Læknablaðið - 15.06.2000, Blaðsíða 75
IMOVANE
Virkt innihaldsefni: Zopliclonum 7,5 mg. Zópíklón er svefnlyf sem er efnafræðilega óskylt öðrum svefnlyfjum, en hefur eins og
benzódíazepínsambönd sækni í bindistaði GABA-viðtækja. Imovane verkar innan 30 mínútna, lengir svefntíma og fækkar
and vökum. REM-svefn og djúpur svefn helst við venjulega skammta. Aðgengi lyfsins er 80% við inntöku. Imovane er umbrotið
í lifur, en umbrotsefni eru ekki að fullu þekkt. 5% útskiljast óbreytt í þvagi. Helmingunartími í blóði er 4 - 6 klst. lengri hjá
öldruðum og sjúklingum með skerta lifrarstarfsemi. Ekki hefur verið sýnt fram á þolmyndun varðandi áhrif lyfsins á svefn.
Ábendingar: Tímabundið svefnleysi. Hjálparmeðferð (tímabundin) við langvarandi svefnerfiðleikum. Frábendingar: Alvarleg
lifrarbilun. Varúð: Við skerta lifrarstarfsemi eða vöðvaslensfár svo og hjá öldruðum ber að sýna varúð við notkun lyfsins. Einnig
skal sýna varúð við samtímis gjöf annarra slævandi lyfja eða neyslu áfengis. Meðganga og brjóstagjöf: Reynsla af notkun lyfsins
hjá þunguðum konum er takmörkuð, en dýratilraunir benda ekki til fósturskemmandi áhrifa. Að svo stöddu er ekki mælt með
notkun lyfsins á meðgöngu. Óvíst er hvort lyfið útskilst í brjóstamjólk. Aukaverkanir: U.þ.b. 10% sjúklinga fá einhverjar
aukaverkanir. Algengast er biturt bragð í munni (4%). Algengar (>1%): Biturt bragð í munni. Munnþurkur. Syfja. Sjaldgæfar
(0,1-1%): Höfuðverkur og svimi. Órói. Breytt draumamynstur. Ógleði. Mjög sjaldgæfar (<0,1%): Hræðslutilfinning.
Ofskynjanir. Rugl. Einbeitingarskortur og minnistruflanir. Húðútbrot. Milliverkanir: Bælandi verkun á miðtaugakerfi getur
aukist við samtímis notkun sterkra geðlyfja, svefnlyfja, kvíðastillandi/róandi lyfja, geðdeyfðarlyfja, sterkra verkjalyfja,
flogaveikilyfja, svæfingalyfja og andhistamínlyfja sem hafa slævandi verkun. Áhrif erýtrómýsíns á lyfjahvörf zópíklóns hafa
verið rannsökuð hjá 10 heilbrigðum einstaklingum. Aðgengi (AUC) jókst um 80% þegar erýtrómýsín var til staðar sem bendir til
að erýtrómýsín geti hamlað umbroti lyfja sem umbrotna fyrir tilstilli CYP 3A4. Vegna þessa getur svæfandi verkun zópíklóns
aukist. Skammtastærð: Handa fullorðnum: Venjulegur skammtur er 1 tafla (7,5 mg) 15-30 mínútum fyrir svefn. Engin reynsla er
af notkun lyfsins hjá börnum. Athugið: Vegna ávanahættu er eindregið varað við langvarandi notkun. Vara skal sjúklinga við
akstri bifreiða eða stjórnun annarra vélknúinna tækja vegna minnkaðs viðbragðsflýtis. Einnig ber að vara sjúklinga við
samtímis neyslu áfengis. Pakkningar og hámarksverð (apríl 2000): 10 stk. (þynnupakkað) 329 kr. 30 stk. (þynnupakkað) 839 kr.
100 stk. (þynnupakkað, sjúkrahússpakning) 1.880 kr. Afgreiðslutilhögun: Lyfseðilsskylda. Greiðsluþátttaka: 0. Einkaumboð á
íslandi: Pharmaco hf., Hörgatúni 2, Garðabær.
Heimildir: 1) Kerr JS et al. Human Psychopharmacology, Vol 10,221-229,1995 2)Inman et al. Pharmacoepidemiology and
drug safety, Vol 2,449-5231,1993 3) Styttur texti sérlyfjaskrár 1. apríl 2000.
Ábendingar:
Tímabundið svefnleysi.
Hjálpar-meðferð (tírna-
bundin) við langvarandi
svefnerfiðleikum.
Helmingunartími í blóði er
4-6 klst.3> - litlar líkur á að
vakna offljótt.
♦> Imovane® verkar
fljóttm
♦> Imovane lengir svefn-
tíma ogfækkar
andvökum - REM-
svefn og djúpur svefn
helst við venjulega
skammtam
♦> I rannsóknum hefur
livorki verið sýutfram
á þolmynduti né