um fjörutíu prósent
Nýskráningar þeirra sjö félaga sem stefna á Kauphöllina gætu aukið framboð á útgefnu hlutafé um 68 millj-
arða króna. Heildarvirði þeirra yrði um 200 milljarðar króna, samkvæmt spá greiningardeildar Arion banka.
HRAFN
STEINARSSON
KAUPHÖLLIN Félögin N1, VÍS og TM voru skráð á markað á síðasta ári. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN
FÉLÖGIN SJÖ SEM ERU LÍKLEG TIL SKRÁNINGAR Á MARKAÐ Á ÁRINU
næstum þrefölduðust á síðasta ári
miðað við árið á undan. Ársveltan
2013 var 251 milljarður króna en um
89 milljarðar í árslok 2012. Hrafn
segir eftirspurnina mikla þrátt
fyrir aukninguna milli ára.
„Ég held að eftirspurnin eftir
nýskráningum frá lífeyrissjóðum
og verðbréfasjóðum sé umtalsverð.
Spá okkar um nýskráningarnar er
frekar bjartsýn en það er að öllum
líkindum næg eftirspurn eftir þessu
aukna framboði. Maður hefur séð
þátttökuna í útboðum og hvernig í
rauninni sparifé landsmanna hefur
leitað í auknum mæli í hlutabréfa-
markaðinn. Við spáum því að eftir-
spurnarþrýstingurinn muni láta
eitthvað undan á skuldabréfamark-
aði og frekar birtast hlutabréfa-
megin.“ haraldur@frettabladid.is
VIÐSKIPTI Breska matvæla-
vinnslufélagið Bakkavör hagnað-
ist um 7,8 milljónir punda á síð-
asta ári, eða sem svarar 1.469
milljónum íslenskra króna. Fram
kemur í nýbirtum ársreikningi
að hagnaðar aukning milli ára er
nærri fjórföld, en árið 2012 nam
hagnaður félags-
ins 2,1 milljón
punda, eða sem
svarar 395 millj-
ónum króna.
Tap er þó af
áframhaldandi
starfsemi hjá
félaginu, sam-
kvæmt ársreikn-
ingnum, upp á
11,6 milljónir punda, eða tæpa 2,2
milljarða króna. Þar vegur þungt
afskrift viðskiptavildar upp á 21,2
milljónir punda (tæpa fjóra millj-
arða króna).
Á móti kemur svo hagnaður af
aflagðri starfsemi, en í aprílbyrjun
gekk í gegn sala á starfsemi félags-
ins í Frakklandi og á Spáni sem
samið var um seinni hluta nóvem-
bermánaðar 2012. Fyrir starfsem-
ina sem var seld fengust 28 milljón-
ir punda, eða tæpir 5,3 milljarðar
króna.
Stjórn félagsins leggur ekki til
arðgreiðslu vegna ársins 2013, en
stærstu eigendur félagsins eru
bræðurnir Lýður og Ágúst Guð-
mundssynir.
Í tilkynningu með ársreikningi
er haft eftir Ágústi Guðmunds-
syni, forstjóra Bakkavarar, að sam-
stæðan hafi komist vel á veg í að ná
markmiðum sínum á árinu. Lokið
hafi verið farsællega við endurfjár-
mögnun, eignir utan Bretlandseyja
verið seldar og endurskipulagningu
lokið á hluta starfseminnar sem lítið
hafi gefið af sér. Þessum verkefn-
um hafi verið lokið á sama tíma og
tekjuaukning samstæðunnar hafi
verið umfram það sem gengur og
gerist á markaðnum og framlegð
hafi verið varin fyrir umtalsverðri
verðbólgu hráefniskostnaðar. - óká
ÁGÚST GUÐ-
MUNDSSON
Hagnaður Bakkavarar í fyrra var nærri fjórfalt meiri en árið áður:
Aflögð starfsemi skýrir hagnað
Liður 2012 2013
Tap/hagnaður fyrir skatt 4,1 -17,6
Tap/hagn. af áframhaldandi starfs. 1,3 -11,6
Hagnaður af aflagðri starfs. 0,8 19,4
Hagnaður ársins 2,1 7,8
*Allar tölur eru í milljónum punda. Heimild: Ársskýrsla Bakkavarar 14. febrúar 2014.
