Fréttablaðið - 27.02.2014, Blaðsíða 56

Fréttablaðið - 27.02.2014, Blaðsíða 56
27. febrúar 2014 FIMMTUDAGUR| LÍFIÐ | 44 BAKÞANKAR Bergs Ebba Benediktssonar Börn eru fórnarlömb, einstæðir feður eru fórnarlömb, neytendur eru fórnarlömb, sjúklingar eru fórnarlömb, listamenn eru fórnarlömb, samkyn- hneigðir eru fórnarlömb, útgerðarmenn eru fórnarlömb, lántakendur eru fórnar- lömb, fósturforeldrar eru fórnarlömb, konur eru fórnarlömb, gagnrýnendur eru fórnarlömb, hælisleitendur eru fórnarlömb, bændur eru fórnarlömb, börn eru fórnarlömb, börn eru fórnar- lömb, börn eru fórnarlömb, börn eru fórnarlömb, börn eru fórnarlömb. TIL umfjöllunar eru fórnarlömb dómskerfisins, fórnarlömb læknamistaka, fórnarlömb pýramída svika, fórnarlömb kynferðisbrota, fórnarlömb menntakerfisins, fórnarlömb klámvæðingar, fórnarlömb alþjóðavæðingar, fórnarlömb þöggunar, fórnarlömb kirkj- unnar, fórnarlömb vaxta- stefnunnar, fórnarlömb man- sals, fórnarlömb ofbeldis, fórnarlömb ofbeldis, fórnar- lömb ofbeldis, fórnarlömb ofbeldis, fórnarlömb eineltis. EN hver kemur fyrir leitið, akandi löt- urhægt á gljáfægðum kagga, til móts við rísandi sól með rúðuna dregna niður? Er þetta lítið lamb sem rúntar um hverfi borgarinnar, með Sjostako- vítsj í græjunum og svalafernu í hægri klaufinni? Lambið virðir fyrir sér vígvöllinn, valkestina, örvæntinguna. Það rýkur úr rústunum og fórnarlömb- in engjast um í sárum; sárþjáð andlit þeirra speglast á sólgleraugum lambs- ins sem fær sér svalasopa og jarmar hlutlausu jarmi. Í heimi fórnarlamba tók þetta lamb að sér að vera sigurvegari. Það fékk ekki margt upp í hendurnar, þótti aldrei neitt afburðalamb. Í raun má segja að það hafi lent í því að verða sigurveg- ari og hefur liðið fyrir það. Það reyndi eitt sinn að kveikja í sér en ull þess er steinull. Og því spyr ég ykkur: Er þetta lamb ekki bara fórnarlamb eins og allir aðrir? Litla lambið Viktor Stjörnuparið Katy Perry og John Mayer hafa bundið enda á 18 mán- aða samband sitt samkvæmt heim- ildum E! fréttastofunnar. Perry sást með demantshring á fingri í byrjun mánaðarins, sem blés lífi í þær sögusagnir að parið hefði trúlofað sig. En nú berast hins vegar fréttir af skilnaði í staðinn. Ekki er vitað um ástæðu sam- bandsslitanna enn, en hvorki Perry né Mayer hafa staðfest fréttirnar. Söngfuglarnir rugluðu saman reitum sínum sumarið 2012 eftir að Perry skildi við Russell Brand. Þau hættu saman í stuttan tíma í mars í fyrra en voru fljót að sætt- ast aftur þá. - áp Hætt saman ÁSTIN DÓ Katy og John eru hætt saman enn á ný. VIDEODROME SJÁ FLEIRI SÝNINGAR Á WWW.BIOPARADÍS.IS - Miðasala: 412 7711 - Hverfisgata 54 - bioparadis.is - Hluti af Europa Cinemas RIDE ALONG RIDE ALONG LÚXUS LEGO ÍSL. TA L 2D LEGO ÍSL. TA L 3D ROBOCOP HER SKÝJAÐ MEÐ KJÖTBOLLUM ...2 2D SECRET LIFE OF WALTER MITTY THE HOBBIT 3D 48R NEBRASKA (ÓTEXTUÐ) RIDE ALONG NYMPHOMANIAC PART 1 ROBOCOP INSIDE LLEWYN DAVIS AUGUST: OSAGE COUNTY THE BOOK THIEF KL. 3.30 - 5.45 - 8 - 10.15 KL. 3.30 - 5.45 - 8 - 10.15 KL. 3.30 - 5.45 KL. 3.30 KL. 5.30 - 8 - 10.35 KL. 10.30 KL. 3.30 KL. 8 KL. 8 Miðasala á: og KL. 5.30 - 8 - 10.30 KL. 8 - 10.15 KL. 8 - 10.30 KL. 8 - 10.30 KL. 5.40 KL. 5.30 KL. 5.25 NÁNAR Á MIÐI.IS RIDE ALONG NYMPHOMANIAC PART 1 ROBOCOP KL. 6 - 8 - 10 KL. 10 KL. 6 - 8 ÁLFABAKKA AKUREYRI EGILSHÖLL