Fréttablaðið - 30.08.2014, Blaðsíða 100
30. ágúst 2014 LAUGARDAGUR| LÍFIÐ | 56
BAKÞANKAR
Hildar
Sverrisdóttur
Nú er berjatíminn
byrjaður og um að
gera að nýta berin
í eitthvað gómsætt.
Sumir vilja ef til vill
breyta til og nota
bláberin öðru vísi
en bara með sykri
og rjóma og því eru
þessir litlu bitar
algjörlega tilvaldir.
Ostakökubitar með
bláberjum
Rjómaostur
Hafrakex
Fersk bláber (hér er
hægt að nota hvaða
ávöxt sem er)
Hunang eða agave-síróp
Smyrjið hafrakex-
ið með rjómaosti og
raðið bláberjunum
fallega ofan á. Hellið
síðan smá af hunangi
eða sírópi ofan á og
njótið með bestu lyst.
Þessir bitar myndu
líka sóma sér vel sem
smáréttur í hvaða
veislu sem er. - lkg
Fengið af:
www.gimmesomeoven.com
Auðveldir ostakökubitar
Bara fj ögur hráefni– þetta millimálanasl gæti ekki verið einfaldara.
FALLEGUR RÉTTUR Ekki bara gott
heldur líka augnayndi.
EGILSHÖLLÁLFABAKKA
KRINGLUNNI
SPARBÍÓ
AKUREYRI
KEFLAVÍK
NEW YORK DAILY NEWS
KS - CHICAGO SUN
Miðasala á:
TMNT2D KL. 1 - 3.20 - 5.40
TMNT3D KL. 8 - 10.15
TMNT 3DLÚXUS KL.1 - 3.20 5.40 - 8
THE GIVER KL. 5.45 - 8 - 10.15
THE GIVER LÚXUS KL. 10.15
LET́S BE COPS KL. 5.40 - 8 - 10.20
EXPENDABLES KL. 8 - 10.40
FLUGVÉLAR ÍSL. TAL2D KL. 1 - 3 - 5.50
ÉFLUGV LAR ÍSL. TAL3D KL. 1 - 3
AÐ TEMJA DREKANN 2 ÍSL. TAL2D KL. 1 - 3.15
THE GIVER KL. 3.30 - 5.45 - 8 - 10.15
ARE YOU HERE KL. 8 - 10.30
LET́S BE COPS KL. 3.30 - 5.45 - 8
NIKULÁS Í FRÍI KL. 3.20 - 5.45
SEX TAPE KL. 8
DAWN . . . PLANET OF THE APES 3D KL. 10.15
VONARSTRÆTI ENSKUR TEXTI KL. 5.20
VONARSTRÆTI KL. 10.15
AÐ TEMJA DREKANN 2 ÍSL. TAL2D KL. 3.30
MISSIÐ EKKI AF ÞESSARI.
BYGGÐ Á SAMNEFNDRI
METSÖLUBÓK!
„ LAUFLÉTT SKEMMTUN Í 100 MÍNÚTUR.“
-V.J.V., SVARTHOFDI.IS
Allir borga barnaverð
TMNT 2D 2
TMNT 3D 3:25, 5, 8
ARE YOU HERE 5:40, 10:10
LET’S BE COPS 8, 10:15
THE EXPENDABLES 3 10
LUCY 8
DINO TIME: TÝND Í TÍMA 1:30
TEMJA DREKANN SINN 2D 2, 5ÍSL TAL
ÍSL TAL
Tilboð í bíó. Gildir á allar sýningar merktar með rauðu.
www.laugarasbio.isSími: 553-20755%
SJÁ FLEIRI SÝNINGAR Á WWW.BIOPARADÍS.IS - Miðasala: 412 7711 - Hverfisgata 54 - bioparadis.is - Hluti af Europa Cinemas
MIÐASALA Á
HJÓN á ferðalagi skelltu börnum sínum
í bílaleigubíl og brunuðu allslaus upp á
jökul. Eðlilega. Þeim var til happs að vera
stoppuð af áður en illa færi eins og við
þekkjum þegar túristarnir lenda í ógöng-
um á hálendinu eða fara í fjallgöngur í
gallabuxunum.
ÞÁ byrjar umræðan um að við sem
þekkjum íslenska náttúru eigum að
leiðbeina þeim sem hvorki kunna
að óttast jökulinn né hálar klapp-
ir. Skiltaumræðan svokallaða, því
það virðist vera helsta lausnin að
skiltavæða allar mögulegar hætt-
ur landsins, þrátt fyrir þá aug-
ljósu vankanta að það er vand-
séð hvar eigi að draga línuna, og
að við það myndi galdurinn við
íslenska náttúru dofna.
Í SKILTAUMRÆÐUNNI
hef ég oft haldið dramatískar
ræður um að þessum vest-
ræna heimi okkar sé um að
kenna því það sé búið að eyði-
leggja innbyggt áhættumat
okkar. Ég nota þá sem dæmi
skaðabótavædd samfélög eins
og Bandaríkin þar sem fólki er einfald-
lega ekki lengur hleypt í þær mögulega
stórhættulegu aðstæður að hafa opnan-
lega hótelherbergisglugga eða fá kaffi
án aðvörunar um að það sé heitt. Ég held
áfram ábúðarfull og segi að þegar fólk
elst upp í barnfóstrusamfélögum þar
sem það gengur aldrei á blautu gólfi án
þess að þar séu aðvörunarskilti um að
það sé blautt, gerir það auðvitað ósjálf-
rátt ráð fyrir að skiltalaus klöppin sé bara
alls ekkert hættulega hál. Ég klykki svo
hneyksluð út með því að segja að vegna
þessarar endalausu skaðabótavæddu for-
sjárhyggju sé fólk einfaldlega hætt að
meta sjálfstætt hætturnar í kringum sig.
Í SUMAR var ég svo að hjóla inn í undir-
göng í ítalskri borg þegar ég á síðustu
stundu áttaði mig á að ég yrði að beygja
hausinn svo hann færi mögulega ekki af
þarna við gangaloftið. Ég fæ létt áfall og
botna ekkert í að undirgöngin séu svona
hættulega lág þegar ég sé að maður einn
hægir á hjólinu sínu og réttir upp höndina
til að meta hæðina á göngunum áður en
hann heldur áfram. Hans áhættumat var
í orden. Ég hefði hins vegar alveg þegið
eins og eitt skilti.
Vitlausu túristarnir