Fréttablaðið - 23.05.2014, Blaðsíða 19
FÖSTUDAGUR 23. maí 2014 | SKOÐUN | 19
Forseti Eistlands, Toomas
Hendrik Ilves, lét svo
ummælt: „Allt sem skeð
hefur síðan 1989 hefur
mátt sjá fyrir á þeirri
grunnforsendu að landa-
mærum Evrópu verður
ekki breytt með valdi,
sem nú hefur verið fleygt
út.“
Sú skoðun hefur verið
útbreidd að með því að
ógn myndi aldrei að stafa
af Rússlandi væri varnarhlut-
verk NATO úr sögunni. Í ljós kom
hið gagnstæða þegar Pútín hóf
aðgerðir í Úkraínu. En samheldni
og virðing Atlantshafsbandalags-
ins hafði laskast með stríðsað-
gerðunum í Afganistan, Írak og
Líbíu, sem voru feikilega kostn-
aðarsamar í mannslífum og fjár-
útlátum en án tilætlaðs árangurs.
Var það tilgangur varnarbanda-
lags að gerast alheimslögregla
gegn hryðjuverkum?
Aðildarríkjum Atlantshafs-
bandalagsins fjölgaði úr 16 í
28 við að taka við fyrrverandi
félagsríkjum Rússa. Stækkunar-
ferlið, segir Sergei Lavrov, utan-
ríkisráðherra Rússlands, að sé
ný útgáfa af innilokunarstefn-
unni gömlu. Það er skiljanlegt
að Rússar taki það óstinnt upp
að veldi þeirra hefur skropp-
ið saman við að leppríkin orðin
lýðfrjáls tóku sínar ákvarðanir í
alþjóðlegu samstarfi.
En hvað kemur Rússum það
eiginlega við? Það minnir þann
sem þetta skrifar á fyrri tíð
þegar hann var sendiherra gagn-
vart Póllandi og afhenti Lech
Walesa, forseta og þjóðhetju,
trúnaðarbréf sitt. Það var 1991
og voru Pólverjar ekki búnir að
rjúfa svo tengsl sín við Rússa að
þeir gætu gerst aðilar að NATO
og ESB, svo sem síðar varð. Þetta
afar eftirminnilega samtal sner-
ist um lítið annað en vestræna
samvinnu. Walesa tók fram með
miklum þunga að Pólverjar einir
réðu því að ganga sem fyrst í
NATO og þá ESB. Í orðum hans lá
að þeir þyldu enga afskiptasemi
Rússa af sínum málum. Það stóð
að sjálfsögðu ekki á því að heita
Pólverjum fulltingi okkar.
Slakað á boganum
Nú þurfa NATO-ríkin sem fyrr
að standa þétt saman. Við hljót-
um að leggja áherslu á öryggi
Íslands en þar hefur verið slakað
á boganum. Taka ber til umræðu
hina miklu hernaðaruppbyggingu
Rússa á norðurslóðum, innan
NATO og við Rússa. Öryggi
Íslands hvílir ekki hvað síst á
varnarsamningnum við Banda-
ríkin og samstarfi við þá í NATO.
Á ríkisleiðtogafundi NATO í
Bretlandi í september verður
vonandi áréttað að eina mark-
mið bandalagsins er að tryggja
öryggi þeirrar Evrópu sem er
„heil, frjáls og í friði“.
Það er markvert að vegna þró-
unarinnar í Úkraínu gerðu Finn-
ar í apríl sögulegan samning við
NATO um hernaðarsamvinnu og
varnarmál. Verður Finnum veitt-
ur liðsauki komi til árásar og fyr-
irhuguð eru kaup á nýjum orr-
ustuþotum. Svíar og Finnar lýstu
því yfir í maí að varnarsamstarf
þeirra yrði aukið. Aukið átak í
varnarmálum af hálfu Evrópu-
landa verður væntanlega átaka-
mál vegna brotthvarfs Banda-
ríkjanna. Íslendingar þurfa að
sýna hug í verki og styðja loft-
rýmisgæslu NATO af fremstu
getu.
