Fréttablaðið - 30.08.2014, Blaðsíða 59
| ATVINNA |
ÚTBOÐ
Endurbætur á raflögnum í byggingu
nr. 831, Keflavíkurflugvelli - 1. áfangi
ÚTBOÐ NR. 6061030-G
Framkvæmdasýsla ríkisins, f.h. Landhelgisgæslu Íslands, óskar eftir
tilboðum í framkvæmdir við breytingar á raflögnum í byggingu nr. 831,
sem er innan öryggissvæðis Keflavíkurflugvallar. Leggja skal til
3x400V, 50Hz aðaltöflu með skiptirofum fyrir net og rafstöð og leggja
nýtt lágspennt dreifikerfi í bygginguna. Smíða, setja upp og tengja
skal nýjar dreifitöflur og greinatöflur, setja upp kapalstiga og
leggja nýja stofna frá aðaltöflu að dreifitöflum. Skipta skal um lampa,
rafbúnað, innlagnarefni, tengla, rofa, mótora og dælur og breyta löm-
pum ásamt öðru sem tilgreint er í verklýsingu og á teikningum.
Í byggingunni er háspennt 4160V, 60Hz dreifikerfi, 4160/208V, 60Hz
spennar, 208V, 60Hz dreifitöflur og undirtöflur sem verða í notkun
þegar verkið hefst. Í rafstöðvarrými hefur verið komið fyrir spennistöð
á vegum á HS-Veitna hf. og í rýminu er einnig vararafstöð sem áfram
verður nýtt fyrir flugskýlið. Byggingin er flugskýli með verkstæðum,
skrifstofum, rafstöðvarrými, tæknirýmum, göngum, salernum og
geymslum á tveimur hæðum í sambyggðum hliðarbyggingum við
flugskýlið og er samtals um 12.200 fermetrar. Fara þarf inn um vaktað
hlið til þess að komast á verkstað og skulu starfsmenn verktaka hafa
öryggis- og aðgangsheimild inn á vinnusvæðið og fylgja öryggis-
kröfum Landhelgisgæslu Íslands, Isavia og þeim reglum sem gilda
á öryggis- og varnarsvæðum. Bakgrunnskoðunar verður krafist af
verktaka og öllum starfsmönnum sem koma að verkinu og einnig af
undirverktökum. Allir starfsmenn verktaka þurfa að fylla út trúnaða-
ryfirlýsingarform og mæta á kynningu í öryggismálum vegna
byggingar 831. Tilboðsskrá með öllum magntölum fylgir með
útboðsgögnum.
Vettvangsskoðun verður haldin föstudaginn 5. september 2014
kl 10-11 að viðstöddum fulltrúa verkkaupa.
Verkinu skal vera að fullu lokið eigi síðar en 30. júní 2015.
Útboðsgögn verða til afhendingar hjá Framkvæmdasýslu ríkisins,
Borgartúni 7A, 105 Reykjavík frá og með þriðjudeginum 2. september
2014, opnunartími 8:30 - 16:00.
Tilboðin verða opnuð hjá Framkvæmdasýslu ríkisins 16. september
2014 kl. 11:00 að viðstöddum þeim bjóðendum sem þess óska.
FRAMKVÆMDASÝSLA RÍKISINS
ÚTBOÐ
ÚTBOÐ NR. 15717
Arnarhvoll - innanhússframkvæmdir
Endurbætur og breytingar 1. áf. 3.hæð vestur
Framkvæmdasýsla ríkisins, f.h. fjármála- og efna-
hagsráðuneytisins, óskar eftir tilboðum í innanhúss-
framkvæmdir, endurbætur og breytingar í Arnarhvoli.
Um er að ræða framkvæmdir á 3. hæð hússins í vestur á
alls um 500 m2 svæði, auk þess skal setja lyftu í húsið og
endurnýja snyrtingar á öllum hæðum. Rif hefur farið fram,
en um er að ræða ný gólfefni, loftaefni og milliveggi og einnig
skal skipta um ofna og endurnýja raflagnir og lagnir.
