Fréttablaðið - 27.02.2014, Blaðsíða 62

Fréttablaðið - 27.02.2014, Blaðsíða 62
27. febrúar 2014 FIMMTUDAGUR| LÍFIÐ | 50 „Ég söng Það er draumur að vera með dáta því mér finnst það mjög skemmtilegt lag. Ég tók útgáfuna sem Móeiður Júníusdóttir söng í þætti Hemma Gunn árið 1991 því mér finnst það mjög flott útgáfa,“ segir Dagrún Þórný Marínar- dóttir. Hún bar sigur úr býtum í söngkeppni Fjölbrautaskólans við Ármúla og verður fulltrúi skólans í söngkeppni framhaldsskólanna í Hofi á Akureyri 5. apríl. Ef Dagrún vinnur þá keppni fetur hún ekki ein- ungis í fótspor söngkvenna á borð við Emilíönu Torrini og Margréti Eir Hjartardóttur heldur verður hún einnig elsti keppandinn til að vinna keppnina en Dagrún varð nýlega 37 ára. „Söngurinn er bara áhugamál, ég er alltaf syngjandi í bílnum. Mér finnst mjög gaman að syngja. Þetta er í þriðja sinn sem ég tek þátt í söngkeppninni í FÁ en ég bjóst ekki við því að vinna. Ég held að ég hafi aldrei verið jafn róleg á sviðinu og núna. Ég var mjög afslöppuð en þetta var rosalega gaman,“ segir Dagrún sem hélt ekki sérstaklega upp á sigurinn. „Ég var komin heim um 23-leytið og hafði voðalega lítinn tíma til að halda upp á þetta. Ég átti að mæta í skólann klukkan 9 daginn eftir þannig að ég fór bara heim að sofa,“ segir Dagrún. Hún er á læknarit- ara- og heilbrigðisritarabraut og útskrifast næstu jól. „Ætli ég vinni ekki sem lækna- ritari í einhvern tíma en ég stefni á að fara í háskólanám og klára það fyrir fimmtugt,“ segir Dagrún glöð í bragði. Hún útilokar ekki söngnám í framtíðinni. „Mig hefur alltaf langað til að læra söng en ekki komist í það. Kannski læt ég verða af því á næstu árum.“ Dagrún er spennt fyrir söng- keppni framhaldsskólanna á Akur- eyri í apríl. „Ég ætla að fara þangað og hafa gaman af þessu. Ætli ég reyni ekki að vera jafn afslöppuð og í keppn- ➜ Ekkert aldurstakmark „Ban Thai er ávallt besti bitinn í bænum. Bæði fyrir kryddsjúklinga og aðstandendur þeirra. Ég mæli með massaman-karríi, ég gæti borðað það á hverju kvöldi.“ Valgerður Þóroddsdóttir skáld. BESTI BITINN „Þetta er sambland af nöfnunum okkar beggja. Nafnið var eigin- lega bara spaug til að byrja með en við fengum svo góð viðbrögð og í dag erum við alveg ástfang- in af því,“ útskýrir Kristinn Óli Hrólfsson hárgreiðslumeistari þegar talið berst að nafninu á hár- greiðslustofunni, Kimoli. Stofuna opnar hann á Vesterbro í Kaup- mannahöfn um helgina, ásamt Naja Kim. Áður rak Kristinn Óli hárgreiðslustofuna Mugshot Hair, en taldi tímabært að opna stærri stofu með nýju samstarfsfólki. „Það er búið að ganga svo sjúk- lega vel og við höfum fengið tæki- færi til að starfa að mjög góðum verkefnum. Það er kominn tími til að breyta til og opna nýja stofu í „metropolitan“-umhverfi. Hverfið er fjölbreytt með mikið af metn- aðarfullu fólk,“ segir hann. Kristinn Óli hefur fundið sína hillu í borginni og getið sér gott orð innan tískubransans. Hann sá meðal annars um útlitsbreytingu fyrirsætanna í raunveruleika- þættinum