Fréttablaðið


Fréttablaðið - 27.02.2014, Qupperneq 18

Fréttablaðið - 27.02.2014, Qupperneq 18
27. febrúar 2014 FIMMTUDAGUR| FRÉTTIR VIÐSKIPTI | 18 VINNUMARKAÐUR Atvinnuleysi jókst um 1% Atvinnuleysi í janúar var 6,8 prósent samkvæmt Vinnumarkaðsrannsókn Hagstofunnar. Að jafnaði voru 181.700 manns á vinnumarkaði. 169.300 þeirra voru starfandi og 12.300 án vinnu og í atvinnuleit. Atvinnuþátttaka var 79,3 prósent og hlutfall starfandi 73,9 prósent. Hlutfall atvinnulausra jókst um eitt prósentustig á milli ára. - skó Hagnaður tryggingafélagsins TM nam 2.078 milljónum króna á síðasta ári sem er 560 milljónum krónum minni hagnaður en árið 2012 þegar hagnaðurinn nam 2.638 milljónum króna. Þá nam framlegð af vátryggingastarfsemi 547 millj- ónum króna. Hún var 890 milljónir árið 2012. Fjárfestingatekjur voru 2.094 milljónir króna sem er aðeins minna en árið 2012. Eigið fé TM var 12.308 milljónir króna í lok ársins 2013 og eiginfjárhlutfallið 40,3% borið saman við 37,3% undir lok árs 2012. Sigurður Viðarsson, forstjóri TM, segir í uppgjörstilkynningu að hagnaður fyrir skatta sé um 2% lægri en áætlanir gerðu ráð fyrir vegna tveggja stórra skipatjóna á fjórða ársfjórðungi ásamt annars. - fbj TM birtir ársuppgjör 2013: Minni hagnað- ur hjá TM Hagnaður N1 nam tæpum 638 milljónum króna árið 2013, sam- anborið við rúmlega 1.190 millj- ónir árið 2012 og er því um tals- verðan samdrátt að ræða milli ára. Tekjur voru 58.122 milljón- ir króna samanborið við 60.061 milljón árið 2012. Rekstrarhagn- aður fyrir afskriftir nam 1.783 milljónum en var 2.650 milljónir árið 2012. Bókfært verð eigna N1 um síðustu áramót nam 26.798 milljónum króna samanborið við 27.769 milljónir í árslok 2012. Lækkunina má aðallega rekja til minni birgða og lægri stöðu viðskiptakrafna, segir í uppgjöri N1. - fbj Ársreikningur N1 2013: Hagnaður N1 dregst saman SAMDRÁTTUR Hagnaður N1 í fyrra var minni en ári áður. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI Náttúruminjasafn Íslands segir í kjölfar fréttar Markaðarins í gær um dýrkeypta endurnýjun hús- búnaðar FME að ráðdeild fyrir- finnist í fjármálum ríkisstofnana. Safnið gerði kjarakaup í síðustu viku þegar það keypti notuð hús- gögn á uppboði á vegum Ríkis- kaupa. Um var að ræða íslenska fram- leiðslu og voru húsgögnin keypt af Sérstökum saksóknara og Ríkislögreglustjóra og kostuðu 265.000 krónur. Húsbúnaðurinn mun nýtast til að innrétta þrjár skrifstofur auk bókastofu. - fbj Keyptu notuð húsgögn: Ráðdeild Nátt- úruminjasafns Hagnaður Fjarskipta, móðurfélags Vodafone, eftir skatta á síðasta ári nam 847 milljónum króna. Hagnað- ur Vodafone er því 112% meiri en á árinu 2012, þegar hann var 400 milljónir. Hagnaður fjórða árs- fjórðungs nam 201 milljón. Ómar Svavarsson, forstjóri Vodafone, segir að afkoma ársins 2013 hafi í heild verið góð og í takt við útgefnar horfur. „Við höfðum gert ráð fyrir talsverðum sveifl- um milli ársfjórðunga og það varð raunin. Niðurstaða ársins er því vel ásættanleg. Framlegð hækk- aði um 4% frá fyrra ári, EBITDA hækkaði um 8% og hagnaður árs- ins hækkaði um 112%,“ segir Ómar í tilkynningu til Kauphall- arinnar. Eins og kunnugt er var brot- ist inn á heimasíðu félagsins í lok nóvember á síðasta ári. Ómar segir það hafa verið mikla ágjöf en gripið hafi verið til margvíslegra aðgerða sem allar miði að því að styrkja félagið og koma í veg fyrir að atburðir af því tagi endurtaki sig. „Við höfum einnig lagt okkur fram um að miðla af reynslunni, svo okkar reynsla nýtist samfé- laginu öllu á tímum alþjóðlegrar netvár. Við stöndum sterkari eftir tíðindamikið ár og hlökkum til að takast á við árið sem er fram undan með þá reynslu í fartesk- inu,“ segir Ómar enn fremur. Aðspurður um góða afkomu á síð- asta ársfjórðungi segir Ómar: „Við höfum til lengri tíma unnið að því að styrkja stoðirnar undir fyrirtækinu, auka jafnvægi milli tekjustrauma og gera fyrirtækið sterkara. Það hefur tekist ágætlega og fyrir vikið getur félagið tekist á við áföll með betri hætti en annars væri. Það held ég að skýri niðurstöðuna.