Fréttablaðið - 27.02.2014, Blaðsíða 34
FÓLK|TÍSKA
BLÓMIN BLÍVA
Blómamynstur á tískusýningum haustsins.
Hér eru nokkur atriði sem gott er að hafa bak við
eyrað þegar æskuárunum sleppir.
KLASSÍSK FREKAR EN TÍSKUBÓLUR
Vissulega er í lagi að eltast við tískubólur ef budd-
an leyfir. Ef ekki er hætt við því að sitja uppi með
úreltar blómabuxur eða krumpubol sem er jafnvel
freistandi að ganga í allt of lengi. Betra er að
veðja á klassískan fatnað.
STUTT GÆTI VERIÐ BETRA EN SÍTT
Margar konur tengja flaksandi síða
lokka við unglegt útlit og reyna
að halda í þá sem lengst. Aðrar
greiðslur gætu samt hentað betur.
Með aldrinum dregur úr fitufram-
leiðslu húðarinnar. Andlitið missir
fyllingu og getur sítt, slétt hár ýtt
undir áhrif þess. Styttra hár og
mótaðri greiðsla getur hins gert
það að verkum að andlitið virðist
fyllra og yfirbragðið unglegra.
MINNA ER STUNDUM MEIRA
Eldri konur bera ekki endi-
lega þunga augnmálningu
jafn vel og þær sem yngri
eru. Húðin í kringum augun
þynnist með aldrinum auk
þess sem margir mynda
hrukkur í kringum þau.
Málningin á það þá til að
festast í hrukkum og mis-
fellum sem dregur athygli
að þeim. Eins geta baugar
undir augum virst dekkri
þegar líður á daginn og
málningin byrjar að smit-
ast niður á baugasvæðið.
Léttur augnblýantur og
maskari getur í slíkum
tilfellum komið betur
út en þungur eyeliner
og augnskuggi. Best
er að sleppa því að
setja maskara á neðri
augnhárin. Hann á
það til að smitast
niður og ýta undir
bauga.
RÉTTUR FARÐI
SKIPTIR SKÖPUM
Það er freistandi að
reyna að fela öldr-
unareinkenni húðar-
innar með þykku
meiklagi en galdurinn
felst ekki endilega
í því. Það sem skiptir sköpum er að velja rétta
farðann og verður það mikilvægara eftir því sem
fleiri húðvandamál koma fram. Litur og áferð þarf
að hæfa húðlit og húðgerð en hún getur breyst með
aldrinum. Sé rangur farði valinn er hætt við því að
útkoman verði ójöfn gríma. Best er að leita ráða
fagfólks við val á farða og óska eftir prufum.
GÓÐ HÚÐUMHIRÐA SJALDAN MIKILVÆGARI
Húðin verður þurrari með aldrinum og
finna flestir fyrir aukinni rakaþörf. Gæta
þarf að því að bera rakakrem á andlit og
háls, hendur og fætur. Þá þarf að gefa
augnsvæðinu sérstakan gaum en það
er sérstaklega viðkvæmt. Engu að
síður verður það fyrir hvað mestu
hnjaski. Það þarf oftar en ekki
að þola mikla förðun, krem og
hreinsiefni. Þegar kemur að augn-
vörum ætti því að leggja áherslu á
vandaðar og helst ofnæmisprófað-
ar vörur og hreinsiefni sem
erta húðina sem minnst.
Annars er hætt við bólg-
um og roða sem gera
lítið fyrir útlitið og geta
jafnvel valdið varan-
legum skaða.
SÓLBÖÐ VARASÖM
SEM FYRR
Þó sólbrúnka
geti gert yfir-
bragðið frísklegra
um stund vita
flestir að geislar
sólar ýta undir
hrukkumyndun
húðarinnar
þegar fram líða
stundir. Því ber
að varast mikla
sól og nota
góða sólarvörn.
Ekki gleyma því
að bera hana á
hendur og bringu.
Þessi svæði eru
oft óvarin og bera
þess merki með
tímanum.
KLASSÍKIN ELDIST BEST
FÖRÐUN OG STÍLL Ráðlegt er að laga stíl að aldri enda ekki alveg víst að
kolsvört augnmálning og mittissítt hár fari vel þegar aldurinn færist yfir.
Á tískusýningum fyrir haustið
2014 hafa nokkrir hönnuðir
nýtt gróður og blóm sér til
innblásturs. Blómamynstur
eru svo sem ekki ný af
nálinni en nú kveður við
annan tón. Hinir venju-
bundnu björtu pastellitir
eru hvergi sjáanlegir en
dekkri, stærri, grófari og
listrænni mynstur koma
inn í staðinn.
Hjá Dolce & Gabbana
fengu blómamynstrin
mikið vægi bæði í klæðum
og skreytingum á sýningunni.
Stella Jean blandaði saman
risastórum appelsínugulum
fagurfíflum og afrískum
mynstrum. Hjá Marni var
víður og pokalegur kjóll
skreyttur hvítum blómum
með skærbleiku og grænu í
bland.
MARNI
STELLA JEAN DOLCE & GABBANA
KLASSÍSKARI MEÐ
ALDRINUM
Þó freistandi sé að eltast
við tískubólur kemur
klassískur fatnaður sér
yfirleitt betur.
Ábendingahnappinn má finna á
www.barnaheill.is