Fréttablaðið - 30.08.2014, Page 56

Fréttablaðið - 30.08.2014, Page 56
| ATVINNA | Stofnun Árna Magnússonar í íslenskum fræðum auglýsir starf á skrifstofu stofnunarinnar laust til umsóknar. Um er að ræða 50% starf ótímabundið. Starfið felur í sér símsvörun, aðstoð við bókhald og almenn skrifstofustörf. Menntunar- og hæfniskröfur: Stúdentspróf er skilyrði. Umsækjandi þarf að hafa gott vald á íslensku máli. Kunnátta í ensku og a.m.k. einu Norðurlandamáli er nauðsynleg. Sjálfstæði í vinnubrögðum og nákvæmni er mikilvæg. Hæfni í mannlegum samskiptum og samvinnu er mikilvæg. Umsækjendur skulu láta fylgja umsókn sinni vottorð um námsferil sinn og störf, svo og nöfn, símanúmer og netföng tveggja umsagnaraðila. Laun eru samkvæmt kjarasamningi ríkisins og SFR. Umsóknir skulu berast til Stofnunar Árna Magnússonar í íslenskum fræðum, Árnagarði við Suðurgötu, 101 Reykjavík, eigi síðar en mánudaginn 15. september 2014 eða á rafrænu formi á netfangið kari@hi.is. Öllum umsóknum verður svarað og umsækjendum tilkynnt um ráðstöfun starfsins þegar ákvörðun hefur verið tekin. Við ráðningar í störf hjá Árnastofnun er tekið mið af jafnréttisstefnu stofnunarinnar. Ýmsar upplýsingar um stofnunina má finna á heimasíðu hennar, www.arnastofnun.is. Nánari upplýsingar um starfið veitir Kári Kaaber, sviðsstjóri stjórnsýslusviðs (s. 525 4010, kari@hi.is). Starf yfirlæknis við réttargeðdeild og öryggisgeðdeild Land- spítala er laust til umsóknar. Um fullt starf er að ræða og veitist það frá 1. október næstkomandi til 5 ára. Umsækjendur skulu hafa sérfræðiviðurkenningu í geðlækningum og víðtæka reynslu af meðhöndlun ósakhæfra afbrotamanna sem og lögræðissviptra einstaklinga. Helstu verkefni og ábyrgð Áhersla er lögð á uppbyggingu og þróun réttargeðlækninga við sjúkrahúsið. Yfirlæknirinn er yfirmaður réttar- og öryggis- geðdeilda Landspítala og ber einnig ábyrgð á eftirmeðferð útskrifaðra sjúklinga deildarinnar í samræmi við dómsúrskurði og reglur deildarinnar. Yfirlæknirinn ber ábyrgð gagnvart fram- kvæmdastjóra geðsviðs. Hæfnikröfur Stjórnunarreynsla, leiðtogahæfileikar og framúrskarandi samskiptahæfni eru skilyrði. Yfirlækninum ber að hlúa að kennslu og vísindavinnu í faginu og því er nauðsynlegt að umsækjendur hafi doktorspróf eða sambærilegan bakgrunn. Umhyggja • Fagmennska • Öryggi • Framþróun Laun samkvæmt samningi viðkomandi stéttarfélags og fjármálaráðherra. Sótt er um starfið rafrænt á; www.landspitali.is, undir „laus störf“. Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu hefur verið tekin. Tekið er mið af jafnréttisstefnu LSH við ráðningar á spítalanum. Nánari upplýsingar » Umsóknarfrestur er til og með 15. september 2014. » Starfshlutfall er 100%. » Umsókninni skulu fylgja vottfestar upplýsingar um nám, fyrri störf og reynslu af kennslu-, vísinda- og stjórnunarstörfum, ásamt afriti af helstu ritsmíðum sem umsækjandi hefur ritað eða átt þátt í. » Umsóknargögn sem ekki er hægt að senda rafrænt skulu berast til Maríu Einisdóttur, framkvæmdastjóra geðsviðs, 34A við Hringbraut. » Viðtöl verða höfð við umsækjendur og byggist ákvörðun um ráðningu í starfið einnig á þeim auk mati stöðu- nefndar á innsendum umsóknargögnum. » Upplýsingar veita María Einisdóttir, framkvæmdastjóri, mariaein@landspitali.is, sími 543 4077 og Sigríður Edda Hafberg, mannauðsráðgjafi, shafberg@landspitali.is, sími 543 4453. RÉTTARGEÐDEILD OG ÖRYGGISGEÐDEILD Yfirlæknir www.vedur.is 522 6000 Snjóathuganir í Ólafsvík Gildi Veðurstofunnar eru þekking, áreiðanleiki, framsækni og samvinna. Ráðningar hjá stofnuninni munu taka mið af þessum