Fréttablaðið - 27.02.2014, Qupperneq 4
27. febrúar 2014 FIMMTUDAGUR| FRÉTTIR | 4
AUGLÝSINGADEILDIR FRÉTTABLAÐSINS– AUGLÝSINGASTJÓRI: Jón Laufdal jonl@frettabladid.is ALMENNAR SÍMI 512-5401: Guðmundur Steinsson gudmundur@365.is, Hjördís Zoëga hjordis@frettabladid.is, Hlynur Þór Steingrímsson hlynur@365.is, Laila Awad laila@365.is,
Sigríður Dagný Sigurbjörnsdóttir sigridurdagny@365.is, Örn Geirsson orn.geirsson@365.is FÓLK/LÍFIÐ/SÉRBLÖÐ SÍMI 512-5402: Atli Bergmann atli.bergmann@365.is, Bryndís Hauksdóttir bryndis@365.is, Ívar Örn Hansen ivarorn@365.is, Kolbeinn Kolbeinsson kolli@365.is, Sverrir Birgir Sverrisson sverrirbs@365.is
FÓLK OG SÉRBLÖÐ EFNI: Sólveig Gísladóttir solveig@365.is og Vera Einarsdóttir vera@365.is RAÐAUGLÝSINGAR /FASTEIGNIR SÍMI 512-5403: Hrannar Helgason hrannar@365.is, Viðar Ingi Pétursson vip@365.is ÞJÓNUSTUAUGLÝSINGAR SÍMI 512-5407: Arna Rut Kristinsdóttir arnarut@365.is, Sigrún Helga Guðmundsdóttir sigrunh@365.is
SVONA ERUM VIÐ
Ingibjörg Karlsdóttir
veðurfréttamaður
Veðurspá
Laugardagur
Strekkingur yst á V-fj örðum og með
SA-strönd, annars hægari.
BJART SUNNANLANDS næstu daga en úrkoma norðan og austan til, ýmist
snjókoma, slydda eða rigning. Það verður vindasamt norðvestanlands og með
suðausturströndinni en annars víða fremur hægur vindur.
1°
16
m/s
2°
12
m/s
3°
6
m/s
5°
10
m/s
Á morgun
Hvasst á NV-landi en hægari vindur
annars staðar.
Gildistími korta er um hádegi
2°
1°
3°
1°
0°
Alicante
Aþena
Basel
19°
15°
6°
Berlín
Billund
Frankfurt
12°
8°
10°
Friedrichshafen
Gautaborg
Kaupmannahöfn
8°
7°
7°
Las Palmas
London
Mallorca
21°
10°
16°
New York
Orlando
Ósló
-1°
17°
4°
París
San Francisco
Stokkhólmur
10°
15°
4°
4°
7
m/s
5°
9
m/s
3°
5
m/s
3°
8
m/s
1°
4
m/s
1°
9
m/s
-3°
7
m/s
4°
0°
5°
3°
1°
Gefum 8x10.000 kr.
af eldsneyti dagana
25-28. febrúar!
www.lodur.is - Sími 544 4540
Vertu vinur okkar á Facebook
og þú gætir unnið!
IÐNAÐUR Með samþykkt Eftirlits-
stofnunar EFTA (ESA) á ríkisaðstoð
vegna uppbyggingar iðnaðarsvæð-
is í landi Bakka við Húsavík hefur
öðru af tveimur skilyrðum þýskra
fjármálastofnana fyrir fjármögnun
kísilvers PCC verið uppfyllt. Sam-
þykki ESA fjárfestingarsamning
ríkisins og PCC vegna byggingar
og reksturs kísilversins, sem er
talið viðbúið, tryggir það fjármögn-
un verkefnisins, samkvæmt heim-
ildum Fréttablaðsins.
Frá því var greint í gær að ESA
hefði gefið ríkisaðstoð vegna upp-
byggingar á Húsavík grænt ljós;
meðgjöfin samrýmist EES-samn-
ingnum og gengur ekki í berhögg
við samkeppnissjónarmið.
Í hnotskurn snýst málið um 3,4
milljarða króna meðgjöf ríkisins.
Annars vegar vegna uppbygging-
ar innviða; hafnargerðar á Húsa-
vík, lóðarframkvæmda á Bakka og
vegtengingar á milli lóðar og hafn-
ar. Hins vegar það sem snýr beint
að kísilverinu sjálfu, í formi skatta-
ívilnana til þýska fyrirtækisins
sem metnar eru á 100–150 milljónir
króna á ári.
