Fréttablaðið - 27.02.2014, Blaðsíða 48
27. febrúar 2014 FIMMTUDAGUR| MENNING | 36
Skýringar Stendur í stað síðan í síðustu viku Fellur um sæti síðan í síðustu viku Hækkar á lista síðan í síðustu viku Nýtt á lista
Listarnir eru teknir saman fyrir Félag hljómplötuframleiðenda. Listarnir eru birtir í heild sinni á Vísir.is.
Þátttakendur í Lagalistanum Bylgjan, FM957, Xið 977, Rás 2, K100,5, tonlist.is. Verslanir í Tónlistanum Skífan, Hagkaup, Penninn/
Eymundsson, 12 tónar, Harpa, Smekkleysa plötubúð, Elko, tonlist.is.
LAGALISTINN TÓNLISTINN
13.2.2014 ➜ 19.2.2014
1 Ýmsir Söngvakeppnin 2014
2 Kaleo Kaleo
3 Skálmöld og Sinfó Skálmöld og Sinfó
4 Ýmsir This Is Icelandic Indie Music
5 Ásgeir Trausti Dýrð í dauðaþögn
6 Ýmsir Pottþétt 61
7 Björgvin Halldórsson Duet III
8 Baggalútur Mamma þarf að djamma
9 Samaris Samaris
10 Mammút Komdu til mín svarta systir
1 Pharrell Happy
2 Ed Sheeran I See Fire
3 Gary Barlow Let Me Go
4 Pollapönk Enga fordóma
5 Björgvin Halldórsson / Jón Jónsson Kæri vinur
6 Mammút Blóðberg
7 U2 Ordinary Love
8 Ellie Goulding How Long Will I Love You
9 Mono Town Peacemaker
10 Kaleo Automobile
Beck - Morning Phase
Guðbjörg Magnúsdóttir - Vindurinn veit
Mono Town - In The Eye Of The Storm
Í spilaranum
„Við erum að flytja til Sønderborg
í Danmörku í næsta mánuði. Þetta
er miðsvæðis og það er stutt í allt,“
segir Óskar Logi Ágústsson, gítar-
leikari og söngvari hljómsveitarinn-
ar Vintage Caravan, en sveitin ætlar
að flytja til Danmerkur til elta rokk-
stjörnudrauminn.
Ástæða flutninganna er sú að
sveitin vill vera nær meginlandi
Evrópu vegna þess að möguleikarn-
ir eru töluvert fleiri úti en á Íslandi.
„Það er bara fjögurra tíma akstur
til Hollands og líka stutt til Þýska-
lands og svona. Við erum allir barn-
lausir og því kjörið að láta verða af
þessu núna,“ bætir Óskar við.
Það getur verið dýrt að fara út í
tónleikaferðlag og því aðgengilegra
að ferðast þegar á meginlandið er
komið. „Þetta er fyrsta tónleika-
ferðalagið sem við förum í og við
erum að hita upp fyrir þrjú önnur
bönd. Þetta er frábært tækifæri og
verður geggjuð kynning. Túrinn
hefur verið auglýstur víða,“ útskýr-
ir Óskar.
Búferlaflutningar sveitarinnar
eru þó ekki það eina sem er í gangi
hjá þeim félögum. „Við gerðum
útgáfusamning við Nuclearblast í
Þýskalandi, sem er stærsta þunga-
rokksútgáfufyrirtæki í heimi og
nú er platan okkar, Voyage, komin
út í Bandaríkjunum og í Evrópu,“
útskýrir Óskar. Platan hefur feng-
ið frábærar viðtökur og gaf til að
mynda hið virta þungarokkstíma-
rit Kerrang! plötunni fjórar stjörn-
ur af fimm mögulegum. „Kerrang!
sendi meira að segja ljósmyndara
til landsins og við fengum heilsíðu
í tímaritinu.“
Sveitin hefur einnig gert samning
við bókunarfyrirtækið Rock The
Nation sem hefur skipulagt þriggja
vikna tónleikaferðalag fyrir sveit-
ina og hefst hún um miðjan mars-
mánuð og farið verður um Evrópu.
