Fréttablaðið - 30.08.2014, Blaðsíða 49
Við viljum ráða auglýsinga- eða grafískan hönnuð hjá fyrirtæki á
sviði næringar, heilsu- og hjúkrunar.
Starfið er 70 - 100% og felst í að hanna auglýsingar, markaðsefni
og sjá um fréttabréf ásamt vefsíðu.
Við leitum að jákvæðri manneskju sem getur unnið sjálfstætt og
í teymi, hefur áhuga á heilsueflingu og jákvæðum lífsstíl.
Reynsla og t ilvísun til meðmæla óskast.
Góð vinnuaðstaða og fjölbreytt starf.
Áhugasamir sendi umsókn á box@frett.is fyrir 10 sept.
merkt “auglýsingar og sköpun 0710”
AÞ-Þrif leitar að einstaklingum í vinnu.
Ræstingar, afleysingar og gluggaþvottur.
Einungis íslensku- eða enskumælandi einstaklingar
koma til greina.
Ákjósanlegur aldur er 20–40 ára. Gerðar eru kröfur
um bílpróf og hreint sakavottorð.
Umsóknir sendist á bjarki@ath-thrif.is
eða á www.ath-thrif.is, merkt „ATVINNA“
ATVINNA
Skeiðarási 12
210 Garðabæ
Störf hjúkrunarfræðinga á gjörgæsludeild og vöknun í Fossvogi
eru laus til umsóknar.
Á Gjörgæsludeild Fossvogi dvelja bæði börn og fullorðnir með
margvísleg heilsufarsvandamál. Þar leggjast inn sjúklingar sem
þarfnast gjörgæslumeðferðar af öðrum deildum LSH og veitt
er margskonar sérhæfð meðferð sem krefst mikilla þekkingar.
Starfshlutfall er 80%-100%.
Vöknun Fossvogi sinnir sjúklingum eftir skurðaðgerðir. Einnig
leggjast inn sjúklingar eftir ýmsar aðrar meðferðir og rannsóknir
sem þarfnast svæfingar eða deyfingar. Um er að ræða vaktavinnu
í miðri viku. Vöknun er lokuð um helgar og lögbundna frídaga.
Starfshlutfall er 60-100%.
Störfin eru laus frá 15. september 2014 eða eftir nánari
samkomulagi. Á deildunum gefst kjörið tækifæri til að
kynnast gefandi og einstaklingshæfðri hjúkrun sjúklinga
sem þurfa mikla og flókna umönnun. Við sækjumst eftir
hjúkrunarfræðingum sem búa yfir þekkingu og reynslu sem og
nýútskrifuðum hjúkrunarfræðingum. Lögð áhersla á að taka vel
á móti nýju fólki og veita góða aðlögun undir leiðsögn reyndra
hjúkrunarfræðinga.
Helstu verkefni og ábyrgð
Að veita einstaklingshæfða hjúkrun, ráðgjöf og stuðning til
skjólstæðinga og aðstandenda þeirra. Lögð er áhersla á
þátttöku í teymisvinnu.
Hæfnikröfur
» Íslenskt hjúkrunarleyfi
» Góð samskiptahæfni og sjálfstæð vinnubrögð
» Faglegur metnaður og áhugi á gjörgæsluhjúkrun/ hjúkrun
á vöknun
Umhyggja • Fagmennska • Öryggi • Framþróun
Laun samkvæmt samningi viðkomandi stéttarfélags og fjármálaráðherra. Sótt er um starfið
rafrænt á; www.landspitali.is, undir „laus störf“. Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun
um ráðningu hefur verið tekin. Tekið er mið af jafnréttisstefnu LSH við ráðningar á spítalanum.
Nánari upplýsingar
» Umsóknarfrestur er til og með 15. september 2014.
» Umsókn fylgi náms- og starfsferilskrá. Ákvörðun um
ráðningu byggist á innsendum gögnum og viðtölum.
