Fréttablaðið


Fréttablaðið - 27.02.2014, Qupperneq 22

Fréttablaðið - 27.02.2014, Qupperneq 22
27. febrúar 2014 FIMMTUDAGUR| SKOÐUN | 22 Það er fiðringur í magan- um og spenna í loftinu. Þau hafa ekki farið í áheyrnar- prufu áður. Þau eru líka bara níu ára. Þau halda öll að næsta haust fari þau að læra á hljóðfæri hjá sveit- inni. Þessi níu ára börn vita ekki að það eru yfirgnæf- andi líkur á að brátt fái þau fyrstu höfnunina. Síð- asta vor varð Skólahljóm- sveit Kópavogs að hafna 80% umsókna í hljómsveit- ina. Fjögur börn af hverjum fimm fá ekki tækifæri til að taka þátt í því frábæra starfi sem unnið er hjá hljómsveitinni. Skólahljómsveit Kópavogs var stofnuð árið 1966, en afmælisdag- urinn miðast við fyrstu tónleika sveitarinnar 22. febrúar 1967. Hún er eini tónlistarskólinn í Kópavogi sem er stofnaður af bænum og á forræði hans. Hljómsveitin er eitt flaggskipa Kópavogsbæjar, enda er hún þekkt fyrir að vera sérlega góð. Fyrir bæjarfélagið er hún því vörumerki, á sama hátt og íþrótta- félögin Breiðablik og HK og fim- leikafélagið Gerpla, sem mikil- vægt er að hlúa að. Skólahljómsveit Kópa- vogs kemur fram á um 90 viðburðum á ári, m.a. á mörgum viðburð- um hjá Kópavogsbæ. Hljómsveitin spilar í skrúðgöngu bæjarins 17. júní og á vorhátíðum og aðventu í leikskólum og grunnskólum bæjarins. Mikil vinna og skipu- lagning liggur í því að koma fram fyrir hönd bæjarins, enda hefur metnaður ávallt verið í fyrirrúmi þegar hljómsveitin kemur fram. Hljómsveitin er stolt af bænum sínum og skorast ekki undan því að spila fyrir hönd bæj- arins. Sigraði þrjú ár í röð Hljómsveitin hefur spilað í óperu- uppfærslum, fyrir Frostrósartón- leika og á tónlistarhátíðum eins og Tectonics enda veit tónlistar- fólk að hljómsveitin stendur undir merki sínu. Hljómsveitin náði þeim einstaka árangri síðastliðið vor að sigra í Nótunni þriðja árið í röð. B-sveitin sigraði í flokki samleiks í grunnnámi árið 2011, C-sveitin í flokki samleiks í mið- námi árið 2012 og A-sveitin sigr- aði í flokki nemenda í grunnnámi síðastliðið vor. Þessi árangur er ekki sjálfgefinn, því um 15.000 nemendur í um 90 tónlistarskól- um hafa þátttökurétt í Nótunni og þó nokkuð margir tónlistarskólar hafa aldrei náð að koma atriði í lokakeppnina. Það má því auð- veldlega jafna þessu við að hafa unnið Íslandsmeistaratitil þrjú ár í röð í sínum flokki. Skólahljómsveitin starfar í þröngu húsnæði í HK húsinu við Skálaheiði. Það húsnæði er ekki hannað til tónlistarkennslu og flutti hljómsveitin í það til bráða- birgða fyrir fjórtán árum. Öll aðstaða í húsinu er óviðunandi. Árið 2007 var búið að teikna góða aðstöðu fyrir skólann í Digra- nesskóla, sem stóð til að endur- nýja, en í kjölfar bankahrunsins var byggingin slegin út af borð- inu og Digranes- og Hjallaskóli sameinaðir í Álfhólsskóla. Eftir stendur skólahljómsveitin með óleystan húsnæðisvanda. Bæjar- yfirvöld hafa ákveðið að lagfæra húsnæðið við Skálaheiði og nýta rými sem áður tilheyrði HK undir hljómsveitina. Það er auðvitað þakkarvert að bæjaryfirvöld séu tilbúin til að stækka rými hljóm- sveitarinnar en það breytir því ekki