Fréttablaðið - 30.08.2014, Blaðsíða 98
30. ágúst 2014 LAUGARDAGUR| LÍFIÐ | 54
TÍST
„Okkur finnst auðvitað gaman að
sýna fullt af myndum nokkrum
sinnum á ári en það er enn fremur
gefandi að gera eitthvað meira.
Veita fólki ákveðna innsýn í hvernig
kvikmyndaleikstjórar vinna. Kafa
dýpra,“ segir Atli Bollason, með-
framleiðandi Alþjóðlegu kvik-
myndahátíðarinnar í Reykjavík,
RIFF, og bíófíkill.
Hinn virti, breski leikstjóri Mike
Leigh verður heiðursgestur á RIFF í
ár en hátíðin hefst þann 25. septem-
ber. Nýjasta mynd hans, Mr. Turner,
verður sýnd á hátíðinni auk tveggja
eldri mynda, Topsy-Turvy frá árinu
1999 og Life is Sweet frá árinu 1990.
Leikkonan Marion Bailey, sem leik-
ur í Mr. Turner, kemur með honum
til landsins og stefna þau á að skoða
land og þjóð áður en þau halda af
landi brott.
Aðspurður hvort koma hans til
landsins hafi einhverja þýðingu
stendur ekki á svörunum hjá Atla.
„Ég held að það hafi það alltaf,“
segir hann en meðal fyrri heiðurs-
gesta RIFF eru Lukas Moodyson,
Milos Forman og Jim Jarmusch.
„Mike Leigh er náttúrulega einn
af fremstu evrópsku leikstjórum
síðustu 25 ára. Hann er einnig
Íslendingum að góðu kunnur því
Secrets & Lies var risasmellur hér.
Hann hefur aldrei misst dampinn
og ég held að það sé að hluta til út
af því að hann er svo mannlegur,“
bætir Atli við.
Mike verða afhent heiðursverð-
laun RIFF fyrir æviframlag sitt til
kvikmyndalistarinnar á Bessastöð-
um þann 1. október. Eins og fyrri ár
er það forseti Íslands, Ólafur Ragn-
ar Grímsson, sem afhendir þau.
Sama dag talar Mike á sérstökum
masterklassa í hátíðarsal Háskóla
Íslands.
„Hann vinnur með þeim hætti að
oft er ekki til handrit til að byrja
með. Hann vinnur með leikurum til
að búa til eftirminnilega karaktera
og það er spunnið og spunnið. Það er
svo kannski ekki fyrr en rétt fyrir
tökur að atburðarásin er smíðuð.
Þetta er óvenjulegt vinnuferli en
afraksturinn sýnir að það er alveg
jafn gilt og annað, ef ekki betra,“
segir Atli um vinnuaðferðir leik-
stjórans og hvetur alla til að grípa
tækifærið og fá að kynnast kapp-
anum enn betur í masterklassanum.
Þá verður Mike einnig viðstadd-
ur spurt og svarað-sýningu kvöld-
ið 30. september á nýjustu mynd
sinni, Mr. Turner, sem sýnd verður
í Háskólabíói á hátíðinni. Myndin sú
var frumsýnd á kvikmyndahátíðinni
í Cannes í vor en ásamt því að vera
tilnefnd til Gullpálmans vann aðal-
leikari myndarinnar, Timothy Spall,
leikaraverðlaunin á hátíðinni.
Atli hlakkar mikið til að hitta
meistarann.
„Ég er strax byrjaður að hugsa um
hvaða umræðuefni ég get brydd-
að upp á. Ég vil auðvitað koma vel
fyrir,“ segir hann og hlær. En hver er
hans uppáhaldsmynd eftir kappann?
„Ég held að það sé Secrets & Lies.
Hún var sú fyrsta sem ég sá og
fyrsta myndin situr alltaf í manni.“
liljakatrin@frettabladid.is
Mike Leigh heiðursgestur RIFF
Hinn virti, breski leikstjóri Mike Leigh verður heiðursgestur Alþjóðlegu kvikmyndahátíðarinnar í Reykjavík,
RIFF, sem hefst 25. september. Þá fær hann einnig heiðursverðlaun hátíðarinnar fyrir æviframlag sitt til
kvikmyndalistar. Atli Bollason hlakkar til að hitta kappann.