Vettvangsskoðun verður haldin mánudaginn 8. september, kl.
14 að viðstöddum fulltrúa verkkaupa.
Verkinu skal vera að fullu lokið eigi síðar en
19. desember 2014.
Útboðsgögn verða til sýnis og sölu á kr. 3.500 hjá Ríkiskau-
pum, Borgartúni 7C, 105 Reykjavík frá og með miðvikudegi-
num 3. september. Tilboðin verða opnuð hjá Ríkiskaupum 16.
september kl. 14 að viðstöddum þeim bjóðendum sem þess
óska.
Innkaupadeild
Ný útboð í auglýsingu hjá Reykjavíkurborg:
• Vetrarþjónusta göngu- og hjólaleiða í
Reykjavík 2014 – 2015. Útboð I, nr. 13312.
Nánari upplýsingar er að finna á www.reykjavik.is/utbod
ÚTBOÐ
Útboð 15723 -
Breytingar á brottfararsal Norðurbyggingar
Flugstöðvar Leifs Eiríkssonar.
Ríkiskaup fyrir hönd Isavia ohf. óska eftir áhugasömum
aðilum til að taka þátt í opnu útboði vegna breytinga á
brottfararsal Norðurbyggingar Flugstöðvar
Leifs Eiríkssonar.
Verkið felst í rifi á hluta gólfefna, lofta og innveggja ásamt
viðeigandi förgun og endurinnréttingu hæðar. Gerður
verður stjórnunarsamningur við verktaka um stýringu á
undirverktökum og efnisinnkaupum.
Áætlað upphaf framkvæmda er 01.11.2014 og skal verkinu
vera að fullu lokið eigi síðar en 30.04.2015.
Nánari upplýsingar má finna í útboðsgögnum, sem verða
aðgengileg á vef Ríkiskaupa (www.rikiskaup.is)
miðvikudaginn 3. september nk. Tilboðum skal skila til
Ríkiskaupa, Borgartúni 7c, 105 Reykjavík þar sem þau
verða opnuð 23.09.2014, kl. 11.00 að viðstöddum þeim
bjóðendum sem þess óska.
11
B
B
A
A
2
4
2
4
3
5
3
5
Mannvit hf. | Urðarhvarfi 6 | 203 Kópavogi | Sími: 422 3000 | www.mannvit.is
Fasteignafélag Árborgar slf
Sunnulækjarskóli,
viðbygging
Fasteignafélag Árborgar óskar eftir áhugasömum aðilum til þess
að taka þátt í forvali vegna viðbyggingar við Sunnulækjarskóla,
Selfossi. Áhugasamir aðilar sendi tölvupóst á netfangið gds@arborg.
is þar sem fram komi nafn aðila, kennitala, heimilisfang, netfang og
símanúmer.
Lýsing á verkinu:
Byggð verður viðbygging við austurenda langhúss byggingarinnar.
Byggingin er tvær hæðir með loftræsitæknirými á þaki, mjög svipað
kennsluálmunni til norðurs. Einnig verður langhúsbyggingin lengd
til austurs. Steyptar plötur hússins eru með eftirspenntum köplum.
Áætluð stærð viðbyggingarinnar er um 1.370 m2. Búið verður að grafa
fyrir viðbygginu, fylla undir sökkla og girða af vinnusvæðið. Gert er
ráð fyrir að efri hæð viðbyggingar verði fullbúin og tilbúin til notkunar
í ágúst 2015 og neðri hæðin og lóð í júlí 2016. Taka verður tillit til
þess við alla skipulagningu og framkvæmd verksins að skólinn er í
fullri notkun.
Forvalsgögn verða send út frá 1. september í rafrænu formi með
tölvupósti til þeirra er lýst hafa áhuga sínum á þátttöku í forvalinu um
verkið. Gögnum skal skila inn í seinasta lagi 18. september 2014 kl.
