Fréttablaðið - 27.02.2014, Síða 58
27. febrúar 2014 FIMMTUDAGUR| SPORT | 46
Stjarnan er með
besta leikmannahópinn í
deildinni.
Jón Gunnlaugur Viggósson,
þjálfari ÍBV
Snæfell fékk deildarmeistarabikarinn
KÖRFUBOLTI Það var sannkölluð sigur-
hátið í Stykkishólmi í gær þegar kvenna-
lið félagsins í körfubolta fékk afhentan
bikarinn fyrir sigur í deidlinni.
Þetta er í fyrsta skipti sem Snæfell
vinnur þennan titil en liðið hefur haft
mikla yfirburði í deildinni og er með tíu
stiga forskot á Hauka.
Snæfellskonur ollu sínu fólki engum
vonbrigðum í gær með því að leika á
alls oddi og vinna sannfærandi sigur á
Njarðvík. - hbg
visir.is
Frekari umfjöllun
um leikinn
DOMINOS KVENNA
SNÆFELL - NJARÐVÍK 87-60
Snæfell: Chynna Unique Brown 27, Hildur
Kjartansdóttir 20/14 frák. Hildur Sigurðar-
dóttir 11/12 frák./9 stoðs., Guðrún Gróa
Þorsteinsdóttir 9, Eva Kristjánsdóttir 7, Alda
Leif Jónsdóttir 5, Helga Björgvinsdóttir 5, Silja
Davíðsdóttir 2, Edda Bára Árnadóttir 1.
Njarðvík: Nikitta Gartrell 29, Emelía Ósk Grét-
arsdóttir 6, Andrea Björt Ólafsdóttir 5, Aníta
Kristmundsdóttir 5, Ína María Einarsdóttir 4,
Salbjörg Sævarsdóttir 4, Guðlaug Júlíusdóttir
4, Heiða B. Valdimarsdóttir 3.
KEFLAVÍK - HAMAR 84-88
Keflavík: Bryndís Guðmundsdóttir 32/10 frák.,
Diamber Johnson 20, Sara Rún Hinriksdóttir
19/10 fráköst/6 stolnir, Bríet Sif Hinriksdóttir
5, Sandra Lind Þrastardóttir 4/10 fráköst,
Telma Lind Ásgeirsdóttir 4.
Hamar: Chelsie Alexa Schweers 54/13 frák.,
Marín Laufey Davíðsdóttir 12, Íris Ásgeirs-
dóttir 11, Fanney Lind Guðmundsdóttir 9/13
fráköst, Regína Ösp Guðmundsdóttir 2.
GRINDAVÍK - VALUR 79-76
Grindavík: Crystal Smith 33/7 stolnir, María
Ben Erlingsdóttir 20/14 fráköst, Pálína Gunn-
laugsdóttir 11/6 fráköst, Jeanne Lois Figeroa
Sicat 8, Ingibjörg Jakobsdóttir 4, Jóhanna Rún
Styrmisdóttir 2, Harpa Rakel Hallgrímsdóttir
1/7 fráköst, .
Valur: Anna Alys Martin 39/8 stolnir, Unnur
Lára Ásgeirsdóttir 8, Þórunn Bjarnadóttir 6,
Guðbjörg Sverrisdóttir 6, Hallveig Jónsdóttir
5, Ragna Margrét Brynjarsdóttir 4, Sara Diljá
Sigurðardóttir 3, Rut Herner Konráðsdóttir 2,
Ragnheiður Benónísdóttir 2/9 fráköst
HAUKAR - KR 74-91
Haukar: Lele Hardy 24/11 fráköst, Margrét
Rósa Hálfdanardóttir 11, Auður Íris Ólafsdóttir
10, Lovísa Björt Henningsdóttir 10, Gunn-
hildur Gunnarsdóttir 8, Dagbjört Samúels-
dóttir 5, Jóhanna Björk Sveinsdóttir 4.
