Fréttablaðið


Fréttablaðið - 20.02.2014, Qupperneq 20

Fréttablaðið - 20.02.2014, Qupperneq 20
20. febrúar 2014 FIMMTUDAGURSKOÐUN HALLDÓR FRÉTTABLAÐIÐ Skaftahlíð 24, 105 Reykjavík Sími: 512 5000, ritstjorn@frettabladid.is FRÉTTASTJÓRI: Andri Ólafsson andri@frettabladid.is RITSTJÓRNARFULLTRÚI: Álfrún Pálsdóttir alfrun@frettabladid.is VIÐSKIPTI: Fanney Birna Jónsdóttir fanney@frettabladid.is MENNING: Friðrika Benónýsdóttir fridrikab@frettabladid.is DÆGURMÁL: Lilja Katrín Gunnarsdóttir liljakatrin@frettabladid.is VÍSIR: Kolbeinn Tumi Daðason, kolbeinntumi@visir.is LJÓSMYNDIR: Pjetur Sigurðsson pjetur@frettabladid.is FRAMLEIÐSLUSTJÓRI: Sæmundur Freyr Árnason sfa@frettabladid.is ÚTLITSHÖNNUN: Silja Ástþórsdóttir siljaa@frettabladid.is ÚTGÁFUFÉLAG: 365 miðlar ehf. STJÓRNARFORMAÐUR: Ingibjörg S. Pálmadóttir FORSTJÓRI OG ÚTGÁFUSTJÓRI: Ari Edwald RITSTJÓRAR: Ólafur Þ. Stephensen olafur@frettabladid.is, Mikael Torfason mikael@frettabladid.is Fréttablaðið kemur út í 90.000 eintökum og er dreift ókeypis á heimili á höfuðborgarsvæðinu og Akureyri. Einnig er hægt að fá blaðið í völdum verslunum á landsbyggðinni. Fréttablaðið áskilur sér rétt til að birta allt efni blaðsins í stafrænu formi og í gagnabönkum án endurgjalds. ISSN 1670-3871 FRÁ DEGI TIL DAGS Innskot í Fréttablaðið skilar árangri! MEST LESNA DAGBLAÐ Á ÍSLANDI* Fréttablaðið er mest lesna dagblaðið landsins með glæsilegt forskot á keppinautana. Meðallestur Fréttablaðsins í aldurshópnum 25-54 ára er 73% á höfuðborgarsvæðinu.* Við bendum auglýsendum á að notfæra sér forskotið þegar þeir velja dreifingarleið fyrir fjölpóst sinn. Við dreifum sex daga vikunnar til heimila á stærsta markaðssvæði landsins. Kannaðu dreifileiðir og verð í síma 512 5448 eða í tölvupóstfangi fjolpostur@frettabladid.is *P re nt m ið la kö nn un C ap ac en t o kt ób er –d es em be r 2 01 2 – hö fu ðb or ga rs væ ði 2 5- 54 á ra HAFÐU FJÖLPÓSTINN ÞINN Í FRÉTTABLAÐINU M ikið hefur verið rætt um þá byltingu sem samfélagsmiðlarnir hafa í för með sér þegar kemur að því að taka virkan þátt í mótmælum og andófi gegn yfirgangi og valdníðslu stjórnvalda víðs vegar um heiminn. Því hefur jafnvel verið haldið fram að þeir komist næst því að geta kallast virkt lýðræði af öllum þeim tækjum sem hinn almenni borgari hefur haft á valdi sínu til mótmæla í gegnum söguna. Og vissulega geta þeir verið öflug verkfæri í því að koma upp um alls kyns svínarí og hópa fólki saman til að mótmæla því. En virka þeir í raun til þess að hafa hemil á stjórnvöldum eða eru þeir einungis enn ein dúsan sem við huggum okkur við í stað þess að taka virkan þátt í þjóðfélaginu? Á hverjum einasta degi fyllast fréttaveitur Facebook- notenda af fréttum og greinum um einhver umdeild mál sem hæst ber þann daginn. Fólk deilir þessu í gríð og erg með misgáfulegum kommentum og þykist þar með hafa lagt sitt af mörkum til þjóðfélagsumræð- unnar. Æsingurinn stendur í mesta lagi í tvo til þrjá daga en þá veldur offramboðið því að fólk er orðið hundleitt á viðkom- andi