að húsnæðið er ekki hann- að undir tónlistarkennslu. Það leysir því miður ekki vandann að bæta óhentugt rými með meira af óhentugu rými. Þessi ráðstöf- un getur því aðeins verið til mjög skamms tíma. Einstakt starf Það starf sem unnið er hjá skóla- hljómsveitinni er einstakt, enda sést það best á þeim árangri sem hljómsveitin hefur náð á þeim tíma sem Össur Geirsson hefur verið við stjórnvölinn. Hvernig væri að bæjarfulltrú- ar Kópavogsbæjar tækju málefni skólahljómsveitarinnar okkar í Kópavogi upp á sína arma og legðu sitt af mörkum til að skapa henni þá aðstöðu sem hún og stjórnandi hennar, Össur Geirsson, eiga skil- ið? Það eru aðeins þrjú ár þar til hljómsveitin heldur upp á hálfrar aldar afmæli sitt. Besta afmælis- gjöf bæjarins til hljómsveitarinn- ar og um leið til bæjarbúa væri að almennilegt framtíðarhús- næði fyrir hljómsveitina verði á teikniborðinu. Bæjaryfirvöld hafa gert vel í húsnæðismálum fyrir íþróttafélög bæjarins og Tónlist- arskóli Kópavogs (sem er þó ekki á forræði bæjarins) er einnig í góðu húsnæði en enn situr Skólahljóm- sveitin í óviðunandi húsnæði eftir tæplega 50 ára bið. Ég skora á bæjarfulltrúa og íbúa bæjarins að mæta á næstu tónleika hljómsveitarinnar þann 9. mars nk. í Háskólabíói. Þeir sem mæta á tónleika sveitarinn- ar verða fljótt áskynja mikilvægi þess að hlúa því góða vörumerki Kópavogsbæjar sem hljómsveit- in er. ➜ Það er auðvitað þakkar- vert að bæjaryfi rvöld séu tilbúin til að stækka rými hljómsveitarinnar en það breytir því ekki að hús- næðið er ekki hannað undir tónlistarkennslu. Það leysir því miður ekki vandann að bæta óhentugt rými með meira af óhentugu rými. Opið bréf til bæjarfulltrúa í Kópavogi Vorið 2011 lögðu 15 þingmenn VG fram á Alþingi á lyk t u n u m úrsögn Íslands úr Atlantshafs- bandalaginu, Nató. Ályktunin var studd marg- víslegum rökum þar sem sagði að Ísland gumaði af því að vera herlaust og friðsamt land og að það væri brýnt að Ísland sýndi í verki að það væri sjálfu sér sam- kvæmt, herlaust og andvígt hernað- arofbeldi. Undanfarin ár hefur íslenska ríkið verið í ferli sem miðar að því að Íslendingar verði þegnar í Evr- ópusambandinu svo vitnað sé orð- rétt í sáttmála sambandsins um stöðu íbúa þess. Það er samband sem byggt er á sáttmála um vígbúnað og hervæðingu. Þar starfar þing sem reyndar er valdaminna en nafnið gefur til kynna, en það hefur álykt- að með miklum meirihluta um stofn- un Evrópuhers. Þegnskapur í slíku sambandi gengur lengra í þá átt að flækja Íslendinga í hernaðarvél stórvelda en aðild íslenska ríkisins að Nató hefur nokkurn tímann gert. Ekki náðist að greiða atkvæði um ályktunina um úrsögn úr Nató svo segja má að þingmennirnir hafi ekki fengið fullt tækifæri til að sýna að hugur fylgdi máli. En nú er lag. Þing- menn VG fá nú kærkomið tækifæri til að sýna kjósendum sínum og þjóð- inni allri hvort þeir vilji stöðva ferli sem miðar að því að gera Íslendinga að þegnum í verðandi herveldi gömlu evrópsku nýlenduveldanna. Varla láta þeir það sér úr greipum ganga. Tækifæri VG UTANRÍKISMÁL Haraldur Ólafsson veðurfræðingur Fyrir nokkrum árum átti ég