Fréttablaðið - 14.02.2015, Page 6
14. febrúar 2015 LAUGARDAGUR| FRÉTTIR | 6
ORKUMÁL Líkurnar á því að lagð-
ur verði jarðstrengur sem hluti
af raflínu frá Akureyri um Eyja-
fjörð í átt að Kröflu hafa aukist
með úttekt verkefnishóps á vegum
Landsnets á lagningu háspennu-
strengja á Íslandi. Úttektin bend-
ir til að kostnaðartölur við fram-
kvæmdina séu innan þeirra
kostnaðarmarka sem drög að
þingsályktunartillögu um lagn-
ingu flutningslína í jörðu miða við.
Spurður um niðurstöður sér-
fræðingahópsins segir Guð-
mundur Ingi
Ásmundsson,
forstjóri Lands-
nets, að líkurn-
ar hafi aukist að
því leytinu til að
með jarðstreng
sé hægt að fara
styttri leið en
með loftl ínu,
sem leysi öryggismálin og ákveðna
umhverfislega þætti, fyrir svip-
aða upphæð og loftlínu. Þó þarf
að leggja annan jarðstreng síðar
vegna aukningar á flutningsþörf,
en heildarkostnaðurinn af þeirri
framkvæmd væri líklega innan
ramma þingsályktunarinnar. „Það
hlýtur að auka líkurnar á að menn
telji þetta skynsamlegt,“ segir
Guðmundur sem vill stíga varlega
til jarðar. Ástæðan er ekki síst
sú að stjórnvöld séu enn að ræða
stefnumörkun í jarðstrengjamál-
um og enginn viti hver niðurstaðan
af því verði.
Guðmundur Ingi bendir á að
vinna sérfræðingahóps Lands-
nets hafi beinst að því að ná niður
kostnaði við lagningu jarðstrengja
á öllum sviðum. Bæði verðinu á
strengjunum sjálfum sem hefur
lækkað vegna aðstæðna á markaði,
og hins vegar að finna hagkvæm-
ustu kosti við jarðstrengjalögn-
ina sjálfa og frágang. „Það er ekki
síst þar sem við höfum náð góðum
árangri,“ segir Guðmundur Ingi.
Bæði Akureyrarbær og Eyja-
fjarðarsveit hafa til þessa gagn-
rýnt áform Landsnets um loftlínu-
lögn yfir þetta viðkvæma svæði
sem um ræðir. Hafa sveitarfélögin
talið hag sínum betur borgið með
því að leggja jarðstreng á þeim
hluta sem var til athugunar hjá
verkefnishópnum, og farið fram
á að samráð verði haft um fram-
kvæmdina. Áhyggjur af flugör-
yggi við Akureyrarflugvöll hafa
verið nefndar og umhverfismál
við útivistarsvæði í nágrenni bæj-
arins, ekki síst Eyjafjarðará og
Kjarnaskóg. Landsnet hefur til
þessa bent á kostnaðinn sem því
fylgir að velja jarðstrengjalausn í
stað loftlínu og takmörkunum sem
lagarammi setur fyrirtækinu – eða
að ætíð sé hagkvæmasti kosturinn
valinn. svavar@frettabladid.is
Líkur á jarðstreng
við Akureyri aukast
Úttekt Landsnets á kostnaði við jarðstrengi bendir til að strengir á hárri spennu
séu að verða raunhæfur kostur á viðkvæmum svæðum. Stefnumörkun stjórnvalda
er einn óvissuþáttur. Gæti þýtt sáttafarveg í deilum Akureyringa og Landsnets.
Í skýrslu sérfræðingahópsins er bent á að stofnkostnaður tveggja jarð-
strengja með samtals 600 megavoltampera (MVA) flutningsgetu á fyrstu
12 kílómetrum leiðarinnar milli Akureyrar og Kröflu sé um 2,6 milljarðar
króna. Stofnkostnaður loftlínu á sömu leið með sömu flutningsgetu er
til samanburðar metinn ríflega 1,2 milljarðar. Stofnkostnaður strengs
með helmingi minni flutningsgetu er sambærilegur stofnkostnaði við
lagningu loftlínunnar sem er til samanburðar en loftlínuleiðin er nokkrum
kílómetrum lengri en strengleiðin. „Hagkvæmt gæti því verið að áfanga-
skipta jarðstrengsframkvæmdum, þ.e. að leggja annan strenginn fyrst og
bíða með þann síðari á meðan forsendur um flutningsþörf leyfa,“ segir í
skýrslunni.
Loftlína og jarðstrengur nálgast í verði
VIÐ EYJAFJÖRÐ Áform um línulögn yfir útivistarsvæði og við flugvöllinn á Akureyri
hafa valdið deilum. FRÉTTABLAÐIÐ/AUÐUNNGUÐMUNDUR I.
ÁSMUNDSSON
Skógarhlíð 18 • Sími 595 1000
www.heimsferdir.is
B
irt
m
eð
fy
rir
va
ra
u
m
p
re
nt
vi
llu
r.
H
ei
m
sf
er
ð
ir
ás
ki
lja
s
ér
ré
tt
t
il
le
ið
ré
tt
in
g
a
á
sl
ík
u.
A
th
. a
ð
v
er
ð
g
et
ur
b
re
ys
t
án
fy
rir
va
ra
.
