Fréttablaðið - 27.06.2014, Síða 22

Fréttablaðið - 27.06.2014, Síða 22
27. júní 2014 FÖSTUDAGUR| TÍMAMÓT | 22TÍMAMÓT Tilkynningar um merkis atburði, stórafmæli og útfarir má senda á netfangið timamot@365.is. „Þetta byrjaði allt í partíi árið 1994 en þar varð til hljómsveit sem hefur starfað síðan,“ segir Hjörleifur Hjart- arson, annar tveggja meðlima hljóm- sveitarinnar Hundur í óskilum sem fagnar 20 ára starfsafmæli í ár. „Það hafa verið litlar mannabreyt- ingar á þessum tíma, enda erum við bara tveir,“ segir Hjörleifur en ásamt honum skipar hljómsveitina Eiríkur Stephensen. Í tilefni starfsafmælisins blés sveit- in til þrennra tónleika og eru þriðju og seinustu tónleikarnir í kvöld á Græna hattinum á Akureyri. Hjörleifur segir hljómsveitina spila „alls konar“ tón- list. „Við spilum mikið af svokölluð- um cover-lögum sem oftar en ekki eru spiluð betur en þau voru upphaf- lega,“ segir Hjörleifur. „Við höfum mikið verið að laga lög sem eru ekki góð og skeyta saman lögum ef þau eru ekki fullkomin,“ segir tónlistarmað- urinn og bætir því við að það sé erfitt að lýsa tónlist þeirra félaganna, enda spili þeir á ógrynni af hljóðfærum og verkfærum sem hægt er að nota til tónlistarsköpunar. „Hárþurrkur, hækjur, þvottavélar og svona alls konar dót sem er misgóð hljóðfæri en má alveg nota.“ Hljómsveitin hefur verið temmi- lega farsæl í þessi 20 ár sem hún hefur starfað og hafa félagarnir feng- ið hvorki meira né minna en tvenn Grímuverðlaun fyrir tónlistarsköp- un sína í leikhúsi. „Við gerðum tónlist fyrir Íslandsklukkuna á sínum tíma og vorum líka með sýninguna Saga þjóðar sem gekk í alveg 80 sýningar í Borgarleikhúsinu,“ segir Hjörleifur en það var listamaðurinn Benedikt Erl- ingsson sem leikstýrði þeirri sýningu. Tónlistarmennirnir tveir eru eins og er staddir í hestatúr ásamt 20 sænskum konum en þeir taka einn vikutúr á ári með Pólar hestum. „Okkur líður bara bærilega hérna í Laxárdalnum,“ segir Hjörleifur. „Við vorum með tónleika í Kiðagili hér í fyrrakvöld, en við þurfum síðan að hlaupa úr túrnum í kvöld til að halda tónleikana og förum síðan strax aftur,“ segir Hjörleifur. „Þeysireið í Þingeyjarsýslu, síðan þegar túrinn er búinn þá er bara grái hversdagsleik- inn aftur.“ baldvin@frettabladid.is Úr hestatúr á tónleika Hljómsveitin Hundur í óskilum fagnar 20 ára afmæli í ár. Í tilefni þess blésu félagarnir til þrennra tónleika en þeir síðustu verða haldnir í kvöld á Græna hattinum á Akureyri. ENN ÞÁ HRESSIR Þrátt fyrir að hafa starfað í 20 ár halda félagarnir enn þá sama gamla stuðinu uppi á tónleikum sínum. Þökkum vinarhug og hlýju við andlát og útför ástkærs eiginmanns míns, pabba okkar, tengdapabba, afa, langafa og bróður, BERGMUNDAR ÖGMUNDSSONAR skipstjóra og útgerðarmanns í Ólafsvík, sem andaðist 21. maí. Sérstakar þakkir til starfsfólks Dvalarheimilisins Jaðars í Ólafsvík. Sigríður Þóra Eggertsdóttir Þórdís Bergmundsdóttir Elvar Guðvin Kristinsson Elsa S. Bergmundsdóttir Aðalsteinn Snæbjörnsson afastrákarnir, langafabörnin og systkini. Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, KRISTBJÖRG HALLDÓRSDÓTTIR Lækjargötu 7, Akureyri, verður jarðsungin frá Akureyrarkirkju mánudaginn 30. júní kl. 10.30. Innilegar þakkir sendum við til starfsfólks á Dvalarheimilinu Hlíð. Erna Magnúsdóttir Eva B. Magnúsdóttir Jóhannes Árnason Brynjólfur H. Magnússon Hulda Björg Kristjánsdóttir Rúnar Magnússon ömmu- og langömmubörn. Ástkær frænka okkar, EYRÚN ERLA RUNÓLFSDÓTTIR andaðist á Landspítalanum í Fossvogi þann 16. júní síðastliðinn. Útför hennar hefur farið fram í kyrrþey. Fyrir hönd aðstandenda, Einar Guðmundsson Harpa Guðmundsdóttir Gunnar Guðmundsson Mundína F. Marinósdóttir Guðrún Guðmundsdóttir Guðjón Svavar Jensen Hrafnhildur Guðmundsdóttir Helgi G. Jósepsson og fjölskyldur þeirra. Ástkær faðir minn, tengdafaðir, afi, langafi og langalangafi, SÖLVI JÓNASSON sjómaður og smiður frá Bíldudal, lést á Hrafnistu fimmtudaginn 19. júní 2014. Útförin fer fram frá Háteigskirkju þriðjudaginn 8. júlí kl. 13.00. Fyrir hönd aðstandenda, Haukur Sölvason. Ástkær eiginkona mín, móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, ARNRÚN S. SIGFÚSDÓTTIR Prestastíg 9, Reykjavík, lést á Landspítalanum við Hringbraut fimmtudaginn 19. júní. Útför hennar fer fram frá Fossvogskirkju mánudaginn 30. júní kl. 13.00. Eiður Guðjohnsen Arnór Guðjohnsen Anna Borg Ragnheiður Guðjohnsen Aðalsteinn Sigurðsson Sigríður M. Guðjohnsen Björgvin I. Ormarsson Þóra K. Guðjohnsen Andrew T. Mitchell barnabörn og barnabarnabörn. Eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi, TRAUSTI HELGI ÁRNASON kennari og múrarameistari, lést aðfaranótt 20. júní. Útförin fer fram frá Glerárkirkju mánudaginn 30. júní kl. 13.30. Blóm vinsamlegast afþökkuð en þeim sem vilja minnast hans er bent á Heimahlynningu á Akureyri, Öldrunarheimili Akureyrar og FSA. Margrét Jónsdóttir Sigurður Traustason Jónína Lárusdóttir Rannveig Traustadóttir Einar Birgir Steinþórsson Hólmfríður Traustadóttir barnabörn og barnabarnabörn. Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, EDDA ÞÓRARINSDÓTTIR sem andaðist 21. júní síðastliðinn verður jarðsungin frá Hallgrímskirkju þriðjudaginn 1. júlí kl. 15.00. Þeim sem vilja minnast hennar er bent á styrktar- og líknarsjóð Oddfellowa. Ingiveig Gunnarsdóttir Þórarinn Gunnarsson Álfhildur Sylvía Jóhannsdóttir Friðjón Björgvin Gunnarsson Harpa Hlynsdóttir barnabörn og barnabarnabörn. Innilegar þakkir til allra þeirra sem sýndu okkur samúð og hlýhug við andlát og útför ástkærs eiginmanns míns, föður okkar og tengdasonar, MAGNÚSAR GEIRS PÁLSSONAR Miðhúsum 16, Reykjavík. Sérstakar þakkir til starfsfólks krabbameinsdeildar LSH og líknardeildar LSH í Kópavogi fyrir góða umönnun, starfsfólki Eignamiðlunar fyrir góðan stuðning, Gæðabakstri fyrir veitta aðstoð og Jóhanni Friðgeiri Valdimarssyni. Áslaug Sif Gunnarsdóttir Bára Sif Magnúsdóttir Gunnar Þór Magnússon Gunnar Sveinsson Bára Þorvaldsdóttir Okkar ástkæra STEINVÖR SIGURÐARDÓTTIR DIDDA Sólvangsvegi 1, Hafnarfirði, lést á LHS Fossvogi þann 25. júní. Útförin verður auglýst síðar. Fyrir hönd aðstandenda, Guðrún Einarsdóttir Jenný Einarsdóttir Hjalti Sæmundsson Sigurður Einarsson Sólveig Birna Jósefsdóttir Þórður Einarsson Guðbjörg Óskarsdóttir önnumst við alla þætti þjónustunnar með virðingu og umhyggju að leiðarljósi Þegar andlát ber að höndum Vesturhlíð 2 - Fossvogi - Sími: 551 1266 - www.utfor.is Við þjónum allan sólarhringinn Hárþurrkur, hækjur, þvottavélar og svona alls konar dót sem er misgóð hljóðfæri en má alveg nota. Hjörleifur Hjartarson, meðlimur hljómsveitarinnar Hundur í óskilum.

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.