Fréttablaðið - 14.02.2015, Blaðsíða 84
14. febrúar 2015 LAUGARDAGUR| TÍMAMÓT | 48TÍMAMÓT
Tilkynningar um merkis atburði, stórafmæli og
útfarir má senda á netfangið timamot@365.is.
Davíð
Ósvaldsson
útfararstjóri
Óli Pétur
Friðþjófsson
útfararstjóri 551 3485 • www.udo.is
Útfararþjónusta
í 20 ár
Hinrik Valsson Svanhildur Eiríksdóttir Gísli G. Guðmundsson
Vistvænar íslenskar kistur, krossar og duftker
Þjónusta allan sólarhringinn
Hinrik: Sími 892 0748 / Gísli: Sími 482 4300
Elskuleg móðir okkar,
tengdamóðir, amma og langamma,
RAGNHEIÐUR Ó.
GUÐMUNDSDÓTTIR
lést miðvikudaginn 11. febrúar á
hjúkrunarheimilinu Ási, Hveragerði.
Jarðarförin verður auglýst síðar.
Þóroddur Þórarinsson
Guðm. Helgi Þórarinsson María Hlíðberg Óskarsdóttir
Kristján Theodórsson Pála María Árnadóttir
Soffía Theodórsdóttir Sveinbjörn Sveinbjörnsson
Hálfdán Theodórsson
barnabörn og barnabarnabörn.
Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir, amma
og langamma,
JÓHANNA PÉTURSDÓTTIR
Kirkjulundi 6, Garðabæ,
lést á dvalarheimilinu Ísafold laugardaginn
31. janúar. Útför hefur þegar farið fram í
kyrrþey að ósk hennar.
Elísabet Einarsdóttir
Róbert G. Einarsson Steinunn Gunnarsdóttir
Erna Einarsdóttir
Edda J. Einarsdóttir Jan Hansen
Pétur A. Einarsson Vala Björg Guðmundsdóttir
barnabörn og barnabarnabörn.
GUNNAR SIGURÐSSON
Dvergabakka 12,
áður bóndi
á Ljótsstöðum 1, Vopnafirði,
andaðist á hjúkrunarheimilinu Mörk
9. febrúar. Útför fer fram frá Langholtskirkju
20 febrúar kl. 13. Þeim sem vildu minnast
hans er bent á Blindrafélag Íslands eða
hjúkrunarheimilið Mörk.
Aðstandendur
Virðing,
reynsla
& þjónusta
Allan
sólarhringinn
571 8222
Svafar:
82o 3939
Hermann:
82o 3938
Ingibjörg:
82o 3937
www.kvedja.is
svafar & hermann
Útfararþjónusta síðan 1996
Okkar ástkæra
JÓNÍNA RAGNARSDÓTTIR
Ráðagerði, Seltjarnarnesi,
lést á heimili sínu þann 10. febrúar. Útför
hennar verður gerð frá Seltjarnarneskirkju
þriðjudaginn 17. febrúar og hefst athöfnin
kl. 13.00.
Finnur Jónsson
Grétar Elías Finnsson Hildur Elín Geirsdóttir
Freyja Finnsdóttir Henrik Andersen
Arnar, Sara Natalía, Stefán Breki,
Finnur Kári, Balder og August Jón.
Innilegar þakkir til allra sem sýndu okkur
hlýhug og samúð við andlát og útför
eiginmanns míns, föður okkar, tengdaföður,
afa og bróður,
JÓNS ÞÓRS JÓNSSONAR
Álfhólsvegi 32.
Sérstakar þakkir fær starfsfólk líknardeildar
Landspítalans og Karitasar hjúkrunar- og
ráðgjafarþjónustu.
Guðmundur Ingi Guðnason
Þórir E. Jónsson Marianne B. Jonsson
Hörður Jónsson Oddfríðarson Guðrún Björk Birgisdóttir
Margrét Ásta Jónsdóttir Sigurður Finnur Kristjánsson
Jón Benjamín Jónsson Andrea Þ. Guðnadóttir
barnabörn og systkini hins látna.
Þökkum auðsýnda samúð og hlýhug við
andlát og útför ástkærrar eiginkonu, móður,
tengdamóður, ömmu og langömmu,
GUÐRÚNAR BRÍETAR TORFADÓTTUR
Krókamýri 78, Garðabæ,
sem lést 26. desember. Sérstakar þakkir
fær Sóley Ingadóttir hjúkrunarfræðingur og
starfsfólks Dynjanda á Ísafold fyrir umhyggju
og hlýhug í hennar garð.
Andrés Ingi Magnússon
Torfi Helgi Leifsson Margrét Sigurðardóttir
Magnús Andrésson Rósa Þórarinsdóttir
Andrés Andrésson Elfa Sif Jónsdóttir
Margrét Sif Andrésdóttir Einar Þór Einarsson
barnabörn og barnabarnabörn.