„Við förum til Bretlands, Írlands,
Frakklands, Sviss, Austurríkis, og
Hollands.“ Sveitin spilaði einnig á
Eurosonic-hátíðinni í Hollandi fyrir
skömmu. Hljómsveitin er bókuð
á eina stærstu þungarokkshátíð
í heimi, Wacken Open Air, sem er
90.000 manna hátíð sem haldin er í
Þýskalandi í sumar.
Í tilefni flutninganna til Dan-
merkur ætlar sveitin að halda veg-
legt kveðjupartí á Gauknum þann
7. mars og kostar 1.500 krónur inn.
„Við ætlum að kveðja landann vel,
þetta verður mikil veisla.“ Hljóm-
sveitin ONI sér um upphitun en tón-
leikarnir hefjast klukkan 22.00.
gunnarleo@frettabladid.is
Elta rokkstjörnu-
drauminn erlendis
Hljómsveitin Vintage Caravan fl ytur til Danmerkur í næsta mánuði til að elta
drauminn. Önnur breiðskífa sveitarinnar, Voyage, er komin út víða um heim.
KVEÐJA ÍSLAND Í BILI Hljómsveitina Vintage Caravan skipa f.v. Guðjón Reynisson trommuleikari, Óskar Logi Ágústsson gítar-
leikari og söngvari og Alexander Örn Númason bassaleikari. Þeir ætla að flytja til Danmerkur í leit að tækifærum. MYND/BOWEN STAINES
Við erum allir barn-
lausir og því kjörið að láta
verða af þessu núna.
Óskar Logi Ágústsson
Fyrir skömmu var margrómaður orðrómur um komu tónlistarmannsins
Justins Timberlake til Íslands staðfestur. Ég verð að viðurkenna að hjarta mitt
sló örar þegar ég sá staðfestinguna á þessu fyrir framan mig og þá sló ég mig
utan undir til að ganga úr skugga um að ekki væri um draum að ræða. Ég er
kannski ekki mesti Justin Timberlake aðdáandi í heimi en ég er samt ótrúlega
hrifin af honum sem listamanni, persónu og tónlistinni hans. Hann er líka
svo sannarlega á toppnum í dag og ekki útbrunninn jaskur sem má muna fífil
sinn fegri, líkt og sumir tónlistarmenn mega gera sem hafa sótt okkur heim
undanfarin ár.
Við Íslendingar erum líklega að fá eitt heitasta nafnið í tónlistarbransanum
á alheimsvísu til okkar og tel ég að þetta séu líklega stærstu tónleikar sem
farið hafa fram á Íslandi, miðað við
umfang og annað slíkt.
Það er þó ekki bara heimsókn
Justins sem hækkaði spennustigið og
líkamshita minn verulega, það var líka
koma hljómsveitarinnar sem kemur
með honum hingað, The Tennessee
Kids. Um er að ræða hljómsveit
skipaða þvílíkum fagmönnum að það
hálfa væri nóg og einhverjum fremstu
hljóðfæraleikurum heimsins í dag í
popptónlist.
Hljómsveitar- og tónlistarstjóri Justins Timberlake er bassaleikarinn Adam
Blackstone en hann hefur útsett og stjórnað hljómsveitum og tónlistinni hjá
listamönnum á borð við Jay Z, Kanye West, Eminem, Janet Jackson, Dr. Dre,
Rihönnu, Maroon 5, The Roots og mörgum fleirum. Þarna erum við að tala
um mann sem hefur svo mikla þekkingu á tónlist að það er eiginlega bara
fyndið. Útsetningarnar á lögum Justins Timberlake er hreint út sagt stórkost-
legar og mæli ég með að fólki kynni sér frammistöðu hans og The Tennessee
Kids á tónleikum upp á síðkastið og á síðasta ári, á Youtube.
Ef þú fílar ekki plöturnar hans JT þá áttu samt eftir að fíla hann og hljóm-
sveitina hans við lifandi flutning. Ég get ekki beðið eftir tónleikunum og mun
okkar allra besta menningarnótt svo sannarlega falla í skuggann af þessum
stórfenglegu tónleikum sem fara fram daginn eftir hana. Í raun ættu vinnu-
staðir og yfirvöld að gefa frí mánudaginn 25. ágúst til að leyfa fólki að jafna
sig eftir þessi stórfenglegu tónleika.
Justin Timberlake,
við sjáumst eft ir smá
TÓNNINN
GEFINN
Gunnar Leó Pálsson