Fréttablaðið - 14.02.2015, Qupperneq 102
14. febrúar 2015 LAUGARDAGUR| SPORT | 66
www.rekstrarland.is Mörkinni 4 | 108 Reykjavík | Sími 515 1100Rekstrarland er byggt á fyrrum rekstrarvörudeild Olís og er dótturfyrirtæki Olíuverzlunar Íslands hf.
Samsettir fjáröflunarpakkar eða sérsniðnir eftir óskum hópsins
Öflug fjáröflun
fyrir hópinn
PI
PA
R\
PI
PA
R\
A
R\
PIPI
TB
W
A
•
A
W
A
BWBTBT
•
S
ÍA
•
ÍA
1
43
14
43
14
1
111
Hafðu samband við sérfræðinga okkar í Rekstrarlandi
í síma 515 1100 eða næsta útibú Olís og leitið tilboða.
SPORT
SUND Hafnfirðingurinn Ingibjörg
Kristín Jónsdóttir er á sínu öðru
ári í Arizona State-háskólanum og
finnur sig ekki bara vel í skólan-
um og hitanum í Arizona heldur er
hún einnig farin að bæta sig mikið
í lauginni. Um síðustu helgi synti
hún sig inn á úrslitamót NCAA við
mikinn fögnuð liðsfélaga sinna en
til þess þurfti hún að bæta sinn
besta tíma um hálfa sekúndu.
Ingibjörg Kristín tryggði sér
sætið með því að synda 100 jarda
baksund á 52,96 sekúndum á
„dual“-móti en þar keppa tveir skól-
ar sem keppa hvor á móti öðrum
þar sem sundfólkið safnar stigum.
„Á þessu dual-móti vorum við að
keppa við hinn skólann hérna í Ari-
zona og það er alltaf mikill rígur
á milli okkar svo það var ákveð-
in pressa að standa sig vel,“ segir
Ingibjörg.
„Ég byrjaði á því að synda 50
jarda baksund og vann það og var
aðeins 10/100 frá mínum allra besta
tíma. Eftir 50 jarda baksundið tal-
aði ég við þjálfarana mína og yfir-
þjálfarinn spurði mig hvort ég gæti
byrjað svona hratt í 100 og ég sagði
bara já ég skal gera það. Ég man
lítið eftir sundinu sjálfu en ég man
að eftir fyrsta 50 var ég orðin langt
á undan svo ég vissi að ég var að
fara hratt en ekki hversu hratt,“
segir Ingibjörg.
Sá ekki tímann fyrir sólinni
„Þegar ég snerti bakkann þá urðu
þvílík fagnaðarlæti en tímataflan
er fyrir aftan okkur og út af sólinni
þá sá ég ekki tímann og þurfti að
synda aðeins út í laugina til að sjá.
Þegar ég sá tímann þá fékk ég smá
sjokk, ég bjóst alls ekki við þessu
og vissi eiginlega ekki hvernig ég
átti að haga mér.
Þetta var bæting á mínum besta
tíma um hálfa sekúndu og ég á
eftir að hvíla fyrir stærsta mótið.
Ég var einnig búin að tala við þjálf-
arana um hvað ég þyrfti að synda
hratt til að komast inn á NCAA og
við vorum sammála um að til að
vera örugg þyrfti ég að fara undir
53.00 en í fyrra þurfti 53.20 til að
komast inn. Ég fór á 52.96 svo ég
ætti að vera örugg inn á mótið en
fyrst mun ég keppa á Pac 12 sem er
deildarmeistaramótið, svo tveimur
vikum eftir það fer ég á NCAA,“
segir Ingibjörg sem er búin að gera
betur en í fyrra.
„Í fyrra náði ég ekki inn á NCAA,
ég missti af því með 25/100, svo ég
var ákveðin eftir það að ég myndi
fara á næsta ári sem er að verða
að veruleika. Það er stelpa hérna í
liðinu sem náði heldur ekki inn á
í fyrra með aðeins 21/100 svo við
höfum verið að minna hvor aðra á
hvað markmiðið okkar er dagsdag-
lega ásamt því að við lyftum saman
sem er mjög góð hvatning af því við
höfum sama markmið,“ segir Ingi-
björg.
Allar sundgreinarnar mælast í
jördum en ekki metrum. „Það var
erfitt að venjast jördunum, í fyrra
þegar ég kom vissi ég ekki hvað
tímarnir mínir þýddu. Ég æfði
alltaf í 50 metra laug heima en 25
jardar eru um 22 metrar svo þetta
er skrítið. Núna er þetta orðið
miklu betra, ég er miklu meðvitaðri
um allt, sem hjálpar mjög mikið,“
segir Ingibjörg.
Á hækjum í tvær vikur
Tímabilið byrjaði þó ekki vel hjá
henni. „Í október rann ég á start-
blokkinni á æfingu og þurfti að
vera á hækjum í tvær vikur og
mátti ekki synda neitt. Ég var frá
sundi í þrjár vikur en það fékk mig
til að hugsa mikið um hvað ég elsk-
aði sund mikið og hvað ég vildi gera
í sundinu,“ rifjar Ingibjörg upp.
„Ég fékk að fara á handahjól og
lyfta sitjandi og svo fékk ég að fara
ofan í sundlaugina með fótinn allan
teipaðan en gat ekkert synt. Eftir
að ég gat byrjað að synda var eins
og ég væri ný manneskja,“ segir
hún.
