Fréttablaðið - 24.04.2014, Page 32
FÓLK|TÍSKA
Ásdís Inga Haraldsdóttir naglafræðingur segir að flestar konur sem komi
til hennar fái sér svokallaðar
„stiletto“-neglur en þeim svipar
svolítið til klóa. „Ég er nánast
hætt að gera þessar venjulegu
„french“-neglur. Langflestar fá
sér einlitar stiletto-neglur og svo
eru nokkrar sem vilja hafa eina
eða tvær neglur í öðru vísi lit til
að fá smá tilbreytingu.“
Henni finnst skemmtilegast að
fá til sín konur sem eru til í smá
„bling“ eins og hún kallar það.
„Ég er sjálf mikið fyrir alls konar
„bling“ og finnst gaman að leika
mér með alls kyns skreytingar.
Ég er líka búin að panta fullt af
flottum litum sem ég held að
verði vinsælir í sumar, til dæmis
neongulan, -bleikan og -fjólu-
bláan.“
Þegar neglurnar eru litaðar
með heillit er notað gellakk sem
helst á nöglinni og vex fram með
henni. Að sögn Ásdísar er þó lítið
mál að skipta um lit ef svo ber
undir. „Þá er gamli liturinn bara
pússaður af og nýr settur á.“
Viðskiptavinir Ásdísar eru
flestir á aldrinum sextán til
þrjátíu ára. „Þær yngri vilja helst
einlitar neglur en þær eldri eru
oft til í eitthvað fjölbreyttara.
Þær eru oft komnar með sinn stíl
og eru óhræddari við að vera
áberandi. Þær leyfa mér líka oft
að ráða hvað ég set á þær og það
finnst mér mjög gaman,“ segir
Ásdís og brosir.
Hún segir margar hafa mjög
ákveðnar skoðanir á því
hvernig þær vilja hafa
neglurnar. „Sumar panta
jafnvel tíma með margra
daga fyrirvara og senda
mynd af eins nöglum og
þær vilja fá.“
Ásdís hefur margar
hugmyndir í koll-
inum að mismunandi
nöglum og segir
að ef hún hefði
tíma þá myndi
hún breyta og
skipta um liti
og skraut á
eigin nöglum
reglulega.
„Það er mjög
mikið að
gera hjá
mér. Nagla-
vinnan er
aukavinna
hjá mér
en ég hef
haft nóg
að gera
síðan
ég kláraði
námið árið 2010.
Þetta er besta
aukavinna sem
ég hef haft.“
Neglur Ás-
dísar má finna á
Facebook.
NEGLUR EINS OG KLÆR
NAGLATÍSKA Flestar konur sem biðja um gervineglur fá sér svokallaðar
„stiletto“-neglur. Mismunandi litir eru á nöglunum til að fá fjölbreytni.
ÁSDÍS NAGLA-
FRÆÐINGUR
Ásdís Inga Haralds-
dóttir telur líklegt að
neonlitir verði áberandi
á nöglum í sumar.
BLEIKT OG BLING Ásdísi finnst skemmtileg-
ast að fá að skreyta neglur og gera þær fínar.
FJÖLBREYTTAR Það getur verið skemmti-
legt að nota nokkra liti á neglurnar.
EIN ÖÐRUVÍSI Það er vinsælt núna að hafa eina nögl á hvorri hendi í öðruvísi lit en
hinar.
HVÍTT VINSÆLT Ásdís segir margar vilja hafa allar neglurnar hvítar.
STILETTO Stiletto-neglur eru vinsælar núna. Þær eru hvassar og líta út eins og klær.
Skeifunni 8 • 108 Reykjavík • Sími: 517 6460 • www.belladonna.is
Gleðilegt sumar
Flott föt fyrir flottar konur
Stærðir 38-58
Verslunin Belladonna
Nýtt námskeið hefst 26. septemberNýtt námskeið hefst 17. aprílNæs a námskeið hefst 12. júníNæsta námskeið hefst 2. a ríl 2014æsta námsk ið hefs 7.maí
Save the Children á Íslandi