umræðuefni eða æsingamáli og kapphlaupið snýst um að finna nýtt æsingaefni til að deila. Þannig virðast Facebook, Twitter og aðrir samfélagsmiðlar í raun oft fremur stuðla að því að kæfa umræðuna en hvetja hana og þeir sem lifa í þeirri sælu trú að þeir séu virkir í andófinu eru í raun aðeins virkir á eigin lyklaborði. Annað sem samfélagsmiðlunum hefur verið hrósað fyrir er hversu auðvelt er að láta boð út ganga um alls kyns við- burði og þá ekki síst mótmælaaðgerðir gegn ákveðnum málum, stefnum og atburðum. Það er alveg rétt að með einum smelli er hægt að senda boð á þúsundir manna og láta vita af fyrirhuguðum aðgerðum, safna jákvæðum viðbrögðum og fá fjölda manns til að staðfesta þátttöku í mótmælum eða umræðufundum um umdeild mál. Neikvæða hliðin á þeirri þróun er hins vegar sú að ansi margir virðast álíta að með því að staðfesta þátttöku sína í viðkomandi aðgerð á Facebook sé fólk búið að gera skyldu sína og frekari aðgerða sé ekki þörf. Það geti hallað sér aftur í makindum og klappað sjálfu sér á bakið fyrir að vera aktífir og ábyrgir þjóðfélagsþegnar. Gott dæmi um það eru nýleg mótmæli við innanríkisráðuneytið þar sem um tvö hundruð manns höfðu staðfest mætingu á Facebook-viðburðinn en einungis örfáir mættu í raun. Þar virkaði dreifing viðburðarins á samfélagsmiðlum alveg öfugt og það virðist verða æ algengara að fólk láti stafræna nær- veru nægja á viðburði sem dreift er á samfélagsmiðlum. Við lifum lífi okkar í sífellt meiri mæli í stafrænum heimi en stafræn þátttaka í samfélaginu kemur ekki í staðinn fyrir virka þátttöku og virkilega er ástæða til að vera vakandi fyrir því að fylgja málum eftir í raunheimum. Að öðrum kosti er hætta á að samfélagsmiðlarnir geri meira ógagn en gagn í baráttunni fyrir betri heimi. Að breyta heiminum með því að deila á Facebook. Aðgerðasinnar á lyklaborðunum Fyrir skömmu sat ég ráðstefnu á vegum Geðhjálpar sem bar yfirskriftina „Hvers virði er frelsið“. Þar var fjallað um sjálfræðissviptingar, nauðung og valdbeitingu í geðheilbrigðisþjónustu. Nokkrir þeirra sem hafa verið beittir slíkri nauðungarvistun komu í pontu og lýstu reynslu sinni. Í máli þeirra kom fram hve slæmar langvarandi afleið- ingar slík aðgerð hafði haft á þá – ekki hjálpað heldur þvert á móti spillt fyrir batanum. Samkvæmt núgildandi lögræðislögum getur læknir ákveðið að nauðungarvista megi sjálfráða mann með svo alvarlegan geðsjúkdóm að talið er líklegt að hann muni vinna sjálfum sér eða öðrum mein. Sama gildir ef maður á við alvarlega áfengisfíkn að stríða eða ofneyslu fíkni- efna. Oft þarf að kalla til lögreglu og er henni þá skylt við að verða við beiðni læknis um aðstoð við að flytja viðkom- andi manneskju á sjúkrahús með valdi. Má vista í 21 sólarhring Samkvæmt núgildandi lögum má vista sjálfráða mann gegn vilja hans á sjúkra- húsi til meðferðar í allt að 21 sólarhring, án þess að málið fari fyrir dóm. Það er að mínu mati alltof langur tími. Ég tel að frelsissvipting sem þessi eigi að fara strax fyrir dómara og sjúklingi skipaður