Fréttablaðið - 27.02.2014, Blaðsíða 27
Að dvelja á Heilsuhóteli Íslands er það besta sem hægt er að gera fyrir sjálfan sig, segir Alda Jóns-
dóttir, kaffihúsaeigandi, leiðsögumaður
og fararstjóri. Fólk leitar þangað út af
margvíslegum ástæðum en sjálf hefur
hún glímt við meltingarvandamál um
tíma. „Dvölin gaf mér gríðarlega mikið.
Ég hef tvisvar dvalið á Heilsuhótelinu,
fyrst í tvær vikur og síðar í níu daga.
Maður kúplar sig algjörlega út úr öllu
stressi og endurnærir sjálfan sig full-
komlega. Þarna er maður líka algjörlega
á eigin forsendum og kynnist frábæru
starfsfólki og skemmtilegum gestum.“
Gestir Heilsuhótelsins stýra dag-
skránni sinni alveg sjálfir og gera í raun
það sem þeim sýnist. „Það er fjölmargt
skemmtilegt og fróðlegt í boði. Ég sótti
sjálf leikfimi, hlustaði á fyrirlestra, sótti
frábærar nuddmeðferðir og ekki má
gleyma uppáhaldinu; heita pottinum
og infrarauða klefanum. Gestir Heilsu-
hótelsins fara flestir daglega í stór-
skemmtilega göngutúra víða á Reykja-
nesi sem eru einstaklega hressandi og
í gullfallegu umhverfi og svo höfum við
skemmtikvöld með alls konar uppá-
komum.“
Dvölin á Heilsuhóteli Íslands snýst
ekki síst um að breyta hugarfari og lífs-
stíl eftir að dvöl lýkur að sögn Öldu. „Ég
var alltaf að læra eitthvað nýtt um sjálfa
mig á hverjum degi og um leið hvað
væri gott fyrir mig og heilsu mína.“
Hún segir allan aðbúnað vera til fyrir-
myndar. „Þarna starfar yndislegt starfs-
fólk sem ber mikla umhyggju fyrir gest-
um Heilsuhótelsins. Einstaklingurinn er
settur í öndvegi þarna og mér leið eins
og prinsessu allan tímann.“
Alda segist svo sannarlega geta mælt
með dvöl á Heilsuhótelinu. „Þetta var
frábær dvöl og algjörlega á mínum eigin
forsendum og raunar það besta sem ég
hef gert fyrir mig. Það er svo gaman að
sjá hvernig fólk með alls konar kvilla
gengur út af Heilsuhótelinu tveimur
vikum síðar, sumir verkjalausir, aðrir
mörgum áhyggjukílóum léttari og um
leið unglegri og frísklegri, tilbúið til að
takast á við ný og spennandi verkefni.“
HLEGIÐ HÁTT Á
HEILSUHÓTELINU
HEILSUHÓTEL ÍSLANDS KYNNIR Góður aðbúnaður og frábært starfsfólk ein-
kennir Heilsuhótel Íslands. Gestir endurnæra sig á skömmum tíma.
EINTÓM GLEÐI
Alda Jónsdóttir mælir
með dvöl á Heilsuhóteli
Íslands fyrir alla.
MYND/ÚR EINKASAFNI
PARÍSARTÍSKAN
Tískuvika stendur nú yfir í borg ástarinnar. Á tískupöll-
um má sjá margar af vinsælustu fyrirsætum heims, eins og
ensku ofurfyrirsætuna Cöru Delevingne. Cara frumsýndi eigin
töskuhönnun fyrir tískurisann Mulberry í nýliðinni tískuviku
Lundúna og segir að beikonát geri hana sæta.
Ný skósending!
Vertu vinur okkar á Facebook
Nýjar vörur að berast í hús!
Allt fyrir vorið, fallegir litir .
Bæði sport og sparilegur klæðnaður.
Skipholti 29b • S. 551 0770
Næstu námskeið við
Heilsuhótel Íslands
Heilsunámskeið, tvær vikur
6. - 20. september, örfá pláss laus
3. - 17. janúar 2014, vinsæll tími
Munið að panta tímanlega
Sími: 512 8040www.heilsuhotel.is
7. -21. mars
2. -16. maí