Ragnheiður Elín Árnadóttir iðn-
aðarráðherra undirritaði fyrir hönd
íslenska ríkisins fjárfestingarsamn-
ing við PCC vegna byggingar og
reksturs kísilversins 1. október síð-
astliðinn. Eftir samþykkt ESA í gær
verður fjárfestingarsamningurinn
tekinn fyrir með sama hætti og
verður niðurstöðu að vænta innan
skamms.
Eins og greint hefur verið frá
hefur fjármögnun PCC tafist og er
hún oft nefnd sem stærsta spurning-
armerkið við verkefnið í heild sinni.
Ástæða tafanna er að þýskar fjár-
málastofnanir hafa beðið eftir sam-
þykki ESA á ríkisaðstoðinni áður
en þeir losa um 200 milljóna evra
(36 milljarðar íslenskra króna) lán
til uppbyggingar fyrri áfanga kísil-
versins á Bakka.
Bergur Elís Ágústsson, bæjar-
stjóri Norðurþings, segir að með
þessari niðurstöðu ESA í gær hafi
verið tekið stórt skref fram á við,
enda sé úrskurðurinn fyrirvara-
laus. „Þetta er gríðarlega mikil-
vægt fyrir okkur. Það má segja
að við séum búin að ryðja öllum
stórum steinum úr götunni til að
hægt sé að hefja uppbyggingu, og
þá vonandi sem allra fyrst,“ segir
Bergur. „Þetta þýðir að innvið-
ir verða til staðar miðað við þær
áætlanir sem eru uppi varðandi
uppbyggingu kísilversins, og það
er stór áfangi.“
svavar@frettabladid.is
Samþykki ESA losar
lánsfé fyrir kísilver
Annað af tveimur skilyrðum þýskra banka fyrir fjármögnun PCC á kísilveri á
Bakka er uppfyllt. Eftirlitsstofnun EFTA gaf ríkisaðstoð vegna iðnaðaruppbygg-
ingar á Bakka grænt ljós í gær. Risaskref í átt til uppbyggingar, segir bæjarstjóri.
● Stefnt er að því að PCC hefji framleiðslu kísilmálms á Bakka á árinu 2016.
● Framleiðslugeta verksmiðjunnar er 33 þúsund tonn með möguleika á
stækkun upp í 66 þúsund tonn árlega.
● Gert er ráð fyrir að í fyrsta áfanga verði til 120 bein störf við verk-
smiðjuna en með stækkun bætist við 40 bein störf til viðbótar. Þá hefur
Byggðastofnun metið afleidd störf við fyrsta áfanga um 160 og eftir
stækkun um 210.
● Landsvirkjun skrifaði undir raforkusölusamning við PCC BakkiSilicon hf.,
íslenskt dótturfélag PCC SE, í lok júní 2012. Samkvæmt samningnum mun
Landsvirkjun afhenda 52 megavött vegna fyrri áfanga kísilversins.
➜ PCC stefnir að framleiðslu árið 2016
ALÞINGI Þingmennirnir Vigdís
Hauksdóttir og Guðlaugur Þór
Þórðarson telja nauðsynlegt að
skerpa eftirlitshlutverk fjárlaga-
nefndar gagnvart framkvæmda-
valdinu.
Í því skyni hafa þau lagt fram
frumvarp til laga um breytingu
á lögum um skipan opinberra
framkvæmda. Formaður fjárlaga-
nefndar eða sérstaklega tilnefnd-
ur fulltrúi hefur hingað til setið í
nefnd um opinberar framkvæmdir.
Þingmennirnir leggja hins vegar
til að ráðherra skipi fulltrúa í
nefndina í stað fjárlaganefndar - jme
Ráðherra skipi fulltrúa:
Á að styrkja
fjárlaganefnd
SVEITARSTJÓRNIR
Píratar í Kópa-
vogi ætla að
stofna félag um
mánaðamótin
og taka ákvörð-
un um hvort
þeir bjóða fram
til bæjarstjórn-
ar í kosningun-
um í vor.
Árni Þór Þor-
geirsson pírati segir í tilkynn-
ingu að ef af framboði verði þá
verði efst á stefnuskránni að
finna leiðir til að draga úr spill-
ingu og gefa Kópavogsbúum
tækifæri til að hafa áhrif á nær-
samfélag sitt. Þá vilja þeir bæta
íbúalýðræði og gera rekstur bæj-
arfélagsins opnari.
- jme
Nýtt félag í Kópavogi:
Píratar vilja
minni spillingu
VINNUMARKAÐUR Langflest-
ir þeirra atvinnuleitenda sem
nýttu sér starfsþjálfunarúrræði
á síðasta ári, eða 85 prósent,
voru enn í vinnu þremur mán-
uðum eftir að úrræðinu lauk.
