Fréttablaðið - 27.06.2014, Qupperneq 2
27. júní 2014 FÖSTUDAGUR| FRÉTTIR | 2
Í HEIMSÓKN Á SPÍTALA Lína Langsokkur skemmti börnunum í grillveislu sem
haldin var á Barnaspítala Hringsins. FRÉTTABLAÐIÐ/DANÍEL
HEILBRIGÐISMÁL Foreldrahópur gigtveikra barna stóð fyrir grillveislu
í gær á Barnaspítala Hringsins. Öllum inniliggjandi börnum, aðstand-
endum þeirra og starfsfólki var boðið upp á hamborgara, drykki, ís og
sælgæti. Lína Langsokkur mætti á svæðið ásamt Sveppa og Villa.
Foreldrahópur gigtveikra barna hefur staðið fyrir þessari hátíð
undanfarin ár til að brjóta upp daginn fyrir börnin og gera eitthvað
allt annað en venjulega fylgir daglegu starfi spítalans. Einnig er ætl-
unin að vekja athygli á barnagigt en börnin eru reglulegir gestir á
spítalanum. - ebg
Foreldrahópur gigtveikra barna bauð í grill á spítalanum:
Daglegt líf sjúklinga brotið upp
Unnsteinn, ertu hættur að
vera retro?
Ha, Metro? Nei, ég borða bara
McDonalds.
Unnsteinn Manuel Stefánsson, söngvari
hljómsveitarinnar Retro Stefson, hefur hafið
sólóferil og hyggst á næstu misserum gefa út
lög undir nafninu Uni Stefson.
SJÁVARÚTVEGUR „Maður fer nú ekki
langt út á honum, ekki lengra en
svona tvær sjómílur,“ segir Haukur
Hauksson, skipstjóri á Sæfara,
einum minnsta smábátnum sem
gerður er út hér við land.
Báturinn var gerður út frá Kópa-
skeri á grásleppu í vor.
Sæfari er rétt um tvö tonn, í
honum er eins strokks SABB-vél og
gengur hann um 4,5 mílur á klukku-
stund. Ekki er stýrishús á Sæfara og
því mætti vel ímynda sér að kalt sé
um borð.
„Það var einmunatíð í maí og
maður var í flotgalla. Ég fann
aldrei fyrir kulda,“ segir Haukur.
Hann segir að það sé gott að róa á
bátnum, hann fari vel í sjó. Hann sé
stöðugur.
„Netin eru tekin inn að framan
og þau halda bátnum,“ útskýrir
Haukur. „Þetta er afturhvarf til
fortíðar. Það er eiginlega alveg von-
laust að ná í svona báta. Ég held að
það séu þrír til á landinu öllu, þar af
eru tveir á Kópaskeri,“ segir Aðal-
steinn Tryggvason, útgerðarmaður
og eigandi Sæfara.
Auk Sæfara gerir Aðalsteinn út
Rósu í Brún ÞH. Sá bátur er 5,8 tonn
og hefur síðastliðin fjögur ár verið á
handfærum, línu og grásleppu.
Það var vefurinn aflafrettir.is
sem sagði frétt af Sæfara og hefur
hún vakið mikla athygli.
Aðalsteinn segist hafa keypt bát-
inn til að hagnast. „Það er úthlutað
32 dögum á hvern bát í strandveið-
unum, svo ég fjölgaði dögunum um
helming með því að kaupa Sæfara,“
segir Aðalsteinn og kímir við.
Sæfari aflaði vel á grásleppuver-
tíðinni, fékk 8,9 tonn í 14 róðrum.
„Hann er fengsæll. Þetta er
gamall grásleppubátur, það hefur
alla tíð aflast vel á hann,“ segir
Haukur. Hann segir útgerðina hag-
stæða. Báturinn eyði engu. Á grá-
sleppuvertíðinni hafi hann brennt
um 40 lítrum af olíu sem sé álíka og
stór bátur geri á klukkustund.
„Ég er gríðarlega ánægður með
þennan bát og sáttur við vertíðina.
Ég hlakka til að róa á honum aftur,“
segir Haukur.
Nú er Sæfari kominn á þurrt en
menn eru að velta því fyrir sér að
fara með hann inn á Akureyri og
veiða silung á stöng á Pollinum.
johanna@frettabladid.is
Báturinn Sæfari er
afturhvarf til fortíðar
Einn minnsti bátur landsins, Sæfari, tveggja tonna smábátur, er gerður út frá Þórs-
höfn. Hann var afar fengsæll á grásleppuvertíðinni í vor, fékk tæp níu tonn. Skip-
stjórinn segist vera gríðarlega ánægður með bátinn og segir hann fara vel í sjó.
LITLI OG STÓRI Sæfari er sannkallaður smábátur enda ekki nema um tvö tonn.
