Fréttablaðið - 27.02.2014, Blaðsíða 28
FÓLK|TÍSKA
FÓLK ER KYNNINGARBLAÐ sem býður aug-
lýsendum að kynna vörur og þjónustu í formi
viðtala og umfjallana ásamt hefðbundnum auglýs-
ingum. Blaðið fylgir Fréttablaðinu daglega.
Útgefandi: 365 miðlar | Ábyrgðarmaður: Jón Laufdal
Sölumenn: Bryndís Hauksdóttir, bryndis@365.is, s. 512 5434
Sverrir Birgir Sverrisson, sverrirbs@365.is, s. 512 5432 Kolbeinn
Kolbeinsson, kolli@365.is, s. 512-5447 | Hönnun: Silja Ástþórsdóttir
Ég hafði samband við Ilmi því mér
finnst hún frábær leikkona. Hún var
mjög spennt fyrir því að klæðast fatn-
aði frá mér á Eddunni og varð stórhrif-
in af kjólnum sem ég hannaði á hana,“
segir Heiðrún Ósk Sigfúsdóttir við-
skiptafræðingur, en hún sendi frá sér
sína fyrstu fatalínu rétt fyrir jól undir
merkinu Dimmblá.
Kjóllinn sem Ilmur klæddist á rauða
dreglinum er ekki enn kominn á mark-
að en hann verður í nýrri línu sem er á
teikniborðinu. Kjóllinn er úr hundrað
prósent silki og á efnið er prentuð
mynd af Skeiðarársandi en allar flíkur
Heiðrúnar bera landslagsmyndir af ís-
lenskri náttúru.
En hvernig datt viðskiptafræðingi í
hug að búa til föt?
„Ég er mikill náttúruunnandi og
ferðast mikið um landið á hverju
sumri. Íslensk náttúra er einstök og ég
sá einfaldlega tækifæri í því að búa til
spennandi fatalínu með myndum af ís-
lenskri náttúru,“ útskýrir Heiðrún.
„Ég vinn með framúrskarandi ljós-
myndurum. Fyrstu línuna kalla ég
Norðurljósalínu og myndirnar sem ég
nota eru eftir Sigurð Hrafn Stefnisson.
Nýju línuna vinn ég með Ragnari Axels-
syni ljósmyndara og mun hún meðal
annars innihalda flíkur með myndum af
Vatnajökli og Skeiðarársandi. Ég nota
einungis vistvæn efni í flíkurnar, silki,
lífræna bómull og efni, sem unnið er úr
trjákvoðu,“ útskýrir Heiðrún.
Fyrsta línurnar innihalda kjóla og
boli og fékk Norðurljósalínan strax
góðar viðtökur. Heiðrún hefur meðal
annars fengið óskir um að hanna flíkur
á karlmenn og segir aldrei að vita
nema það verði. Þá hefur síminn ekki
stoppað eftir að Ilmur sást á rauða
dreglinum.
„Fólk er sérstaklega hrifið af litunum
í kjólnum,“ segir Heiðrún en verður
leyndardómsfull þegar hún er innt eftir
hvert framhaldið verði.
„Ég vil sem minnst gefa upp um
það í bili en ég stefni að því að kynna
Dimmblá á erlendum markaði. Það eru í
það minnsta mjög spennandi tímar fram
undan.“ ■ heida@365.is
DIMMBLÁ Á RAUÐA
DREGLINUM
LANDSLAG Á KJÓLA Heiðrún Ósk Sigfúsdóttir sendi frá sér sína fyrstu fata-
línu rétt fyrir jól. Ný lína er þegar á teikniborðinu og klæddist Ilmur Kristjáns-
dóttir leikkona kjól úr þeirri línu á rauða dreglinum á Eddunni. Kjóllinn vakti
athygli og segir Heiðrún spennandi tíma fram undan hjá Dimmblá.
VAKTI ATHYGLI Ilmur
Kristjánsdóttir leikkona
klæddist kjólnum Skeið-
arársandi úr væntanlegri
línu frá Dimmblá á rauða
dreglinum á Eddunni.
Kjóllinn vakti athygli og
segir Heiðrún spennandi
tíma fram undan hjá
fyrirtækinu.
MYND/EGGERT JÓHANNESSON
Skeifunni 8 • 108 Reykjavík • Sími: 517 6460 • www.belladonna.is
Flott föt fyrir flottar konur
Nýjar vörur í hverri viku
Verslunin Belladonna
Kí
ki
ð
á
m
yn
di
r o
g
ve
rð
á
F
ac
eb
oo
k
Laugavegi 178 (Bolholtsmegin) | Sími 555 1516
3 litir: dökkrautt, svart,
krembleikt.
Stærð S - XXL
Verð 10.900 kr.
Einnig til PU leðurjakkar á
11.900 kr.
Stærð 42 - 50.
2 litir: svart og millibrúnt.
Opið virka daga kl
. 11–18.
Opið laugardaga k
l. 11–16.
Laugavegi 18 • S. 511 3399 • Opið mán.-fös. kl. 11-18, lau. kl. 11-17
Laugaveginum
Útibú í kjallara
Máls og menningar
Save the Children á Íslandi