» Upplýsingar veita Kristín Ingibjörg Gunnarsdóttir,
deildarstjóri, krisgunn@landspitali.is, sími 824 5986
og Ólöf Sveinbjörg Sigurðardóttir, hjúkrunarfræðingur,
olofss@landspitali.is, sími 824 5860.
GJÖRGÆSLA OG
VÖKNUN FOSSVOGI
Hjúkrunarfræðingar
REIKNISTOFA BANKANNA | Höfðatorg | Katrínartúni 2 | 105 Reykjavík | Sími: 569 8877 | www.rb.is
Á
R
N
A
S
Y
N
IR
RB er traust og öflugt þjónustufyrirtæki á sviði upplýsingatækni sem hefur þróað hinar ýmsu
fjármálalausnir, þar á meðal öll megin greiðslukerfi landsins. Helstu viðskiptavinir RB eru
fjármálafyrirtæki og vátryggingafélög. Markmið RB er að gegna lykilhlutverki í hagræðingu
innan íslenska fjármálamarkaðarins með því að lækka upplýsingatæknikostnað
fjármálafyrirtækja. Hjá RB starfar mikið af öflugasta IT-fólki landsins – og þó víðar væri leitað.
Við leitum að framúrskarandi kerfisstjórum í eftirfarandi störf:
· Kerfisstjóri í grunnþjónustu (IT Infrastructure)
· Kerfisstjóri fyrir Linux
Það tekur mörg ár að verða framúrskarandi kerfisstjóri. Ef þín sýn og vilji er að sjálfvirknivæða hlutina og starfa í hópi
jafningja sem hafa sömu sýn þá er þetta rétta starfið fyrir þig.
Okkar æðsta markmið er að veita viðskiptavinum okkar 100% uppitíma og það gerum við með því að hafa í okkar
röðum kerfisstjóra í fremstu röð. Einstaklinga sem við treystum fyrir lyklinum að mikilvægustu upplýsingatæknikerfum
landsins. Það eru ekki margir sem uppfylla þau skilyrði, ert þú einn af þeim?
Við trúum á öfluga liðsheild og lifum og brennum fyrir áskoranir sem felast í flóknum tölvukerfum. Tækniteymin okkar
eru ábyrg fyrir þeirri vinnu sem þau skila og þau hafa frelsi til þess að gera það sem þarf til þess að ná frábærum
árangri. Við viljum að tími þinn hjá RB sé besti tími starfsævi þinnar.
Nánar um störfin
Kerfisstjórarnir eru hluti af 30 manna tæknirekstrardeild sem ber ábyrgð á rekstri allra upplýsingatæknikerfa RB auk
þess að reka flest miðlæg bankakerfi á Íslandi.
Kerfisstjóri í grunnþjónustu (IT Infrastructure)
Mun koma að rekstri og uppbyggingu á IaaS (Infrastructure as a Service) umhverfi RB og fær tækifæri á að takast á við
skemmtileg og krefjandi verkefni.
Hæfniskröfur:
netþjónalausnum.
Kerfisstjóri fyrir Linux
Mun koma að rekstri og uppbyggingu á Linux og AIX umhverfi RB ásamt þeim lausnum sem keyra ofan á því umhverfi
og fær tækifæri til að takast á við skemmtileg og krefjandi verkefni.
Hæfniskröfur:
Nánari upplýsingar um starfið veitir Eyjólfur Ólafsson forstöðumaður Tæknireksturs, eyjolfur.olafsson@rb.is,
sími 569 8877.
Við bjóðum góða vinnuaðstöðu, tækifæri til endurmenntunar og starfsþróunar, frábæra samstarfs-
félaga og umhverfi þar sem fagmennska, frumkvæði og traust eru undirstaða allra verka.
Baritón saxófónleikarar eru sérstaklega velkomnir.
Hægt er að sækja um á www.rb.is til 7. september 2014.
Farið verður með umsóknir og fyrirspurnir sem trúnaðarmál.
VILT ÞÚ TAKA ÞÁTT Í AÐ MÓTA
KRAFTMIKIÐ OG LIFANDI
UPPLÝSINGATÆKNIFYRIRTÆKI?