skipaður réttargæslumaður, svipað og gert er þegar krafist er gæsluvarðhalds. Fleiri annmarkar eru á núgildandi lögum. Í dag geta maki, ættingjar í bein- an legg eða systkini lagt fram beiðni um nauðungarvistun á sjúkrahúsi. Að mínu mati hafa þessir aðilar ekki yfir nægilegri fagþekkingu að búa til að taka slíka ákvörðun til að meta hvort þörf er á þessu neyðarúrræði. Á Akureyri tíðkast það til dæmis að það er eingöngu Félagsþjónustan sem fer fram á slíkar frelsissviptingar því ekki þykir stætt á því að byggja á öðru en faglegu mati sér- fræðinga hennar. Ég veit fyrir víst að nú er verið að vinna að því í innanríkisráðuneytinu í góðu samráði við Geðhjálp og fleiri aðila að breyta þessum lögum og gera þau faglegri og mannúðlegri. Þetta mál þarf að skoða vel og í samvinnu og sátt, en í mínum huga fara valdbeiting og lækn- ingar aldrei saman. Hvers virði er frelsið? ➜ Samkvæmt núgildandi lögum má vista sjálfráða mann gegn vilja hans á sjúkrahúsi til meðferðar í allt að 21 sólarhring, án þess að málið fari fyrir dóm. Það er að mínu mati alltof langur tími. SAMFÉLAG Elín Hirst þingmaður Sjálf- stæðisfl okksins Afglæpavæðing og ostar Nokkuð merkileg umræða var á Alþingi í gær þar sem rætt var um stefnu- mótun í vímuefnamálum. Helgi Hrafn Gunnarsson, þingmaður Pírata, var málshefjandi en heilbrigðisráðherra, Kristján Þór Júlíusson, lýsti þar þeirri skoðun sinni að refsistefna Íslendinga væri ekki að virka og ræða bæri allar mögulegar nálganir til að vinna betur bug á þeirri ógn, þar á meðal afglæpavæðingu. Í fyrradag hins vegar hafnaði Sigurður Ingi Jóhannsson landbúnaðarráðherra beiðni verslunar- fyrirtækisins Haga um viðbótartollkvóta fyrir innflutning á buffala-, geita- og ærmjólkurostum, sem og á lífrænum kjúklingi, þrátt fyrir að fyrir liggi að skortur sé á innlendum markaði á þessum vörum og nánast engin inn- lend framleiðsla á þeim. Dagur B. Eggertsson, oddviti Samfylkingarinnar í Reykjavík, hitti naglann á höfuðið á Twitter þar sem hann spurði sig hvort hann væri að ná þessu. Ríkis- stjórnin vilji gjarnan ræða frjálsan innflutning fíkniefna en er alveg á móti geitaosti og mozzarella. Bylting í boði ESB Enn merkilegri umræða varð hins vegar aðeins síðar í gær þegar rætt var um aðildarvið- ræður við Evrópu- sambandið. Þar svaraði Gunnar Bragi Sveinsson utanríkisráðherra spurningu Guðmundar Steingrímssonar, þing- manns Bjartrar framtíðar, um hvernig ráðherrann héldi að ástandið í Evrópu væri ef sambandsins nyti ekki við. Þar leiddi Gunnar Bragi líkur að því að ástandið í Úkraínu mætti rekja til aðgerða Evrópusambandsins. Hann hélt því fram að ESB hefði staðið sig illa í aðdraganda byltingarinnar þar með því að setja of mikinn þrýsting á úkraínsk stjórnvöld. Það er eins gott að ríkisstjórn Íslands er í þann veginn að slíta þessum blessuðu viðræðum. Hver veit hvernig við myndum enda hér inni í þessu Evrópusam- bandi? fanney@frettabladid.is Friðrika Benónýsdóttir fridrikab@frettabladid.is
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.