Fréttablaðið - 30.08.2014, Blaðsíða 44
KYNNING − AUGLÝSINGFerðir LAUGARDAGUR 30. ÁGÚST 20142
Þegar Guðfinnur Sigurvinsson, upplýsingafulltrúi Umhverfis-stofnunar, og Símon Ormars-
son, flugþjónn hjá Icelandair, skipu-
lögðu langa helgarferð til Stokk-
hólms fyrr í sumar grunaði þá ekki
að þeir myndu enda í Kambódíu í
staðinn. Guðfinnur segir að vinkona
þeirra, Ingibjörg Lárusdóttir, hafi
litið í heimsókn í upphafi júlímánað-
ar og sagt þeim frá ferð sem hún var
nýbúin að panta til Kambódíu. „Áður
en við vissum af vorum við lagst-
ir í rannsóknir á netinu. Þegar við
kvöddum Ingibjörgu var handsal-
að að við færum tveir saman, ásamt
Ingibjörgu og börnum hennar þrem-
ur, hinum megin á hnöttinn. Þremur
vikum síðar var haldið af stað.“
Að sögn Guðfinns er svo ótal
margt sem heillar og grípur augað í
Kambódíu, meðal annars náttúru-
fegurðin, litadýrð blómanna, fugla-
söngur í iðgrænum skóginum og
fjölskrúðugt mannlífið. „Ein áhrifa-
mesta upplifunin var að koma í
„þorpið fljótandi“ þar sem fiskimenn
búa með fjölskyldum sínum í húsum
sem fljóta á vatni. Vatnið er svo stórt
að það minnir meira á opið úthaf.
Við keyptum hrísgrjónapoka þar því
ferðinni var heitið í skóla fyrir mun-
aðarlaus börn og með þessu lítilræði
styrktum við starfið þar. Það var
þremur börnum Ingu, þeim Ágústi,
Lárusi og Önnu Maríu, og ekki síður
okkur fullorðna fólkinu, mikill lær-
dómur að heimsækja þennan skóla
og mæta þar bæði gæsku og gleði
barna sem enga forgjöf fá í lífinu. Það
fyllti okkur auðmýkt.“
Fóru á fílsbak
Hápunktur ferðarinnar var búdda-
hofið Angkor Wat sem byggt var
snemma á 12. öld. „Þetta er gríð-
arstórt mannvirki en rústirnar eru
á heimsminjaskrá UNESCO. Hofið
er tákn Kambódíu og óviðjafnanleg
upplifun að skoða það. Það er ótrú-
leg tilfinning að ganga um og skoða
allar skreytingarnar á veggjunum
og byggingarlistina sem hvarvetna
blasir við og anda að sér sögunni.
Mér fannst ég staddur í ævintýrum
Tinna og það stóð líka heima því
ein af Tinna bókunum gerist ein-
mitt í Angkor Wat.“
Guðfinnur hefur lengi haft dá-
læti á fílum og lét gamlan draum
um að sitja á fílsbaki rætast. „Til
þessa hef ég dáðst að þeim úr
fjarska en það er ekki laust við að
maður fyllist óttablandinni virð-
ingu þegar maður mætir fíl í fyrsta
sinn í návígi svo tignarleg sem
skepnan er.“
Mættu mikilli hlýju
Þrátt fyrir alla dýrð og dásemd
landsins var það kambódíska þjóð-
in sem heillaði þá mest. „Harðræði
liðinna áratuga, spillt stjórnvöld og
fátækt hefur leikið þjóðina grátt en
reynsla okkar var sú að við höfum
sjaldan mætt eins hjartahlýju fólki
á ferðum okkar. Það vildi allt fyrir
okkur gera og það var einhver fágæt
fegurð í allri framkomu þess.“
Guðfinnur segir öllum hollt
að sjá að heimurinn hefur marg-
ar víddir og að raunveruleikinn er
ekki alls staðar eins. „Það opnar
augu fólks, eykur víðsýni, menntar
og þroskar. Það verður ekki öll vitn-
eskja fengin úr bókum eða heims-
fréttunum, það kemur ekki í stað-
inn fyrir upplifunina sem ef lir
skilninginn. Við í það minnsta telj-
um okkur betri menn og breytta
eftir þessa ferð. Kambódía situr í
okkur.“
Útgefandi: 365 miðlar ehf., Skaftahlíð 24, s. 512 5000
Umsjónarmenn auglýsinga: Kolbeinn Kolbeinsson, s. 512 5447, kkolbeins@365.is
Ábyrgðarmaður: Jón Laufdal.
Í fótspor Tinna í Kambódíu
Á nokkrum klukkutímum breyttist helgarferð til Stokkhólms í ævintýraferð til Kambódíu hjá Guðfinni og Símoni. Landið býður upp
á mikla náttúrufegurð, stórkostlegar minjar og fjölskrúðugt mannlíf. Þrátt fyrir fegurðina heilluðu íbúar landsins þá mest.
„Reynsla okkar var sú að við höfum sjaldan mætt eins hjartahlýju fólki á ferðum okkar,”
segir Guðfinnur Sigurvinsson og Símon Ormarsson. MYND/ÚR EINKASAFNI
Draumur Guðfinns rættist þegar þeir
settust á fílsbak. MYND/ÚR EINKASAFNI
Angkor Wat er á heimsminjaskrá UNESCO og tákn Kambódíu. Það var
mikil upplifun fyrir þá að skoða hofið. MYND/ÚR EINKASAFNI
Þjónustusími: 561 4200 Bílabúð Benna dekkjaþjónusta
Jeppadekk
Barcelona-búar eru ekki alltaf kátir með allan þann fjölda ferð-
manna sem streymir til borgarinnar. Íbúar hafa raunar lengi
pirrað sig á framferði ferðamanna.
Steininn tók úr á dögunum þegar þrír ítalskir túristar völs-
uðu um stræti La Barceloneta-hverfisins í þrjá klukkutíma
kviknaktir og með drykkjulæti. Myndir af þessum kátu strípal-
ingum fóru um gervallt internetið.
Hundruð Barc-
elona-búa ákváðu
að þetta gengi ekki
lengur, tóku sig til og
héldu mótmælafundi
á nokkrum stöðum.
Þar hvöttu þeir yfir-
völd til að sporna við
lággjalda fyllerís-túr-
isma. Telja þeir slík-
an túrisma fæla frá
vel stæða og prúðari
ferðamenn.
Í einum mótmæl-
unum gengu mót-
mælendur með kort
yfir ferðamannaleiguíbúðir, höfðu uppi á leigusölum og hvöttu
þá til að hætta að leigja ferðamönnum. Yfirvöld hafa á skrá 72
ferðamannaíbúðir í La Barceloneta en þegar netið er skoðað
koma í ljós um 600 íbúðir sem eru til leigu fyrir ferðamenn.
Mikil fjölgun hefur orðið á ferðamönnum í Barcelona á síð-
ustu árum. Þeir voru 1,7 milljónir 1990 en árið 2012 voru þeir
orðnir 7,4 milljónir. Íbúar Barcelona eru 1,6 milljónir og því má
ætla að á sumum tímabilum séu ferðamenn mun fjölmennari
en íbúar borgarinnar.
Mótmæla ferðamönnum
Íbúar La Barceloneta skunduðu út á göturnar og
mótmæltu lággjalda fyllerís- túrisma.
NORDICPHOTOS/GETTY