Fréttablaðið - 30.08.2014, Blaðsíða 2
30. ágúst 2014 LAUGARDAGUR| FRÉTTIR | 2
Ísland fer á EM
Sá einstaki atburður varð í sögu íslenska karlalandsliðsins
í körfubolta á miðvikudaginn að okkar menn tryggðu sér
sæti í úrslitakeppni Evrópumótsins þrátt fyrir
tap gegn Bosníu. Íslenska liðið barðist
hetjulega í leiknum gegn sterku liði
Bosníu og náði forystu í öðrum leikhluta
en Bosníumenn reyndust of sterkir í
seinni hálfleik. Íslenska liðið gat andað
léttar fyrir leikinn enda hafði sigur
Rúmena á Lettum tryggt að íslenska
liðið ætti sætið fullvíst myndi Ísland
ekki tapa fyrir Bosníu með meira en 30 stig-
um. Jón Arnór Stefánsson spilaði stórkostlega í
öðrum leikhluta, og reyndar öllum leiknum.
FRÉTTIR
FIMM Í FRÉTTUM SVARTA HAGKERFIÐ KORTLAGT OG HANARNIR GALA Í MOSÓGLEÐIFRÉTTIN
VIKAN 24.08.➜30.08 2014
STJÓRNMÁL Samkvæmt niðurstöðu
könnunar Fréttablaðsins um traust
til ráðherra treystir 21 prósent
aðspurðra engum ráðherra og tæp-
lega 40 prósent tóku hvorki afstöðu
til hvaða ráðherra þeir treystu mest
né minnst.
„Ég man ekki eftir að hafa séð lak-
ari traustsyfirlýsingu til ráðherra
heldur en hér kemur fram. Þetta er
viðvörunarljós til stjórnmálamanna
um að þeir geti ekki gengið að stuðn-
ingi almennings vísum og þeir halda
á brothættu eggi sem þeim ber að
halda upp á,“ segir Stefanía Óskars-
dóttir stjórnmálafræðingur.
Fjórðungur aðspurðra ber minnst
traust til Hönnu Birnu Kristjánsdótt-
ur af öllum ráðherrum, samkvæmt
niðurstöðu könnunar Fréttablaðsins
um traust til ráðherra. Sigmundur
Davíð Gunnlaugsson forsætisráð-
herra er bæði sá sem næstflestir
treysta mest og minnst. Fimmtán
prósent aðspurðra segjast treysta
Sigmundi Davíð mest og átta prósent
minnst allra ráðherra.
Flestir treysta Bjarna Benedikts-
syni fjármálaráðherra, eða ell-
efu prósent, en sex prósent sögðust
treysta Bjarna minnst. Bæði traust
og vantraust til annarra ráðherra
var vart merkjanlegt að því undan-
skildu að fimm prósent aðspurðra
sögðust treysta Eygló Harðardóttur
félagsmálaráðherra mest.
Könnunin var gerð 27. og 28. ágúst.
Hringt var í 1.056 manns þar til náð-
ist í 650 manns samkvæmt lagskiptu
úrtaki. Könnunin náði til 650 manns
sem valdir voru með slembiúrtaki og
var svarhlutfall var 61,5%. - ih
Mest traust til Bjarna meðal íslenskra ráðherra en minnst til Hönnu Birnu:
Flestir treysta ekki ráðherrum
TRAUST MEST traust er borið til Bjarna
Benediktssonar og minnst til Hönnu
Birnu KRistjánsdóttur. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI
SUNNUDAGUR Timberlake sló í gegn Bandaríski
popparinn Justin Timberlake steig á svið fyrir framan
sautján þúsund manns í Kórnum í Kópavogi. Tónleik-
arnir heppnuðust mjög vel og virtist Timberlake sjálfur
hæstánægður með útkomuna. Sagði hann Ísland vera einn
fallegasta stað heims.
MÁNUDAGUR 30 kílómetra berggangur Berggangur-
inn þar sem kvika þrengir sér frá kvikuhólfinu undir
Bárðarbungu var orðinn ríflega 30 kílómetra langur og
teygði sig vel norður fyrir sporð Dyngjujökuls.