15:00. Þeir aðilar sem uppfylla kröfur sem fram koma í forvalsgögnum
geta tekið þátt í útboði á verkinu.
FORVAL
Breyting á gjaldskyldutíma
á gjaldskyldum bílastæðum
Reykjavíkurborgar
Frá og með 1. september 2014 verður gjaldskyldutími á
bílastæðum Reykjavíkurborgar á gjaldsvæðum 1, 2 og 3 frá
kl. 9 til kl. 18 virka daga og frá kl. 10 til kl. 16 á laugardögum.
Bílastæðasjóður Reykjavíkur
Vonarstræti 4, 101 Reykjavík
Til leigu áhugavert
Iðnaðar-/geymsluhúsnæði
Til leigu er nýendurgert og vel staðsett
húsnæði í Sandgerði.
Húsnæðið er með góðu aðgengi,
mikilli lofthæð og stórum innkeyrslu-
hurðum.
Val er um mismunandi stærðir frá
150fm. Um er að ræða hagstætt
leiguverð.
Nánari upplýsingar veitir Sigurður í
síma 898-7820
Námsleyfi grunnskólakennara
og skólastjórnenda
Stjórn Námsleyfasjóðs auglýsir eftir umsóknum um
námsleyfi grunnskólakennara og stjórnenda grunnskóla
skólaárið 2015–2016. Stjórn sjóðsins hefur ákveðið að við
úthlutun verði sett í forgang nám sem tengist:
• þróun kennsluhátta sem stuðla að fjölbreyttum
námsaðferðum í lestri/stærðfræði
• kennslu nemenda af erlendum uppruna
Skal allt að 1/3 námsleyfa úthlutað vegna þessa.
Umsækjendum er gert að sækja um á rafrænu formi á
heimasíðu Sambands íslenskra sveitarfélaga
www.samband.is. Umsóknir á öðru formi verða ekki teknar
gildar. Ekki er tekið við viðbótargögnum og því verða allar
upplýsingar að koma fram í umsókninni.
Umsóknarfrestur er til og með 1. október 2014.
Umsækjandi, sem æskir námsleyfis, skal fullnægja
eftirfarandi skilyrðum og skuldbindingum, sbr. reglur um
Námsleyfasjóð:
a) Hafa gegnt starfi í 10 ár samtals við kennslu, ráðgjöf
eða stjórnun í grunnskóla, í eigi minna en hálfu starfi,
og verið í starfi sl. fjögur ár.
b) Vera fastráðinn starfsmaður sveitarfélags eða aðila
sem stofnað er til með samstarfi sveitarfélaga og
taka laun samkvæmt kjarasamningi Sambands
íslenskra sveitarfélaga og Félags grunnskólakennara
eða kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga
og Skólastjórafélags Íslands.
c) Ljúka 60 ECTS eininga háskólanámi eða sambærilegu
námi, miðað við 1/1 námsleyfi, og skal námið miða að
því að nýtast viðkomandi í því starfi sem hann er ráðinn
til að sinna.
d) Að loknu námsleyfi skal námsleyfishafi senda stjórn
sjóðsins innan fjögurra mánaða staðfest vottorð skóla
um nám í námsleyfinu.
e) Enginn getur fengið hærri fjárhæð í námsleyfi en sem
nemur tveggja ára föstum launum á starfsævi
viðkomandi.
f) Laun í námsleyfi miðast við starfshlutfall
námsleyfisþega næsta skólaár áður en námsleyfi
hefst eða meðaltal síðustu þriggja ára ef það er hærra.
Nánari upplýsingar veitir Klara E. Finnbogadóttir í síma 515
4900 eða í tölvupósti á klara.e.finnbogadottir@samband.is
styrkir
til leigu
Save the Children á Íslandi
LAUGARDAGUR 30. ágúst 2014 15