“ Jóhann Viðar Ívarsson, sérfræð- ingur hjá IFS greiningu, segir að félagið geti verið ánægt með þetta uppgjör. „Þetta er ekki uppgjör sem kemur okkur mikið á óvart en tekj- urnar voru þó heldur meiri en við bjuggumst við og rekstrarkostn- aður einnig. Félagið hefur verið í kastljósinu af neikvæðum ástæðum undanfarið og hefðu verið mikil frá- vik frá spám þá hefðu menn verið hræddir við að þau yrðu frekar nei- kvæð í rekstrinum en urðu jákvæð. Uppgjörið er hins vegar gott,“ segir Jóhann í samtali við Fréttablað- ið. Hann segir þó rétt að nefna að þegar lekamálið kom upp voru ⅔ liðnir af fjórða ársfjórðungi þann- ig að óljóst sé hvort það muni hafa áhrif á reksturinn á þessu ári. fanney@frettabladid.is Hagnaður Vodafone tvöfaldast frá 2012 Fjarskipti birtu ársreikning sinn fyrir rekstrarárið 2013 í gær. Forstjórinn segir reksturinn hafa gengið mjög vel á síðasta ársfjórðungi og að allir mælikvarðar sýni góðan árangur. Fyrirtækið standi sterkara eftir tíðindamikið ár. INNBROTIÐ ÁGJÖF Ómar Svavarsson, forstjóri Vodafone, segir fyrirtækið vilja miðla af reynslu sinni á tímum alþjóðlegrar netvár. FRÉTTABLAÐIÐ/EGGERT Aðalfundur Tryggingamiðstöðvarinnar hf. verður haldinn fimmtudaginn 20. mars 2014 kl. 16.00 í sal H, 2. hæð, á Hótel Hilton Reykjavík Nordica, Suðurlandsbraut 2, Reykjavík. Á dagskrá fundarins verða eftirfarandi mál: 1. Skýrsla stjórnar um starfsemi félagsins á síðastliðnu starfsári. 2. Ársreikningur félagsins fyrir liðið starfsár ásamt skýrslu endurskoðenda lagður fram til staðfestingar. 3. Ákvörðun um ráðstöfun tekjuafgangs félagsins. 4. Ákvörðun um tillögu stjórnar um starfskjarastefnu félagsins. 5. Tillaga um breytingar á samþykktum félagsins, annars vegar um nýtt ákvæði í 9. gr. er lýtur að heimild stjórnar til kaupa á eigin hlutum og hins vegar um að felld verði út ákvæði í 13. gr. er varða lágmarksmætingu á hluthafafundi. 6. Ákvörðun um þóknun til stjórnar. 7. Kosning stjórnar félagsins. 8. Önnur mál löglega fram borin. Hluthafi getur látið umboðsmann sækja hluthafa- fundinn fyrir sína hönd. Umboðsmaður skal leggja fram skriflegt eða rafrænt umboð sem einnig skal vera dagsett. Ekki verður unnt að greiða atkvæði með rafrænum hætti á fundinum. Óski hluthafi að taka fyrirfram þátt í atkvæðagreiðslu skriflega og fá sendan atkvæðaseðil skal hann gera skriflega kröfu þar um til félagsins eigi síðar en fimm dögum fyrir fundinn. Að auki er unnt að greiða atkvæði á skrifstofu félagsins á venjulegum opnunartíma (kl. 8:30 til 16:30) til og með miðvikudeginum 19. mars 2014, en fyrir lokun skrifstofunnar þann dag skal einnig skila þangað sendum atkvæðaseðlum. Nánar fer um atkvæðagreiðsluna og gildi atkvæða samkvæmt henni eftir reglum félagsins um atkvæðagreiðslu utan hluthafafundar, settum af stjórn félagsins 18. desember 2013. Framboð til stjórnar skal tilkynna skriflega til félagsstjórnar skemmst fimm dögum fyrir hlut- hafafundinn. Tilkynning um framboð skal vera á sérstöku eyðublaði sem stjórn félagsins lætur í té og unnt er að nálgast á vefsíðu félagsins (www.tm.is/fjarfestar). Í tilkynningunni skal veita greinargóðar upplýsingar um þau atriði sem tilgreind eru á eyðublaðinu, sbr. 1. mgr. 16. gr. samþykkta félagsins. Unnt er að senda félags- stjórninni útfyllta og undirritaða framboðstilkynn- ingu fyrir lok framboðsfrests með tölvuskeyti á netfangið stjorn@tm.is. Dagskrá aðalfundarins og tillögur sem fyrir hann verða lagðar, svo og aðrar nauðsynlegar upplýsingar um fundinn má finna á vefsíðu félagsins (www.tm.is/fjarfestar). Að auki mun ársreikningur (samstæðureikningur) félagsins, skýrsla stjórnar, skýrsla endurskoðenda og tillaga stjórnar um starfskjarastefnu liggja frammi á skrifstofu og á vef félagsins hluthöfum til sýnis hálfum mánuði fyrir fundinn. Eigi síðar en tveimur dögum fyrir fund verða birtar á vefsíðu félagsins upplýsingar um framboð til stjórnar. Hluthafar og umboðsmenn geta skráð sig á fundinn á fundarstað hálfri klukkustund áður en hann hefst og fengið fundargögn afhent. Stjórn Tryggingamiðstöðvarinnar hf. Aðalfundur Tryggingamiðstöðvarinnar hf. 2014 Tryggingamiðstöðin . Síðumúla 24 . Sími 515 2000 . tm@tm.is . tm.is
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.