Það varðar öryggi landsins að
Kínverjar sækjast eftir aðstöðu
hér sem sýnilegum lið í lengri
tíma fyrirætlunum. Á heima-
slóðum leita þeir til yfirráða yfir
auðlindum í Suður-Kínahafi í
andstöðu við strandríkin. Tækið
í þeim yfirgangi er hið risavaxna
olíuríkisfyrirtæki CNOOC, sem
hefur nú komið sér upp fyrsta
borpallinum, sem starfsmaður
fyrirtækisins kallaði „okkar fær-
anlega þjóðarlandsvæði”. Það er
nú lengst suður af Kína við smá-
Varasöm tímamót
eyju sem Víetnam gerir
tilkall til. Þessar einhliða
ráðstafanir Kínverja um
yfirráð á opnu hafi hafa
leitt til þess að Filipps-
eyingar hafa samið við
Bandaríkin um að opna
þeim aftur hina miklu
Subic Bay-herstöð.
Leikhús fáránleikans
Minna má á að við höfum
þegar valið CNOOC sem
60% samstarfsaðila á Dreka-
svæðinu, íslenska hlutanum við
Jan Mayen. Inn í umræðuna um
Kína hefur blandast misskilning-
ur varðandi fríverslunarsamning
við þetta hráefna-, orkugráðuga
land sem náinn samstarfsaðila
og fjárfesti. Stærð og landlega
slíkra bandamanna, sem kann
að vera draumsýn einhverra, er
aðeins efni í leikhús fáránleik-
ans.
Mál manna er að illmögulegt
sé að átta sig á þróuninni erlend-
is og ekki síður stefnu Íslands,
sé hún þá yfirleitt nokkur. Þar
ræður miklu óvissan um stöð-
una varðandi Ísland og ESB, sem
meirihluti landsmanna vill tjá sig
um í þjóðaratkvæði. Það mál birt-
ist mér sem deilan um aðildina að
NATO, minnisstæð okkur eldri
kynslóðarfólki. Þá tók Sjálfstæð-
isflokkurinn þá afgerandi forystu
sem leiðtogar hans gátu veitt. Svo
var einnig um aðildina að EFTA
og EES-samninginn, í samstarfi
við Alþýðuflokkinn. Sjálfstæðis-
flokkur sá sem nú ber það nafn á
lítið sammerkt með forveranum
nema nafnið.
Forseti Íslands hefur haldið
fram þýðingu hins íslausa Norð-
urskauts í friðsæld og án vopn-
aðrar viðveru undir stjórn Norð-
urskautráðsins. Væri vel að svo
sé. En sú mikla hervæðing sem
Pútín forseti boðar á skömmum
tíma á heimskautssvæðum Rúss-
lands minnir höfundinn á fyrri
tíð þegar hann var fastafull-
trúi í NATO í kalda stríðinu. Það
sem nú er tilkynnt í Moskvu eru
auk þess miklu þróaðri hergögn
á láði, legi og lofti. Varnarleysi
hefur ekki gagnað neinu ríki ef
hættuástand brestur á en varn-
irnar tryggðu áður friðinn. Það
var galdurinn við árangursríkt
samstarf í NATO en reyndar ekki
án fyrirhafnar og fjárútláta.
UTANRÍKISMÁL
Einar
Benediktsson
fv. sendiherra
túrmerik
Þekkir þú
Advania og Capacent bjóða til ráðstefnu þriðjudaginn 27. maí í Salnum Kópavogi.
Farið verður yfir hvernig nýta má IBM Cognos og SPSS í greiningarvinnu innan
fyrirtækja og stofnana, úrvinnslu á gagnagnó (Big Data), mobile lausnir sem
byggja á Cognos og skyggnst verður í framtíðarsýn fyrir þessi öflugu greingartól.
atvinnulífsins?
Húsið opnar klukkan 8 með rjúkandi kaffi og volgum skinkuhornum.
Dagskrá hefst klukkan 8.30 og stendur til hádegis.
DAGSKRÁ
8.00 - 8.30
Skráning og léur morgunverður
8.30 - 9.20
Big Data and the new trends with Business Intelligence and Advanced Analytics
Juha Teljo, Business Intelligence Solution Executive IBM Soware Group
9.20 - 10.00
Hagnýting Advanced Analytics á Íslandi
Brynjólfur Borgar Jónsson, ráðgjafi hjá Capacent
10.00 - 10.20
Kaffihlé
10.20 - 10.50
Skýrslur og greiningar hvar og hvenær sem er
Trausti Guðmundsson, Cognos ráðgjafi hjá Advania
10.50 - 11.30
Recent advances and future roadmap for Performance Management within IBM Cognos
Torben Noer, WW Business Analytics Specialty Architects (BASA) Leader IBM Soware Group
11.30 - 12.00
Umræður og ráðstefnulok
Aðgangur er ókeypis og öllum opinn meðan húsrúm leyfir.
Skráning á www.advania.is eða capacent.is