Fréttablaðið


Fréttablaðið - 27.02.2014, Qupperneq 16

Fréttablaðið - 27.02.2014, Qupperneq 16
27. febrúar 2014 FIMMTUDAGUR| FRÉTTIR NEYTENDUR | 16 Grímubúningar fyrir börn kosta frá um eitt þúsund krónum og upp í tíu þúsund, samkvæmt athugun Fréttablaðsins á verði búninga í nokkrum verslunum. Ódýrustu vörurnar geta verið nokkurra ára gamlar en hægt er að kaupa nýjar á undir tvö þúsund krónum. Í flest- um tilvikum er ódýrara að kaupa búninga en leigja þá. Partýbúðin selur ódýrustu bún- ingana, samkvæmt athugun blaðs- ins, á 990 krónur. „Það eru eldri búningar sem eru búnir að vera hjá okkur í ein- hvern tíma og við bjóðum þá sem valmöguleika fyrir fólk,“ segir Jón Gunnar Bergs, eigandi verslunar- innar, og bætir því við að flestir búningarnir kosti frá 2.990 krón- um til 4.990. „Flestir búningarnir eru bara í einni stærð og miðast þá við þann aldurshóp sem þeir ættu að höfða til,“ segir Jón Gunnar. Einar Arnarsson, eigandi versl- unarinnar Hókus Pókus á Lauga- vegi, selur búninga frá um tvö þús- und krónum og upp í tíu þúsund. „Ég myndi segja að flestir bún- ingarnir séu að fara á bilinu tvö til sex þúsund og svo er oft auka- kostnaður ef fólk vill bæta við hár- kollum eða öðrum fylgihlutum. Vinsælasti búningurinn hjá stelp- um heitir Monster High og hjá strákunum er þetta voða blandað. Þeir vilja vera ninjur, Batman eða Súperman,“ segir Einar. Í Hagkaup er hægt að fá bún- inga frá 1.699 krónum til 4.990. „Monster High eru vinsælastir og svo eru Íþróttaálfurinn og Lati- bær alltaf vinsæl á meðal yngri krakkanna. En verðið hjá okkur hefur ekki hækkað milli ára,“ segir Gunnar Ingi Sigurðsson, framkvæmdastjóri Hagkaups. Þeir sem eru í grímubúninga- leit geta einnig haft samband við búningaleigur. Auður Þórisdóttir, kjólameistari og eigandi Saum- sprettunnar, leigir barnabúninga á átta þúsund krónur en endurgreið- ir viðskiptavinum fjögur þúsund þegar búningunum er skilað. „Flestir sem koma hingað eru að leita sér að búningum fyrir sér- stök tilefni eins og partí og afmæli en ekki fyrir öskudaginn enda kostar í rauninni meira að leigja grímubúninga en kaupa,“ segir Auður. - hag Ódýrustu búningarnir kosta um þúsundkall Hægt er að fá grímubúninga fyrir börn frá 990 krónum og upp í tíu þúsund. Ódýrustu vörurnar geta verið nokkurra ára gamlar. Nýir búningar geta kostað undir tvö þúsund krónum. Það er oftast ódýrara að kaupa búninga en leigja þá. SKRAUTLEGIR Það styttist í öskudaginn með tilheyrandi búningum, grímum og andlitsmálningu. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI Gunnar Sigurðarson stjórnsýslufræðingur segir að bestu kaupin sem hann hafi gert séu brúnsanseruð Gefjunarjakkaföt frá Rauða krossinum sem hann keypti um aldamótin. „Ég held þau hafi verið á 1.500 krónur, jakkaföt og vesti í stíl. Það er eins og ég hafi keypt mér handofin kasmírullarföt. Maður gæti rennt sér niður Esjuna á þessu,“ segir Gunnar og bætir við að hann noti þau einungis við hátíðleg tilefni. „Þessi jakkaföt eru rosamóðins í dag en þau voru alveg rosalega skrítin um aldamótin,“ segir hann. „Ég er svo furðulega hannaður af guði, ég er með langar lappir og stuttan búk, rosagrannur en samt „þ-aður“. Það hefur einhver gamall maður verið nákvæmlega eins og ég í vextinum því þau smullu á mig.