ÞRIÐJUDAGUR Ofbeldi í Rotherham Rannsóknar-
skýrsla birt þar sem kemur fram að á árunum 1997 til
2013 hafi 1.400 börn í bænum Rotherham á Englandi
sætt kynferðislegu ofbeldi af hálfu glæpagengja. Þess var
krafist að yfirmaður lögreglu og dómsmála í bænum segði
af sér. Áður hafði sveitarstjóri Rotherham sagt af sér.
MIÐVIKUDAGUR Hanna Birna í vanda Hanna Birna
Kristjánsdóttir innanríkisráðherra aftók með öllu að hún
þyrfti að segja af sér embætti. Stefán Eiríksson lögreglu-
stjóri sagði að bæði Hanna Birna og aðstoðarmenn
hennar hefðu beitt sig þrýstingi í lekamálinu.
FIMMTUDAGUR Nýnasistar misnota félag Fréttablað-
ið greindi frá því að erlendir aðilar hefðu notað íslenska
ásatrúarfélagið ranglega til að gefa, stundum öfgafullum,
málstað sínum meiri vigt. Allsherjargoði sagði að Ísland
væri álitið „Róm norðursins“ í hugum margra sem aðhyll-
ast ásatrú.
FÖSTUDAGUR Hraungos í Holuhrauni Hraungos
hófst í Holuhrauni norðan Dyngjujökuls og sunnan Öskju
þar sem sprungur höfðu verið að myndast í hrauninu og
við jökulsporðinn. Nokkuð dró úr gosinu þegar líða tók á
daginn.
LAUGARDAGUR
„Þetta gekk þokkalega í vor
en svo hefur dregið svaka-
lega úr þessu. Ágústmánuður
hefur verið bara núll.“
Gunnar Bergmann Jónsson, talsmaður
hrefnuveiðimanna.
➜ HANNA BIRNA KRIST-
JÁNSDÓTTIR innanríkis-
ráðherra er umtal-
aðasti ráðherrann
vegna „lekamáls-
ins.“ Umboðsmaður
Alþingis hefur hafið
formlega athugun á
samskiptum hennar við
Stefán Eiríksson lögreglu-
stjóra. Samkvæmt skoð-
anakönnun Frétta-
blaðsins vilja tveir
þriðju aðspurðra að
hún segi af sér.
INGIBJÖRG JÓSEFSDÓTTIR,
skólastjóri Hagaskóla, segir
að eldhús skólans sé löngu
sprungið og að heilbrigðis-
eftirlitið krefjist þess að mat-
vælaframleiðsla í eldhúsinu
verði takmörkuð.
SAMKVÆMT RANNSÓKN
SIGURLILJU ALBERTSDÓTT-
UR hagfræðings nemur velta
af eiturlyfjum 0,2 prósentum
af vergri landsframleiðslu og
velta af sölu vændis nemur
0,06 prósentum.
MAGNÚS TUMI GUÐMUNDS-
SON jarðeðlisfræðingur hefur
staðið í ströngu við að útskýra
jarðskjálftavirkni í Vatnajökli
og lítið eldgos í Holuhrauni.
VÍGMUNDUR PÁLMARSSON
í Mosfellsbæ er að gefast upp
á tveimur hönum nágranna
síns sem gala út í eitt. Hann
vill að bæjaryfirvöld banni
hana.
FJÖLMIÐLAR Aðalfundi DV ehf. var frestað
um eina viku í gær þegar í ljós kom að árs-
reikningur félagsins hafði ekki legið fyrir í
fimm daga eins og lög gera ráð fyrir.
Fundurinn fór fram í litlu herbergi í
kjallara Hótel Natura. Áður en hann hófst
sagði Reynir Traustason, ritstjóri DV,
stjórnarmaður og hluthafi í félaginu, að
hann væri bjartsýnn á að hann yrði áfram
ritstjóri. Stuttu seinna sagði Björn Leifsson,
eigandi World Class og nýr hluthafi í DV, að
hann hefði mætt einungis til að koma Reyni
frá. Fundurinn stóð yfir í tvær og hálfa
klukkustund. Á þeim tíma mátti sjá nokkra
fundarmenn ganga hröðum skrefum inn og
út úr salnum og blaðamenn DV, sem biðu í
ofvæni eftir fréttum af framtíð miðilsins.
