Fréttablaðið - 27.06.2014, Blaðsíða 52
27. júní 2014 FÖSTUDAGUR| LÍFIÐ | 32
ÞRJÚ
SMÁFORRIT
SEM HALDA
ÞÉR Í FORMI
Í FRÍINU
Allt frá jóga til
djúprar slökunar–
þessi smáforrit, eða
öpp, bjóða ekki bara
upp á sniðugar æf-
ingar til að gera hvar
sem er heldur tryggja
líka að þú sért í góðri
slökun og drekkir nóg
af vatni.
„Þetta er í fyrsta sinn sem þetta
hefur verið mögulegt og með þessu
opnast tækifæri á að gera tónlist í
tölvuleikjum og sýndarveruleika
almennt samofna atburðum og
umhverfi í sýndarveruleika sem
eykur áhrifamátt og fagleg gæði
tónlistar í tölvuleikjum,“ segir
doktor Kjartan Ólafsson prófessor
en hann hefur ásamt Jóni Halli
Haraldssyni unnið að því að tengja
rauntímatónsmíðaforrit sem bygg-
ist á gervigreind inn í umhverfi
tölvuleikja.
Kjartan er prófessor og fag stjóri
í tónsmíðum við LHÍ en verk-
efnið vann hann með Jóni Halli,
sem vann það sem lokaverkefni
úr kerfisfræði við tölvunarfræði-
deild Háskólans í Reykjavík en Jón
Hallur er einnig starfsmaður CCP
og hefur samið tónlist fyrir CCP,
meðal annars við tölvuleikinn EVE
Online.
Verkefni þeirra félaga fólst í
því að yfirfæra tónsmíða forritið
CALMUS, sem er hannað til að
semja tónlist fyrir hefðbundin
hljóðfæri og sinfóníuhljómsveit-
ir, yfir í rauntímatónsmíðaforrit
fyrir tölvuleiki. „Calmus er forrit
sem ég byrjaði að hanna þegar ég
var í doktorsnámi við Sibeliusar-
akademíuna í Finnland árið 1988.
Ég hef síðan þá verið að semja tón-
list í gegnum forritið sem byggist
á gervigreind,“ bætir Kjartan við.
Hann segir það talsvert flókið
ferli að þýða tónsmíðaforritið en
nú virkar það þannig að persónur,
atburðir og umhverfi í tölvu leikjum
geta stýrt samningu tónlistar fyrir
það sem gerist í leiknum um leið og
hann er spilaður.
„Tölvuleikjaiðnaðurinn er orð-
inn stærri en kvikmyndaiðnaður-
inn og tónlistariðnaðurinn í heim-
inum samanlagt þannig að með
þessu opnast ótal möguleikar til
þróunar, markaðssetningar og
sölu á CALMUS innan ört vax-
andi sýndarveruleika samtímans,“
segir Kjartan.
Nemendur úr þremur háskólum
komu að verkefninu í samvinnu
við sprotafyrirtækið ErkiTónlist
sf., sem er í eigu Kjartans, en það
hefur haldið utan um þróun á tón-
smíðaforritinu undanfarin 20 ár.
Haukur Ísfeld, nemi í rafmagns-
verkfræði við Háskóla Íslands,
hefur notið styrkja hjá Nýsköp-
unarsjóði námsmanna undafarin
tvö ár til að vinna sérstakt graf-
ískt nótnaskriftarforrit fyrir CAL-
MUS, auk Baldurs Baldurssonar
sem útskrifaðist fyrir skömmu
frá Listaháskólanum með meist-
arapróf með sérhæfingu í tónlist
í tölvuleikjum. Tækniþróunar-
sjóður Íslands hefur styrkt þetta
verkefni. „Það er mjög jákvætt
að háskólar hér á landi geti tengst
einu slíku verkefni eins og þessu
í gegnum sprotafyrirtæki,“ bætir
Kjartan við.
Næstu skref eru að tengja hina
ýmsu karaktera og umhverfið við
forritið sem semur þá tónlist út frá
þeim skilaboðum sem karakterar,
umhverfi og atburðir senda frá sér
í Wwise, sem er tónlistarspilari
sem notaður er í flestum leikjum
í dag. gunnarleo@frettabladid.is
Tölvuleikjatónlist
fæðist í rauntíma
Doktor Kjartan Ólafsson hefur ásamt fl eirum unnið að því að yfi rfæra tón-
smíða forritið Calmus í það að semja tónlist í rauntíma fyrir tölvuleiki.
BYLTING Í TÆKNIHEIMINUM Doktor Kjartan Ólafsson, prófessor í tónsmíðum, hefur þróað byltingarkennda tækni í tónsmíðum.
FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI
Kjartan hannaði tónsmíðaforritið
Calmus þegar hann var í doktors-
námi við Sibeliusar akademíuna
í Finnlandi árið 1988. Í því getur
tónskáldið samið tónlist sína.
Kjartan og Jón Hallur hafa yfir-
fært Calmus yfir í rauntímatón-
smíðaforrit fyrir tölvuleiki.
Persónur, atburðir og umhverfi í
tölvuleikjum geta stýrt samningu
tónlistar í leiknum eftir
aðstæðum.
Næstu skref eru að tengja hina
ýmsu karaktera og umhverfið
við forritið sem semur þá tónlist
út frá þeim skilaboðum sem
karakterar, umhverfi og atburðir
senda frá sér í Wwise, tónlistar-
spilara sem notaður er í flestum
leikjum í dag.
➜ Hvað erum við að
tala um?
Tölvuleikjaiðnað-
urinn er orðinn stærri en
kvikmyndaiðnaðurinn og
tónlistariðnaðurinn í
heiminum samanlagt.
LÍFIÐ
27. júní 2014 FÖSTUDAGUR
CALM
Hugleiðsluforrit sem
spilar róandi tónlist
í takt við fallegar
náttúrumyndir.
YOGA
STUDIO
Hægt að hlaða
niður jógatímum
sem geta verið
eins langir og
þú vilt.
WATERMINDER
Forritið tryggir að þú drekkir nóg
af vatni, hvar sem þú ert.