Fréttablaðið - 30.08.2014, Blaðsíða 48
Sunnuhlíð
Hjúkrunarheimili aldraðra í Kópavogi
Hjúkrunarfræðingar
Starf aðstoðardeildarstjóra er laust til umsóknar hjá hjúkrunarheimilinu Sunnuhlíð. Á deildinni eru 27
hjúkrunarrými þar af eru 4 rými fyrir hvíldarinnlagnir. Starfshlutfall 80-100%.
Starfið er laust frá 1. desember 2014 eða eftir nánara samkomulagi.
Starf hjúkrunarfræðings er laust til umsóknar hjá hjúkrunarheimilinu Sunnuhlíð. Á deildinni eru 23
hjúkrunarrými þar af eru 11 á séreiningu fyrir minnissjúka. Starfshlutfall 80-100% eða eftir samkomulagi.
Einnig vantar hjúkrunarfræðinga á helgarvaktir eða í lágt starfshlutfall, eftir samkomulagi.
Um síðustu áramót tók nýr aðili við rekstri heimilisins sem leitar nú að öflugum starfskrafti til þess að taka
þátt í endurskipulagningu á rekstri og stefnumótun heimilisins.
Umsóknir sendist til: Dagmar Huld Matthíasdóttir, hjúkrunarforstjóri
S: , , sem jafnframt veitir nánari upplýsingar.
Umsjón með starfinu hefur
Lind Einarsdóttir hjá Talent
Ráðningum, lind@talent.is
Umsóknarfrestur er til 8. september.
Umsækjendur eru vinsamlega beðnir að sækja um
starfið á heimasíðu Talent Ráðninga, www.talent.is
– sala og ráðgjöf
Um er að ræða hlutastarf 60-80%, fyrri hluta vikunnar, sem getur farið vel með hlutastarfi á hársnyrti-
stofu. Starfið getur þróast í fullt starf síðar. Viðkomandi mun fá fræðslu og þjálfun hjá erlendum
samstarfsfyrirtækjum
Proact er faglegt og framsækið fyrirtæki sem býður upp á sterk
vörumerki fyrir hársnyrtistofur og snyrtistofur. Okkar markmið
er að styðja vel við okkar viðskiptavini með góðri þjónustu og
reglulegum námskeiðum. Helstu vörumerki fyrir hársnyrti-
stofur eru Matrix, Loreal, Joico og Kérastase.
Vegna aukinna verkefna leitum við að hársnyrti til að bæta
við sölu- og ráðgjafateymið okkar
Hæfniskröfur:
• Fagmenntun í hársnyrtingu
• Góð samskiptahæfni og þjónustulund
• Frumkvæði, dugnaður og sjálfstæði í vinnubrögðum
• Góð almenn tölvukunnátta
• Reynsla af sölustörfum er umtalsverður kostur
• Önnur menntun eða reynsla sem nýst gæti er kostur
Starfssvið:
• Samskipti við hársnyrtistofur
• Tilboðsgerð og sölufundir
• Ráðgjöf um notkun á vörum
• Vinna við kynningarefni
• Kynningar og námskeið fyrir
viðskiptavini
Linnetsstígur 1 | 220 Hafnarfjörður | talent@talent.is | Sími 552-1600
Löggiltur endurskoðandi
Umsóknarfrestur er til og með 11. september 2014. Nánari upplýsingar um starfið veita Torfi Markússon (torfi@intellecta.is) og Ari
Eyberg (ari@intellecta.is) hjá Intellecta í síma 511 1225. Umsókn óskast fyllt út á www.intellecta.is. Umsókn um starfið þarf að fylgja
ítarleg starfsferilskrá og kynningarbréf. Farið verður með allar fyrirspurnir sem trúnaðarmál.
Fjársýsla ríkisins er ríkisstofnun sem sér um
reikningshald og fjárreiður ríkisins.
Hlutverk Fjársýslu ríkisins er meðal annars
að samræma reikningsskil ríkisaðila
og tryggja tímanlegar og áreiðanlegar
upplýsingar um fjármál ríkisins og stuðla
að öruggri og skilvirkri greiðslumiðlun fyrir
ríkissjóð.
Fjársýsla ríkisins leggur áherslu á liðsheild,
starfsánægju, gagnkvæma virðingu og
gott starfsumhverfi með öflugum hópi
starfsmanna. Hjá Fjársýslunni er lögð
áhersla á góðan starfsanda, fjölskylduvænt
vinnuumhverfi og að starfsfólk hafi
tækifæri til að þróast í starfi.
