Fréttablaðið - 27.06.2014, Síða 12
27. júní 2014 FÖSTUDAGUR| FRÉTTIR | 12
– G Ó Ð U R Á B R A U Ð –
Í S L E N S K U R
ÍRAK, AP Núri al Maliki, forsætis-
ráðherra Íraks, fagnaði í gær
árásum sýrlenska stjórnarhers-
ins á landamærastöð sem liðs-
menn ISIS-samtakanna höfðu náð
á sitt vald.
Hann skýrði síðan frá því að
í næstu viku yrði þing kallað
saman í von um að brátt tækist
honum að mynda nýja ríkisstjórn.
Bandalag stjórnmálaflokka
sjía-múslima, sem hann veitir for-
ystu, fékk flest þingsæti í kosn-
ingum 30. apríl síðast liðinn, en
þó aðeins 92 sæti af 328 þannig
að hann þarf stuðning frá öðrum
flokkum til að hafa þingmeiri-
hluta.
Hann hefur sætt gagnrýni fyrir
að hafa undanfarið kjörtímabil
gert hagsmunum sjía-múslima
hærra undir höfði en annarra
hópa í landinu.
Sumir helstu leiðtogar sjía-mús-
lima í Írak hafa tekið undir þessa
gagnrýni á al Maliki og skora á
hann að hafa fulltrúa allra helstu
stjórnmálaafla landsins með í
nýju ríkisstjórninni.
Þar á meðal er klerkurinn Muk-
tada al Sadr, sem í gær lét í sér
heyra og vill að mynduð verði ný
stjórn með nýjum andlitum frá
öllum hagsmunahópum.
Hann hét því jafnframt að kippa
fótunum undan ISIS-samtökunum,
sem hafa náð stórum hluta lands-
ins á sitt vald þótt ekki hafi þau
komist inn á svæði sjía-múslima
í suðaustanverðu Írak eða svæði
Kúrda í norð austan verðu landinu.
Þegar Íraksstríðið var í
hámarki fyrir um tíu árum kom
al Sadr sér upp eigin hersveitum
og stóð í blóðugri baráttu bæði
við innrásarlið Bandaríkjanna og
öfgasveitir úr röðum súnní-mús-
lima.
Áður hafði Ali al Sistani, æðsti
trúarleiðtogi sjía-múslima í Írak,
hvatt til þess að mynduð yrði ný
stjórn allra hagsmunahópa.
Al Maliki hefur ekki í hyggju
að segja af sér og segir það ganga
gegn lýðræði og stjórnarskrá
landsins. Hann hefur samkvæmt
stjórnarskrá landsins allt sumarið
til þess að reyna að mynda meiri-
hlutastjórn.
Ráðamenn í Bandaríkjunum,
Bretlandi og fleiri löndum segja
hins vegar brýnt að ný stjórn allra
hagsmunahópa verði mynduð sem
fyrst svo hún geti staðið saman
gegn hættunni af hernaði ISIS-
samtakanna.
Fjöldi fólks hefur flúið þorp
og borgir á þeim svæðum sem
ISIS-menn hafa náð á sitt vald og
streymir til Kúrdahéraðanna í
norðausturhluta Íraks.
gudsteinn@frettabladid.is
Muktada al Sadr
hótar aðgerðum
Núri al Maliki, forsætisráðherra Íraks, hefur kallað saman þingfund í næstu viku
í von um að geta komið saman nýrri ríkisstjórn. Hann fagnaði árásum sýrlenska
stjórnarhersins á landamærastöð sem herskáir öfgamenn höfðu náð á sitt vald.
Samkvæmt stjórnarskrá Íraks á nýkjörið þing, um leið og það kemur
saman, að kjósa sér forseta og tvo varaforseta.
Innan 30 daga þarf þingið svo að kjósa nýjan forseta landsins, en hann
fær síðan 15 daga frest til þess að biðja stærsta þingflokkinn um að út-
nefna forsætisráðherra og mynda nýja ríkisstjórn.
Eftir það hefur sá forsætisráðherra 30 daga til þess að bera ráðherra-
lista sinn undir þingið. Al Maliki getur því haft allt sumarið til þess að
reyna að mynda nýja stjórn, taki atburðarásin ekki af honum völdin.
Næstu skref í stjórnarmyndun
Á FLÓTTA Almenningur hefur flúið undan sókn ISIS-manna og streymir til Kúrdahéraðanna. FRÉTTABLAÐIÐ/AP
HJÓLREIÐAKAPPAR VIÐ HÖRPU
Sá sem slasaðist var keppandi í Wow
Cyclo thon. FRÉTTABLAÐIÐ/DANÍEL
SLYS Tveir sjúkrabílar og lög-
reglubíll svöruðu tilkynningu
um slasaðan hjólreiðamann við
Höfða við Sæbraut á fjórða tím-
anum í gær.
Í fyrstu var talið að ekið hefði
verið á hjólreiðakappann en sam-
kvæmt upplýsingum frá Slökkvi-
liðinu á höfuðborgarsvæðinu
virðist hann hafa dottið af hjóli
sínu. Um keppanda úr Símaliðinu
í Wow Cyclothon var að ræða.
Lögregla handstýrði umferð á
Sæbraut á meðan hugað var að
manninum. Hann var fluttur á
slysadeild eitthvað lemstraður.
- ktd
Keppandi í Wow Cyclothon:
Datt af hjóli
sínu við Höfða
KÓPAVOGUR Lánshæfismat Kópa-
vogsbæjar hækkar um tvo flokka
í mati Reitunar á lánshæfi bæj-
arins. Matið hækkar í i.A2 úr
i.BBB1.
Þetta kemur fram í fréttatil-
kynningu frá Kópavogsbæ. Þar
segir að hækkunin sé tilkomin
vegna minni áhættu sveitarfélags-
ins, sterkari efnahags þess og
jákvæðra horfa í efnahagsmálum.
„Þessi tíðindi staðfesta það að
fjárhagsáætlanir hér hafa verið
ábyrgar og þeim hefur verið
fylgt vel eftir,“ segir Ármann Kr.
Ólafsson, bæjarstjóri Kópavogs-
bæjar. - rkr
Jákvæðar horfur í Kópavogi:
Reitun hækkar
lánshæfismatið
LÖGREGLUMÁL
Svikahrappar hringja
Borið hefur á því undanfarið að
erlendir svikahrappar hringi í Íslend-
inga og þykist vera starfsmenn
Microsoft. Microsoft á Íslandi segir
algerlega skýrt að starfsmenn á vegum
fyrirtækisins hringi aldrei í fólk að fyrra
bragði. Öll slík símtöl eru því frá net-
glæpamönnum.
DÆGURMÁL Átta metra háum skjá
verður komið fyrir á Ingólfstorgi
á laugardag þegar sextán liða
úrslit heimsmeistarakeppninnar í
knattspyrnu hefjast.
Það er símafyrirtækið Nova
sem stendur fyrir uppsetningu
skjásins sem og veglegri tón-
listardagskrá sem hefst klukkan
14.30.
Högni Egilsson, DJ Margeir
og Daníel Ágúst Haraldsson eru
á meðal þeirra tónlistarmanna
sem stíga á svið að því er segir í
fréttatilkynningu.
Viðureignir landsliða Brasilíu
og Mexíkós annars vegar og
Kólumbíu og Úrúgvæs hins vegar
verða svo sýndar á skjánum.
- bá
Leikirnir sýndir á laugardag:
Gríðarstór skjár
á Ingólfstorgi