Fréttablaðið - 27.06.2014, Blaðsíða 24
FÓLK|HELGIN
FÓLK ER KYNNINGARBLAÐ sem býður aug lýsendum að kynna vörur og þjónustu í formi
viðtala og umfjallana ásamt hefðbundnum auglýsingum. Blaðið fylgir Fréttablaðinu daglega.
Útgefandi: 365 miðlar | Ábyrgðarmaður: Jón Laufdal | Hönnun: Silja Ástþórsdóttir
Sölumenn: Bryndís Hauksdóttir, bryndis@365.is, s. 512 5434 Kolbeinn Kolbeinsson, kolli@365.is, s. 512 5447
Ég er sjálfstætt starf-andi mynd-skreytir og
hönnuður og veit
af eigin reynslu
að þetta er
óttalegt hark.
Ég vildi skapa
tækifæri fyrir
mig og aðra til að
sýna fólki hvað
við erum að gera
og selja vonandi ein-
hver verk,“ segir Fanney
Sizemore myndskreytir
en hún stendur fyrir
myndskreytimarkaði í Hinu
húsinu á morgun.
Alls taka tólf myndskreyt-
ar og listamenn þátt og segir
Fanney grósku í myndskreyti-
senunni á Íslandi.
„Áður fannst mér myndskreyt-
ingar vera dálítið einskorðaðar
við barnabækur eða dagblöð,
en með tilkomu samskiptamiðla
eins og Facebook og Instagram
sjást daglega teikningar eftir til
dæmis Hugleik Dagsson, Rán
Flygenring og Lóu Hlín Hjálmtýs-
dóttur. Það leggja líka alltaf fleiri
og fleiri hönnuðir og listamenn,
sem útskrifast hér á landi,
áherslu á myndskreytingar. Einn-
ig er líka orðið vinsælt að kaupa
myndskreyting-
ar fyrir heim-
ilið, til dæmis
eftirprent í
takmörkuðu
upplagi. Það er
góður kostur
fyrir þá sem
hafa kannski
ekki efni á ein-
stöku listaverki
en vilja heldur
ekki kaupa fjölda-
framleidda mynd
úr stórverslun,“ segir
Fanney en auk teikninga
verða einnig bækur, spil og
myndskreyttir hlutir á mark-
aðnum. Fanney lofar frábærri
stemningu á morgun.
„Svona uppákoma er líka gott
tækifæri fyrir myndskreytana
að hittast, kynnast verkum hver
annars og hver öðrum. Enda á
maður það til að vera að pukra
í hver í sínu horninu. Í þetta
skiptið er smá „Girl-Power“-fíl-
ingur í þessu þar sem einungis
konur skráðu sig í þetta skiptið,
sem er bara skemmtilegt. Ef
þetta gengur vel er alltaf hægt að
halda svona markað aftur.“
Markaðurinn hefst í Hinu Hús-
inu klukkan 13 á morgun, laugar-
dag, og stendur til klukkan 17.
TÓLF TEIKNARAR HALDA MARKAÐ
HELGIN Tólf myndskreytar og listamenn sýna og selja verk sín í Hinu húsinu á morgun. Mikil gróska er í myndskreytingum á Íslandi.
MYNDSKREYTIMARKAÐUR Tólf myndskreytar og listamenn sýna og selja verk sín í Hinu Húsinu á laugardag milli klukkan 13 og 17. MYND/GVA
Fylgist með okkur á facebook.com/Parisartizkan
Útsala hafin!
Frábær tilboð á Útsölu.
Skipholti 29b • S. 551 0770