Fréttablaðið - 30.08.2014, Blaðsíða 56
| ATVINNA |
Stofnun Árna Magnússonar í íslenskum fræðum
auglýsir starf á skrifstofu stofnunarinnar laust til
umsóknar. Um er að ræða 50% starf ótímabundið.
Starfið felur í sér símsvörun, aðstoð við bókhald
og almenn skrifstofustörf.
Menntunar- og hæfniskröfur:
Stúdentspróf er skilyrði. Umsækjandi þarf að hafa
gott vald á íslensku máli. Kunnátta í ensku og a.m.k.
einu Norðurlandamáli er nauðsynleg.
Sjálfstæði í vinnubrögðum og nákvæmni er mikilvæg.
Hæfni í mannlegum samskiptum og samvinnu er
mikilvæg.
Umsækjendur skulu láta fylgja umsókn sinni vottorð
um námsferil sinn og störf, svo og nöfn, símanúmer
og netföng tveggja umsagnaraðila.
Laun eru samkvæmt kjarasamningi ríkisins og SFR.
Umsóknir skulu berast til Stofnunar Árna
Magnússonar í íslenskum fræðum, Árnagarði við
Suðurgötu, 101 Reykjavík, eigi síðar en mánudaginn
15. september 2014 eða á rafrænu formi á netfangið
kari@hi.is. Öllum umsóknum verður svarað og
umsækjendum tilkynnt um ráðstöfun starfsins þegar
ákvörðun hefur verið tekin.
Við ráðningar í störf hjá Árnastofnun er tekið mið af
jafnréttisstefnu stofnunarinnar.
Ýmsar upplýsingar um stofnunina má finna á
heimasíðu hennar, www.arnastofnun.is.
Nánari upplýsingar um starfið veitir Kári Kaaber,
sviðsstjóri stjórnsýslusviðs (s. 525 4010, kari@hi.is).
Starf yfirlæknis við réttargeðdeild og öryggisgeðdeild Land-
spítala er laust til umsóknar. Um fullt starf er að ræða og
veitist það frá 1. október næstkomandi til 5 ára. Umsækjendur
skulu hafa sérfræðiviðurkenningu í geðlækningum og víðtæka
reynslu af meðhöndlun ósakhæfra afbrotamanna sem og
lögræðissviptra einstaklinga.
Helstu verkefni og ábyrgð
Áhersla er lögð á uppbyggingu og þróun réttargeðlækninga
við sjúkrahúsið. Yfirlæknirinn er yfirmaður réttar- og öryggis-
geðdeilda Landspítala og ber einnig ábyrgð á eftirmeðferð
útskrifaðra sjúklinga deildarinnar í samræmi við dómsúrskurði
og reglur deildarinnar. Yfirlæknirinn ber ábyrgð gagnvart fram-
kvæmdastjóra geðsviðs.
Hæfnikröfur
Stjórnunarreynsla, leiðtogahæfileikar og framúrskarandi
samskiptahæfni eru skilyrði. Yfirlækninum ber að hlúa að
kennslu og vísindavinnu í faginu og því er nauðsynlegt að
umsækjendur hafi doktorspróf eða sambærilegan bakgrunn.
Umhyggja • Fagmennska • Öryggi • Framþróun
Laun samkvæmt samningi viðkomandi stéttarfélags og fjármálaráðherra. Sótt er um starfið
rafrænt á; www.landspitali.is, undir „laus störf“. Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun
um ráðningu hefur verið tekin. Tekið er mið af jafnréttisstefnu LSH við ráðningar á spítalanum.
Nánari upplýsingar
» Umsóknarfrestur er til og með 15. september 2014.
» Starfshlutfall er 100%.
» Umsókninni skulu fylgja vottfestar upplýsingar um
nám, fyrri störf og reynslu af kennslu-, vísinda- og
stjórnunarstörfum, ásamt afriti af helstu ritsmíðum sem
umsækjandi hefur ritað eða átt þátt í.
» Umsóknargögn sem ekki er hægt að senda rafrænt skulu
berast til Maríu Einisdóttur, framkvæmdastjóra geðsviðs,
34A við Hringbraut.
» Viðtöl verða höfð við umsækjendur og byggist ákvörðun
um ráðningu í starfið einnig á þeim auk mati stöðu-
nefndar á innsendum umsóknargögnum.
» Upplýsingar veita María Einisdóttir, framkvæmdastjóri,
mariaein@landspitali.is, sími 543 4077 og Sigríður Edda
Hafberg, mannauðsráðgjafi, shafberg@landspitali.is,
sími 543 4453.
RÉTTARGEÐDEILD OG
ÖRYGGISGEÐDEILD
Yfirlæknir
www.vedur.is
522 6000
Snjóathuganir í
Ólafsvík
Gildi Veðurstofunnar eru þekking,
áreiðanleiki, framsækni og samvinna.