KR: Sigrún Sjöfn Ámundadóttir 39, Ebone
Henry 23, Björg Guðrún Einarsdóttir 7,
Bergþóra Holton Tómasdóttir 7, Sara Mjöll
Magnúsdóttir 7, Helga Einarsdóttir 6.
MEISTARADEILDIN
GALATASARAY - CHELSEA 1-1
0-1 Fernando Torres (9.), 1-1 Aurelien Chedjou
(63.).
SCHALKE - REAL MADRID 1-6
0-1 Karim Benzema (13.), 0-2 Gareth Bale
(21.), 0-3 Cristiano Ronaldo (52.), 0-4 Karim
Benzema (57.), 0-5 Gareth Bale (69.), 0-6 Cris-
tiano Ronaldo (88.), 1-6 Klaas-Jan Huntelaar
(90.+1).
FÓTBOLTI Rússneskir fjölmiðlar
fullyrða að rússneska úrvals-
deildarfélagið Rubin Kazan hafi
áhuga á að fá landsliðsmanninn
Alfreð Finnbogason.
Þetta kemur fram á rsport.ru
en í frétt vefmiðilsins segir að
þó nokkur bresk félög hafi lengi
haft augastað á sóknarmanninum
öfluga.
Alfreð er sagður kosta
tíu milljónir evra, um
einn og hálfan milljarð
króna, en að Rubin geti
boðið betri kjör en
hann fengi í Bret-
landi.
Rubin seldi
sóknarmanninn
Jose Salomon
Rondon til Zenit
St. Pétursborgar
í lok janúar og
er félagið því að
leita að leikmanni
til að fylla skarð
hans.
Félagaskipta-
glugginn er lokaður
víðast hvar í Evrópu
en í Rússlandi er
hann opinn til föstu-
dags. - esá
Rubin spennt
fyrir Alfreð
SPORT
HANDBOLTI Undanúrslitin í Coca-
Cola-bikarkeppni kvenna fara
fram í Laugardalshöllinni í kvöld.
Tvö efstu lið Olísdeildar kvenna,
Stjarnan og Valur, ættu sam-
kvæmt „bókinni“ að eiga greiða
leið í úrslitin en fleiri óvænt úrslit
hafa verið á tímabilinu í vetur en
oft áður í efstu deild kvenna und-
anfarin ár.
Topplið Stjörnunnar hefur leik
gegn Gróttu klukkan 17.15 í dag en
í síðari leiknum eigast við ríkjandi
bikarmeistarar Vals og Haukar. Sá
leikur hefst klukkan 20.00.
„Stjarnan og Valur eru tvö bestu
lið landsins í dag og því auðvitað
líklegast að þau mætist í úrslita-
leiknum á laugardag. Bæði þessi
lið hafa hins vegar sýnt í vetur að
þau geta líka verið brothætt,“ segir
Jón Gunnlaugur Viggósson, þjálf-
ari ÍBV, en Fréttablaðið fékk hann
til að gefa álit sitt á leikjunum.
Jón Gunnlaugur bendir á að
stutt sé síðan Haukar unnu óvænt-
an en góðan sigur á Val á útivelli
og því sé allt opið fyrir leik liðanna
í kvöld.
„Valur hefur tapað þremur leikj-
um í vetur – naumlega fyrir Gróttu
og ÍBV en sigur Hauka var hins
vegar nokkuð sannfærandi. Ég
held því að Hafnfirðingar muni
mæta til leiks í kvöld með sjálfs-
traustið í botni,“ segir Jón Gunn-
laugur.
Skytturnar þurfa að vera heitar
Þess ber þó að geta að Valur vann
sannfærandi sigur á Stjörnunni,
29-21, um helgina en fyrr í mán-
uðinum misstigu Garðbæingar sig
óvænt með því að gera jafntefli við
HK, sem situr í áttunda sæti Olís-
deildarinnar.