Frá kr.
107.900
s
rð
i
fe
rð
fe
r
ás
ki
lja
r
r
ér
sé
t
t
ét
t
é
eee
il
ll
ii
tétré
tété
ið
r
iðii
aa
g
a
nggnggngnggtinnnnnnnnnnnnnnnntint
Verona
Hotel Mastino
Netverð á mann, m.v. 2 í herbergi á
hotel Mastino. 23. apríl (sumardaginn
fyrsta) í 4 nætur með afslætti.
23.-27. apríl
Sveitarstjórar
í háskólastarfshóp
3 NORÐURLAND Sveitarstjórar Borgarbyggðar og sveitar-
félagsins Skagafjarðar hafa verið
skipaðir af kjörnum fulltrúum til
að sitja í starfshópi menntamála-
ráðherra um framtíðarskipan
háskóla í Norðvesturkjördæmi.
Byggðarráð beggja sveitar-
félaga skipuðu sveitarstjóra á
síðasta byggðarráðsfundi sínum
í vikunni. Hugmyndum ráðherra
um hugsanlega sameiningu hefur
verið fálega tekið af rektorum
skólanna og Bjarni Jónsson,
bæjarráðsmaður í Skagafirði, lét
á síðasta fundi bóka harða gagn-
rýni sína á hugmyndina.
Kalkþörungaverk-
smiðja til Súðavíkur
2 SÚÐAVÍK Íslenska kalkþörunga-félagið áformar að hefja kalk-
þörungavinnslu í Súðavík á næstu
misserum. Fyrir rekur fyrirtækið
kalkþörungavinnslu á Bíldudal. Ef
allar hugmyndir um kalkþörunga-
vinnslur verða að veruleika í Ísa-
fjarðardjúpi verða þrjár verksmiðjur
starfræktar á Vestfjörðum á næstu
árum, á Bíldudal, í Bolungarvík og á
Súðavík. Verksmiðja er ekki komin
í gagnið í Bolungarvík en fjár-
festar eru að skoða möguleikann á
starfsemi þar.
Vinnslur sem þessar gætu þegar
fram líða stundir skapað verðmæt
störf á svæðinu.
Minnka lokað
eldgosasvæði
1 HÁLENDIÐ Almannavarn-ir hafa minnkað lokað
svæði norðan Vatnajökuls
vegna eldgoss í Holuhrauni.
Áfram er þó skilgreint
hættusvæði þar sem ferða-
langar þurfa að fara með
ýtrustu varkárni, ætli þeir sér
að ferðast á fjöll.
Athygli vekur að Jökulsár-
gljúfur sunnan Ásbyrgis er
enn lokað og umferð aðeins
leyfð með sérstakri heimild
lögreglu þrátt fyrir að lík-
urnar á hamfarahlaupum hafi
minnkað gríðarlega síðustu
vikur og mánuði.
LANDBÚNAÐUR Riðuveiki greindist
nýverið á bænum Neðra-Vatnshorni
á Norðvesturlandi. Þetta er fyrsta
tilfelli hefðbundinnar riðu sem
greinist á landinu frá árinu 2010.
Riðan greindist í sýnum úr tveim-
ur kindum frá bænum en þar er
fjöldi fjár hátt í 500. Sýnin voru
tekin samkvæmt skimunaráætlun
Matvælastofnunar við slátrun síð-
astliðið haust. Sýnin voru rannsök-
uð á Tilraunastöð Háskóla Íslands
að Keldum, að því er fram kemur í
frétt Matvælastofnunar.
Um er að ræða hefðbundna gerð
riðusmitefnisins, sem ekki hefur
greinst hér á landi síðan árið 2010.
Fram til ársins 2010 greindist riða á
nokkrum bæjum á landinu á hverju
ári en engin tilfelli hefðbundinnar
riðu greindust á árunum 2011, 2012
og 2013. „Riðuveikin er því á undan-
haldi en þetta tilfelli sýnir að ekki
má sofna á verðinum,“ segir í frétt-
inni.
Héraðsdýralæknir vinnur nú að
öflun faraldsfræðilegra upplýs-
inga og úttektar á búinu til að meta
umfang aðgerða við förgun fjár, þrif
og sótthreinsun. Því næst fer málið
í hefðbundið ferli hvað varðar gerð
samnings um niðurskurð. - shá
Fyrsta tilfelli sauðfjársjúkdómsins riðuveiki hefur greinst frá því árið 2010:
Riðuveiki greinist á einum bæ
Í SVEITINNI Riðuveiki þýðir aðeins eitt
– niðurskurð á öllu fé á viðkomandi býli.
FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
Save the Children á Íslandi
LANDIÐ
1
2
3
1
3
-0
2
-2
0
1
5
2
1
:1
2
F
B
1
1
2
s
_
P
1
0
7
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
1
2
s
_
P
1
0
2
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
1
2
s
_
P
0
0
6
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
1
2
s
_
P
0
1
1
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
3
C
F
-D
9
6
4
1
3
C
F
-D
8
2
8
1
3
C
F
-D
6
E
C
1
3
C
F
-D
5
B
0
2
8
0
X
4
0
0
5
B
F
B
1
1
2
s
C
M
Y
K