Fréttablaðið - 30.08.2014, Blaðsíða 110
30. ágúst 2014 LAUGARDAGUR| LÍFIÐ | 66
STREYMT Á SMÁFORRITI
Ásgeir Trausti heldur tónleika inni í
listaverki Ólafs Elíassonar á þaki lista-
safnsins ARoS í Árósum í Danmörku
í kvöld. Hægt verður að streyma
tónleikunum í beinni
útsendingu á smá-
forritinu SubCell en
forritið er fáanlegt
á iTunes og Google
Play og kostar fimm
dollara, tæplega
sex hundruð
krónur. Löngu
er uppselt á
tónleikana
en aðeins
voru 250
miðar í
boði. - lkg
HEF FLUTT MIG UM SET
Býð alla gamla og nýja viðskiptavini
velkomna
Gerður Sævarsdóttir hársnyrtimeistari
GREIÐAN
Háaleitisbraut 58-60
sími 5813090 / 8621323
HÁRNÝ
hársnyrtistofa
Nýbýlavegi 28, 200 Kópavogur
sími: 554 6422
NÁM Í HÖFUÐBEINA- OG SPJALDHRYGGJARMEÐFERÐ
HJÁ UPLEDGER Á ÍSLANDI HEFST
20. SEPTEMBER 2014
Á fyrstu önninni eru kennd grunnatriði meðferðarinnar.
Þau eru sett upp í 10 þrepa kerfi, sem ersérstaklega hannað
og hugsað til að þjálfa færni og næmni meðferðaraðilans
en hefur einnig þann kost að meðferðarþiggjandi er að
fá frábæra meðhöndlun á öllum líkama.
Upplýsingar um námið og skráning í síma 8630610
eða erla@upledger.is www.upledger.is
Vertu vinur okkar á Facebook
„Ég get ekki beðið
eftir henni.“
LEIKKONAN HAYDEN
PANETTIERE TALAÐI
AF SÉR Á EMMY-VERÐ-
LAUNAHÁTÍÐINNI OG
KOM Í LJÓS AÐ HÚN OG
WLADIMIR KLITSCHKO
EIGA VON Á STÚLKU-
BARNI.
„Þetta er stund sem ég mun aldrei
gleyma og ég á ekki orð til þess
að lýsa því hvað ég er þakklát-
ur fyrir að eiga þessa yndislegu
vini sem standa svo sannarlega
við bakið á mér,“ segir hinn átján
ára gamli Marteinn Högni Elías-
son, nemi í Verzlunarskóla Íslands.
Þegar hann mætti í skólann í vik-
unni beið hans fjöldi samnemenda
á Marmaranum, sem er sam-
komusvæði Verzlunarskólans, og
klæddust þeir bolum sem eru seld-
ir til styrktar grunnrannsóknum á
brjóstakrabbameini og til að minn-
ast móður Marteins Högna.
Móðir Marteins Högna, Krist-
björg Marteinsdóttir, Kittý, eins
og hún var jafnan kölluð, lést
af völdum brjóstakrabbameins
í lok árs 2009 eftir að hafa bar-
ist við sjúkdóminn í 6 ár. „Þegar
mamma greindist með krabba-
meinið ákvað hún strax að láta
ekkert stöðva sig og gekk til að
mynda og gerði alltaf eittvað á
hverjum degi,“ segir Marteinn
Högni. Framan á áðurgreindum
bol stendur einmitt „Eitthvað á
hverjum degi“ sem var einmitt
hugsjón Kitt ýjar. Hún hefði orðið
fimmtug á árinu og var virkur
og ötull félagi í styrktarfélaginu
Göngum saman, sem er grasrót-
arfélag sem styrkir grunnrann-
sóknir á brjóstakrabbameini, og
átti margar hugmyndir að fjáröfl-
un til rannsókna.
„Við fjölskyldan eigum hug-
myndina að bolunum saman en
amma mín hafði mesta frum-
kvæðið. Mínir nánustu vinir seldu
svo boli í skólanum og þegar ég
mætti voru nánast allir í bolum,“
bætir Marteinn Högni við.
Systir Marteins Högna, Sigur-
laug Tara, var tengiliður við vini
hans í skólanum og því vissi hann
ekkert fyrr en hann mætti í skól-
ann. Bolirnir eru hluti af því sem
selt verður til styrktar sjóðnum.