Nánari upplýsingar um stofnunina er að
finna á vefsíðu hennar www.fjs.is
Fjársýsla ríkisins óskar eftir að ráða löggiltan endurskoðanda í áhugavert og krefjandi framtíðarstarf.
Um er að ræða starf forstöðumanns á uppgjörssviði, sem stýrir innleiðingu alþjóðlegra
reikningsskilastaðla hjá ríkissjóði og ríkisstofnunum auk þess að stýra hefðbundnum verkefnum
sviðsins. Staðan heyrir beint undir fjársýslustjóra.
Menntunar- og hæfniskröfur:
Löggiltur endurskoðandi
Starfsreynsla sem löggiltur endurskoðandi
Reynsla af mannaforráðum er æskileg
Skipulagshæfileikar og reynsla af stjórnun verkefna
Frumkvæði, öguð vinnubrögð og samskiptafærni
Góð kunnátta í Excel og haldgóð þekking á upplýsingatækni
Góð kunnátta í íslensku og ensku
ráðgjöf ráðningar rannsóknir
Intellecta, Síðumúla 5, 108 Reykjavík, sími 511 1225
Starfssvið:
Veitir uppgjörssviði forstöðu
Uppgjör fyrir ríkissjóð
Leiðir vinnu við innleiðingu alþjóðlegra
reikningsskilastaðla
Samskipti við ráðuneyti, ríkisstofnanir og
ríkisfyrirtæki
Samskipti við erlenda og innlenda aðila
Kjörið tækifæri fyrir einstakling sem vill takast á við faglegar áskoranir og spennandi framtíðarstarf.
Töku og myndbandsklippari í eigin rekstri,
með mikla þekkingu á öllu er viðkemur
myndböndum/kerfum, kódekum og fl.
Getur bætt við sig verkefnum eða 50-70%
starfi, ýmislegt kemur til greina.
Uppl. Jens-JennaFILM s.896 3785
Starf hjúkrunarfræðings á göngudeild 10E er laust til umsóknar.
Starfshlutfall er 50%, dagvinna. Starfið er laust frá 1. október
2014 eða eftir samkomulagi. Lögð er áhersla á að taka vel á móti
nýju fólki og veita góða aðlögun.
Á göngudeild 10E er verkjamiðstöð sem veitir ráðgjöf og þjónustu
við sjúklinga og starfsfólk á Landspítala. Að þjónustunni koma
sérfræðingur í hjúkrun sjúklinga með verki og sérfræðingar
í svæfingum, gjörgæslulækningum og verkjameðferð.
Helstu verkefni og ábyrgð
» Veitir ráðgjöf til sjúklinga, aðstandenda og starfsmanna um
verki og verkjameðferð
» Er þátttakandi í þverfaglegri samvinnu um mat og meðferð
verkja á Landspítala
» Tekur þátt í kennslu og fræðslu um verki og verkjameðferð til
sjúklinga, aðstandenda, starfsfólks og nemenda á Landspítala
Hæfnikröfur
» Íslenskt hjúkrunarleyfi
» Góð samskiptahæfni og sjálfstæð vinnubrögð
» Reynsla af hjúkrun sjúklinga með flókin verkjavandamál
» Æskilegt er að viðkomandi hafi viðbótarmenntun á sviði
verkjameðferðar eða hafi hug á námi því tengdu
Umhyggja • Fagmennska • Öryggi • Framþróun
Laun samkvæmt samningi viðkomandi stéttarfélags og fjármálaráðherra. Sótt er um starfið
rafrænt á; www.landspitali.is, undir „laus störf“. Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun
um ráðningu hefur verið tekin. Tekið er mið af jafnréttisstefnu LSH við ráðningar á spítalanum.
Nánari upplýsingar
» Umsóknarfrestur er til og með 15. september 2014.
» Umsókn fylgi náms- og starfsferilskrá. Ákvörðun um
ráðningu byggist á innsendum gögnum og viðtölum.
» Upplýsingar veita Brynja Björk Gunnarsdóttir, deildarstjóri,
brynjagu@landspitali.is, sími 825 3607 og Sigríður Zoéga,
sérfræðingur í hjúkrun, szoega@landspitali.is, sími 824 5494.
GÖNGUDEILD, VERKJAMIÐSTÖÐ
Hjúkrunarfræðingur