áhugavert samtal við gamlan menntaskólakenn- ara. Hann var skólamaður af lífi og sál eins og lang- flestir í hans stétt, mjög metnaðarfullur, kröfuharð- ur en sanngjarn og bar vel- ferð nemenda sinna mjög fyrir brjósti, enda elskað- ur og dáður af þeim. Hann sagðist allmörg- um árum áður hafa hitt þingmann úr kjördæminu sem hann hefði verið ágætlega mál- kunnugur. Eftir að þeir höfðu rætt stundarkorn saman um veður, afla- brögð og heyskap barst talið að því hversu mikill munur væri á launa- kjörum menntaskólakennara og alþingismanna. Þingmaðurinn bar sig aumlega, sagði að þing- fararkaupið væri varla mönnum bjóðandi, nú yrðu þeir bara að fara gera eitt- hvað í málinu, krefjast þess að þingfararkaupið yrði að minnsta kosti sambærilegt við laun menntaskólakenn- ara. Þingmaðurinn viður- kenndi að vissulega væru þetta miklar kröfur svona í einum rykk, en að kannski mætti stefna að því að ná að uppylla þær í áföngum. Breyta þarf gildismatinu Ég er vitaskuld ekki að rifja þetta upp til að gera lítið úr störfum alþingismanna, síður en svo, lýð- ræðislega kjörnir fulltrúar okkar á Alþingi eiga að sjálfsögðu að fá mjög sanngjörn laun fyrir sín þjóð- þrifastörf. Þingfararkaup er nú um 630 þúsund krónur á mánuði, en meðallaun framhaldsskólakennara eru um 380 þúsund krónur. Frá því áðurnefndur menntaskólakennari átti samtalið við þingmanninn góða hefur þetta því snúist við, og það raunar fyrir nokkuð löngu. Þetta litla en áhugaverða dæmi sýnir glögglega hvernig gildismatið í samfélagi okkar hefur breyst. Það að uppfræða og annast unga fólkið okkar þykir ekki lengur eins dýr- mætt og að setja lög, stjórna fyrir- tæki, spá í hagfræðispil, sýsla með excel-töflur eða telja baunir. Þetta er öfugþróun sem verð- ur að stöðva. Ef við viljum halda áfram að þróa og efla nútímalegt þekkingarþjóðfélag og nýsköpun hérlendis, vera auðug og farsæl þjóð meðal þjóða, verðum við að breyta þessu gildismati og virkja betur mikilvægustu og áhugaverð- ustu auðlindina sem við eigum, heilasellurnar, gráa undraefnið sem við erum öll með í hausnum. Skólafólk á öllum stigum mennta- kerfisins, þar á meðal framhalds- skólakennarar, er lykilfólk í íslensku samfélagi og ber megin- ábyrgðina á því að við búum áfram í velferðarsamfélagi á komandi árum. Þess vegna ætti að hækka laun þeirra til jafns við þingfar- arkaup. Vissulega eru það miklar og kannski ekki raunhæfar kröf- ur svona í einum rykk, en kannski mætti stefna að því uppfylla þær í vel afmörkuðum áföngum, svoköll- uðum framfaraskrefum. ➜ Þetta er öfugþróun sem verður að stöðva. Ef við viljum halda áfram að þróa og efl a nútímalegt þekk- ingarþjóðfélag og nýsköpun hérlendis, vera auðug og farsæl þjóð meðal þjóða, verðum við að breyta þessu gildismati og virkja betur mikilvægustu og áhugaverð- ustu auðlindina sem við eigum, heilasellurnar, gráa undraefnið sem við erum öll með í hausnum. Skólafólk er lykilfólk KJARAMÁL Friðrik Rafnsson þýðandi og stjórnarmaður í Bjartri framtíð MENNING Sigrún Hallgrímsdóttir foreldri í Kópavogi og í stjórn foreldrafélags SK
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.