En þrátt fyrir að Grótta hafi náð
ágætum úrslitum í sínum leikjum
að undanförnu telur Jón Gunnlaug-
ur að róður liðsins gegn Stjörnunni
í dag verði þungur.
„Stjarnan er með besta leik-
mannahópinn í deildinni og marga
þaulreynda leikmenn sem þekkja
svona stórleiki mjög vel,“ segir
hann og bendir á Florentinu Stan-
ciu, Hönnu G. Stefánsdóttur, Jónu
M. Ragnarsdóttur og Sólveigu
Láru Kjærnested í því sambandi.
Jón Gunnlaugur segir að eins
og alltaf muni vörn og markvarsla
skipta sköpum í leikjum kvöldsins
en það verði sérstaklega mikil-
vægt í tilfelli Stjörnunnar.
„Anett Köbli og Laufey Ásta
Guðmundsdóttir [skyttur Gróttu]
þurfa að eiga stórleik og geta sett
hann að utan gegn þessari sterku
6-0 vörn Stjörnunnar og Florent-
inu í markinu. Unnur [Ómarsdótt-
ir] mun fá sín hraðaupphlaups-
mörk í leiknum en ef skotin að utan
ganga illa verður þetta mjög erfitt
fyrir Gróttu,“ bætir hann við.
Haukar með besta leikmanninn
Marija Getroit verður í lykilhlut-
verki hjá Haukum gegn bikar-
meisturum Vals í kvöld. Hún var
valin besta skytta deildarinnar
í úttekt sem Fréttablaðið gerði
meðal þjálfara liða í deildinni en
hún skoraði samtals 23 mörk í
tveimur deildarleikjum Hauka og
Vals í vetur.
„Hún er einn besti alhliðaleik-
maður deildarinnar því hún er líka
góður varnarmaður. Ég tel að hún
sé besti leikmaðurinn af þeim sem
spila í bikarnum um helgina og ef
hún nær sér ekki á strik í kvöld
verður þetta erfitt fyrir Hauka,“
segir Jón Gunnlaugur.
Hann segir að Gedroit sé dug-
leg að búa til færi fyrir samherja
sína og að Karen Helga Sigurjóns-
dóttir og Viktoría Valdimarsdóttir
hafi notið góðs af því. „Þá má ekki
gleyma því að Áróra [Eir Páls-
dóttir] hefur vaxið mikið á línunni
í vetur.“
Valskonur hafa náð frábærum
árangri síðustu ár en Jón Gunn-
laugur segir að þær verði að passa
sig í kvöld þótt þær séu sigur-
stranglegri aðilinn.
„Það hefur verið meira álag á
leikmönnum Vals – þær eru eldri
og mikilvægir leikmenn hafa verið
að glíma við meiðsli. Ég tel því lík-
legra að það verði meiri spenna í
síðari leik kvöldsins en reikna þó
með því að það verði þrátt fyrir
allt Valur og Stjarnan sem mætist
í úrslitunum.“
Undanúrslitin í karlaflokki fara
fram á morgun en báðir úrslita-
leikirnir á laugardaginn.
eirikur@frettabladid.is
Bestu liðin eru líka brothætt
Tveir spennandi leikir eru á dagskrá undanúrslita Coca-Cola-bikarkeppni kvenna í kvöld. Jón Gunnlaugur
Viggósson, þjálfari ÍBV, reiknar með að Stjarnan og Valur mætist í úrslitum en það sé ekki sjálfgefi ð.
BESTA SKYTTA DEILDARINNAR Þjálfarar í Olísdeild kvenna völdu Haukastúlkuna Mariju Gedroit bestu skyttu deildarinnar í
úttekt Fréttablaðsins. Hún verður í lykilhlutverki gegn Val í kvöld. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI
KÖRFUBOLTI Dómaranefnd KKÍ ákvað í gær að senda
kæru til aganefndar sambandsins vegna atviks sem átti
sér stað í leik KR og Keflavíkur í Domino‘s-deild karla
á mánudagskvöldið. Brynjar Þór Björnsson, leikmaður
KR, fékk þá högg í andlitið frá Keflvíkingnum Magnúsi
Þór Gunnarssyni.
