Fréttablaðið - 27.02.2014, Blaðsíða 10

Fréttablaðið - 27.02.2014, Blaðsíða 10
27. febrúar 2014 FIMMTUDAGUR| FRÉTTIR | Landeigendur víða um land hafa nú ýmist boðað gjaldtöku af ferða- mönnum fyrir aðgang að náttúru- perlum, eða eru að íhuga vandlega hvort slík gjaldtaka sé réttlætanleg. Andstæðingar slíkrar gjaldtöku af ferðamönnum benda á ákvæði nátt- úruverndarlaga þar sem segir að gangandi sé heimilt að fara um óræktað land að vild. Lögin virðast fremur skýr. Í nátt- úruverndarlögum er kveðið á um að heimilt sé að fara fótgangandi „um óræktað land og dveljast þar“. Þar segir þó ennfremur að á eign- arlandi í byggð sé heimilt að „tak- marka eða banna með merking- um við hlið og göngustíga umferð manna og dvöl á afgirtu óræktuðu landi“. Í náttúruverndarlögum sem samþykkt voru á Alþingi í fyrra en hafa ekki tekið gildi, eru sambæri- leg ákvæði, þó orðalagi hafi verið hnikað örlítið til. Talsmenn landeigenda hafa á móti bent á að ekkert mæli á móti gjaldtöku í lögunum. Þá hafa þeir bent á að álagið á land þeirra sé mikið vegna mikils fjölda ferða- manna og rétt sé að þeir sem skoði þessa vinsælu staði greiði fyrir við- hald þeirra og eftirlit. Lögmenn sem Fréttablaðið hefur rætt við eru á einu máli um að báðir aðilar hafi talsvert til síns máls og erfitt sé að skera úr um það með vísunum í lög hvort réttur landeig- enda til að verja eign sína ágangi eða réttur almennings til að fara um landið óhindrað sé sterkari. Í málinu togast á tvenns konar hagsmunir. Annars vegar hagsmun- ir þeirra sem eiga land með nátt- úruperlum sem ferðamenn sækja heim. Fjöldi ferðamanna hefur auk- ist gríðarlega á síðustu árum og fátt sem bendir til að sú þróun breytist. Það þýðir að álagið á landið hefur aukist mikið og mun halda áfram að aukast. Það kallar á uppbygg- ingu stíga, salerna og ýmiss konar aðstöðu fyrir allt þetta fólk. Á móti koma hagsmunir ferða- mannanna sjálfra, innlendra jafnt sem erlendra, en ekki síður þeirra sem hafa af því tekjur að selja þeim flugmiða til landsins, bílaleigubíla og ferðir til að skoða náttúruna. Þeirra hagsmunir eru þeir að þurfa ekki að borga landeigendum fyrir að skoða landið, þó auðvitað séu það þeirra hagsmunir líka að land- ið í kringum fallegar náttúruperlur drabbist ekki niður. Í lögum frá árinu 1281 Sú meginregla að fótgangandi megi fara um óræktað land hefur verið í íslenskum lögum í það minnsta frá því Jónsbók var skrifuð árið 1281. Á þeim rúmu 700 árum sem liðin eru síðan hefur margt breyst. Fjöldi Íslendinga hefur margfald- ast og möguleikarnir til að ferðast um landið eru allt aðrir en þeir voru fyrr á öldum. Þrátt fyrir þetta segir Sigurð- ur Líndal lagaprófessor að þetta ákvæði sé síður en svo úrelt. Þetta sé meginreglan, en hún sætir tak- mörkunum á ýmsan hátt. Til dæmis eru ákvæði um friðun lands, vernd náttúru og annað sem takmarkar þann rétt. Sigurður segir það skýrt í sínum huga að þrátt fyrir ákvæðið um frjálsa för um landið geti landeig- endur gripið til aðgerða til að verja landið miklum ágangi. Það geti þeir gert til dæmis með því að setja upp girðingar og hlið og með því að beina gestum á stíga. Hann segir jafnframt eðlilegt að landeigendur geti innheimt gjald af þeim sem fari um landið til að standa straum af kostnaði við að verja það ágangi. Gjaldtaka fer saman við frjálsa för Áform um gjaldtöku á ferðamannastöðum mæta harðri andstöðu þeirra sem vilja áfram frjálsa för almennings um óræktað land. Laga- prófessor segir að þótt meginreglan sé óheft aðgengi geti landeigendur verið í rétti innheimti þeir gjald til að standa straum af kostnaði. Landeigendur víða um land eru ýmist byrjaðir eða komnir í start- holurnar með að rukka aðgangseyri af ferðamönnum sem vilja skoða náttúruperlur á landareign þeirra. Þar sem þegar hefur verið ákveðið að rukka inn er í öllum tilvikum innheimt fullt gjald af fullorðnum óháð þjóðerni, en ekkert rukkað fyrir börn undir 16 ára aldri. Gjaldtaka hófst af þeim sem skoða Kerið í Grímsnesi í fyrra, og 10. mars ætlar hluti landeigenda á Geysissvæðinu að hefja gjald- heimtu. Í sumar bætist svo við gjaldtaka af þeim sem vilja skoða Leirhnjúk, Námaskarð og mögulega Dettifoss, á vegum landeigenda í Reykjahlíð. ➜ Ókeypis aðgangur fyrir börn undir 16 Áform um náttúrupassa sem