Fréttablaðið - 27.02.2014, Síða 6
27. febrúar 2014 FIMMTUDAGUR| FRÉTTIR | 6
EFNAHAGSMÁL Horfur eru á umtals-
verðri aukningu umsvifa í bygg-
ingariðnaði á þessu ári. Bæði koma
þar til áhrif af uppbyggingu í ferða-
þjónustu og uppsöfnuð þörf fyrir
húsnæði með því að gengið hefur á
offramboðið á húsnæði eftir hrun.
Eins er íbúðaverð nú yfir kostnaðar-
verði nýbygginga.
„ Fjárfestingar
hafa reyndar
verið vaxandi
um nokkurn
tíma,“ segir Ing-
ólfur Bender,
forstöðumað-
ur Greiningar
Íslandsbanka. Í
fyrra hafi sam-
anburður milli
ára verið örlítið skakkur, þar sem á
árinu áður hafi töluverð kaup á skip-
um og flugvélum skekkt myndina.
„En undirliggjandi fjárfesting í hag-
kerfinu var engu að síður vaxandi
þá, þótt sá vöxtur hafi reyndar ekki
verið hraður, um það bil fjögur pró-
sent á milli ára.“
Spár Greiningar benda svo til
áframhaldandi vaxtar fjárfestingar.
„Við spáum um það bil níu pró-
senta vexti í ár sem er dágott. Og
í nýbirtri spá Seðlabankans er gert
ráð fyrir 5,4 prósenta heildarvexti
fjárfestingar. Þannig að eitthvað er
að gerast þarna.“
Ingólfur bendir þó um leið á að
fjárfestingarstig í hagkerfinu sé
enn þá afar lágt, bæði í sögulegu
samhengi og í samanburði við það
sem gerist í öðrum iðnríkjum og er
talið þurfa til að viðhalda hagvexti
til lengri tíma. Íbúðabyggingar séu
þó hluti þess sem farið hafi af stað
aftur í hagkerfinu.
„Íbúðaverð er almennt yfir
byggingarkostnaði og kaupmáttur
er vaxandi.“ Þá segir hann aðra
þætti líka hafa ýtt undir fjárfest-
ingu í íbúðum. „Það umframfram-
boð af nýbyggingum sem til varð
eftir hrunið er nú horfið að mestu.“
Þá séu verkefni á borð við hótel-
byggingar vegna aukinna umsvifa
í ferðaþjónustu víða um landið.
Ingólfur tekur undir að orðræða
um að „ekkert sé að gerast og allt
sé steindautt í framkvæmdum“ fari
líkast til hverfandi.
„Ef maður tekur stærri myndina
þá er þessi slaki sem hefur verið í
hagkerfinu frá hruni að hverfa á
næsta ári.“ Seðlabankinn spái meira
að segja smáþenslu á næsta ári og
enn meiri á árinu 2016.
„Við sjáum því lúxusvandamálin
aftur og menn þurfa að fara að
hækka hér stýrivexti og hafa afgang
í opinberum fjármálum. En fjárfest-
ingarstigið er samt enn þá lágt og
verið að fást við ýmis önnur vanda-
mál, sérstaklega tengd afnámi fjár-
magnshafta.“ olikr@frettabladid.is
Byggingariðnaður að vakna
Offramboð nýbygginga eftir hrun er horfið. Íbúðaverð er yfir byggingarkostnaði og kaupmáttur vaxandi. Slaki
sem verið hefur í hagkerfinu hverfur á næsta ári gangi spár eftir. Útlit fyrir þenslu á næsta ári og þarnæsta.
Innflutningur á steypustyrktarjárni
BYGGINGAR
RÍSA Hugað að
járnabinding-
um í nýbygg-
ingu í smíðum.
Umframfram-
boð nýbygg-
inga sem til
varð eftir hrun
er sagt horfið.
FRÉTTABLAÐIÐ/
DANÍEL
INGÓLFUR
BENDER
Innflutt magn af steypustyrktarjárni endurspeglar væntanlega
ágætlega umsvif í byggingariðnaði. Sjá má samdráttinn sem varð
í byrjun aldarinnar og svo áhrif hrunsins 2008. Heimild: Hagstofa Íslands.
1999
2000
2001
2002
2003
2004
2005
2006
2007
2008
2009
2010
2011
2012
2013
16.104
23.821
22.399
13.009
21.366
28.427
47.444
52.602
52.178
33.222
10.226
7.822
9.043
10.760
11.593
Tonn
1. Hversu mörg börn dvöldu í Kvenna-
athvarfi nu í fyrra?
