Fréttablaðið - 27.02.2014, Blaðsíða 27

Fréttablaðið - 27.02.2014, Blaðsíða 27
Að dvelja á Heilsuhóteli Íslands er það besta sem hægt er að gera fyrir sjálfan sig, segir Alda Jóns- dóttir, kaffihúsaeigandi, leiðsögumaður og fararstjóri. Fólk leitar þangað út af margvíslegum ástæðum en sjálf hefur hún glímt við meltingarvandamál um tíma. „Dvölin gaf mér gríðarlega mikið. Ég hef tvisvar dvalið á Heilsuhótelinu, fyrst í tvær vikur og síðar í níu daga. Maður kúplar sig algjörlega út úr öllu stressi og endurnærir sjálfan sig full- komlega. Þarna er maður líka algjörlega á eigin forsendum og kynnist frábæru starfsfólki og skemmtilegum gestum.“ Gestir Heilsuhótelsins stýra dag- skránni sinni alveg sjálfir og gera í raun það sem þeim sýnist. „Það er fjölmargt skemmtilegt og fróðlegt í boði. Ég sótti sjálf leikfimi, hlustaði á fyrirlestra, sótti frábærar nuddmeðferðir og ekki má gleyma uppáhaldinu; heita pottinum og infrarauða klefanum. Gestir Heilsu- hótelsins fara flestir daglega í stór- skemmtilega göngutúra víða á Reykja- nesi sem eru einstaklega hressandi og í gullfallegu umhverfi og svo höfum við skemmtikvöld með alls konar uppá- komum.“ Dvölin á Heilsuhóteli Íslands snýst ekki síst um að breyta hugarfari og lífs- stíl eftir að dvöl lýkur að sögn Öldu. „Ég var alltaf að læra eitthvað nýtt um sjálfa mig á hverjum degi og um leið hvað væri gott fyrir mig og heilsu mína.“ Hún segir allan aðbúnað vera til fyrir- myndar. „Þarna starfar yndislegt starfs- fólk sem ber mikla umhyggju fyrir gest- um Heilsuhótelsins. Einstaklingurinn er settur í öndvegi þarna og mér leið eins og prinsessu allan tímann.“ Alda segist svo sannarlega geta mælt með dvöl á Heilsuhótelinu. „Þetta var frábær dvöl og algjörlega á mínum eigin forsendum og raunar það besta sem ég hef gert fyrir mig. Það er svo gaman að sjá hvernig fólk með alls konar kvilla gengur út af Heilsuhótelinu tveimur vikum síðar, sumir verkjalausir, aðrir mörgum áhyggjukílóum léttari og um leið unglegri og frísklegri, tilbúið til að takast á við ný og spennandi verkefni.“ HLEGIÐ HÁTT Á HEILSUHÓTELINU HEILSUHÓTEL ÍSLANDS KYNNIR Góður aðbúnaður og frábært starfsfólk ein- kennir Heilsuhótel Íslands. Gestir endurnæra sig á skömmum tíma. EINTÓM GLEÐI Alda Jónsdóttir mælir með dvöl á Heilsuhóteli Íslands fyrir alla. MYND/ÚR EINKASAFNI PARÍSARTÍSKAN Tískuvika stendur nú yfir í borg ástarinnar. Á tískupöll- um má sjá margar af vinsælustu fyrirsætum heims, eins og ensku ofurfyrirsætuna Cöru Delevingne. Cara frumsýndi eigin töskuhönnun fyrir tískurisann Mulberry í nýliðinni tískuviku Lundúna og segir að beikonát geri hana sæta. Ný skósending! Vertu vinur okkar á Facebook Nýjar vörur að berast í hús! Allt fyrir vorið, fallegir litir . Bæði sport og sparilegur klæðnaður. Skipholti 29b • S. 551 0770 Næstu námskeið við Heilsuhótel Íslands Heilsunámskeið, tvær vikur 6. - 20. september, örfá pláss laus 3. - 17. janúar 2014, vinsæll tími Munið að panta tímanlega Sími: 512 8040www.heilsuhotel.is 7. -21. mars 2. -16. maí
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.