og gjaldtöku við einstaka staði vega stórlega að almannarétti um frjálsa för um óræktað land, segir í sameiginlegri yfirlýsingu fimm samtaka náttúruverndar- og ferðafélaga. Samtökin vara við hugmyndum um að girða af náttúruperlur í þeim tilgangi að taka gjald af svæðum, og hefta þannig för almennings, segir í yfirlýsingunni, sem er frá Landvernd, Ferðafélagi Íslands, Ferðaklúbbnum 4x4, Samtökum útivistar- félaga (SAMÚT) og Útivist. „Samtökin telja að fara beri leiðir sem ekki brjóta á almannaréttinum, til dæmis blandaða leið hóflegs komu- eða brott- farargjalds og breytinga á gistináttagjaldi og/eða virðisaukaskatti,“ segir í yfirlýsingunni. ➜ Segja vegið að rétti um frjálsa för Um 781 þúsund erlendir ferðamenn komu til Íslands á síðasta ári, sam- kvæmt talningu á Keflavíkurflugvelli. Fjöldinn hefur rúmlega tvöfaldast frá árinu 2004, þegar 349 þúsund sóttu landið heim. Fjöldi ferðamanna tvöfaldast á tíu árum* GJALDTAKA Landeigendur á Geysissvæðinu, að ríkinu undanskildu, ætla að innheimta gjald af ferðamönnum sem fara um svæðið frá 10. mars næstkomandi. Aðrir eru í startholunum eða bíða átekta eftir frumvarpi iðnaðarráðherra um náttúrupassa. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA GJALDTAKA HAFIN EÐA BOÐUÐ Á FIMM STÖÐUM Á LANDINU Námaskarð 800 krónur* Dettifoss 800 krónur* Leirhnjúkur 800 krónur* Geysir í Haukadal 600 krónur Kerið í Grímsnesi 350 krónur *Afsláttur verður veittur fyrir þá sem vilja skoða Dettifoss, Námaskarð og Leirhnjúk. 800 700 600 500 400 300 200 100 0 *Aðeins þeir sem fara um Kefl avíkurfl ugvöll Heimild: Ferðamálastofa 2004 2005 2006 2007 2008 2009 2010 2011 2012 2013 Fjöldi í þúsundum AUKIÐ ÁLAG Ólíklegt er að höfundur Jónsbókar hafi gert ráð fyrir því að tæplega 800 þúsund ferðamenn ættu tilkall til frjálsrar farar um landið þegar forveri þessa lagaákvæðis varð til árið 1281. 349 361 399 459 473 465 459 541 647 781 Fimm ferðaskrifstofur sem skipuleggja ferðir um Ísland skora á stjórnvöld að stöðva fyrirætlanir landeigenda um að innheimta gjald af ferðamönnum á landareignum sínum. Talsmaður þeirra segir að verði af áformum um gjald- töku muni það kosta stór ferðaþjónustufyrirtæki tugi milljóna, enda löngu búið að bóka og borga fjölmargar ferðir í sumar. „Við erum ekki að taka afstöðu til þess hvort það eigi að innheimta gjald af ferðamönnum fyrir að skoða náttúruperlur, heldur að segja að þetta þurfi að gera af mikilli yfirvegun og móta þurfi heildarstefnu, sem er verið að vinna að í augnablikinu,“ segir Bjarnheiður Hallsdóttir, framkvæmdastjóri Katla DMI ferðaskrifstofu, sem er í forsvari fyrir hópinn. „Okkur finnst þessi framganga og offors landeigenda algerlega út í hött. Sérstaklega að það sé svona lítill fyrirvari. Það er algerlega óviðunandi fyrir fyrirtæki sem eru að reka ferðaþjónustu í þessu landi,“ segir Bjarnheiður. Hún segir að breytingar á borð við þessa þurfi að liggja fyrir að lágmarki ári áður en þær taki gildi, og helst einu og hálfu ári fyrr. Ferðaskrifstofurnar krefjast þess að stjórnvöld grípi til aðgerða til að stöðva tafarlaust áformaða gjaldtöku landeigenda. Kostar ferðaþjónustuna tugi milljóna Brjánn Jónasson brjann@frettabladid.is ASKÝRING | 10 ERU LÖG SEM HEIMILA ALMENNINGI ÓHINDRAÐA UMFERÐ UM ÓRÆKTAÐ LAND BARN SÍNS TÍMA? LANGAR ÞIG AÐ LÆRA AÐ BÚA TIL NÆRINGARRÍKA OG FLJÓTLEGA FÆÐU? HEILSUHÚSIÐ LÁGMÚLA 5, KL. 18:30-21:00 „Fróðlegt og skemmtilegt námskeið sem sýnir manni að það þarf alls ekki að vera flókið eða tímafrekt að útbúa hollan og bragðgóðan mat og millimál.“ – Karen Lilja Sigurbergsdóttir Fimmtudagurinn 6. mars 7.600 kr. Hráfæði – Þeytingar – Ofurfæði Lærðu að búa til kraftmikinn morgunmat, millimál, þeytinga, mjólkurlausa mjólk, hráfæði, aðalrétti, eftirrétti og ís. Sýnikennsla og fræðsla. Eingöngu er notast við algeng eldhúsáhöld, matvinnsluvél og blandara við matseldina. Allir fara saddir og sælir heim með glænýtt uppskriftasafn auk þess sem Facebook-hópur verður stofnaður þar sem hægt er að spyrja spurninga og deila reynslu eftir námskeiðið. SIF GARÐARSDÓTTIR Sif Garðarsdóttir er heilsu- mark þjálfi og einka þjálfari með yfir 15 ára reynslu. Nánari upplýsingar og skráning: sifg@hotmail.com www.sifgardars.is
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.