Reynir Traustason segir hluthafa sem
vilji sölsa undir sig blaðið hafa náð að
fresta fundinum með því að gera ársreikn-
ing félagsins að ágreiningsefni.
„Stjórn DV er með álit lögmanns um að
formaður stjórnarinnar, Þorsteinn Guðna-
son, hafi brotið lög í mjög mörgum tilvikum
með því að selja eirikjonsson.is, verðlaust
fyrirbæri, inn í DV fyrir hlutafé. Stjórnin
ætlaði, til að fría sjálfa sig, að bakka út úr
málinu, til að rifta kaupunum og leiðrétta
ársreikninginn í samræmi við það,“ segir
Reynir og heldur áfram:
„Þetta féllust þeir ekki á, hvorki hinn
grunaði né fylgismenn hans. Við verðum
því að leggja fram gamla ársreikninginn
og takast svo á um málið á fundinum næsta
föstudag, hvort fyrirtækið vilji kaupa þetta
dót sem er einskis virði,“ segir Reynir.
Sigurður G. Guðjónsson, lögmaður Þor-
steins Guðnasonar, gefur lítið fyrir ásak-
anir Reynis um lögbrot. Hann segir Reyni
og meirihluta stjórnarinnar hafa gerst sek
um að selja ritstjóranum hlutabréf sem hafi
áður verið seld öðrum eiganda félagsins og
að í því felist refsivert athæfi. Hann segir
klúður við vinnu við ársreikning DV hafa
valdið því að fundinum var frestað og ásak-
ar ristjórann um bolabrögð .
„Reynir Traustason átti 9,66 prósent í
félaginu og hefði því ekki átt að geta farið
með nema fimm prósent á fundinum. En af
því að hann sat á stjórnarfundi DV fyrir
aðalfundinn, þar sem var verið að véla
um þessi mál, gat hann fengið meirihluta
stjórnarinnar til að samþykkja að hluta-
bréfaeign hans dreifðist þannig til vina og
vandamanna að þau nýttust að fullu á fund-
inum. Með þessu móti var Reynir og hirðin
í kringum hann búin að tryggja sér væntan-
lega meirihluta á hluthafafundinum,“ segir
Sigurður.
Hann segir að allir hluthafar sem eigi
fimm prósent eða meira í félaginu muni á
næstu dögum framselja hlutabréf sín þann-
ig að atkvæðisréttur þeirra nýtist að fullu.
„Þá verður Reynir Traustason kominn í
algjöran minnihluta í félaginu,“ segir Sig-
urður.
Reynir segir fundinn hljóta að enda með
ósköpum. „Ágreiningsmálið í félaginu er
það hvort við ætlum að blessa lögbrotið
meinta með því að leyfa þessu að ganga
fram og svo er staðan mín, því það eru
ákveðnir hluthafar sem vilja reka mig. Ég
óttast ekki neitt og verð alveg sáttur við að
fara ef ég þarf að fara.“ haraldur@frettabladid.is
sunna@365.is
Slagnum um eignarhald
DV frestað um eina viku
Reynir Traustason, ritstjóri DV, segir deilur innan eigendahóps DV ehf. hljóta að enda með
ósköpum. Hann sakar stjórnarformann félagsins um lögbrot. Sigurður G. Guðjónsson lögmaður
gefur lítið fyrir ásakanirnar og segir Reyni hafa stundað bolabrögð á aðalfundinum í gær.
Á HÓTEL NATURA Reynir Traustason, ritstjóri DV, var bjartsýnn fyrir fundinn og sagðist reikna
með því að verða áfram ritstjóri. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON
25% treysta Hönnu Birnu minnst af ráðherrum í
ríkisstjórninni.
Með þessu
móti var Reynir og
hirðin í kringum
hann búin að
tryggja sér væntan-
lega meirihluta á
hluthafafund-
inum.
Sigurður G. Guðjónsson
lögmaður