Danmarks Next Top Model í tvö misseri og var einnig gestadómari í einum þættinum. Kristinn Óli er ekki á heimleið eftir ellefu ára búsetu og segist hvorki upplifa sig sem Íslending né Dana, heldur sé hann einungis Kaupmannhafnarbúi. Dafnar vel í hárgreiðslubransanum Kristinn Óli Hrólfsson opnar hárgreiðslustofuna Kimoli í Kaupmannahöfn. VINSÆLL Kristinn Óli hefur nóg fyrir stafni þessa dagana. MYND/EINKASAFN Það er búið að ganga svo sjúklega vel og við höfum fengið tækifæri til að starfa að mjög góðum verkefnum. Kristinn Óli Hrólfsson Syngur alltaf í bílnum Dagrún Þórný Marínardóttir bar sigur úr býtum í söngkeppni Fjölbrautaskólans við Ármúla og verður fulltrúi skólans í söngkeppni framhaldsskólanna á Akur- eyri. Ef hún vinnur þá keppni líka verður hún elsti keppandinn til að hrósa sigri. SPENNT Dagrún stefnir á að hafa gaman þegar hún keppir í söngkeppni framhaldsskólanna í apríl. FRÉTTABLAÐIÐ/PJETUR Ég átti að mæta í skólann klukkan níu daginn eftir þannig að ég fór bara heim að sofa. Dagrún Þórný Marínardóttir Ótrúlegt úrval íbúða til sölu eða leigu! STÆRSTI HÚSNÆÐISVEFUR LANDSINS Ekkert aldurstakmark er í söng- keppni framhaldsskólanna og ekki heldur í MORFÍS, mælsku- og rökræðukeppni framhalds- skóla Íslands. Í Gettu betur, spurningakeppni framhaldsskólanna, mega kepp- endur hins vegar ekki hafa náð 24 ára aldri síðasta keppnisdag, sem í ár er 15. mars. „Síðasta platan okkar lagðist vel í tónlistarunnendur í Póllandi, þannig að það má segja að við eigum vin- sældum að fagna þar,“ segir Ryan Karazija, höfuðpaur hljómsveitar- innar Low Roar, sem hyggur á tón- leikaferðalag til Póllands og Þýska- lands í mars. „Við höfum aldrei komið til Póllands áður, og vissum fyrst ekki hvað við vorum að fara út í, en það er uppselt á helminginn af tónleikunum nú þegar.“ Tónleik- arnir í Póllandi verða níu talsins. „Minnstu tónleikarnir eru fyrir um 200-300 manns. Þar sem við fljúg- um í gegnum Berlín ákváðum við að halda tónleika þar í leiðinni.“ Með Ryan í hljómsveitinni eru tveir Íslendingar, þeir Logi Guð- mundsson og Leifur Björnsson. „Ég kynntist Leifi í gegnum Mike Lindsay, sem er líka í hljómsveit- inni, og Loga í gegnum sameigin- lega vini.“ Ryan flutti til Íslands frá San Francisco fyrir þremur árum. „Low Roar hefur gefið út eina plötu og önnur platan bíður útgáfu. Sigur- laug Gísladóttir spilar á nýju plöt- unni og stelpurnar í Amiinu líka.“ Low Roar heldur tónleika í Mengi á laugardaginn klukkan 21, áður en haldið er út í heim. Aðgangseyrir á tónleikana eru 2.000 krónur. - ue Low Roar vinsæl í Póllandi Hálfíslenska hljómsveitin Low Roar fer í tónleikaferðalag til Póllands og Þýskalands í mars og heldur tónleika í Mengi á laugardag. LOW ROAR Ryan Karazija og Logi Guð- mundsson. MYND/EDIT ÓMARSDÓTTIR inni í síðustu viku en þetta er líka þannig lag að það er varla hægt að vera stressaður þegar maður syng- ur það.“ liljakatrin@frettabladid.is
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.