Læknablaðið - 15.06.2001, Blaðsíða 33
FRÆÐIGREINAR / VIÐ RUMSTOKKINN I
Fimmtíu og fímm ára kona með sögu um
risafrumuæðabólgu í átta mánuði og nú vaxandi
kyngingarörðugleika og heilataugalömun
Brynjar Viðarsson,
Kjartan B. Örvar,
Eyþór
Björgvinsson,
BjarniA.
Agnarsson,
Friðbjörn
Sigurðsson
Fundur á Hótel
Loftleiðum 6. janúar
2001 á vegum
Fræðslustofnunar
lækna.
GlaxoSmithKline
eru færðar þakkir
fyrir að gera þennan
fund mögulegan.
Umsjón
Arnór Víkingsson,
Ásbjörn Sigfússon,
Jón Gunnlaugur
Jónasson,
Kjartan B. Örvar,
Óskar Einarsson
Kynning sjúkratilfellis
Kjartan B. Örvar St. Jósepsspítala Hafnarfirði:
Fimmtíu og fimm ára kona með þekkta risafrumu-
æðabólgu (temporal arteritis, TA) er lögð inn. Konan
hefur 10 daga sögu um hálssærindi, hita, hósta með
slímuppgangi, hæsi og vaxandi kyngingarerfiðleika.
Atta mánuðum fyrr var hún lögð inn á annað
sjúkrahús með tveggja mánaða sögu um almenna
vanlíðan, lystarleysi, ógleði, kviðverki og niðurgang.
Hún hafði þá lést á stuttum tíma um 5 kg og kennt
nætursvita í tvær til þrjár vikur. Hún fann fyrir verk í
mjóbaki, hægri mjöðm og herðum og var með slæman
höfuðverk hægra megin. Hún hafði fyrri sögu um
höfuðkúpu- og kinnbeinsbrot eftir bflslys 1969 og
brjósklosaðgerð 1982. Hún var nýhætt að reykja eftir
40 ára reykingar. Lyf við komu: Spasmerin og
Estrofem Forte.
Skoðun þá: Blóðþrýstingur 120/70, púls 90 og hiti
38° C. Engar eitlastækkanir, kviður mjúkur og án
líffærastækkana, en dreifð eymsli. Vöðvar á hálsi og
við hrygg aumir við þreifingu. Niðurstaða helstu
blóðrannsókna sjást í töflu I. Blóðsökk var gríðarlega
hátt, 125 mm/klukkustund. Rafdráttur prótína sýndi
fjölstofna (policlonal) IgA hækkun. Aðrar blóð-
rannsóknir, (blóðsölt, blóðsykur, lifrarpróf, ANCA
(Anti Neutrophilic Cytoplasmic antigen Antibody)),
hjarta- og lungnamynd, beinaskann og tölvusneið-
mynd af kviði sýndu ekkert óeðlilegt nema blöðrur í
lifur 0,5-1,5 cm í þvermál. Sýni frá gagnaugaslagæð
var dæmigert fyrir risafrumuæðabólgu með bólgu-
frumuíferð, bólguhnúðum (granuloma) og fjölda
margkjarna risafrumna.
Sjúklingur var því talinn hafa risafrumuæðabólgu
sem gæti útskýrt öll einkennin væga lifrarbólgu og
nýrnagauklabólgu og hafin
var meðferð með predni-
sólóni.
Einum mánuði síðar er
líðan sjúklings mun betri og
blóðrannsóknir hafa lagast, en
þremur mánuðum síðar, þá á
10 mg af prednisólóni, kennir
sjúklingur aukins nætursvita
og versnandi höfuðverks.
Blóðsökk, sem hafði lækkað
verulega, var nú 44 mm/-
klukkustund og prednisólón-
skammturinn því aukinn í 20
mg á dag. Mánuði fyrir núverandi innlögn höfðu
ógleði, kviðverkir og niðurgangur byrjað aftur. Þá
kom sjúklingur á göngudeild þar sem skoðun var
eðlileg utan dreifðra eymsla um allt kviðarhol. Lyf þá,
prednisólón 20 mg á dag, Losec 20 mg á dag og
Estrofem Forte auk HUSK trefjadufts. Niðurstaða
helstu blóðrannsókna þá sjást í töflu I.
Speglun af efri hluta meltingarvegar sýndi þindar-
slit og væga vélindabólgu og við ristilspeglun voru
ofvaxtar- (hyperplastic) separ fjarlægðir. Við útskrift
var sjúklingur talinn hafa, auk risafrumuæðabólgu,
iðraólgu og ef til vill vægan bakflæðissjúkdóm.
Tíu dögum fyrir núverandi innlögn fékk sjúklingur
hálssærindi, hæsi og hósta með slímuppgangi og hita.
I fyrstu greint sem hálsbólga en síðar lungnabólga
þegar lungamynd sýndi íferð. Sjúklingur fékk
amoxicillín, en þrátt fyrir þá meðferð var konan með
viðvarandi hálsbólgueinkenni. Rétt fyrir innlögn fór
að bera á kyngingarerfiðleikum, fyrst á fasta fæðu en
síðar átti sjúklingur einnig erfit með að kyngja vökva.
Þegar konan leggst inn nú er hún hitalaus, blóð-
þrýstingur 150/70, púls 90. Rödd mjög hás en ekki
þurr. Það þreifast engar eitlastækkanir. Sjúklingur er
með greinilega lömun hægra megin í koki og lamað
hægra raddband. Þegar sjúkingur kyngir vatni kemur
það samstundis út um nef. Skoðun að öðru leyti
eðlileg nema áfram eymsli í kviði. Niðurstaða helstu
blóðrannsókna má sjá á töflu I. Auk þess er
afbrigðilegum (atypical) eitilfrumum lýst í blóðstroki
og prótínrafdráttur sýnir hækkun á IgA, 21,6 gr/L.
Vélindaþrýstingsmæling sýnir lækkaðan efri hring-
vöðvaþrýsting og minnkaðan vöðvasamdrátt í
þverrákótta hluta vélinda. Á hjarta- og lungnamynd
Tafla 1. Niðurstöður helstu btóðrannsókna frá upphafi veikinda (átta mánuðum frá núverandi innlögn).
Átta mánuöum fyrir innlögn Sjö mánuóum fyrir innlögn Einum mánuöi fýrir innlögn Núverandi innlögn
Blóðrauði 99 145 155 148
Hvít blóðkorn 12300 10600 11400 9700
Sökk 125 8 35 56
Alkalískur fosfatasi 616 196 135 114
GGT 236 58 34 49
LDH 440 768
Albúmín 28 36
Haptóglóbín 6,85 0,92
CRP 268 <6
IgA 5,64 21,6
Þvagskoðun 25-50 rbk. 2-5 rbk
Læknablaðið 2001/87 533