Fréttablaðið - 27.02.2014, Blaðsíða 52

Fréttablaðið - 27.02.2014, Blaðsíða 52
27. febrúar 2014 FIMMTUDAGUR| LÍFIÐ | 40 IANAL I am not a lawyer IANAL þýðri einfaldlega „ég er ekki lögfræðingur“ og gæti íslenska skammstöfunin því verið ÉEEL. Þessa skamm- stöfun er að finna út um allt á samfélagsmiðlum en dæmi um notkun er: „Ég held að þetta sé ekki löglegt en ÉEEL.“ IMO In my opinion Þessi skammstöfun mætti þýða sem „mín skoðun“ eða „mitt álit“. Hún er oftast notuð í lok þráðar þar sem einhver hefur tjáð skoðun sína á tilteknu málefni en vill láta það skýrt í ljós að þetta sé bara hans skoðun. SMH Shaking my head Þessi skammstöfun er skemmti- legri á íslensku þar sem shaking my head þýðir einfaldlega „hristi höfuðið“ og því yrði íslenska skammstöfunin HH. Er þetta notað til að tjá undrun. Dæmi um notkun: „Sagði hann þetta í alvörunni? Vá! HH.“ OOTD Outfit of the day Outfit of the day þýðir ein- faldlega „klæðnaður dagsins“, KD. Þessi skammstöfun er mikið notuð á samfélagsmiðl- um með kassamerki á undan og notar fólk hana til að sýna þeim sem vilja í hverju það er þann daginn. TBT Throwback Thursday Gamlar myndir sem birtar eru á fimmtudögum eru merktar #TBT og gætum við Íslend- ingar kallað þetta „afturlit á fimmtudegi“– AÁF. Fimm skammstafanir sem tröllríða samfélagsmiðlunum Drekktu í þig Óskarinn Óskarsverðlaunin verða afh ent á sunnudaginn vestan hafs og þurfum við Íslendingar að vaka langt fram á nótt til að horfa á herlegheitin. Það getur verið erfi tt að halda sér vakandi og því tilvalið að prófa þennan hressilega drykkjuleik, hvort sem það er með áfengum eða óáfengum drykkjum. Taktu einn sopa ef … Taktu þrjá sopa ef … Kláraðu drykkinn ef …Taktu tvo sopa ef … … þú verður vitni að góðri fótóbombu. … Matthew McConaughey segir „all right“. … þú sérð stjörnurnar taka sjálfs- myndir af sér. … Jennifer Lawrence er sjarmerandi. … einhver reynir að gera grín að 12 Years a Slave en það mistekst. … einhver af kynnunum klúðrar textanum sínum. … einhver grínast með að hann geti ekki gert grín að 12 Years a Slave. … einhver er bersýnilega drukkinn í salnum … einhver minnist á hárgreiðslurn- ar í American Hustle. … einhver fer að gráta á sviðinu. … einhver minnist á Netfl ix. … einhver rómar 12 Years a Slave en þú kaupir ekki að viðkomandi hafi horft á hana. … Jennifer Lawrence dettur. … sigur- vegarinn er ekki á staðnum. … kynnirinn klúðrar nafni einhvers sem er tilnefndur. Chiwetel Ejiofor er gott dæmi! … einhver segir brandara um Shia LaBeouf. … Ellen DeGeneres minnist á að athöfnin sé í það lengsta. … Ellen DeGeneres dansar. … einhver minnist á foreldra sína í þakkar- ræðunni. … einhver minnist á Meryl Streep– og öskraðu síðan: „The Dingo ate my baby!“ … einhver nær ekki að klára þakkarræðuna sína í tíma og tónlistin er sett af stað. … sigurvegari segist ekki hafa undirbúið þakkarræðu. … gert er grín að einhverjum í salnum og hann er ekki ánægður með það. … einhver dettur á leiðinni á sviðið, líkt og Jennifer Lawrence. … einhver gerir grín að 12 Years a Slave og það heppnast. … einhver segist hafa valið Óskarsdressið í fl ýti. „Klæðanleg tækni“ er frasi ársins í Kísildalnum. Google og Samsung riðu á vaðið með Google Glass-snjallgleraug- unum og snjallúrinu Galaxy Gear. Talið er að Apple sé að þróa eigið snjallúr. Það fyrirtæki sem skarar fram úr í þessum efnum er þó lítið bandarískt sprotafyrirtæki, Pebble Technology. Spegilmynd snjallsímans Fyrirtækið kynnti á dögunum uppfærða útgáfu af Pebble- snjallúrinu, eða Pebble Steel. Úrið er í raun spegilmynd snjallsímans en tækin eru tengd í gegnum smáforrit. Pebble birtir skilaboð sem berast snjallsímanum en einnig er hægt að senda smáskilaboð, skrifa tölvupóst og fylgjast með skrefunum. Möguleikar Pebble felast í hugbúnaðinum sem er opinn. Nú þegar er stór hópur sjálfstæðra hugbúnaðar- framleiðenda að þróa smáforrit fyrir úrið. Fallegt útlit En á endanum er það fagurfræði og útlit vörunnar sem ræður. Pebble Steel lítur út eins og venjulegt armbandsúr — nokkuð glæsilegt úr í raun — og ódýrt en það kostar rúmar 28 þúsund krónur. Eins og Karl Lagerfeld sagði á sínum tíma þá þarf lítið annað en virðulegt útlit til að vekja áhuga á því sem leynist fyrir innan. GRÆJAN SNJALLÚRIÐ PEBBLE STEEL Sendu smáskilaboð og skrifaðu tölvupóst í hinu fallega snjallúri Pebble. Rýmingarsala 5 verð í gangi 1.000-2.000 -3.000 4.000 og 5.000 Kr Markaðstorg Kringlunnar 3.hæð - Kringlan ➜ Nokkrir eiginleikar úrsins Hægt að nota sömu smáforrit og í símanum. Tekið á móti SMS og tölvupósti. Hlustað á tónlist. Hjólreiðamenn, hlauparar og golf- arar geta fylgst með hraða, staðsetningu og vegalendum í úrinu. Útlit stílhreint og létt. Virkar í vatni. LÍFIÐ 27. febrúar 2014 FIMMTUDAGUR
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.