„Við kepptum meðal annars á
móti Kaliforníu sem er eitt besta
liðið í Bandaríkjunum og þar keppti
ég á móti Missy Franklin sem er
margfaldur Ólympíumeistari og
heimsmeistari. Ég keppti á móti
henni í 50 jarda baksundi og vann
hana sem var mjög skemmtileg
reynsla,“ segir Ingibjörg en Missy
Franklin, sem er kölluð eldflaugin
(e. Missy the missile), er nífaldur
heimsmeistari og fjórfaldur Ólymp-
íumeistari. Hún er óumdeild sem
besta baksundkona heims.
„Ég hef tekið hausinn á mér
algerlega í gegn og þjálfa hann
alveg eins og ég þjálfa líkamann
sem skiptir greinilega miklu máli.
Að fá að keppa á NCAA þýðir það
að ég fæ að keppa á móti bestu
sundmönnum í heiminum, þetta er
rosalega sterkt og gott mót og það
mun gefa mér mikla reynslu sem
ég get nýtt mér á heimsmeistara-
mótinu í sumar,“ segir Ingibjörg
sem kann vel við sig í Arizona.
Eins og að lifa í draumi
„Að vera í skóla í Arizona er eins
og að lifa í draumi. Ég get samein-
að háskóla og sund sem væri mjög
erfitt að gera á Íslandi. Aðstaðan
hérna er til fyrirmyndar, ég er með
fjóra sundþjálfara og einn þrek-
þjálfara. Útisundlaug og veðrið er
alltaf gott. Í þessari viku er spáð 28
stiga hita og sól og hitinn fer hækk-
andi. Það er ekki annað en hægt að
vera glöð þegar ég mæti á æfingu,
það er sól úti, 40 aðrir sundmenn
tilbúnir að synda hratt og allir að
keppa hver við annan,“ segir Ingi-
björg. ooj@frettabladid.is
Fljótari en bandaríska eldfl augin
Sundtímabilið byrjaði ekki alltof vel hjá Ingibjörgu Kristínu Jónsdóttur í Arizona í Bandaríkjunum en það lítur út fyrir að það ætli að
enda miklu betur. Vann sund á móti Ólympíumeistaranum Missy Franklin í vetur og er komin inn á úrslitamót NCAA í mars.
BÆTIR SIG Í SÓLINNI Í ARIZONA Ingibjörg
Kristín Jónsdóttir stendur sig mjög vel með
sundliði Arizona State-háskólans og er þegar búin
að tryggja sér þátttökurétt í úrslitamóti bandaríska
háskólasundsins í ár. FRÉTTABLAÐIÐ/AFP
FÓTBOLTI Stefán Gíslason, leik-
maður Breiðabliks og fyrrverandi
landsliðsmaður, hefur ákveðið
að hætta knattspyrnuiðkun eftir
langa baráttu við meiðsli. Stefán,
sem lék sem atvinnumaður með
sjö félögum í fimm löndum, er 34
ára gamall og lék á sínum tíma 32
A-landsleiki yfir sjö ára tímabil.
„Síðasta árið eða svo hef ég í
raun verið stanslaust meiddur,“
sagði Stefán í samtali við Frétta-
blaðið í gær. „Ég hef getað spilað
með en aldrei verið 100 prósent
heill. Ég gat til að mynda lítið æft
síðasta sumar.“
Stefán hefur verið að glíma við
meiðsli í kálfa og aftan í læri og
segir líklegt að þau eigi sér upptök
í mjöðm eða baki. „Það er búið að
skoða þetta í langan tíma og reyna
ýmislegt. Ég hef lagt á mig mikla
vinnu síðan í nóvember til að ná
mér góðum en líkaminn segir
bara stopp. Það er erfitt að ham-
ast í þessu, ekki síst andlega, en
ég hef verið lengi í þessu og nota
líkamann mikið. Þetta er leiðinlegt
og maður hefði viljað enda ferilinn
öðruvísi en síðasta tímabil fór [hjá
Breiðabliki],“ sagði Stefán en Blik-
ar enduðu í sjöunda sæti Pepsi-
deilar karla í haust.
Hann segir það furðulega til-
hugsun að knattspyrnuferlinum
sé lokið en Stefán mun nú snúa sér
að þjálfun. „Ég hef verið að melta
þetta síðan í síðustu viku og til-
finningin er vissulega skrítin. En
ég er ánægður með minn feril.
Ég hef yfirleitt spilað mikið hjá
þeim félögum sem ég hef verið
hjá og spilað með mörgum liðum í
mörgum löndun,“ segir Stefán sem
mun áfram starfa sem þjálfari hjá
Breiðabliki.
„Ég hef verið að taka gráð-
urnar hjá KSÍ og hef starfað í 2.
flokki með þeim Palla [Páli Ein-
arssyni] og Dean [Martin]. Ég er
afar áhugasamur og hef metnað til
að klára að mennta mig í þjálfara-
fræðunum.“ - esá
Hefði kosið annan
endi á ferlinum
Stefán Gíslason hættur vegna þrálátra meiðsla.
Í LANDSLEIK Stefán Gíslason í land-
sleik gegn Hollandi árið 2008. Hann lék
32 landsleiki á ferlinum. FRÉTTABLAÐIÐ/GETTY
1
3
-0
2
-2
0
1
5
2
1
:1
2
F
B
1
1
2
s
_
P
1
0
7
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
1
2
s
_
P
1
0
2
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
1
2
s
_
P
0
0
6
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
1
2
s
_
P
0
1
1
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 1
3
C
F
-D
9
6
4
1
3
C
F
-D
8
2
8
1
3
C
F
-D
6
E
C
1
3
C
F
-D
5
B
0
2
8
0
X
4
0
0
5
B
F
B
1
1
2
s
C
M
Y
K