Fréttablaðið - 27.02.2014, Blaðsíða 42

Fréttablaðið - 27.02.2014, Blaðsíða 42
27. febrúar 2014 FIMMTUDAGUR| MENNING | 30 „Við erum tvær og búnar að vinna saman í þrjú ár við að framleiða örmyndir sem við höfum verið að reyna að finna vettvang til að sýna,“ segir Harpa Fönn Sigur- jónsdóttir sem ásamt Halldóru Rut Baldursdóttur stendur fyrir Örvarpinu, fyrstu örmyndahátíð á Íslandi. „Hér heima var hæg- ara sagt en gert að finna slíkan vettvang þannig að við fórum að leita fyrir okkur erlend- is og þar reyndist vera mikil gróska í framleiðslu og sýningu örmynda.“ Þessi uppgötvun gaf Hörpu og Halldóru byr undir báða vængi og í framhaldinu fengu þær þá hug- mynd að halda örmyndahátíð þar sem fólk gæti sent inn myndir, þær bestu yrðu valdar úr og myndu keppa til verðlauna. „Við fórum með þessa hugmynd til RÚV fyrir um ári og þar var fólk mjög spennt fyrir þessu. Það var ákveð- ið að við gerðum þetta í samstarfi og örmyndahátíðin var formlega opnuð á vef RÚV hinn 19. septem- ber í fyrra og stóð í þrettán vikur.“ Fyrirkomulagið var þannig að úr 62 innsendum myndum var valin ein mynd á viku og sýnd á vefnum. Ísold Uggadóttir og Haukur Ingvarsson völdu mynd- irnar og á laugardaginn verða þær sýndar í Bíói Paradís ásamt ellefu myndum sem ekki voru í keppninni en hafa vakið sérstaka athygli Örvarpsins. Dómnefnd, skipuð þeim Baldvin Z, Marsibil Sæmundardóttur og Jóni Proppé, mun velja bestu myndina og hlýt- ur hún vegleg verðlaun. „Þetta er svona uppskeruhátíð,“ útskýrir Harpa. „Flestir listamannanna sem sendu inn myndir hafa aldrei séð verkin sín á breiðskjá í alvöru bíóhúsi og þykir þetta hrikalega spennandi.“ Hátíðin hefst klukkan 18 á laugardaginn, kynnir er Gunnar Sigurðsson og sérstakur gestur hátíðarinnar er Ragnar Braga- son leikstjóri sem halda mun stutt erindi um eigin reynslu af kvik- myndagerð. „Svo vonandi heldur Örvarpið áfram á hverju ári héðan af,“ segir Harpa vongóð. fridrikab@frettabladid.is Uppskeruhátíð Örvarpsins Örvarpið nefnist kvikmyndahátíð sem haldin verður í Bíói Paradís á laugardaginn. Þar verða sýndar þrettán myndir sem sendar voru inn í keppni Örvarpsins og eru aðgengilegar á vef RÚV. Besta myndin hlýtur vegleg verðlaun. Tónleikar eru í dag klukkan 18 í Lágafellskirkju í Mosfellsbæ og nefnast þeir Börn spila fyrir börn. Þar koma nemendur tón- listarskóla bæjarins fram og spila til ágóða fyrir börnin í Sýr- landi. „Tónleikarnir eru á vegum kennara og nemenda Listaskól- ans, þeir vilja sýna börnunum í Sýrlandi samhug í verki,“ segir Arnhildur Valgarðsdóttir, einn tónlistarkennaranna við skólann. Hún tekur fram að söfnunin sé í gegnum Unicef og starfsmaður samtakanna muni koma og segja frá aðstæðum í Sýrlandi og hjálp- arstarfinu. Aðgangseyrir er þúsund krónur og ekki er posi á staðnum. - gun Spila fyrir börn í Sýrlandi ARNHILDUR „Við viljum sýna börn- unum í Sýrlandi samhug í verki,“ segir hún. ➜ Örmynd er kvikmynd sem er undir 5 mínútum að lengd. ➜ Myndirnar þrettán sem keppa um verðlaunin eru aðgengilegar á vefslóðinni ruv.is/ orvarpid. ➜ Höfundar hinna myndanna sem sýndar verða eru m.a.: Ásdís Sif Gunn- arsdóttir, Curver Thoroddsen, Vera Sölvadóttir, Tinna Hrafnsdóttir, Sigga Björg, Kitty Von Somtime, Helena Jóns og Erling Klingenberg. FRUMKVÖÐLAR Harpa Fönn og Halldóra Rut hafa gert örmyndir saman í þrjú ár og vilja auka útbreiðslu þess listforms. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA „Ég er svo fáránlega fyndinn gaur,“ segir Snorri Ásmundsson myndlistarmaður en hann opnar sýn- inguna I am so funny í Týsgalleríi í dag klukkan fimm. Sýningin er tuttugasta og fimmta einkasýning- um sem Snorri hefur haldið undanfarin ár, en hann hefur verið iðinn við kolann. „Ég hef líka verið að taka þátt í fjölmörgum sam- sýningum hér heima og erlendis,“ bætir hann við, en hann er nýkominn heim frá Vínarborg þar sem hann tók þátt í samsýningunni Franz Graf Programm. „Ég náði ekki einu sinni að hengja myndirnar mínar upp, þær voru svo fljótar að seljast,“ segir Snorri í léttum tón. Snorri er þekktur fyrir ýmis uppátæki þar sem hann ögrar og stríðir ríkjandi gildum. „Ég hef stundum verið kallaður óþekka barnið í íslenskri myndlist en ég er auðvitað krónísk- ur óþekktarangi,“ útskýrir hann og hlær, en hann hefur meðal annars boðið sig fram til borgar- stjóra, til embættis forseta Íslands og til formanns Sjálfstæðis flokksins. „Ég er líka ofvirkur og hef verið að leika í kvikmyndum.“ Snorri lék til dæmis í kvikmyndinni XL eftir Martein Þórsson og þar var Snorri fyrirmyndin að persónunni sem hann lék. Hann var á lista Man Magazine yfir 100 áhrifa- mestu einstaklingana, enda komið víða við. Snorri vinnur list sína í ýmsa miðla, hann sýslar við vídeólist og gjörninga af ýmsum stærðargráð- um en undanfarin ár hefur málverkið verið honum hugleikið. „Ég tel mig vera einn af þremur bestu málurum í Evrópu,“ segir Snorri. olof@frettabladid.is Óþekka barnið í íslenskri myndlist Snorri Ásmundsson opnar sýninguna I am so funny í Týsgalleríi í dag klukkan 5. SÝSLAR Í MÖRGU Snorri Ásmundsson telur sig vera einn af þremur bestu málurum í Evrópu. MYND/SPESSI MENNING
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.