KRINGLUNNI KEFLAVÍK HOLLYWOOD REPORTER GDÓ - MBL AFTENBLADET EXPRESSEN RIDE ALONG 6, 8, 10:10 ROBOCOP 8, 10:25 LEGO - ÍSL TAL 3D 5:50 DALLAS BUYERS CLUB 5:45, 8, 10:25 T.V. - Bíóvefurinn.is Ábendingahnappinn má finna á www.barnaheill.is „Við leggjum allt í þetta og þetta kostar um þrjár milljónir,“ segir Tómas Guðjónsson, formaður Nem- endafélagsins NFL, í framhalds- skólanum á Laugum, en söngva- keppni skólans, Tónkvísl, fer fram um helgina og er ein mikil- fenglegasta söngvakeppni lands- ins. Þó svo að einungis séu um 120 nemendur í skólanum sækja að jafnaði um sex hundruð manns söngvakeppnina sem haldin er í íþróttahúsinu. „Við breytum íþróttahúsinu í tónleikahöll og það kemur fólk alls staðar að,“ bætir Tómas við. Það eru ekki eingöngu fram- haldsskólanemar sem etja kappi í söng því grunnskólarnir í kring taka einnig þátt. „Þetta eru í raun tvær keppnir. Tólf keppendur í framhaldsskólakeppninni og tólf keppendur úr grunnskólunum.“ Keppendurnir í grunnskólakeppn- inni eru úr Vopnafjarðarskóla, Borgarhólsskóla, Þingeyjarskóla, Reykjahlíðarskóla og grunnskólan- um á Þórshöfn og eru þeir allir í grennd við skólann. „Grunnskólinn á Þórshöfn er lengst frá okkur eða í um tveggja klukkustunda akst- ursfjarlægð.“ Tónkvísl er einn stærsti við- burðurinn sem fer fram í sveitinni en fyrir þá sem ekki vita er fram- haldskólinn staðsettur á Norður- landi, á milli Akureyrar og Húsa- víkur. „Viðburðurinn er mjög vel sóttur og er einn mesti menningar- viðburðurinn í Þingeyjarsýslunni.“ Umfang keppninnar er mikið, en eins og sagt er frá hér að framan er íþróttahúsinu breytt í tónleika- höll og er keppnin tekin upp á átta myndavélar og gefin út á DVD- disk. „Þetta er að jafnaði jólagjöf- in í ár í Þingeyjarsýslunni.“ Miðað við höfðatölu eru nemend- ur skólans mjög söngelskir og eru atriðin mjög fjölbreytt. „Við höfum getið af okkur Mugisona og Birg- ittur Haukdal,“ segir Tómas um hæfileikasöguna. Húshljómsveit- in er skipuð nemendum í skólan- um sem hefur æft af kappi síðan í október. „Meðlimir sveitarinnar koma alls staðar að af landinu en yngsti meðlimurinn er sextán ára gamall og leikur á bassa. Við gerum ráð fyrir yfir sex hundruð manns en keppnin hefst klukkan 19.30.“ Til gamans má geta að skólinn hefur aldrei unnið lokakeppnina. „Við erum samt mjög bjartsýn í ár.“ Daníel Smári Magnússon vann keppnina í fyrra með laginu More Than A Feeling með hljómsveitinni Boston. gunnarleo@frettabladid.is „Þetta er eins og Eurovision- keppni Norðurlandsins“ Söngkeppni framhaldsskólans á Laugum, Tónkvísl, fer fram um helgina. Mikið er lagt í viðburðinn sem er einkar vel sóttur. Um er að ræða einn stærsta menningarviðburð sem fram fer í Þingeyjarsýslu á ári hverju. ● Tónkvísl kostar um þrjár milljónir ● Um sex hundruð manns sækja keppnina árlega ● Keppnin skiptist í framhaldsskólakeppni og grunnskólakeppni ● Tólf atriði keppa í hvorri keppni ● Keppnirnar eru teknar upp á átta mynda- vélar og gefnar út á DVD-disk TÓNLEIKAHÖLLIN Íþróttahúsinu eru breytt í tónleikahöll en keppnin kostar um þrjár milljónir króna. MYND/EINKASAFN ALLT LAGT Í KEPPNINA Söngvakeppni framhaldsskólans á Laugum, Tónkvísl, fer fram á laugardagskvöld. MYND/EINKASAFN TÓMAS GUÐJÓNSSON TÓNKVÍSL Í HNOTSKURN
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.