2. Hversu margir svanir eru á skrif-
stofu forstjóra FME?
3. Hvar ætlar hljómsveitin Bang Gang
að spila í sjö borgum í mars?
SVÖR:
ÞRÓUNARSAMVINNA Þróunarsam-
vinnustofnun (ÞSSÍ) hefur enn ekki
tekið ákvörðun um framtíð þróun-
arsamvinnu við Úganda að sögn
framkvæmdastjóra stofnunarinnar.
Engilbert Guðmundsson, fram-
kvæmdastjóri ÞSSÍ, segir það vera
erfiða spurningu hvort og hvenær
blanda eigi saman mannréttindum
og þróunarsamvinnu. „Við hljótum
að leggja áherslu á mannréttindi,
en það er óraunhæft að ætla að
ástand mannréttinda sé svipað og
á Íslandi,“ segir Engilbert.
Norsk, dönsk og hollensk stjórn-
völd hafa ákveðið að hætta beinum
stuðningi við úgönsk stjórnvöld í
mótmælaskyni við lagasetningu
stjórnvalda, sem stefnt er gegn
samkynhneigðum. „Mér sýnist
að alla jafna hafi verið dregið úr
heildaraðstoð sem nemur um tíu
prósentum,“ segir Engilbert.
Lagt var til á Alþingi að íslensk
stjórnvöld stórykju fjárframlög
til samtaka samkynhneigðra í
Úganda án þess að dregið væri
úr heildarframlögum. „Við vitum
að það er takmarkað hvað félaga-
samtök geta tekið við af pening-
um og framkvæmt án þess að úr
verði vandi af öðru tagi,“ bendir
Engilbert á. Hann segir Ísland
vera í annarri stöðu en þau lönd
sem hafa dregið úr aðstoð. „Þessi
lönd styðja beint fjárlög landsins.
Við einbeitum okkur hins vegar
að stuðningi við héraðsstjórnir
og verkefni þeirra, á borð við
byggingu skóla og heilsugæslu,“
segir hann.
- eb
Nokkur ríki hætta beinum fjárstuðningi við stjórnvöld í Úganda og beina fjármagni annað:
„Hljótum að leggja áherslu á mannréttindi“
VELFERÐARMÁL Aðalfundur
Félags eldri borgara í Reykjavík
beinir því til heilbrigðisráðherra
að stofnað verði embætti umboðs-
manns aldraðra.
Hlutverk umboðsmanns verði
að standa vörð um áunnin rétt-
indi eldri borgara og tryggja
óháðan málflutning um mál er þá
varðar, segir í ályktuninni.
Einnig kemur fram að umönn-
un aldraðra sé í mörgu lík
umönnun barna, það þurfi mál-
svara og aðstandendur fyrir báða
hópa og með umboðsmanni megi
tryggja jafnræði í meðferð mála
óháð stöðu hins aldraða í fjöl-
skyldu eða félagsstarfi. -ebg
Félag eldri borgara ályktar:
Aldraðir vilja
umboðsmann
SUÐURNES Iðnaðar- og viðskipta-
ráðherra hefur heimilað Lands-
neti að framkvæma eignarnám í
níu jörðum á Suðurnesjum vegna
lagningar Suðurnesjalínu 2.
Eigendur að jörðunum níu eru
yfir 70.
Ráðuneytið telur að öll skilyrði
eignarnáms séu fyrir hendi, svo
sem að samningaleið hafi verið
reynd til þrautar og að almenn-
ingsþörf liggi að baki. Um bætur
vegna eignarnámsins fer sam-
kvæmt lögum og sker sérstök
matsnefnd úr ágreiningi. - jme
Fær heimild til eignarnáms:
Taka níu jarðir
fyrir Suðurlínu
1. 97. 2. Tveir. 3. Í Kína.
VEISTU SVARIÐ?
ELDRI BORGARAR Með umboðsmanni
vill Félag eldri borgara tryggja jafnræði í
meðferð mála óháð stöðu hins aldraða.
FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM
ÚGANDA Það reynist erfið spurning
hvort og hvenær mannréttindi og
þróunarsamvinna fara saman. MYND/AP.
Nýtt lyf sem verkar bæði gegn
nefstíflu og nefrennsli
Andaðu með nefinu
Nýtt!