Fréttablaðið - 27.02.2014, Page 2

Fréttablaðið - 27.02.2014, Page 2
27. febrúar 2014 FIMMTUDAGUR| FRÉTTIR | 2 Hjörleifur, hvernig dettur landeigendum þetta í hug? „Duttu þeir ekki bara í það?“ Vatnajökulsþjóðgarður vill að fólk geti komist hjá gjaldtöku landeigenda við Dettifoss. Hjörleifur Finnsson er þjóðgarðsvörður á norðursvæði þjóðgarðsins. FERÐAÞJÓNUSTA Vegagerðin telur óæskilegt að beina hjólandi og gangandi fólki inn á þjóðvega- kerfið vegna slysahættu. Bænda- samtök Íslands leggjast gegn þingsályktunartillögu Bjartrar framtíðar um landsnet ferða- leiða þar sem þau óttast átroðn- ing ferðamanna á jörðum í einka- eigu. Róbert Mars- hall, þingmaður Bjartrar fram- tíðar, mælti fyrir þingsályktun um að Alþingi feli ráðherrum þriggja ráðu- neyta að skipu- leggja leiða- og þjónustukerfi fyrir ferðamenn sem ferðast um landið fótgangandi, á reiðhjól- um eða á hestum. Málið gekk til umhverfis- og samgöngunefndar 1. nóvember síðastliðinn. Nauðsyn þessi kemur, að mati Bjartrar framtíðar, til af gríð- arlegri fjölgun erlendra ferða- manna sem kallar á að unnið verði samtengt landsnet ferða- leiða. Þetta er jafnframt nauð- synlegt til að hámarka þjóðhags- legan ávinning og sjálfbærni ferðaþjónustunnar, kemur fram í ályktuninni. „Að mati flutningsmanna er nauðsynlegt að unnið verði hratt að verkefninu svo fljótlega verði mögulegt að koma til móts við ört vaxandi straum ferðamanna, inn- lendra sem erlendra, með viðun- andi hætti,“ sagði Róbert. Í umsögnum hagsmunaaðila við tillöguna kemur fram að málið er fjarri því klippt og skorið. Jákvæð- ar umsagnir eru þó fleiri en þær neikvæðu. Í u m s ö g n Vegagerðarinn- ar segir Hreinn Haraldsson vegamálastjóri að þjóðvegakerfið ráði ekki við umferð gangandi og hjólandi „sem eiga heima á sérstökum hjóla- og göngustígum“. Vega- gerðin leggst hins vegar ekki gegn hugmyndinni ef til koma sérstakir stígar meðfram þjóð- vegum. Nefnir Hreinn sem dæmi að kílómetrinn af slíkum stígum innan borgarmarkanna hafi kost- að um og yfir 50 milljónir króna. Í umsögn Bændasamtakanna er lögð þung áhersla á samráð við bændur og jarðeigendur, og að samþykki þeirra verði að liggja fyrir við skipulagningu göngu- og reiðleiða á vegum stjórn- valda. Sterklega er varað við því að verði „gengið á stjórnarskrár- varinn einkarétt jarðeigenda“. svavar@frettabladid.is Þjóðvegir henta ekki hjólandi og gangandi Vegagerðin vill ekki að hjólandi og gangandi ferðamönnum verði beint inn á þjóðvegakerfið. Slysahætta er ástæðan. Bændur óttast átroðning ferðamanna um einkaland og leggjast gegn hugmynd Bjartrar framtíðar um landsnet ferðaleiða. ● Fréttablaðið fjallaði á þriðjudag um hjólaleið frá Keflavík til Seyðis- fjarðar um Suðurstrandarveg, sem verði hluti af meginkerfi hjólaleiða í Evrópu, eða EuroVelo-verkefninu. Ferðamálastofa, sem fóstrar verkefnið, hefur þegar sótt um aðgang að EuroVelo. ● Þingsályktun þingmanna Bjartrar framtíðar tengist hugmyndinni beint og óbeint, enda er EuroVelo-verkefnið sérstaklega nefnt í ályktuninni. Ný hjólaleið á stuðning í þingsölum Á FERÐINNI Vegagerðin vill ekki auka umferð hjólandi og gangandi ferðamanna á þjóð- vegum landsins. EuroVelo-verkefnið krefst lítils álags á einstökum leiðum. FRÉTTABLAÐIÐ/PJETUR RÓBERT MARSHALL HREINN HARALDSSON STJÓRNMÁL Mótmæli héldu áfram á Austurvelli í gær þriðja daginn í röð en voru heldur fámennari en dagana á undan. Talið er að 1.200 til 1.500 manns hafi komið til að krefjast þjóðaratkvæðagreiðslu en hina tvo dagana telja menn að þrjú til fjögur þúsund manns hafi komið á Austurvöll. 33.500 hafa skrifað undir áskorun á thjod.is um að fram- hald ESB-viðræðna verði sett í þjóðaratkvæðagreiðslu. Það eru um fjórtán prósent kosninga- bærra manna í landinu. - jme Mótmæli héldu áfram í gær: Undirskriftir yfir 30 þúsund SPURNING DAGSINS Skógarhlíð 18 • Sími 595 1000 www.heimsferdir.is B irt m eð fy rir va ra u m p re nt vi llu r. H ei m sf er ði r á sk ilj a sé r r ét t t il le ið ré tt in g a á sl ík u. A th . a ð ve rð g et ur b re ys t á n fy rir va ra . Stökktu í sólina á Tenerife, tryggðu þér flug og gistingu. Netverð á mann frá kr. 149.900 m.v. 2 fullorðna með hálft fæði innfalið eða frá 164.900 með allt innifalið. Frá kr. 149.900 Stökktu til Tenerife 4. mars í 14 nætur KÍNA, AP Xi Jinping, forseti Kína, lét sig ekki muna um það á þriðju- daginn að fá sér göngutúr í Peking þrátt fyrir kæfandi loftmengun, sem hrjáð hefur borgarbúa undanfarna viku. Hann settist niður með fólki og spjallaði, allt í þeim tilgangi að sýna að hann sé maður fólksins. Ríkisfjölmiðillinn Xinhua sagði frá þessu undir fyrirsögninni: „Andað saman, örlögum deilt.