Fréttablaðið - 27.02.2014, Side 30
FÓLK|TÍSKA
Ekki þó endilega samstæðar dragtir þótt í sumum tilfell-um sé svo. Jakkarnir eru
stílhreinir úr vönduðum efnum,
buxurnar víðar og stuttar. Þær
eru andstæða við þröngu legg-
ings-buxurnar sem hafa ver-
ið vinsælar undanfarin ár.
Litir eru flestir dökkir
og vetrarlegir; svart, grátt
og dökkbrúnt. Tískusér-
fræðingar eru sammála
um að viss elegans og
klassík sé yfir þess-
ari nýju línu Armani.
Dragtir sem fara flest-
um konum vel.
Grófir uppreim-
aðir skór voru fyrir-
ferðarmiklir á þess-
ari sýningu, skór sem
stundum hafa verið
kallaðir hermanna-
klossar. Inni á milli
voru fallegir skór með
háum hælum.
Hinn ítalski Giorgio
Armani er einn virtasti og
auðugasti tískuhönnuður í
heimi og áhrifa hans gætir
um víða veröld. Armani-
fatnaður staðfestir góðan
efnahag og smekk þess sem
gengur í honum. Gorgio Ar-
mani verður áttræður í sum-
ar en hann er enn með putt-
ana í víðtækri starfsemi sinni.
Ekki er ólíklegt að einhver
Hollywood-stjarnan klæðist
fatnaði frá honum á Óskarsverð-
launahátíðinni á sunnu-
dag.
ARMANI FYRIR KONUR Á FRAMABRAUT
TÍSKA Á sýningu Armani fyrir haust/vetur 2014 gat að líta áherslur á það sem tískukóngurinn er þekktastur fyrir, það er herra-
jakkaföt. Það eru hins vegar konurnar sem hann klæðir í jakka og buxur að þessu sinni. Klæðnaður fyrir konur á framabraut.
BUXUR OG
JAKKI
Það nýjasta hjá
Armani. Takið
eftir sniðinu á
buxunum, þær
eru stuttar og
víðar.
Sarah Jessica Parker hefur oft þótt leiðandi í tísku-heiminum, ekki bara sem
leikkona í þáttunum Sex and the
City, heldur einnig í sínu einka-
lífi. Sarah Jessica hefur lengi haft
það til siðs að bretta upp á galla-
buxurnar sínar og margir hafa
hermt það eftir henni. Lindsey
Lohan er til dæmis ein þeirra auk
margra fleiri. Í sumar verða upp-
brettar gallabuxur mikið í tísku,
hvort sem brotið er mikið eða lít-
ið. Það má líka rúlla skálmunum
upp ef konum líkar það betur.
Ruthie Friedlander, ritstjóri
vefrits tískublaðsins Elle, segist
til dæmis loksins hafa fundið
gallabuxur sem hún hafi lengi
leitað að. Það eru gallabuxur frá
Gap með háu uppbroti.
GALLABUXURNAR
MEÐ UPPÁBROTI
ALLTAF Í TÍSKU Sarah Jessica Parker
brettir yfirleitt upp á gallabuxurnar sínar.
Þessi mynd var tekin í New York fyrir
nokkrum dögum.
GAP Vefritstjóri Elle segist hafa fundið bux-
urnar sem hún hafi lengi leitað að í Gap.
GALLABUXUR Brotin eru hátt uppi eða
lægri eftir smekk.
Sverrir Birgir Sverrisson
Sími 512 5432
sverrirb@365.is
Kolbeinn Kolbeinsson
Sími 512 5447
kolli@365.is
NÁNARI UPPLÝSINGAR
Sérblaðið Fermingar kemur út Fimmtudaginn 13.mars
FERMINGAR