Helstu tölur úr ársuppgjöri Bakkavarar*
Nýafstaðnar mælingar Hafrann-
sóknastofnunar gefa ekki tilefni til
að breyta ákvörðun hennar frá því
í haust um 160 þúsund tonna afla-
mark á loðnu.
Áhöfn Árna Friðrikssonar, skips
stofnunarinnar, leitaði að loðnu 14.
febrúar og var lagt út frá Akureyri
á Vestfjarðamið.
Þar varð ekki vart við loðnu
og var skipinu því siglt suður
fyrir land. Þar mætti skipið
hrygningar göngunni skammt
vestan við Selvog.
„Haldið var austur undir miðja
Meðallandsbugt, en lítið fannst
austast á leitarsvæðinu,“ segir í
frétt á vef Hafró. - skó
Breytir ekki fyrri ákvörðun:
Hafró fann
lítið af loðnu
LOÐNA Veður kom í veg fyrir að mæl-
ingar á hrygningargöngunni yrðu endur-
teknar. FRÉTTABLAÐIÐ/HARI
Skýrsla rannsóknarnefndar
Alþingis vegna falls sparisjóðanna
er ekki enn komin fram þrátt fyrir
að nefndin hafi átt að skila henni
af sér í maímánuði 2012. Einar
K. Guðfinnsson, forseti Alþingis,
sagði í viðtali við fréttastofu 365
í janúar að skýrsla rannsóknar-
nefndar um aðdraganda og orsakir
falls sparisjóðanna yrði kynnt í
þessum mánuði, um tuttugu mán-
uðum seinna en áætlað var. Þá var
kostnaður rannsóknarinnar kom-
inn í 560 milljónir króna. - sáp
Skýrslan um sparisjóðina:
Enn beðið eftir
skýrslunnni
Fyrirtækið Spike Aerospace vinnur
nú hörðum höndum að þróun einka-
þotunnar S-512 sem stefnt er á að
setja á markað í árslok 2018. Vélin
verður frábrugðin öðrum farþega-
vélum að því leyti að á henni verða
engir gluggar. Risastórir skjáir
koma í þeirra stað og sýna farþeg-
um það sem gerist fyrir utan vélina
í beinni útsendingu í háskerpu, en
ytra byrði vélarinnar verður þakið
myndavélum.
Þetta fyrirkomulag er sagt auka
flugöryggi þar sem vélin geti verið
sterkbyggðari ef ekki þarf að gera
ráð fyrir gluggum á hliðum hennar.
- hva
Þróun Spike Aerospace:
Engir gluggar á
nýrri einkaþotu
Verð hlutabréfa í rafbílaframleiðandanum Tesla
Motors hækkuðu um 3 prósent á mörkuðum í
fyrradag eftir að orðrómur komst á kreik um
mögulegan samruna fyrirtækisins og Apple.
Þetta var í fyrsta sinn sem verð bréfanna fer yfir
200 dollara.
Áhugi fjárfesta kviknaði eftir sögusagnir
af fundi Elons Musk, annars stofnanda Tesla
Motors, og Adrians Perica, formanns samruna-
deildar Apple.
Fundurinn fór fram í upphafi árs 2013 en kom
fyrst upp á yfirborðið í vikunni í umfjöllun San
Francisco Chronicle þar sem vísað var til ónafn-
greindra heimildarmanna. Apple hefur þó ekki
verið þekkt fyrir að reiða fram háar fjárhæðir
í fjárfestingum sínum ólíkt keppinautum þeirra
hjá Google og Microsoft.
Markaðsvirði Tesla stendur nú í rúmlega 25
milljörðum Bandaríkjadala, ríflega 2.800 millj-
örðum íslenskra króna, og því er ljóst að Apple
þarf að bregða út af vananum ef af samrunanum
á að verða.
Líklegra verður þó að teljast að samstarf milli
fyrirtækjanna sé í kortunum frekar en samruni.
Musk tilkynnti fyrr í ár að Tesla hygðist byggja
stærsta rafhlöðuver heims með aðkomu annarra
fyrirtækja og hefur verið gert ráð fyrir því að
Apple sé eitt þeirra. - sój
Orðrómur um samruna tæknirisans Apple og rafbílaframleiðandans Tesla veldur hækkun:
Hlutabréf í Tesla hækkuðu um 3 prósent
SAMRUNI RISA Markaðsvirði Tesla stendur í rúm-
lega 25 milljörðum Bandaríkjadala. FRÉTTABLAÐIÐ/AP