Þá fer Söfnunar- og minningar-
ganga Kittýjar fram í dag en geng-
ið verður frá Héðinsfirði um Héð-
insfjarðargöng til Siglufjarðar og
að íþróttamiðstöðinni að Hóli þar
sem seld verður súpa og brauð.
„Mamma ólst upp á Siglufirði og
þess vegna fer gangan fram þar,“
bætir Marteinn Högni við.
Gangan sem er gjaldfrjáls hefst
klukkan 16.00 en fríar rútuferðir
verða frá Hóli klukkan 15.00 að
upphafsstað göngunnar. Þarna
gefst einstakt tækifæri til að
fara fótgangandi um Héðinsfjarð-
argöng. Stofnaður hefur verið
reikningur til minningar um
Kittýju og rennur allur ágóði til
grunnrannsókna á brjóstakrabba-
meini í samvinnu við Göngum
saman, reikningsnúmerið er 1102-
26-121264 og kennitala 250645-
3179. gunnarleo@frettabladid.is
Á ótrúlega góða vini
Marteini Högna, nemanda í Verzlunarskóla Íslands, brá heldur betur í brún
þegar fj öldi samnemenda hans klæddist bolum til styrktar móður hans heitinni.
SYSTKININ
Marteinn
Högni og systir
hans, Sigurlaug
Tara, eru hér
í bolunum og
með vasaljósið,
sem er líka
selt til styrktar
sjóðnum og
verður lykilatriði
í göngunni í dag.
GÓÐIR VINIR Bekkur Marteins Högna í Versló, 5. F, er svo sannarlega samheldinn og kærleiksríkur. MYND/EINKASAFN
BARNALÁN HJÁ LEIKARA
Leikarinn Hallgrímur Ólafsson
eignaðist dreng með unnustu sinni,
Matthildi Magnúsdóttur, fyrir stuttu.
Þetta er þeirra annað barn saman en
fyrir eiga þau strák sem er þriggja
ára. Þá á Hallgrímur
táningsstúlku úr fyrra
sambandi. Það er
því nóg að gera hjá
leikaranum knáa
sem fer með hlut-
verk Nenna
níska í
leikritinu
Latabæ í
Þjóðleikhús-
inu á þessu
leikári.
- ósk
„Við héldum námskeiðið því við viss-
um af áhuga en samt kom ásóknin
okkur á óvart og við þurftum að
loka fyrir skráningu,“ segir Auður
Tinna Aðalbjarnardóttir laganemi
sem ásamt Maríu Helgu Guðmunds-
dóttur, þýðanda og jarðfræðingi,
heldur utan um Æfingabúðir Gettu
betur-stelpna sem verða í Útvarps-
húsinu í Efstaleitinu um helgina.
Búðirnar hófust í gær og standa
fram á sunnudag en fimmtíu stúlk-
ur víðs vegar að af landinu taka þátt
í þeim. Búðirnar eru hugsaðar sem
vettvangur þar sem stelpur í grunn-
og framhaldsskólum geta upplifað
þátttöku í spurningakeppni á eigin
forsendum, kynnst jákvæðum fyrir-
myndum og brotið ísinn sem aftrar
þeim oft frá þátttöku í Gettu betur-
starfi innan framhaldsskólanna.
Meðal þess sem boðið er upp
á eru fyrirlestrar og kennsla frá
fyrrverandi nemendum, ratleik og
æfingamót í Gettu betur-settinu í
sjónvarpssal. - áp
Fullt í æfi ngarbúðir Gettu betur-stúlkna
Þær Auður Tinna og María Helga eyða helginni með fi mmtíu Gettu betur-stúlkum.
SPENNTAR Þær Auður Tinna og María
Helga hlakka til. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN
VERÐUR Í TÚNINU HEIMA
Ragnheiður Ríkharðsdóttir, þing-
flokksformaður Sjálfstæðisflokksins,
hyggst njóta alls þess besta sem
Mosfellsbærinn hefur upp á að bjóða
á bæjarhátíðinni Í túninu heima um
helgina. Ragneiður
verður meðal
gesta á stór-
tónleikum
á Miðbæjar-
torginu þar sem
Pollapönk, Páll
Óskar, Diddú og
fleiri munu leika
fyrir dansi ásamt því
að heimamaðurinn
Jógvan Hansen mun
kynna tón-
leikana. - ih