Fréttablaðið - 23.05.2014, Síða 37
FRÉTTABLAÐIÐ
LÍFIÐ 23. MAÍ 2014 • 7
hún hefur. Þeir Baldvin leikstjóri
og Biggi í handritinu [Birgir Örn
Steinarsson] gerðu þetta mjög vel
því það hefði verið svo auðvelt að
hafa Agnesi bara upp á punt.“
Kynntist kærastanum í
Kvikmyndaskólanum
Kristín er í sambúð með Vigfúsi
Þormari Gunnarssyni en parið
kynntist í Kvikmyndaskólan-
um. Saman eiga þau hinn tveggja
ára Jökul og nú er annar drengur
væntanlegur á allra næstu dögum.
Þau hafa komið sér fyrir í Hafn-
arfirði en þaðan eru tengdafor-
eldrarnir og stuttur akstur til for-
eldranna í Keflavík. Vigfús starf-
ar einnig við kvikmyndagerð og
vann meðal annars að gerð Vonar-
strætis. „Það var mjög þægilegt að
hafa hann með mér í þessu, ég leit-
aði mikið til hans og hann hjálpaði
mér með hlutverkið á æfingum.
Það var rosalega mikill stuðning-
ur í honum. Ef ég var óörugg með
eitthvað þá gat ég leitað til hans og
ég var mjög þakklát fyrir það.“
Kristín er einkabarn en hún er
sú eina innan fjölskyldunnar sem
sótt hefur í leiklistina. „Ég kem í
raun og veru ekki úr neinni leik-
húsklíku svo maður hefur svolít-
ið þurft að pota sér áfram sjálfur
og taka áhættu með hitt og þetta.
Fjölskylda mín styður ótrúlega vel
við bakið á mér og mamma er allt-
af ánægð fyrir mína hönd – líka
yfir litlu sigrunum,“ segir Kristín
og brosir. „Hún heldur stundum að
ég sé sú eina í heiminum sem er að
afreka eitthvað eins og til dæmis
þegar ég fékk bílprófið. Hún var
ofboðslega ánægð með mig.“
Elskar móðurhlutverkið
Hvað varðar önnur verkefni í leik-
listinni segir Kristín allt óljóst í
þeim efnum enn sem komið er.
„Ég er alltaf með eitthvað í sigt-
inu en þetta er ótraustur bransi
og maður dettur inn og út. Þann-
ig er það bara. Mér finnst rosalega
þægilegt að leyfa bara því að koma
sem gerist næst og ég reyni sjald-
an að ákveða neitt fyrir fram. Það
hljómar kannski undarlega en ég
er mjög dugleg að senda frá mér já-
kvætt karma og ég trúi því að ef
maður sendir frá sér eitthvað gott
þá fái maður eitthvað gott til baka.“
Fram undan er fæðingarorlofið
og segist Kristín ætla að nýta tím-
ann heima fyrir í eitthvað skap-
andi. „Þetta verður spennandi
tími. Ég sit aldrei aðgerðarlaus og
er alltaf að búa eitthvað til, hvort
sem það eru ljóð eða leikrit.“ Hún
segist líka hafa gaman að því að
smíða og þegar blaðamaður spyr
hana hvort hún sé handlagin svar-
ar hún: „Við getum allavega orðað
það þannig að ég á verkfærakass-
ann á heimilinu.“
Kristín elskar móðurhlutverk-
ið og bíður spennt eftir því að
fjölskyldan stækki. „Mig hefði
aldrei grunað hvað það getur gefið
manni að verða móðir. Við sonur
minn förum oft í göngutúra og svo
skyndilega stoppar hann og bendir
á eitt lítið blóm. Hann hefur kennt
mér að stoppa, njóta og taka eftir
því smáa í lífinu. Börn eru ótrú-
lega skapandi og það er gaman að
geta upplifað heiminn með þeirra
augum. Þetta er yndislegt hlutverk
– en ekki fleiri en tvö börn í bili,“
segir Kristín og hlær.
Ég hef alltaf til-
einkað mér að sjá
ekki eftir neinu,
ég reyni frekar að
læra af hlutun-
um. Þetta er þó
ekki eitthvað sem
ég myndi endilega
endurtaka í dag.
Myndaalbúmið
Extra Repair Serum
Hydrating Eye Cream
Hydrating Face Cream
Bisque Corrector
NÝTT Warm Nude
CC Cream SPF 35
Natural Creamy Concealer Kit
Natural Foundation Stick
Warm Natural Sheer Finish
Pressed Powder
Allir húðtónar geta notað
þessa liti. Þá er hægt að
vera með frá morgni til
kvölds, við öll tækifæri.
Pale Cream Eye Shadow*
(augnháralínu að augabrún)
Soft Buff Eye Shadow (augnlok)*
Pink Bellini Sparkle Eye Shadow*
(augnlok)
Rich Caviar Eye Shadow*
((efri og neðri augnháralína)
Espresso Ink Long-Wear
Gel Eyeliner (efri augnháralína)
Black Everything Mascara
*NÝJA Nectar & Nude Eye Palette
inniheldur ofangreinda liti.
Mahogany Eye Shadow
Beige Lip Liner
Soft Coral Rich Lip Color
NÝTT Nectar Lip Gloss
Medium Bronzing Powder
NÝTT Hibiscus Pot Rouge for Lips & Cheeks
NÝTT Apricot Shimmer Brick
Náðu förðuninni
með NÝJU Nectar &
Nude línunni
Fjölskyldan saman í garðinum í fyrrasumar. ● Við útskriftina frá Kvikmyndaskólanum með viðurkenningu fyrir bestu myndina. ● Úr vonarstræti. ● Við Ólafur Darri
við tökur á Djúpinu.