“ Loftmengunin hefur ekki verið bundin við höfuðborgina heldur náð yfir stórt svæði í norðurhluta landsins. Flestir reyna að halda sig innan dyra, og setja helst á sig grímur ef nauðsynlegt er að fara út fyrir hússins dyr. Meira að segja styttur bæjarins hafa sett á sig grímur, eða reynd- ar var það sálfræðinemi við Peking-háskóla sem setti grímurnar á nokkrar styttur og dreifði svo myndum af gríninu. - gb Kæfandi loftmengun hefur verið í Peking síðustu daga: Forseti Kína fékk sér göngutúr NOREGUR Nær tíundu hverri norskri konu hefur verið nauðgað, samkvæmt könnun sem birt var í gær og Aftenposten segir frá. Ellefu prósent kvenna sem segjast hafa lent í slíku kæra nauðgunina, en þó kemur tæpur fjórðungur tilfella til kasta lög- reglunnar. Einungis ellefu prósent nauðgana eru kærð og 29 prósent þolenda segja aldrei nokkrum frá reynslu sinni. Um helmingur kvennanna sem um ræðir segir árásina hafa gerst áður en þær náðu átján ára aldri. - þj Ný könnun í Noregi: Tíundu hverri konu nauðgað GÓÐGERÐARSTARF „Þetta er alltaf kærkomið,“ segir Stefán Yngva- son, yfirlæknir á Grensásdeild Landspítalans, sem í gær tók við rúmlega fjórum milljónum króna frá Lionsklúbbnum Nirði. Klúbburinn hefur á síðustu árum gefið deildinni meira en þrjátíu milljónir króna, sem hafa verið notaðar til að kaupa tækja- búnað, húsgögn og annað sem deildin þarf á að halda. „Við erum alltaf í því að bæta búnað og endurnýja. Þetta slitn- ar mikið,“ segir Stefán. Hann segir það hafa verið skemmti- lega stund í gær þegar gjöfin var afhent, því karlakórinn Fjalla- bræður mætti til að syngja og skemmtikrafturinn Sveppi söng auk þess tvö lög með kórnum. Að sögn Guðlaugs Guðmunds- sonar, formanns Njarðar, voru peningarnir ágóði af málverka- uppboði sem klúbburinn efndi til í janúar. „Síðan voru Fjallabræð- ur að efna áheit um að koma þarna fram ef einhver vildi gefa fé til deildarinnar,“ segir Guð- laugur. Það var fasteignasalan Stak- fell sem varð við þeirri áskorun með því að gefa hálfa milljón. Loks sáu Ísfell hf. og Hraðfrysti- hús Hellissands til þess að Sveppi kom að syngja með því að gefa deildinni 50 þúsund krónur hvort. - gb Lionsklúbburinn Njörður afhenti Grensásdeild fjórar milljónir í gær: Kærkomin gjöf sem nýtist vel ALÞINGI Kvöldfundur stóð á Alþingi þriðja kvöldið í röð þar sem áfram var rædd skýrsla Hagfræðistofnunar HÍ um ESB. Ólíklegt má telja að þingsályktunartillaga ríkisstjórnarinnar um að aðildarumsókn Íslands að Evrópusambandinu verði dregin til baka komist á dagskrá fyrr en 10. mars. Umræðum um skýrslu Hagfræðistofnunar er ólokið og ekki gert ráð fyrir þingfundi á föstudag. Í næstu viku eru nefndardagar á Alþingi. Píratar lögðu fram tillögu um að taka á dagskrá þingsályktunartillögu um að boða til þjóðaratkvæðagreiðslu um framhald aðildarviðræðnanna samhliða sveitarstjórn- arkosningunum í vor. Bjarni Benedikts- son fjármálaráðherra sagði minnihlutann því miður ekki ráða dagskrá þingsins með ofbeldi og tillagan var felld. „Menn hafa nú orðið berir að ósannind- um,“ sagði Svandís Svavarsdóttir úr VG við upphaf þingfundar í gærkvöld og vísaði til þess að þrír ráðherrar Sjálfstæðisflokks hefðu lofað því að haldin yrði þjóðarat- kvæðagreiðsla um áframhald aðildarvið- ræðna. Ekki væri að furða að hiti væri í mönnum. - jme Þingmenn halda áfram að ræða skýrslu Hagfræðistofnunar um aðildarviðræður við Evrópusambandið: Menn hafa orðið berir að ósannindum GRÍMULAUS Á FERLI Þessir skólanemendur voru á leiðinni heim til sín í borginni Shijiazhuang í gær. FRÉTTABLAÐIÐ/AP ÞAKKAÐ FYRIR GJÖFINA Stefán Yngvason yfir- læknir faðmar þarna Þorlák Ómar Einars- son frá Stakfelli, en Fjallabræður fylgjast með og klappa. FRÉTTABLAÐIÐ/DANÍEL LANGIR FUNDIR Kvöldfundur stóð á Alþingi um skýrslu Hagfræðistofnunar þriðja kvöldið í röð. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.