Fréttablaðið - 14.02.2015, Qupperneq 92
14. febrúar 2015 LAUGARDAGUR| MENNING | 56
Í dag er frumsýnt í Þjóðleikhús-
inu barnaleikritið Kuggur eftir
Sigrúnu Eldjárn, myndlistar-
konu og rithöfund. Sigrún hefur
verið að skrifa og myndskreyta
barnabækur lengi eða allt frá því
að fyrsta bók hennar, Allt í plati,
kom út árið 1980. Síðan þá hefur
Sigrún skrifað og myndskreytt á
fimmta tug barnabóka og er hún
því kynslóðum barna og foreldra
að góðu kunn. Hér er hins vegar
á ferðinni fyrsta leikrit Sigrúnar
sem er orðin spennt fyrir frum-
sýningu dagsins.
„Þetta er óneitanlega rosalega
spennandi en það er frábært fólk
í öllum stöðum, leikarar, leik-
stjóri, hönnuðir og hreinlega
hvar sem er á litið þannig að
ég er óskaplega glöð með þetta
og veit að þetta er allt saman í
góðum höndum.“
Sem höfundur hefur Sigrún
alla tíð fengist við að skrifa og
myndskreyta barnabækur en
eins og hún segir sjálf þá er þessi
nálgun eflaust afleiðing þess að
rætur hennar liggja í myndlist-
inni.
„Ég var búin að vera að mynd-
skreyta bækur í talsverðan tíma
þegar ég ákvað að prófa að skrifa
líka. Ég er einhvern veginn allt-
af að vinna með þetta samspil
mynda og texta. Myndirnar eru
svo stór þáttur í því sem ég geri
að barnabækurnar urðu sjálf-
krafa að mínu formi. Það væri
þó gaman að skrifa einhvern tíma
myndskreytta bók fyrir fullorðna
en það er þó ekkert endilega á
döfinni.“ Sigrún leggur mikla
áherslu á hversu mikilvægt starf
það sé að skrifa fyrir börn.
„Þetta er starf sem skiptir
máli. Það skiptir máli að börn
lesi og það er hlutverk barna-
bókanna að ala upp komandi
kynslóðir lesenda vegna þess að
lestur er mikilvægur. Ég hef hins
vegar aldrei leitast við að hafa
boðskap í mínum verkum, forð-
ast það eiginlega frekar en hitt,
því ég er ekkert fyrir predikan-
ir. Ef það er boðskapur í viðkom-
andi verki þá er það eitthvað sem
gerist bara vegna þess að ég er
meira fyrir sögur, ævintýri og
gleði. Það er það sem ég vil miðla
í mínum verkum. Ég er líka svo
mikið barn í mér og hef eflaust
aldrei vaxið alveg upp úr því.“
- mg
Myndirnar eru svo stór þáttur í því sem ég geri að
barnabækurnar urðu sjálfkrafa að mínu formi.
Meira fyrir ævintýri
en predikanir
Þjóðleikhúsið frumsýnir um helgina nýtt leikrit eft ir Sigrúnu Eldjárn sem
sameinar myndlistina og ritstörfi n í barnabókum sínum.
MIKILVÆGT STARF Það er hlutverk barnabókanna að ala upp kynslóðir lesenda
segir Sigrún Eldjárn, barnabókahöfundur og nú leikskáld. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
Tónleikar hópsins Camerarctica í
Norræna húsinu á morgun klukk-
an 15.15 hefjast á Trio Pathétique
eftir rússneska tónskáldið Mikhael
Glinka sem var uppi á fyrri hluta
nítjándu aldar og er oft nefndur
faðir rússneskrar tónlistar. Því
næst er hressilegt Tríó eftir Nino
Rota sem er hvað þekktastur fyrir
kvikmyndatónlist sína, meðal ann-
ars úr Guðföðurnum, og tónleikun-
um lýkur með hinu þekkta Gassen-
hauer-tríói op. 11 eftir Beethoven.
- gun
Ljóðrænt og litríkt
Camerarctica leikur í Norræna húsinu á morgun.
CAMERARCTICA Tónleikar hópsins
taka um klukkutíma.