Ráðningar hjá stofnuninni munu taka
mið af þessum gildum.
Laun taka mið af kjarasamningum ríkisins
og viðeigandi stéttarfélags.
Nánari upplýsingar um starfið veita
Harpa Grímsdóttir, fagstjóri ofanflóðavár
(harpa@vedur.is) og Borgar Ævar Axelsson,
mannauðsstjóri (borgar@vedur.is),
í síma 522 6000
Umsækjendur eru vinsamlega beðnir um að
sækja um starfið á www.starfatorg.is.
Veðurstofa Íslands óskar eftir að ráða snjó-
athugunarmann til starfa í Ólafsvík. Um er að
ræða hlutastarf í tímavinnu, sem alla jafna er
unnið á tímabilinu 15. október til 15. maí.
Snjóathugunarmaður fylgist með snjóa-
lögum og veðri í nágrenni við sitt byggðalag
og aðstoðar við að meta yfirvofandi hættu
á snjóflóðum. Einnig sinnir snjó athugunar-
maður reglulegum mælingum á snjó, mælir
snjóflóð sem falla og skrifar um þau skýrslur.
Umsækjandi verður að þekkja vel til veður- og
snjóaðstæðna í Ólafsvík. Hann verður að geta
gert snjóathuganir til fjalla, jafnvel við erfiðar
aðstæður, og starfað undir miklu álagi þegar
hættuástand skapast. Nýr starfsmaður mun fá
þjálfun í öryggisatriðum sem tengjast starfinu
og mati á snjóflóðahættu. Æskilegt er að
viðkomandi geti hafið störf í byrjun október.
Umsóknarfrestur til og með
14. september nk.
www.vedur.is
522 6000
Snjóathuganir í
Vík í Mýrdal
Gildi Veðurstofunnar eru þekking,
áreiðanleiki, framsækni og samvinna.
Ráðningar hjá stofnuninni munu taka
mið af þessum gildum.
Laun taka mið af kjarasamningum ríkisins
og viðeigandi stéttarfélags.
Nánari upplýsingar um starfið veita
Harpa Grímsdóttir, fagstjóri ofanflóðavár
(harpa@vedur.is) og Borgar Ævar Axelsson,
mannauðsstjóri (borgar@vedur.is),
í síma 522 6000
Umsækjendur eru vinsamlega beðnir um að
sækja um starfið á www.starfatorg.is.
Veðurstofa Íslands óskar eftir að ráða snjó-
athugunarmann til starfa í Vík í Mýrdal. Um er
að ræða hlutastarf í tímavinnu, sem alla jafna
er unnið á tímabilinu 15. október til 15. maí.
Snjóathugunarmaður fylgist með snjóa-
lögum og veðri í nágrenni við sitt byggðalag
og aðstoðar við að meta yfirvofandi hættu
á snjóflóðum. Einnig sinnir snjóathugunar-
maður reglulegum mælingum á snjó, mælir
snjóflóð sem falla og skrifar um þau skýrslur.
Umsækjandi verður að þekkja vel til veður- og
snjóaðstæðna í Vík og nágrenni. Hann verður
að geta gert snjóathuganir til fjalla, jafnvel við
erfiðar aðstæður, og starfað undir miklu álagi
þegar hættuástand skapast. Nýr starfsmaður
mun fá þjálfun í öryggisatriðum sem tengjast
starfinu og mati á snjóflóðahættu. Æskilegt
er að viðkomandi geti hafið störf í byrjun
október.
Umsóknarfrestur til og með
14. september nk.
Sölumaður óskast
Fótspor ehf. óskar eftir að ráða sölumann til starfa.
Fótspor ehf. er útgáfufyrirtæki sem
gefur út samtals níu blöð í dag.
Hægt er að sjá nánari upplýsingar
um fyrirtækið á www.fotspor.is
Hæfniskröfur: Viðkomandi þarf að kunna góð
skil á excel og reynsla af sölumennsku er æskileg.
Vinsamlegast sendið umsóknir á as@fotspor.is fyrir 8. september 2014.
SKIPSTJÓRI ÓSKAST
Skipið hefur skráða lengd 20,63 metrar og verður gert út til
Beitukóngsveiða frá Stykkishólmi frá september og fram í
janúar. Um framtíðarstarf getur verið um að ræða þar sem
beitukóngur verður veiddur á tímabilinu frá byrjun júní fram
í janúar. Skoða mætti með verkefni yfir vertíðina í samstarfi
við skipstjóra / áhöfn. Þrír eru í áhöfn á beitukóngsveiðum og
miðað við eðlilega sókn og veiði, geta tekjur orðið góðar.
Leitað er að skipstjóra á skipið Blíðu SH 277,
Skipaskrárnúmer 1178.
Vinsamlegast hafið samband við Lúðvík í
síma 4211400 eða 8922327
30. ágúst 2014 LAUGARDAGUR12