Þetta kemur fram í skriflegu
svari félagsmálaráðherra við
fyrirspurn Guðlaugs Þórs Þórð-
arsonar um vinnumarkaðsúr-
ræði.
Alls komu 19.311 inn á
atvinnuleysisskrá á síðasta ári
og nýtti tæpur helmingur þeirra
sér eitthvert af þeim vinnu-
markaðsúrræðum sem í boði
eru. Þar af fór rúmur helmingur
í starfsþjálfun þar sem bætur
atvinnuleitanda eru greiddar út
til atvinnurekanda í allt að sex
mánaða starfsþjálfunartímabil.
- þj
Aðgerðir gegn atvinnuleysi:
Starfsþjálfunin
reynist best
41 trúfélag hefur frá árinu 1998 til ársins í ár verið
skráð hjá Hagstofu Íslands.
Þjóðkirkjan var fjölmennust árið
2013 með 245.184 innan sinna raða.
Trúfélagið Heimakirkja var fámenn-
ast með tíu manna söfnuð.
HÚSAVÍK
Hvalaskoð-
un tengja
menn
helst við
atvinnumál
á Húsavík.
Fátt stendur
í vegi iðnað-
aruppbygg-
ingar í sveit-
arfélaginu.
NORDICPHOTOS/
GETTYIMAGES
NORÐUR-ÍRLAND, AP Peter Robin-
son, fyrsti ráðherra í heimastjórn
Norður-Írlands, hótaði í gær að
segja af sér eftir að upp komst
um leynilegan samning breskra
stjórnvalda við flóttamenn úr
Írska lýðveldishernum (IRA).
Bresk stjórnvöld viðurkenna
nú að hafa veitt sakaruppgjöf 187
liðsmönnum IRA sem höfðu flúið
til Írlands. Þeir þurfa því ekki
að óttast að verða sóttir til saka
í Bretlandi fyrir glæpi sem þeir
kynnu að hafa framið. - gb
Leynisamningur við IRA:
Ráðherra hótar
að segja af sér
TYRKLAND, AP Forseti Tyrklands
staðfesti í gær umdeild lög sem
takmarka sjálfstæði dómsvaldsins
í landinu. Lögin eru almennt talin
liður í viðbrögðum Receps Tayyips
Erdogan forsætisráðherra við ásök-
unum um spillingu.
Fyrir nokkrum dögum var lekið
á netið upptökum sem sagðar eru
vera af samtali Erdogans við son
sinn. Þar gefur Erdogan syni sínum
fyrirmæli um að losa sig við kynst-
ur af peningaseðlum sem geymdir
voru í íbúðarhúsi nokkru.
Erdogan segir upptökurnar fals-
aðar og sakar stjórnarandstæðinga
um samsæri gegn sér.
Ríkisstjórn hans hefur hins vegar
lengi sætt margvíslegum ásökun-
um um spillingu og meðal annars
brugðist við með fjöldauppsögnum
í lögreglu og dómsvaldi.
Nýju lögin gefa innanríkisráðu-
neytinu aukin völd við skipan dóm-
ara og saksóknara í embætti.
Spillingarásakanirnar hafa orðið
til þess að fjórir ráðherrar Erdog-
ans sögðu af sér í vetur. - gb
Forsætisráðherra Tyrklands bregst við ásökunum um spillingu:
Erdogan herðir tök á dómurum
MÓTMÆLI Í ISTANBÚL Andstæðingar
Erdogans fjölmenntu út á götur borgar-
innar í gær. NORDICPHOTOS/AFP
VEÐUR Veðrið yfir vestan- og suð-
vestanverðu landinu í gær var
óvenju þurrt og sjálfvirkar veð-
urstöðvar mældu rakastig í lofti
lægra en það hefur áður mælst í
febrúarmánuði. Það átti bæði við
á veðurathugunarstöðvunum hjá
Veðurstofunni og á Reykjavíkur-
flugvelli.
Fram kemur á vefsíðu Trausta
Jónssonar veðurfræðings að raka-
stigið hafi lægst farið í 12 prósent
á Þingvöllum í gær. Hann segir þó
rétt að geta þess að nokkur óvissa
sé um nákvæmni rakamæla þegar
rakastigið sé svo lágt. - bj
Veðrið í febrúar slær met:
Loftið aldrei
verið þurrara
ÞURRKUR Á ÞINGVÖLLUM Rakastig
lofts yfir landinu fór lægst í 12 prósent
á Þingvöllum í gær. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
ÁRNI ÞÓR
ÞORGEIRSSON