Sjálfur baðst Magnús Þór afsökunar á þessu
í yfirlýsingu á heimasíðu Keflavíkur í fyrradag.
„Það er ljóst að ég fór mjög ógætilega að því að
losa mig frá Brynjari,“ sagði hann meðal annars.
Svo gæti farið að Magnús Þór verði dæmdur
í leikbann vegna málsins en dómarar leiksins
dæmdu ekki villu á hann í leiknum sjálfum.
KR vann Keflavík, 90-89, og er efst í deildinni
þegar fjórar umferðir eru eftir af deildarkeppn-
inni. - esá
Magnús Þór fer mögulega í bann
HANDBOLTI „Þetta var ekki
skemmtileg lífsreynsla,“ segir
Ólafur Bjarki Ragnarsson, lands-
liðsmaður í handbolta, við Frétta-
blaðið en hann sleit krossband í
leik með Emsdetten í Íslendinga-
slag gegn Eisenach í þýsku 1.
deildinni í handbolta um síðustu
helgi.
„Ég var bara sækja á markið og
það var ýtt örlítið á bakið á mér
en ég fann ekkert fyrir því. Síðan
stíg ég í löppina og heyri smell-
inn og finn hvernig hnéð gefur
sig. Krossbandið fór og liðþófinn
líka,“ segir Ólafur Bjarki sem drif-
inn var í aðgerð strax á þriðjudag-
inn en vanalega er beðið í nokkra
daga með slíkt.
„Krossbandið var svolítið illa
skemmt,“ segir hann. Þeir vildu
prófa nýja aðgerð sem þetta
sjúkrahús hérna er eitt með. Í
henni er sinin ekki tekin. En kross-
bandið var svo illa farið að það var
ekki hægt. Ég hef samt trú á að
endurhæfingin verði bara þetta
venjulega, svona 7-9 mánuðir.“
Verður heima og úti
Aðgerðin heppnaðist vel að sögn
Ólafs og lá hann fyrir á hóteli
sjúkrahússins þegar Fréttablað-
ið heyrði í honum hljóðið. „Það er
bara verið að tríta mann. Ég fæ
svo að fara heim á föstudag eða
laugardag. Ég fæ meðhöndlun
þangað til sem er gott,“ segir hann.
Árið 2014 hefur ekki reynst
Ólafi gæfuríkt. Þvert á móti. Hann
meiddist rétt fyrir EM í Danmörku
og nú er þessu tímabili og fyrstu
mánuðum þess næsta lokið. Þá er
HM í Katar á næsta ári augljóslega
í mikilli hættu hjá leikmanninum
öfluga.
„Þetta er aðeins búið að leggjast
á mann. Maður getur ekki forðast
svona meiðsli. Nú tekur bara við
langur pakki en maður reynir að
hugsa jákvætt. Ég er með samn-
ing áfram út næsta tímabil þann-
ig maður þarf ekkert að hugsa
um það. Það er gott,“ segir Ólafur
Bjarki sem stefnir á að stunda end-
urhæfingu sína úti og hér heima.
„Það er ekki það skemmtilegasta
að horfa á strákana spila alla þessa
leiki og geta ekki verið með. Þá er
nú skemmtilegra að koma heim
og vera með fjölskyldunni,“ segir
Ólafur Bjarki Ragnarsson.
- tom
Heyrði smell og fann hvernig hnéð gaf sig
Ólafur Bjarki Ragnarsson verður frá næstu 7–9 mánuði. Krossbandið illa farið en aðgerðin heppnaðist vel.
LENGI FRÁ Ólafur Bjarki Ragnarsson
sleit krossband í leik. FRÉTTABLAÐIÐ/GETTY