Læknablaðið - 15.06.2000, Blaðsíða 45
SMASJAIN
Ritnefnd og aðrir aðstandendur ritsins Lœknar á íslandi, talið frá vinstri: Sigurbjörn Sveinsson, Örn
Bjarnason, Gunnlaugur Haraldsson, Páll Bragi Kristjónsson, Ásdts Rafnar og Hafsteinn Sœmunds-
Læknar á Islandi
Nýtt Læknatal komið út
Á AÐALFUNDI LÍ FYRIR SEX ÁRUM VAR
samþykkt að ráðast í nýja útgáfu af ritinu
Læknar á íslandi. hina fjórðu, og hefur
verkið nú séð dagsins ljós. Fyrsta útgáfan
kom út árið 1944, unnin af Vilmundi Jóns-
syni landlækni og Lárusi H. Blöndal bóka-
verði. Ritstjóri hins nýja Læknatals er
Gunnlaugur Haraldsson þjóðháttafræðing-
ur, en Bókaútgáfan Þjóðsaga annaðist út-
gáfuna. í ritnefnd sátu af hálfu LÍ læknarnir
Hafsteinn Sæmundsson, Sigurbjörn Björns-
son og Örn Bjarnason.
Læknatalið nýja er mikið að vöxtum, í
þremur bindum alls 1725 síður. Þar er að
finna æviskrár 2022 lækna sem starfað
hafa og/eða numið læknisfræði á íslandi
frá miðri 17. öld til ársins 2000.
I tilefni útgáfu ritsins bauð stjórn LÍ til
samsætis í húsakynnum sínum þann 28.
aprfl síðstliðinn, en það var formlegur út-
gáfudagur ritsins. Formaður LÍ Sigur-
björn Sveinsson bauð gesti velkomna,
ekki síst heiðursgesti sem voru læknarnir
Baldur Johnsen, Erlingur Þorsteinsson,
Friðrik Einarsson og Sigurður Samúels-
son en þeirra hefur verið getið í öllum
Læknatölum sem út hafa verið gefin.
Formaður rakti í grófum dráttum þá
vinnu sem liggur að baki útgáfunni og
þakkað öllum þeim sem lögðu hönd á
plóginn: ritnefnd, ritstjóra, starfsmönnum
Þjóðsögu, fyrrverandi og núverandi
framkvæmdastjóra LÍ og læknunum
Hannesi Finnbogasyni, Tryggva Þor-
steinssyni, Sigmundi Magnússyni og
Árna Björnssyni sem af mikilli óeigin-
girni prófarkarlásu allt verkið. í ávarpi
sínu sagði Sigurbjörn meðal annars: „í
dag fáum við í hendur æviágrip og ættir
hundruða lækna, sem lagt hafa læknislist-
inni lið á íslandi á umliðnum öldum. Öll
gerum við okkur grein fyrir að hér er ein-
ungis að finna ramma um líf, ytri ásýnd
þess, sem gerst hefur. Að baki hverju
nafni býr yfirleitt mikil og flókin saga eins
og verða vill í lífinu yfirleitt. Að baki eru
örlög, sigrar og ósigrar í önn hversdags-
ins. í þessi örlög fléttast og saga ástvina
læknanna og allra þeirra annarra, sem
gerðu þeim kleift að leggja stund á lækn-
ingarnar. Sumpart má finna heimildir um
það annars staðar en í flestum tilfellum er
líf þessa fólks óskrifuð saga, sem tíminn
einn geymir.“
Heiðursgestunum voru afhent fyrstu
eintökin af ritinu og síðan öðrum þeim
sem að framan er getið.
Læknar á íslandi er til sölu hjá Þjóð-
sögu í Húsi verslunarinnar, s. 511 1777 og
kostar kr. 26.900. Einnig mun verkið fást
í einhverjum öðrum bókaverslunum.
-bþ
Bæklingur um heilsufar
kvenna
■ Heilbrigðis- og tryggingamála-
ráðuneytið hefur gefið út bækling urn
heilsufar kvenna. Efni bæklingsins er
álit nefndar sem skipuð var vorið 1995
til að kanna breytingar á heilsufari
kvenna og gera tillögur um úrbætur.
I ávarpi ráðherra sem birt er í
bæklingnum segir að nefndin hafi
komist að þeirri niðurstöðu „að vís-
bendingar séu um að konur búi að
nokkru leyti við lakara heilsufar en
karlar". Jafnframt bendir nefndin á
að konur noti heilbrigðisþjónustu
meira en karlar, séu sendar í fleiri
rannsóknir, séu oftar sjúkdóms-
greindar og settar í meðferð auk
þess sem þær fái meira af lyfjum en
karlar. Sfðan segir í ávarpi ráð-
herra:
„Athyglisvert er að nefndin tel-
ur að margt bendi til þess að úr-
lausnir sem konur fái séu ekki sam-
bærilegar við þær úrlausnir sem
karlar fá og fyrir liggur að konur
leita á ríkara mæli en karlar eftir
óhefðbundnum lækningaaðferðum.
Nefndin leggur mikla áherslu á
hlutverk heilsugæslunnar og leggur
til að unnið verði að því að veita
þar fjölbreyttari þjónustu m.a. með
því að ráða starfsmenn úr fleiri
heilbrigðisstéttum og að aukin
áhersla verði lögð á teymisvinnu.
Þess utan er lagt til að nám heil-
brigðisstétta verði endurskoðað
með tilliti til kynjamunar. Bent er
sérstaklega á heimilisofbeldi og
stöðu nýbúakvenna, reykingar, at-
vinnusjúkdóma, geðræn vandamál
og áfengismeðferð þar sem taka
þurfi í auknum mæli tillit til þarfa
kvenna. ... Fjölmörg atriði í tillög-
unum byggjast á breyttu hugarfari
okkar allra og heilbrigðisstétta,
nýrri nálgun, aukinni samvinnu,
breyttri forgangsröðun og aukinni
áherslu á forvarnir..."
Bæklingurinn er 36 blaðsíður í
stærðinni A4. Hann er hægt að
nálgast í ráðuneytinu og á heima-
síðu þess en slóðin þangað er
www.stjr.is/htr
Læknablaðið 2000/86 443