Hann er hér við hlið Rósu í Brún sem er 6,8 tonn. MYND/AÐALSTEINN
MENNTAMÁL Reykjavíkurborg ber að afhenda niðurstöður
PISA-könnunarinnar sundurliðaðar eftir grunnskólum
borgarinnar. Borgin synjaði beiðni um að afhenda niður-
stöðurnar á þeim forsendum að um vinnugögn hafi verið
að ræða. Úrskurðarnefnd um upplýsingamál féllst ekki á
það.
„Þetta eru upplýsingar sem eiga erindi við almenning.
Ég tók eftir því að í umræðunni var hvergi vikið að upp-
lýsingarétti almennings til þessara gagna um að Reykja-
víkurborg hefði sett einhvers konar þagnarbindindi á
borgarfulltrúa í þessu máli,“ segir Hilmar Þorsteinsson
lögmaður. Hilmar kærði ákvörðun Reykjavíkurborgar
um að birta ekki niðurstöður PISA-rannsóknarinnar árið
2012.
Ákvörðun borgarinnar var kærð til úrskurðarnefndar
um upplýsingamál í apríl og þess krafist að gögnin yrðu
afhent. Úrskurðarnefnd komst að þeirri niðurstöðu að
þessi vinnugögn féllu ekki undir lög um persónuvernd og
því bæri Reykjavíkurborg að afhenda Hilmari gögnin.
Fréttastofa reyndi í gær að nálgast niðurstöður könnun-
arinnar en fékk þau svör frá borginni að þær yrði birtar á
næstu dögum. - sks
Niðurstöður PISA-könnunarinnar ekki vinnugögn að mati úrskurðarnefndar:
Borginni gert að birta gögnin
NEMENDUR Í HLÍÐASKÓLA Frammistaða íslenskra
grunnskólanema í síðustu könnun þótti afar slæm.
FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
Hann er
fengsæll. Þetta
er gamall
grásleppubátur,
það hefur alla
tíð aflast vel á
hann.
Haukur Hauksson,
skipstjóri.
BJÖRGUN Víðtæk leit stóð yfir
undan ströndum Álftaness í gær-
kvöldi að svifvæng sem talið var
að hefði farið í sjóinn um klukkan
sex. Leitinni var hætt eftir rúm-
lega klukkustund og sú ályktun
dregin að um missýn vitnis hefði
verið að ræða.
Lögregla, slökkvilið og björg unar-
sveitarmenn stóðu að að gerðum.
Notast var við tvo leitarbáta, kaf-
ara og þyrlu Landhelgisgæslunnar
við leitina. Í tilkynningu frá Slysa-
varnafélaginu Landsbjörg segir að
hvorki tangur né tetur hafi fund-
ist af svif vængnum, einungis tvær
helíumblöðrur sem fluttar voru í
land. Fyrir utan frásögn sjónarvotts
bendi ekkert til þess að manneskja
hafi farið í sjóinn.
Starfsmaður Slökkviliðsins á
höfuð borgarsvæðinu segir að mál
af svipuðum toga hafi komið upp
áður en einnig var tilkynnt um
hvarf svifvængs fyrir rúmu ári. Þá
kom ekkert út úr leitinni og ekki úti-
lokað að um símagabb hafi verið að
ræða í báðum tilvikum. - sój
Ekkert fannst þrátt fyrir víðtæka leit björgunarsveita undan ströndum Álftaness í gærkvöldi:
Svifvængurinn yfir sjónum reyndist missýn
KOMIÐ Í LAND Tvær helíumblöðrur voru það eina sem fannst. FRÉTTABLAÐIÐ/ARNÞÓR
BELGÍA, AP Leiðtogar Evrópusam-
bandsríkjanna komu saman í
borginni Ypres í Belgíu í gær til
að minnast þess að hundrað ár
eru liðin frá upphafi fyrri heims-
styrjaldarinnar.
Fundarstaðurinn var valinn
vegna þess að harðir bardagar í
Ypres og nágrenni kostuðu hálfa
milljón manns lífið.
Leiðtogarnir hétu því að
tryggja áfram frið í Evrópu. - gb
Leiðtogafundur í Belgíu:
Vilja áfram-
haldandi frið
ÍÞRÓTTIR Holland og Þýskaland
eru uppáhaldslið Íslendinga á
heimsmeistaramótinu í fótbolta.
Þetta kemur fram í nýrri skoð-
anakönnun MMR. Holland var
vinsælasta liðið með 15 pró-
senta fylgi en 14 prósent svar-
enda völdu Þýskaland. Þeir sem
sögðust styðja Sjálfstæðisflokk-
inn voru líklegastir til að eiga
uppáhaldslið, en þeir sem sögðust
styðja Pírata ólíklegastir. - kpt
Uppáhaldslið Íslendinga:
Holland nýtur
vinsælda á HM
SPURNING DAGSINS
Læknastöðin ehf.
Álfheimar 74 • 104 Reykjavík • sími: 5356800 • fax: 5356805
Hér með tilkynnist að
Sigurður Björnsson meltingarlæknir
hættir starfsemi þann 1. júlí 2014