HEIÐURS-
GESTUR
Mike fær heiðurs-
verðlaun RIFF
í ár.
NORDICPHOTOS/GETTY
SPENNTUR
Atli hlakkar til
að hitta Mike
Leigh.
FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI
■ Life is Sweet (1990)
■ Naked (1993)
■ Secrets & Lies (1996)
■ Career Girls (1997)
■ Topsy-Turvy (1999)
■ All or Nothing (2002)
■ Vera Drake (2004)
■ Mike Leigh hefur fimm sinnum verið tilnefndur
til Óskarsverðlaunanna en aldrei hreppt styttuna
góðu.
■ Hann hefur hlotið fjórtán tilnefningar til BAFTA-
verðlaunanna og hlotið þau fjórum sinnum, þar á
meðal fyrir bestu bresku myndina, Veru Drake.
■ Vera Drake hlaut Gullljónið í Feneyjum árið 2004.
■ Þá vann mynd hans Secret & Lies Gullpálmann í
Cannes og Mike hlaut verðlaun sem besti leikstjór-
inn í Cannes fyrir Naked.
■ Mike fékk Lifetime Achievement-verðlaunin á
Empire-verðlaunahátíðinni í Bretlandið árið 1996.
Virtur og verðlaunaður
Mr. Turner fjallar um ævi og störf
eins mesta málara Breta, J.M.W.
Turner, sem var álitinn mikill sér-
vitringur á sínum tíma en hann lagði
grunninn að auknum hróðri lands-
lagsmynda í málaralist á nítjándu
öld. Einkunnir:
IMDb: Metacritic: 97/100
Rotten Tomatoes: 100/100
The Guardian: 5 stjörnur
The Telegraph: 5 stjörnur
➜ Helstu myndir ➜ Fullt hús stjarna
MR. TURNER
VIKUNNAR
Stefán Máni
@StefnMni
28. ágúst
Spandex-reglan: Ef
samanlagður aldur og þyngd
er meira en 100 (konur) eða
120 (karlar) þá máttu ekki nota
spandex
Þossi
@thossmeister
27. ágúst
Það er eithvað
svo fáránlega skemmtilegt og
fyndið að búa í landi þar sem
ráðuneyti er lagað að ráðherra
af því að það voru gerð mistök
Þórður
Helgi Þórðar
@Doddilitli
27. ágúst
FOKK HVAR ER VESTIÐ
MITT??? #KMU #GOS2
Unnur
Eggertsdóttir
@UnnurEggerts
27. ágúst
Ef ég dey á undan eiginmanni
mínum heimta ég að hann
syngi Problem með Aríönu
Grande í jarðarförinni minni.
VARASALVI FRÁ
BURT’S BEES
MASKARI
FRÁ L’OREALILMVATNIÐ
INSTINCT FRÁ AVON
Kíkt í snyrtibuddu leikkonunnar Megan Fox
KREM FRÁ
AQUAPHOR SÓTTHREINSI -
GEL FRÁ EO
SÓLARVÖRN
FRÁ LANCER
LÍFIÐ
30. ágúst 2014 LAUGARDAGUR
Birta
Ísólfsdóttir
@B_vitamins
26. ágúst
Í hvert skipti sem ég rúlla yfir
Tinder birtist Sölvi, er hann
með marga account-a? Skil
ekki #tilbúiníbarneignir
Heiða Kristín
@heidabest
26. ágúst
Jólabókin í ár
„Hvað gerir þú þegar þú ert
ráðherra og ráðuneytið þitt er
undir lögreglurannsókn. Sjálfs-
hjálparbók fyrir fullorðið fólk“
Þorsteinn
Guðmunds
@ThorsteinnGud
28. ágúst
Hjólaði framhjá konu sem
horfði kynferðislega á mig eins
og ég væri kjötflykki. Takk fyrir
það. Ég kann vel að meta það.
Logi Bergmann
@logibergmann
26. ágúst
Ég hef ákveðið að
flokka frammistöðu United
í kvöld sem vinnustaðagrín.
#fótbolti