„Mér hefur alltaf verið heldur vel
við afmælisdaga,“ segir rithöfund-
urinn Jóhanna Kristjónsdóttir sem í
dag fagnar 75 ára afmæli sínu.
Auk þess að fagna sínu eigin
afmæli þá á Fatímusjóðurinn sem
Jóhanna stofnaði árið 2005, líka tíu
ára afmæli í dag. Sjóðinn stofnaði
hún til þess að styðja börn í Jemen til
náms en síðan hefur sjóðurinn komið
að margvíslegum mannúðarverk-
efnum í Miðausturlöndum og Afríku.
Nafn sjóðsins kemur frá unglings-
stúlkunni Fatimu sem Jóhanna
kynntist í Jemen þegar hún vann að
bók sinni Arabíukonur. Fatíma var
þá 14 ára og hafði hætt í skóla vegna
þess ekki voru til peningar til þess
að halda úti skóla í þorpinu sem hún
bjó í og hún þurfti einnig að taka við
lítilli búð sem systir hennar hafði
rekið.
Sjóðinn stofnaði Jóhanna á 65 ára
afmælisdaginn. „Tilefnið var að ég
hafði fengið verðlaun Hagþenkis.
Þau voru ekkert rosalega há en ég
ákvað að nota helminginn af þeim
peningum til þess að stofna sjóð
vegna menntunar stúlkna í Jemen.“
Upphæðin sem hún lagði inn í sjóð-
inn í byrjun var 325 þúsund. Síðan
þá hefur sjóðurinn staðið fyrir fjöl-
mörgum viðburðum og styrkt hundr-
uð barna til náms í Jemen auk þess
að greiða laun kennara og leggja
fram fé til að kaupa tæki og búnað til
skólastarfs. Sjóðurinn hefur einnig
styrkt fullorðinsfræðslu og sauma-
námskeið fyrir konur í Jemen. Síðan
2011 hefur óöld ríkt í Jemen 2011
og skólahald að mestu legið niðri.
Fatimusjóðurinn beindi því kröftum
sínum að fleiri verkefnum í þágu
barna og kvenna í samvinnu við
UNICEF, Rauða krossinn og Hjálp-
arstarf kirkjunnar.
Jóhanna ætlar að afþakka allar
afmælisgjafir en biður þá sem vilja
gefa henni gjöf að styrkja fremur
sjóðinn. „Ég vil ekki fá svo mikið
sem eitt blóm. En ef fólk vill gefa
mér andvirði nokkurra blóma, kon-
fektmola eða einhvers slíks þá lang-
ar mig að biðja fólk frekar að leggja
þá upphæð inn á reikninginn. Öll
framlög skipta máli hversu stór eða
smá þau eru.“
Jóhanna hefur verið á spítala und-
anfarna daga en lætur það ekki aftra
sér frá því að skipuleggja söfnunar-
átak í þágu sýrlenskra flóttabarna
í samvinnu við Unicef. „Nú er ég að
hugsa um að við þurfum endilega
að koma á fót einum skóla eða svo í
flóttamannabúðum Jórdaníu fyrir
sýrlenska flóttakrakka.“
Fyrir þá sem vilja leggja Fatimu-
sjóðnum lið þá er reikningsnúm-
erið: 0512-04-250461 og kennitala:
680808-0580. Nánari upplýsingar um
sjóðinn er að finna á Facebook-síðu
hans. viktoria@frettabladid.is
Afþakkar allar gjafi r
Jóhanna Kristjónsdóttir fagnar í dag 75 ára afmæli sínu og 10 ára afmæli Fatimusjóðsins.
Hún afþakkar allar afmælisgjafi r en biður fólk frekar að styrkja sjóðinn sem hyggst koma
á fót skóla fyrir sýrlensk fl óttabörn í samvinnu við Unicef.
TVÖFALT AFMÆLI
Jóhanna deilir
afmælisdeginum
með Fatimusjóðnum
sem hún stofnaði
á 65 ára afmælisd-
aginn sinn.
FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM
Nú er ég að hugsa um
að við þurfum endilega að
koma á fót einum skóla eða
svo í flóttamannabúðum
Jórdaníu fyrir sýrlenska
flóttakrakka.“ 13
-0
2
-2
0
1
5
2
1
:1
2
F
B
1
1
2
s
_
P
0
9
3
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
1
2
s
_
P
0
8
4
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
1
2
s
_
P
0
2
0
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
1
2
s
_
P
0
2
9
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 1
3
C
F
-C
F
8
4
1
3
C
F
-C
E
4
8
1
3
C
F
-C
D
0
C
1
3
C
F
-C
B
D
0
2
8
0
X
4
0
0
4
B
F
B
1
1
2
s
C
M
Y
K