gildum. Laun taka mið af kjarasamningum ríkisins og viðeigandi stéttarfélags. Nánari upplýsingar um starfið veita Harpa Grímsdóttir, fagstjóri ofanflóðavár (harpa@vedur.is) og Borgar Ævar Axelsson, mannauðsstjóri (borgar@vedur.is), í síma 522 6000 Umsækjendur eru vinsamlega beðnir um að sækja um starfið á www.starfatorg.is. Veðurstofa Íslands óskar eftir að ráða snjó- athugunarmann til starfa í Ólafsvík. Um er að ræða hlutastarf í tímavinnu, sem alla jafna er unnið á tímabilinu 15. október til 15. maí. Snjóathugunarmaður fylgist með snjóa- lögum og veðri í nágrenni við sitt byggðalag og aðstoðar við að meta yfirvofandi hættu á snjóflóðum. Einnig sinnir snjó athugunar- maður reglulegum mælingum á snjó, mælir snjóflóð sem falla og skrifar um þau skýrslur. Umsækjandi verður að þekkja vel til veður- og snjóaðstæðna í Ólafsvík. Hann verður að geta gert snjóathuganir til fjalla, jafnvel við erfiðar aðstæður, og starfað undir miklu álagi þegar hættuástand skapast. Nýr starfsmaður mun fá þjálfun í öryggisatriðum sem tengjast starfinu og mati á snjóflóðahættu. Æskilegt er að viðkomandi geti hafið störf í byrjun október. Umsóknarfrestur til og með 14. september nk. www.vedur.is 522 6000 Snjóathuganir í Vík í Mýrdal Gildi Veðurstofunnar eru þekking, áreiðanleiki, framsækni og samvinna. Ráðningar hjá stofnuninni munu taka mið af þessum gildum. Laun taka mið af kjarasamningum ríkisins og viðeigandi stéttarfélags. Nánari upplýsingar um starfið veita Harpa Grímsdóttir, fagstjóri ofanflóðavár (harpa@vedur.is) og Borgar Ævar Axelsson, mannauðsstjóri (borgar@vedur.is), í síma 522 6000 Umsækjendur eru vinsamlega beðnir um að sækja um starfið á www.starfatorg.is. Veðurstofa Íslands óskar eftir að ráða snjó- athugunarmann til starfa í Vík í Mýrdal. Um er að ræða hlutastarf í tímavinnu, sem alla jafna er unnið á tímabilinu 15. október til 15. maí. Snjóathugunarmaður fylgist með snjóa- lögum og veðri í nágrenni við sitt byggðalag og aðstoðar við að meta yfirvofandi hættu á snjóflóðum. Einnig sinnir snjóathugunar- maður reglulegum mælingum á snjó, mælir snjóflóð sem falla og skrifar um þau skýrslur. Umsækjandi verður að þekkja vel til veður- og snjóaðstæðna í Vík og nágrenni. Hann verður að geta gert snjóathuganir til fjalla, jafnvel við erfiðar aðstæður, og starfað undir miklu álagi þegar hættuástand skapast. Nýr starfsmaður mun fá þjálfun í öryggisatriðum sem tengjast starfinu og mati á snjóflóðahættu. Æskilegt er að viðkomandi geti hafið störf í byrjun október. Umsóknarfrestur til og með 14. september nk. Sölumaður óskast Fótspor ehf. óskar eftir að ráða sölumann til starfa. Fótspor ehf. er útgáfufyrirtæki sem gefur út samtals níu blöð í dag. Hægt er að sjá nánari upplýsingar um fyrirtækið á www.fotspor.is Hæfniskröfur: Viðkomandi þarf að kunna góð skil á excel og reynsla af sölumennsku er æskileg. Vinsamlegast sendið umsóknir á as@fotspor.is fyrir 8. september 2014. SKIPSTJÓRI ÓSKAST Skipið hefur skráða lengd 20,63 metrar og verður gert út til Beitukóngsveiða frá Stykkishólmi frá september og fram í janúar. Um framtíðarstarf getur verið um að ræða þar sem beitukóngur verður veiddur á tímabilinu frá byrjun júní fram í janúar. Skoða mætti með verkefni yfir vertíðina í samstarfi við skipstjóra / áhöfn. Þrír eru í áhöfn á beitukóngsveiðum og miðað við eðlilega sókn og veiði, geta tekjur orðið góðar. Leitað er að skipstjóra á skipið Blíðu SH 277, Skipaskrárnúmer 1178. Vinsamlegast hafið samband við Lúðvík í síma 4211400 eða 8922327 30. ágúst 2014 LAUGARDAGUR12
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.