Í dag kl. 14 verður efnt til mál-
þings um gildi líffæragjafa í
tengslum við sýningu Siggu Heim-
is hönnuðar og Ella Egilssonar
myndlistarmanns sem nú sýna
glerlistaverk og teikningar af líf-
færum í húsakynnum Hannesar-
holts. Á meðal þátttakenda verða
bæði líffæraþegar og líffæragjaf-
ar og einnig Steinunn Rósa Einars-
dóttir, móðir Skarphéðins Andra
Kristjánssonar, sem lést í janúar
á síðasta ári og varð líffæragjafi
daginn eftir.
Sigga Heimis hönnuður er á
bak við málþingið og hún legg-
ur áherslu á að þetta verði opið
og óformlegt. „Við erum fyrst og
fremst að fara að koma saman og
ræða þessi mál enda brenna þau á
mörgum og það eru allar skoðan-
ir velkomnar. Frændi minn, Sindri
Sindrason sjónvarpsmaður, ætlar
að koma og stjórna umræðunum
og það verða í raun engin fram-
söguerindi.
Ég byrjaði sjálf að hugsa um
þessi mál út frá glerlistinni en
2007 var haft samband við mig frá
Corning Museum of Glass sem er
stærsta glerlistasafn í heimi. Þau
voru að falast eftir hugmyndum
að verkum frá mér og þá æxlaðist
það þannig að ég fór að hugsa um
líkindin á milli glers og líffæra.
Bæði búa yfir þessum eiginleik-
um að geta verið í senn gríðarlega
sterk og ákaflega viðkvæm, allt
eftir því hvernig með þau er farið
og þau eru meðhöndluð. Ég byrjaði
að prófa mig áfram og í framhald-
inu hef ég kynnt mér þetta mikil-
væga málefni sem líffæragjafir
eru og viljað vekja athygli á því
sem víðast.
Ég sýndi þessi verk í Stokkhólmi
fyrir um ári og þeir gáfu mér í
rauninni öll verkin með þeim for-
merkjum að ég má ekki selja þau
áfram. Þau fá því öll að fylgjast að
í heild og það gleður mig.
Mig langaði til þess að sýna
þessi verk hérna heima og vissi af
Ella og því sem hann er að gera.
Það eru afskaplega fallegar mynd-
ir og hann alveg yndislegur. Í
framhaldinu hafði ég samband við
Hannesarholt og þau hafa opnað
dyr sínar fyrir okkur endurgjalds-
laust þar sem við sýnum bæði og
höldum málþingið í dag á sjálfan
Valentínusardaginn. Okkur finnst
fara afskaplega vel á því að vera
með þetta í dag á þessum degi
málefna hjartans – þessa sterka en
viðkvæma líffæris. Að sjálfsögðu
eru allir hjartanlega velkomnir.“
magnus@frettabladid.is
Sýnir hjarta úr gleri og fl eiri líff æri á degi elskenda
Sigga Heimis hönnuður og Elli Egilsson sýna líff æralist og halda málþing um líff æragjafi r í Hannesarholti í dag kl. 14.
VIÐKVÆMNI OG STYRKUR Sigga Heimis hönnuður segir margt líkt með líffærum
og glerverkum. FRÉTTABLAÐIÐ/ANDRI MARINÓ
KUGGUR OG FÉLAGAR Ragnheiður Steindórs dóttir, Gunn ar Hrafn Kristjánsson og Edda
Arnljóts dóttir fara með hlutverkin í fyrsta barnaleikriti Sigrúnar Eldjárn.
Við erum fyrst og
fremst að fara að koma
saman og ræða þessi mál
enda brenna þau á
mörgum og það eru allar
skoðanir velkomnar.
1
3
-0
2
-2
0
1
5
2
1
:1
2
F
B
1
1
2
s
_
P
0
9
2
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
1
2
s
_
P
0
8
5
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
1
2
s
_
P
0
2
1
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
1
2
s
_
P
0
2
8
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 1
3
C
F
-D
E
5
4
1
3
C
F
-D
D
1
8
1
3
C
F
-D
B
D
C
1
3
C
F
-D
A
A
0
2
8
0
X
4
0
0
6
A
F
B
1
1
2
s
C
M
Y
K