“ Verstu kaupin eru að mati Gunnars „Ólsarablá“ snjóþota sem hann keypti handa stráknum sínum síðasta vetur. „Það var ein buna og þá brotnaði hún. Ég var ofan á með honum en ég er ekkert rosalega burðugur,“ segir hann. „Þarna fór einhver 2.500 kall í vaskinn. Ég ætlaði að gera góðan „díl“ en ég hefði alveg eins getað sleppt því að kaupa hana.“ - fb NEYTANDINN Gunnar Sigurðarson stjórnsýslufræðingur Brúnsanseruð Gefjunarföt Oft getur verið ódýrara að sauma grímubúninga en kaupa þá. Búningagerð hefur aukist á undanförnum árum að sögn Ólafar Bjarkar Björnsdóttur, eiganda vefn- aðarvöruverslunarinnar Twill. „Viðskiptavinir okkar hafa keypt mikið hjá okkur í hafmeyjubúninga, Turtles og alls konar og það er hægt að fá efni í búninga frá 890 krónum til 2.500,“ segir Ólöf. „Það er gaman að því hvað börn eru oft með sjálfstæðar og skemmtilegar hugmyndir sem gera það að verkum að foreldrarnir koma hingað og velja efni þegar búningarnir eru ekki til í búðunum.“ Fleiri sem sauma eigin búninga Um 150 manns hafa sótt átta snjallsímanámskeið Símans það sem af er ári. Þar af hafa 79 farið á námskeið þar sem kennt er á síma með Android-stýrikerfinu og 68 á námskeið fyrir notend- ur iPhone. Tæplega 440 manns mættu á 35 námskeið allt árið í fyrra. „Á námskeiðunum er farið yfir stýrikerfin og uppbyggingu sím- anna og svo er verið að svara spurningum,“ segir Gunnhildur Arna Gunnarsdóttir, upplýsinga- fulltrúi Símans. Android-námskeiðin hafa að hennar sögn hingað til verið langtum vinsælli. „Í fyrra komu 337 á Android- námskeið en hundrað á iPhone. Hins vegar hafa aðeins ellefu færri mætt á iPhone-námskeið- in en Android það sem af er ári,“ segir Gunnhildur og bætir því við að námskeiðin séu haldin í verslun fyrirtækisins í Ármúla. „Fólk á öllum aldri sækir nám- skeiðin. Flest er það frá fimm- tugu; fólk sem vill að sjálfsögðu vera sítengt og með puttann á púlsinum á því sem er að gerast.“ - hg Um 150 snjallsímaeigendur hafa sótt námskeið Símans það sem af er ári: Fleiri fara á snjallsímanámskeið SNJALLSÍMAR Snjallsímum fjölgaði um 50 prósent frá upphafi til loka árs 2013, samkvæmt tölum Símans. FRÉTTABLAÐIÐ/DANÍEL ÓLÖF BJÖRK BJÖRNSDÓTTIR Eigandi verslunarinnar Twill. MYND/ÚR EINKASAFNI Hinn 1. mars næstkomandi hækk- ar skilagjald drykkjarumbúða úr 14 krónum í 15 krónur á hverjar umbúðir. Þetta mun þýða einnar krónu hækkun á drykkjum í skila- kerfi, en Endurvinnslan bendir á í tilkynningu að þessi hækk- un sé tilkomin vegna skilagjalds sem fæst endurgreitt, ekki er um almenna hækkun að ræða frá framleiðendum og innflytjendum. Á árinu 2013 voru bestu skil á drykkjarumbúðum sem mælst hafa hér á landi eða um 90%. - fbj Hækkar úr 14 krónum í 15: Skilagjald hækkar í mars GUNNAR SIGURÐARSON Segir að jakkafötin hafi verið rosalega skrítin um aldamótin. Beðist er velvirðingar á þeim óþægindum sem þetta kann að valda. Athygli er vakin á að á skattur.is er boðið upp á sjálfsafgreiðslu og á rsk.is er hægt að nálgast ýmsar upplýsingar um skattamál. Lokað fyrir hádegi fimmtudaginn 27. febrúar á Laugavegi 166 Aðrar starfsstöðvar RSK eru lokaðar allan daginn Niðurföll og ofnar í baðherbergið EVIDRAIN Mikið úrval – margar stærðir COMPACT VERA 30cm 8.790,- Sími 412 2500 - sala@murbudin.is - www.murbudin.is Reykjavík Reykjanesbæ PROLINE 60 cm 23.990,- VITA handklæðaofn 50x80 cm kúptur, króm
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.